Morgunblaðið - 15.12.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.12.2017, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 5. D E S E M B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  295. tölublað  105. árgangur  ÁKVAÐ AÐ HAFA ÁST FREKAR EN REIÐI GLÚRIN OG LJÚFSÁR SÝNING ÁHRIFARÍK OG HÁTÍÐLEG TÓNLIST VIÐ KERTALJÓS SOL ★★★★ 39 SÍGILD JÓL 36ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR 12 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöld að rík- isstjórnin myndi kappkosta að skila betra búi en hún tók við í heilbrigðisþjónustu, löggæslu, húsnæðismálum, samgöngum og fleiri innvið- um. Sagði Katrín að ríkisstjórnin legði áherslu á að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga, bæta geðheilbrigðisþjónustu og forvarnir og byggja upp hjúkrunarrými. Hún boðaði stórsókn í menntamálum og sagði að fjárframlög til há- skóla myndu ná meðaltali OECD-ríkjanna árið 2020 og stefnt yrði á að þau næðu meðaltali Norðurlanda fyrir árið 2025. Iðnnám, verk- og starfsnám yrði eflt og rekstur framhaldsskól- anna styrktur. Katrín ræddi um ríkisstjórnarsamstarfið og málamiðlanir flokkanna. „Markmið þessarar ríkisstjórnar er fyrst og fremst að koma til móts við ákall almennings um að sú hagsæld sem hér hefur verið á undanförnum árum skili sér í ríkari mæli til samfélagsins,“ sagði hún. „Sáttmáli ríkisstjórnarinnar fjallar um leiðir til að ná fram félagslegum, efnahagslegum og pólitískum stöðugleika sem tryggir góð lífskjör til framtíðar fyrir venjulegt fólk.“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinn- ar, gagnrýndi Katrínu fyrir að gefa eftir í bar- áttunni gegn ójöfnuði og sagði stjórnina á rangri leið: „Þau eru fullkomlega samstiga í varðstöðu um sérhagsmuni og afturhald í mál- um sem þarfnast umbóta: Um ónýtan gjald- miðil, háa vexti, óréttlæti í sjávarútvegi, einok- un í landbúnaði og úrelta stjórnarskrá.“ Tryggi góð lífskjör Morgunblaðið/Eggert Þingsetning Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Agnes M. Sigurðardóttir biskup ganga til guðsþjónustu. Að baki ganga þingforseti og ráðherrar.  Katrín Jakobsdóttir segir sáttmála ríkisstjórnarinnar tryggja lífskjör venjulegs fólks  Boðar sókn í menntamálum  Formaður Samfylkingar gagnrýnir Katrínu MBoða sterka innviði og hagsæld »2 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Laun hinna ýmsu hópa sem starfa hjá ríkinu hafa hækkað um 1,4% til 6,3% í ár. Laun félagsmanna hjá ASÍ hækkuðu hlutfallslega mest, eða um tæplega 30 þúsund krónur. Þetta má lesa úr nýjum launa- tölum á vef Stjórnarráðsins. Heildarlaun félagsmanna hjá ASÍ voru að meðaltali rúmar 469 þúsund fyrstu níu mánuði ársins, borið sam- an við rúmar 441 þúsund krónur að meðaltali á mánuði í fyrra. Félagsmenn í Skurðlæknafélagi Íslands hafa hæstu meðallaunin hjá hinu opinbera, tæpar 2 milljónir. Heildarlaun þeirra hafa hækkað um 434 þúsund á mánuði síðan 2014. Þá hafa laun lækna hækkað um 300 þúsund á mánuði frá 2014 og eru launin nú að meðaltali 1.495 þúsund. Þá eru meðallaun hjúkrunarfræð- inga orðin tæplega 787 þúsund, eða um 42 þúsund kr. hærri en í fyrra. Kjararáð veitti mesta hækkun Laun hópa ríkisstarfsmanna hafa hækkað um 19,2% til 30,1% frá 2014. Hækkunin er mest hjá þeim sem heyra undir kjararáð. Heildarlaun þeirra voru að meðaltali 1.150 þús- und fyrstu níu mánuði ársins. Hækkunin var hins vegar hlut- fallslega minnst hjá Stéttarfélagi verkfræðinga eða 19,2%. Meðallaun þeirra eru nú 828 þúsund. »6 Dæmi um launa- hækkanir í ár Kjararáð Hjúkr- unarfr. BSRB ASÍ 4,9% 5,7% 6,3%6,1% Heimild: stjornarradid.is, útreikningar eru blaðsins Launaskriðið heldur áfram  Laun hjá ríkinu hafa hækkað um allt að 6,3% á árinu Á síðasta áratug hefur starfsfólki í bönkum og sparisjóðum fækkað um tæplega 1.500 og bankaútibúum fækkað um rúmlega 60. Þessar upp- lýsingar koma fram í blaði Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Af þeim eru 1.500 sem horfið hafa til annarra starfa, það eru 35% starfs- manna í bankakerfinu, og eru kon- urnar um 1.100, skv. upplýsingum Friðberts Traustasonar, formanns SSF. Í árslok 2008 voru 146 útibú viðskiptabanka starfrækt, en eru nú 84. Undanfarin sex ár hefur útibúum á höfuðborgarsvæðinu fækkað úr 37 í 21. Frá 2008 hefur útibúum á lands- byggðinni fækkað úr 99 í 63. »10 Samsett mynd/Eggert Bankar Starfsumhverfið breytist, sem leiðir af sér fækkun starfsfólks. Starfsfólki bankanna fækkar hratt  60 útibúum lokað  Framlög til heilbrigðismála og menntamála aukast á næsta ári samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi, samanborið við fjárlög yfirstand- andi árs. Þá verður einnig meira fé varið í samgöngu- og fjarskiptamál á næsta ári en á þessu. Atvinnuleysis- bætur og bætur almannatrygginga hækka um 4,7% um áramót eða um rúmar 10 þúsund kr. »4 Meira fé í heilbrigð- is- og menntamál S T Y R K TA R F É L A G L AMAÐ R A O G FAT L A Ð R A RU G- H & B Õ Ö G Â Sölutímabil 6. – 20. desember Pottaskefill kemur í kvöld 9 jolamjolk.is dagar til jóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.