Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 6

Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 6
Launaþróun hjá hinu opinbera janúar 2014 til september 2017 Breyting á launum 2014-2017 Breyting á launum 2016-2017 Breyting á vísitölu neysluverðs á tímabilinu** Meðaltal 2014 Meðaltal 2016 Meðaltal 2017* Breyting frá 2014 Breyting frá 2016 Kjararáð 883.983 1.096.163 1.150.356 30,1% 4,9% Kennarafélag Íslands 550.964 700.994 715.599 29,9% 2,1% Skurðlæknafélag Íslands 1.563.698 1.963.388 1.998.188 27,8% 1,8% Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 624.134 744.518 786.991 26,1% 5,7% Læknafélag Íslands 1.194.918 1.473.830 1.494.894 25,1% 1,4% ASÍ - án mótframlags 376.502 441.414 469.283 24,6% 6,3% BSRB 447.982 523.953 556.029 24,1% 6,1% Starfsmannaf. Sinfóníuhljómsv. Ísl. 450.626 533.369 554.073 23,0% 3,9% BHM 577.362 680.308 704.404 22,0% 3,5% Kjarafélag Tæknifræðingafélags Ísl. 670.812 785.154 817.023 21,8% 4,1% Stéttarfélag verkfræðinga 694.131 809.659 827.730 19,2% 2,2% *Janúar til og með sept. 2017. **Meðaltal vísitölunnar 2014 og 2016 borið saman við sept. 2017. Heimild: Vefur stjórnarráðsins. 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 0% 5% 5,6% 1,4% Baldur Arnarson baldura@mbl.is Félagsmenn í Skurðlæknafélagi Ís- lands höfðu að meðaltali 1.998 þús- und krónur í mánaðarlaun fyrstu níu mánuði ársins. Til samanburðar voru meðallaunin 1.495 þúsund krónur hjá félögum í Læknafélagi Íslands. Þetta kemur fram í nýbirtum töl- um á vef Stjórnarráðsins. Þar eru birtar upplýsingar um laun ríkisstarfsmanna eftir stéttar- félögum í heildarsamtökum og stéttarfélögum utan bandalaga. Á vef Stjórnarráðsins segir að aðeins séu birtar upplýsingar um hópa sem hafa að lágmarki 20 stöðugildi í dag- vinnu á viðkomandi launatímabili. Þeir sem heyra undir kjararáð voru með þriðju hæstu meðallaunin fyrstu níu mánuði ársins, eða 1.150 þúsund. Félagsmenn í Stéttarfélagi verkfræðinga voru með 828 þúsund að meðaltali í laun og tæknifræðing- ar 817 þúsund. Sjöttu í röðinni voru hjúkrunarfræðingar með 787 þús. í meðallaun fyrstu níu mánuði ársins. Mesta hækkunin hjá kjararáði Félagsmenn í kjararáði hafa fengið hlutfallslega mestar launa- hækkanir. Laun þeirra voru 30,1% hærri að meðaltali fyrstu níu mánuði ársins en að meðaltali 2014. Skammt á hæla þeirra koma fé- lagsmenn í Kennarasambandi Ís- lands. Þar er hækkunin 29,9% frá 2014. Hjúkrunarfræðingar fengu 26,1% launahækkun og skurðlæknar og læknar hafa fengið 27,8% og 25,1% launahækkun frá 2014. Skal tekið fram að hér er miðað við nafn- laun. Séu meðallaunin fyrstu níu mán- uði ársins borin saman við meðal- launin í fyrra kemur í ljós að fé- lagsmenn í ASÍ hafa fengið mesta hlutfallslega hækkun, eða 6,3%. Mið- að er við laun án mótframlags. Næstir koma félagsmenn í Banda- lagi starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) með 6,1% hækkun frá því í fyrra. Svo koma hjúkrunarfræðing- ar með 5,7% launahækkun milli ára. Við þennan samanburð er vert að hafa í huga að meðallaun einstakra hópa geta sveiflast eftir mánuðum. Því kann að vera best að bera saman launin þegar árið er liðið. Til dæmis höfðu félagsmenn í Læknafélagi Ís- lands að meðaltali 1.640 þúsund í laun að meðaltali í apríl á þessu ári en 1.375 þúsund í júlí. Þá höfðu fé- lagsmenn hjá ASÍ að meðaltali 492 þúsund í laun í apríl en 461 þús. í júlí. Nokkur munur á hópunum Fram hefur komið að hinir ýmsu hópar launamanna hafa horft til kjararáðs varðandi hlutfallslega hækkun launa. Má í því efni rifja upp að dæmi eru um að þeir sem heyra undir kjararáð hafi fengið afturvirk- ar launahækkanir. Einfaldur saman- burður á þróun nafnlauna veitir að- eins vísbendingu um þróunina. Verðlag hækkaði um 5,6% frá meðaltali vísitölunnar 2014 til sept- ember 2017. Nafnlaunahækkanir um 20-30% frá meðallaunum 2014 hafa því aukið kaupmátt margra hópa verulega á tímum sögulegs verð- stöðugleika á Íslandi. Laun hjá ríkinu enn á uppleið  Laun ríkisstarfsmanna hafa hækkað um allt að 6,3% á árinu  Meðallaun skurðlækna nú 2 milljónir Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Laun hjúkrunarfræðinga hafa hækkað síðustu misserin. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Kvikmyndinni mun örugglega fylgja aukinn ferðamannastraumur og sannarlega verður Jennifer Lawrence tekið fagnandi ef hún birtist hér í Húnaþingi,“ segir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveit- arstjóri Húnaþings vestra. Í vik- unni var greint frá því að banda- ríska leikkonan Jennifer Lawrence, sú hæst launaða í Holly- wood, muni fara með hlutverk Agnesar Magnúsdóttur í kvik- myndinni Burial Rites. Leikstjóri myndarinnar verður Luca Guadagnino, en myndin byggist á samnefndri bók ástralska rithöfundarins Hönnuh Kent frá árinu 2013. Bókin fjallar um líf Agnesar Magnúsdóttur, sem tekin var af lífi við Þrístapa í Vatnsdals- hólum árið 1830. Bókin kom út í ís- lenskri þýðingu árið 2014 undir heitinu Náðarstund. Komið á góðan rekspöl Guðný segir að þekkt sé að þeg- ar bækur um einstaka sögulega at- burði hafi verið kvikmyndaðar hafi fjöldi ferðamanna aukist í kjölfarið. „Ég hef trú á því að við eigum von á miklum fjölda ferðamanna til að skoða þær aðstæður sem bókin byggist á, hvort sem myndin verð- ur tekin upp hér eða annars staðar. Við höfum vitað af einhverjum hug- myndum um þetta verkefni í 2-3 ár því þá kom hingað fólk að vetri til og skoðaði aðstæður. Nú er þetta greinilega komið á góðan rekspöl og það eru stórkostlegar fréttir.“ Hún segir að ekki fari á milli mála að ferðamannastraumur hafi aukist síðan bókin kom út. Fólk komi úr flestum heimshornum, en enskumælandi fólk og Þjóðverjar hafi verið áberandi. Þá hafi Íslend- ingum einnig fjölgað frá útkomu Náðarstundar á íslensku. Með Náðarstundarkort Margir ferðamannanna verði sér út um sérstakt Náðarstundarkort af söguslóðum þar sem greint er frá staðháttum og örnefnum, en sögusviðið sé bæði í Húnaþingi vestra og Húnavatnshreppi. Þá er í vinnslu sérstakt app þar sem hægt er að fræðast um þessa sögu og ýmsar perlur á svæðinu, en kortið og appið eru samstarfsverkefni ferðamálafélaga í sveitarfélög- unum. Guðný segir að mikill ferða- mannastraumur sé um sex mánuði á ári yfir sumartímann. Að vetr- inum hafi hann einnig aukist og víða sé boðið upp á þjónustu allt ár- ið. Hún nefnir gamla skólann á Laugarbakka í Miðfirði, þar sem nú er 56 herbergja heils árs hótel með aðstöðu fyrir ráðstefnur. Myndinni mun fylgja auk- inn ferðamannastraumur  Jennifer Lawrence verður sannarlega tekið fagnandi Guðný Hrund Karlsdóttir Jennifer Lawrence Stjórn Klakka ákvað í gær að mæla með því við hluthafa félagsins að fyrirhugaðar kaupaukagreiðslur, sem samþykkar voru á hluthafafundi síðastliðinn mánudag, verði dregnar til baka. Ástæðan er hörð viðbrögð sem greiðslurnar hafa vakið hjá al- menningi, fulltrúum verkalýðshreyf- ingarinnar og fleirum. Stjórnin segist í yfirlýsingu hafa hlýtt á athugasemdir sem fram hafi komið vegna þessa máls og telji að óhjákvæmilegt sé að bregðast við til að skapa traust, enda sé það grund- völlur allra viðskipta. Stærsta eign Klakka er Lykill, sem hefur verið umsvifamikill í fjár- mögnun bifreiða og atvinnutækja hér á landi á síðustu árum. Fyrir lá samþykkt um að stjórnendur fyrir- tækisins gætu fengið kaupauka sem næmi hundruðum milljóna króna, þó svo engin ákveðin upphæð hafi verið ákveðin. Í yfirlýsingu Klakka í gær segir að með þessari ákvörðun vilji stjórnin stuðla að því að friður ríki um Lykil og starfsemi fyrirtæksins, því þannig megi hámarka virði fé- lagsins í þágu allra hluthafa. sbs@mbl.is Kaupaukagreiðslur verði teknar til baka  Viðbragð skapi traust í viðskiptum Af Vísindavef Háskóla Íslands: Síðasta aftakan fór fram í Vatnsdalshólum í Húnavatns- sýslu 12. janúar 1830. Þá voru tekin af lífi Agnes Magnús- dóttir, vinnukona á Illuga- stöðum, og Friðrik Sigurðsson, bóndasonur frá Katadal. Þau höfðu verið dæmd til dauða fyrir morð á tveimur mönnum aðfaranótt 14. mars 1828, Nat- ans Ketilssonar, bónda á Illuga- stöðum, og Péturs Jónssonar frá Geitaskarði. Síðasta aftak- an á Íslandi VATNSDALSHÓLAR Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þrístapar Upplýsingaskilti um síðustu aftökuna á Íslandi. Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.