Morgunblaðið - 15.12.2017, Síða 21

Morgunblaðið - 15.12.2017, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017 Frelsari „Jesús Kristur“ mætti í opnun Jólatorgsins í Hjartagarði við Laugaveg í Reykjavík í gær. Heilsaði þar upp á gesti og gangandi og kynnti sér svo jólatorgið þar sem fjölbreytnin er ráðandi: veitingar, skreytingar og ristaðar möndlur – og svo tónlist sem skapar góða stemningu. Hari Alþjóðasamtök um útrýmingu kjarna- vopna (ICAN) hlutu friðarverðlaun Nóbels í ár og voru þau afhent í ráðhúsinu í Osló sunnu- daginn 10. desember. Þetta er árleg, hátíðleg athöfn sem sótt er af norskum fyrirmennum og öðrum gestum. Nób- elsverðlaunahafinn eða fulltrúi hans flytur ræðu og að þessu sinni kom það í hlut Beatrice Fihn, formanns ICAN, að gera það. Í fréttum af athöfninni og ræðunni var þess getið í norrænum blöðum að Erna Solberg, forsætisráðherra Nor- egs, hefði ekki klappað Fihn lof í lófa jafnoft og aðrir áheyrendur í hátíð- arsal ráðhússins. Í ræðunni sagði hún meðal annars: „Karlar ekki konur smíðuðu kjarn- orkuvopn til að hafa stjórn á öðrum, en þess í stað tóku þau að stjórna þeim. […] Við þjóðirnar sem telja sig njóta verndar kjarnorkuhlífarinnar segi ég: Stuðningur ykkar við kjarn- orkuveldin dregur ekki úr sam- ábyrgð ykkar á eyðileggingu á öðrum í ykkar nafni.“ Ágreiningur um leiðir Beatrice Fihn hitti Solberg í morg- unverði í ráðherrabústað Norð- manna mánudaginn 11. desember og þá spurðu blaðamenn hana hvað henni þætti um að ræða við forsætis- ráðherra sem hefði ekki hyllt hana með lófataki eins og aðrir sem hlustuðu á ræðu hennar. Fihn svaraði að hún hefði ekki tek- ið eftir „hjásetu“ forsætisráðherrans í lófatakinu. Hún hefði einfaldlega fundið mikla hlýju frá salnum. Erna Solberg sagði að hún hefði látið hjá líða að klappa fyrir tveimur atriðum í ræðu Fihn. Þetta hefði hún gert af því að hún væri ósammála Fihn um þessi atriði. „Ég tel að ekki sé rétt að klappa hvað eftir annað á með- an ræða er flutt því að það þýðir að maður er að öllu leyti sammála. Mér fannst þetta því heiðarleg aðferð,“ sagði Sol- berg. Hún áréttaði að Norðmenn væru sammála markmiðinu um kjarn- orkuvopnalausan heim en uppi væru ólík sjónarmið um hvernig því mætti ná. Hér væri um að ræða langtíma markmið sem næðist ekki nema með samvinnu milli kjarnorkuveldanna og ríkja sem ekki ráða yfir kjarn- orkuvopnum. Norðmenn styðja ekki kröfu ICAN um að öll lönd verði aðilar að sáttmála Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum sem sam- þykktur var í sumar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna með atkvæðum 122 ríkja. Norska ríkisstjórnin telur að alþjóðasamningurinn sé lítils virði því að niðurstaða fáist ekki í þessu máli nema um sé að ræða gagn- kvæma samninga milli kjarn- orkuveldanna sjálfra. Í samtalinu við Fihn nefndi Erna Solberg að staðan í Norður-Kóreu drægi nú sérstaka athygli að kjarn- orkuvopnum, sem aðildarþjóð NATO gætu Norðmenn ekki gerst aðilar að sáttmála sem veikti bandalagið. Beatrice Fihn lagði áherslu á að Norðmenn hefðu forystuhlutverki að gegna í baráttunni gegn kjarn- orkuvopnum og þeir væru stórþjóð þegar kæmi að mannúðarmálum. „Við höfum unnið náið með norsk- um yfirvöldum frá því árið 2013 þeg- ar þau skipulögðu Osló-ráðstefnuna um afleiðingar af kjarnorkuvopnum fyrir mannlegt líf og teljum að við getum unnið áfram með þeim að markmiðinu um kjarnorkuvopna- lausan heim,“ sagði Fihn og hét að þrýsta áfram á norsk stjórnvöld í von um að þau samþykktu sáttmála SÞ. Þrýst á Ísland ICAN-samtökin ætla ekki aðeins að þrýsta á norsk stjórnvöld eftir að þau hafa fengið friðarverðlaun Nób- els heldur sækja þau fram víðar til að vinna að framgangi ályktunar SÞ. Mánudaginn 11. desember sendi Alþjóðamálastofnun HÍ frá sér til- kynningu um opinn fund á vegum Höfða friðarseturs, Samtaka hern- aðarandstæðinga, Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna og Róttæka sumarháskólans undir fyr- irsögninni: Kjarnorkuvopn: Er Ís- land með eða á móti? Þar sagði: „Þann 7. júlí síðastliðinn greiddu 122 þjóðir atkvæði með samningi Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum. Ísland var ekki í þeim hópi. Þess í stað skipaði það sér í flokk NATO-ríkja sem sniðgengu undirbúningsviðræðurnar í þeirri trú að bandarísk kjarnorkuvopn geti tryggt heimsfrið. Ray Acheson og Tim Wright frá alþjóðasamtökunum um útrýmingu kjarnavopna (ICAN) munu ræða hinn nýja alþjóðasátt- mála og færa rök fyrir því hvers vegna Ísland ætti að styðja hann. IC- AN-samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2017 fyrir störf sín.“ Þarna stingur ein setning í stúf við annað: „ Þess í stað skipaði það [Ís- land] sér í flokk NATO-ríkja sem sniðgengu undirbúningsviðræðurnar í þeirri trú að bandarísk kjarn- orkuvopn geti tryggt heimsfrið.“ Þetta eru tilbúin rök í áróðursskyni. Í ætt við rangar yfirlýsingar á sínum tíma um að kjarnorkuvopn væru í Keflavíkurstöðinni. Skýr afstaða íslenskra stjórnvalda Afstaða íslenskra stjórnvalda til kjarnorkuvopna er skýr. Hún var rædd á alþingi í aðdraganda sam- þykktar Sameinuðu þjóðanna 7. júlí 2017. Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður VG, spurði Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra og hann svaraði meðal annars á þennan veg: „Afstaða Íslands til kjarnavopna er skýr, sú að stefna skuli að kjarn- orkuvopnalausri veröld og að kjarna- vopnum sé eytt með markvissum og gagnkvæmum hætti. Við teljum lík- legast til árangurs og raunhæfustu leiðina að styðjast við þá samninga og ferli sem fyrir liggja, til að mynda samninginn um bann við útbreiðslu kjarnavopna, NPT. Í þessu tilliti hef- ur Ísland í gegnum tíðina stutt marg- víslegar ályktanir á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna sem lúta að þessu markmiði. Við studdum hins vegar ekki þá ályktun sem liggur að baki þeim við- ræðum sem hefjast í næsta mánuði og spurt er um. Ástæðan er m.a. sú að fyrir fram var ljóst að kjarn- orkuvopnaveldin tækju ekki þátt í því ferli. Við teljum nauðsynlegt að þau sitji við borðið þegar samið er um fækkun kjarnavopna. Öðruvísi næst ekki árangur. Ég get hins vegar vel tekið undir að of hægt gangi í þeim efnum og ýmsar blikur séu á lofti í öryggis- málum. Við skulum þó ekki gleyma því að margvíslegur árangur hefur náðst. Síðastliðið haust fögnuðum við 30 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða sem var aflvaki meiri háttar fækkunar í kjarnavopnabúrum risa- veldanna á þeim tíma. Þannig hefur kjarnavopnum undir stjórn Atlants- hafsbandalagsins fækkað um allt að 90% frá lokum kalda stríðsins.“ Þarna kemur fram sama sjónar- mið og hjá Ernu Solberg, forsætis- ráðherra Noregs, að án þátttöku kjarnorkuveldanna séu ályktanir um útrýmingu kjarnorkuvopna marklitl- ar. Þegar rætt er um afstöðu NATO- ríkjanna er ástæðulaust að gleyma því að auk Bandaríkjamanna eiga Bretar og Frakkar kjarnorkuvopn. Þessar þjóðir hafa fækkað vopnum sínum um allt að 90% undanfarinn aldarfjórðung. Barátta fyrir aðild Norðmanna eða Íslendinga að sáttmála SÞ frá 7. júlí breytir engu um stöðuna í kjarnorku- málum. Markmið hennar er fyrst og síðast pólitískt: að sundra samstöðu NATO-ríkjanna. Það fellur ekki að þjóðaröryggisstefnu Íslands. Eftir Björn Bjarnason » ICAN-samtökin ætla ekki aðeins að þrýsta á norsk stjórnvöld held- ur sækja þau fram víðar þ.á m. á Íslandi til að vinna að framgangi ályktunar SÞ. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Kjarnorkustefna íslenskra stjórnvalda er skýr Boðaðar verkfallsaðgerðir Flugvirkjafélagsins, vegna flugvirkja hjá Icelandair, munu hafa áhrif á um 10.000 farþega hvern dag sem verkfall varir. Flugvirkjum hjá Icelandair stendur til boða launahækkun í samræmi við það sem aðrir í samfélaginu fá. Með verkfalls- hótun á viðkvæmasta tíma er stéttarfélag þeirra að reyna að þvinga fram kauphækkanir langt umfram það. Aðilar vinnumarkaðar hafa dregið línu í sandinn og frá henni verður ekki hvikað. Ástæðan er einföld: Ef á kröfurnar yrði fallist myndu niðurstöður slíks samnings hellast yfir allan vinnumarkaðinn og kippa stoðunum undan efnahagslegum stöðugleika. Stöðugleiki í hættu Kjarasamningar næstu missera munu hafa afgerandi áhrif á efnahagslega umgjörð atvinnulífs og heimila. Niðurstöður þeirra munu ákvarða hvort hér á landi verður stöð- ugleiki eða ekki. Það er ábyrgðarhluti sem atvinnurekendur, hið opinbera og viðsemj- endur þeirra standa frammi fyrir. Sú ábyrgð nær einnig til Flugvirkjafélagsins. Launahækkanir umfram getu efnahags- lífsins valda verðbólgu. Frekari skerðing en þegar er orðin á samkeppnisstöðu atvinnu- lífsins, vegna mikillar hækkunar launakostn- aðar undanfarin ár og styrkingar krónunnar, er ekki sjálfbær, stuðlar að viðskiptahalla og erlendri skuldasöfnun. Það gerðist síðast á uppgangsárunum 2004-2007 og hefur ítrek- að gerst á árum áður. Ójafnvægið leiðréttist ávallt með gengisfalli krónunnar, verðbólgu og rýrnun lífskjara. Þessi leið er fullreynd og finna má mýmörg dæmi um hana í hagsögu Íslands. Ekkert verður til úr engu Undirstaða lífskjara fólks er góð sam- keppnisstaða útflutningsgreina og uppbygg- ing kaupmáttar launa þar sem saman fer jafnvægi innanlands og í viðskiptum við út- lönd. Þannig má forðast efnahagsskelli for- tíðar. Verkefni næstu missera er að festa í sessi dæmalausan lífskjarabata með skyn- samlegum kjarasamningum og kjaraviðræður við Flug- virkjafélagið eru prófsteinn á hvort hægt sé að koma bönd- um á úr sér gengna nálgun á vinnumarkaði. Aðferðafræði fortíðar er fullreynd. Frá árinu 1994 hafa árlegar launa- hækkanir á Íslandi verið 6,5% að meðaltali en á sama tíma hefur verðlag hækkað um 5% á ári. Kaupmáttaraukningin hefur verið 1,6% á ári að meðaltali. Í hinum ríkjunum á Norðurlöndunum hafa laun hækkað minna en vegna lítillar verðbólgu hefur kaupmáttaraukningin verið svipuð og á Íslandi. Frá undirritun kjarasamninga á almennum markaði fyrir 30 mánuðum hefur kaupmáttur aukist um ríflega 15%. Kaup- máttaraukning heils áratugar var tekin út á rúmum tveimur árum. Mikið í húfi Mikilvægasta verkefni komandi kjara- samninga er að verja þessa kaupmátt- araukningu. Kröfur og verkfallsaðgerðir Flugvirkjafélagsins eru ógnun við efnahags- legan stöðugleika. Nálgun félagsins, of- urkröfur og verkfallsaðgerðir er fortíð- ardraugur. Hún er dæmd til að mistakast eins og hagsaga Íslands ber vitni um. Sam- tök atvinnulífsins vilja hvorki né geta samið um innstæðulausar launahækkanir fyrir flugvirkja hjá Icelandair. Líta verður á kjaradeiluna og áhrif hennar í víðu samhengi hlutanna. Samhengi hlutanna Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson Halldór Benjamín Þorbergsson »Ef á kröfurnar yrði fallist myndu niðurstöður slíks samnings hellast yfir allan vinnumarkaðinn og kippa stoðunum undan efnahags- legum stöðugleika. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.