Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 25

Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017 að sjálfsögðu. Hræringur í há- deginu, Kitkat úr glerskápnum á Hrappsstöðum eða spýtubrjóst- sykur í Vogatungunni. Hlaupandi með mig á háhesti og kúrandi hjá honum á „leggitíma“ eftir hádeg- ismatinn. Einu sinni fann hann lykla- kippu með nafninu mínu á ferða- lagi erlendis með ömmu og var svo spenntur að gefa mér hana að hann sendi hana á undan sér. Afi Elli var stálminnugur og fór nýlega á góðum degi með Litlu gulu hænuna á esperanto fyrir Þóru. Afi fór út í ensku- skóla, tók þátt í spurningakeppn- um og hélt mikið upp á Íslend- ingasögurnar. En afi Elli fylgdist jafnframt vel með nýjungum. Þannig bað hann mig oft að sýna sér t.d. snapchat frá Hröppum og að hringja facetime í fjölskyldu- meðlimi nær og fjær. Ég fékk líka stolt að fylgja honum að kjósa en hann lét ekki heilsubrest síðustu ára stoppa sig í að nýta kosningaréttinn og mæta á kjör- stað, síðast nú í október. Síðustu tæp tvö árin voru hon- um, ömmu Dellu og fjölskyldunni allri mjög erfið, en alltaf var hann þolinmóður og sýndi mikið æðru- leysi. Elsku besti og sætasti afi Elli, sorgin er stór og söknuðurinn mikill en lífið heldur áfram. Hlýj- ar og skoplegar minningar um einstakar stundir með afa Ella orna um ókomna tíð. Undir Dalanna sól, við hinn einfalda óð hef ég unað við kyrrláta för, undir Dalanna sól hef ég lifað mín ljóð, ég hef leitað og fundið mín svör, undir Dalanna sól hef ég gæfuna gist, stundum grátið en oftast í fögnuði kysst. Undir Dalanna sól á ég bú mitt og ból og minn bikar, minn arin, minn svefnstað og skjól. (Hallgrímur Jónsson.) Þín afastelpa, Elísa Káradóttir. Um afa Ella á ég margar minningar og síðustu daga hafa þær spottið fram hver af annarri og nokkuð erfitt að velja úr þeim til að setja hér. Minningarnar eru allar góðar, alveg satt, einhverjar spaugilegar, einhverjar ljúfar og hlýjar en umfram allt vekja þær með mér þakklæti fyrir að hafa átt afa Ella og að hann átti mig, ég var einn af afakrökkunum hans. Ég var þeirrar gæfu aðnjót- andi að alast upp í návistum við afa Ella til 10 ára aldurs á Hrappsstöðum, þar sem hann og amma Della bjuggu í sama húsi og ég bjó í með foreldrum mín- um. Seinna þegar ég kom suður í menntaskóla bjó ég hjá þeim í Vogatungu í Kópavogi. Þau áttu heilmikið í mér og amma segir oft „pabbi þinn“ þegar hún er að tala um afa við mig. Ef ég leiðrétti hana bætir hún við að henni finn- ist eiginlega að þau eigi mig bara líka, því ég var svo mikið hjá þeim. Afi var víðlesinn og hafði sér- stakt dálæti á Íslendingasögun- um og þá helst Laxdælu og Sturl- ungu sem hann kunni utan að, hann var húmoristi og voru Góði dátinn Svejk og Nasreddin líka í uppáhaldi. Eitt af því sem afa fannst gaman var að segja sögur, sérstaklega ef þær gátu fengið fólk til að hlæja aðeins, það var best. Sumarið 2016 dvaldi afi á Landakoti og kom fyrir að gestir, aðallega börn hans eða barna- börn, gripu í Svejk og lásu einn eða tvo kafla, sem honum fannst augljóslega ekki slæmt. Það var líka sérlega gaman að hlæja með afa og glettnin var yf- irleitt ekki langt undan. Ein af sögunum hans var að fyrsta orðið sem ég á að hafa sagt var „afi“. Reyndar heyrði það enginn nema hann, en þá var ég bara nokkurra daga gömul á leiðinni heim af fæðingardeildinni. Hann kunni ógrynni af vísum og henti þeim fram við hin ýmsu tækifæri. Oftar en ekki tengdust þær atburðum frá liðnum tímum og settu oft botninn í sögur af mönnum og málefnum. Afi kenndi mér eitt og annað, til dæmis að lesa, keyra bíl, að prjóna og að meta góðar sögur. Hann aðstoðaði mig oft við heimanám, þá sérstaklega í sögu og landafræði. Hann reyndi líka að kenna mér að rækta kartöflur. Kartöflur úr afagarði voru bestar og ekkert gaman að brasa við slíkt nema með honum. Ég man eftir því að hafa farið með honum á skíði, þegar hann skakklappað- ist með mér á svelli til að ég héldi jafnvægi á nýfengnum skautum, að ég fékk far með honum vegar- spotta til að sleppa við að hlaupa eins langt og þurfti í skólahlaupi, að hafa verið með þegar hann var að svíða hausa, eftir að hafa borð- að hræring til að gera eins og hann, eftir útilegum og ferðalög- um innanlands með honum og ömmu. Ekki er hægt að minnast afa án þess að amma komi við sögu, en þau voru náin, nutu þess að ferðast og vera saman í sumarbú- staðnum, leiddust í göngutúrum og héldust í hendur fyrir framan sjónvarpið. Elsku amma, missir þinn og okkar afkomenda ykkar er sár og þá er gott að eiga góðar minn- ingar um þann besta til að ylja sér við. Fjóla Borg Svavarsdóttir. Það er erfitt að kveðja afa Ella, ljúfan og góðan mann sem gaman var að tala við og fræðast af. Ella og Dellu var ég svo hepp- in að kynnast formlega fyrir rúm- um 19 árum. Nokkrum árum fyrr hafði ég verið að skottast með vinkonum mínum í leit að rana- bjöllum sem héldu til í skotinu hjá útidyrahurðinni í kjallaran- um í Vogatungu, götunni sem ég ólst upp í og þau bjuggu. Mig rekur ekki minni til þess að þau hafi verið mótfallin þessari skor- dýrasöfnun okkar vinkvennanna og þau hlógu nú að því seinna þegar ég sagði þeim frá þessari iðju okkar. Þá búin að kynnast þeim sem kærasta Ernis barna- barns þeirra. Þau tóku mér bæði með opnum örmum og fékk ég meira að segja að kalla þau ömmu og afa sem ég hef gert í rúm 19 ár núna. þvílíkur fengur fyrir mig því engan afa átti ég og eina háaldraða ömmu á þessum tíma. Afi snerti svo marga með ljúfa yfirbragðinu, prakkara- svipnum og frábærum sögum af hinu og þessu sem á daga hans hafði drifið. Hann einhvern veg- inn átti alltaf eina sögu eða brandara við hvert tilefni. Alveg sama um hvað verið var að tala þá mundi hann eitthvað fyndið eða áhugavert sem tengdist umræðu- efninu. Við svona tímamót rennir maður í gegnum minningar í hug- anum og reynir að deila skemmti- legum minningum því það er allt- af erfitt að missa einhvern sem er manni kærkominn. Ein minning er úr Vogaseli sem er sumarbú- staðurinn þeirra ömmu Dellu og afa Ella. Ég man hvað mér fannst merkilegt að sjá afa slá grasið með orfi og ljá. Það hafði ég aldr- ei séð áður og hélt að þetta tíðk- aðist alls ekki lengur. Afi Elli var einstaklega barn- góður, börnin soguðust einhvern veginn að honum og hlýja faðm- inum hans. Þau komu sér vel fyr- ir í fanginu og sátu oft bara hjá honum án þess að vera að ærslast neitt. Hlustuðu á sögurnar hans og brandarana líka. Tilhugsunin um að amma og afi séu nú aðskilin er erfið. Það verður erfitt að venja sig af því að nefna ekki bæði ömmu Dellu og afa Ella í sömu andrá en þannig er það einhvern veginn alltaf. Ég stóð mig að því nú í vikunni að spyrja börnin hvort þau væru ekki örugglega búin að kveðja ömmu Dellu og afa Ella þegar amma bjó sig til heimferðar. Litli Fálki minn horfði undrandi á mig sagði ekkert og hljóp svo og kyssti ömmu Dellu bless. Elsku afi Elli, þín er og verður sárt saknað en við geymum góðar minningar í hjarta okkar um ókomna tíð. Guðrún Svava (Dúna). Ég naut þeirrar gæfu að vera mikið hjá ömmu og afa sem barn og tóku þau mikinn þátt í uppeldi mínu. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Faðmurinn var alltaf op- inn. Knús með báðum og enda- laus þolinmæði og væntumþykja. Afi Elli var uppáhald, besti maður sem ég hef kynnst. Alltaf boðinn og búinn að hjálpa sínum nánustu. Börn hændust að hon- um vegna blíðu hans og rólegrar nærveru. Oft hefur verið rifjað upp þegar ég u.þ.b. þriggja ára segi við frænku mína: „Þú mátt kyssa hann afa minn, hann er svo góður.“ Afi hafði óbilandi þolinmæði fyrir mér, ódælum krakka sem gerði flest það sem mátti ekki; príla á veggnum í Vogatungunni, sófanum, uppi á borðum, úti um allt og fiktandi í öllu. Í stað þess að skamma mig var ég tekin í fangið með orðunum: „Kelaðu bara frekar við afa.“ Afi hafði alltaf tíma til að sinna mér, leika við mig og lesa fyrir mig. Afa lá lágt rómur og við lesturinn reyndi oft á þolinmæði lítillar skellibjöllu: „Afi hærra! ég heyri ekki.“ Það er erfitt að tala um afa Ella án þess að nefna ömmu Dellu. Þar sem afi var þar var amma og öfugt. Þau voru sam- rýnd hjón sem leiddust hvert sem þau fóru, líka þegar þau sátu við sjónvarpið. Eftir rakstur fékk amma alltaf fyrsta kossinn, sem kallaður var rak-kossinn, sama hvað við krakkarnir reyndum að vera fyrri til. Þau áttu sérstakt samband, nánd og hlýju hvort til annars og afkomenda sinna, sem hefur verið mér og mínum mikil og góð fyrirmynd. Ég ferðaðist mikið með afa og ömmu og lék mér oft að því að lát- ast sofa í aftursætinu þegar nálg- aðist áfangastað. Þá bar afi mig inn úr bílnum og lék með. Afi reyndi líka að kenna mér að papr- ika og laukur væri óæti sem ég ætti ekkert að vera að borða. Við afi og amma fórum saman til Mallorka fljótlega eftir ferm- inguna mína. Þar kenndi afi mér að borða hræring sem við borð- uðum heil ósköp af. Löngu síðar, þegar amma var í Hólminum og afi einn heima, bauð hann mér í kvöldmat; dýrindis súran hrær- ing með rjóma. Minningarnar eru endalausar. Afi og ég að raka okkur saman, vinna í garðinum í Vogaseli, afi að hlaupa með mig um í hjólbörunum, afi að skutla mér eða sækja mig. Afi og ég að leggja okkur eftir hádegismat- inn. Ég að fikta í afa, skoða eyr- un, nefið, hárið, hendurnar. Ég að öfundast út í hárlausa fótleggi afa. Afi og amma með þeim fyrstu til að kíkja á nýfædd börn- in mín. Fyrir tæpum níu árum fékk afi heilablóðfall sem varð til þess að hann átti erfitt með mál. Bein orðasamskipti urðu erfiðari en afi átti alltaf til nóg af knúsi með báðum og sína einstöku hlýju þar sem orðin voru óþörf. Hann greindist einnig með Parkinsons en tók því með jafnaðargeði, ræktaði líkamann og fóru þau amma daglega í göngutúra um nágrennið. Síðustu tæplega tvö ár hafa verið erfið. Þá aðallega fyrir afa og ömmu sem bjuggu hvort á sínum staðnum vegna veikinda afa. Amma var þá alla daga hjá afa enda búin að ganga saman í gegnum lífið í 68 ár. Elsku amma Della, missir þinn og okkar allra er mikill en minn- ing um afa, sem var bæði bestur og sætastur, lifir áfram í hjörtum okkar. Emilía Lilja R. Gilbertsdóttir. ✝ Ingunn fædd-ist í Dísukoti í Þykkvabæ 15. apríl 1939. Hún lést á líknardeild Heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja 16. nóvember 2017. Ingunn var dóttir hjónanna Guðna Gestssonar frá Mel í Þykkva- bæ, f. 17. mars 1909, d. 4. október 1991, og Vigdísar Pálsdóttur frá Galtarholti á Rangárvöllum, f. 7. september 1910, d. 13. sep- ember 2000. Ing- unn var þriðja í röð sex systkina. Systk- ini hennar eru þau Sveinn, Elín, Gest- ur, Pálína og Krist- ín. Öll eru þau á lífi. Ingunn giftist Bjarna Má Jónssyni 19. september 1968. Þau bjuggu allan sinn búskap í Njarðvík. Þau eignuðust tvö börn þau Jón Má, f. 1964, og Berglindi, f. 1967. Maki Berg- lindar er Gunnar Ásgeirsson, f. 1970. Börn Berglindar og Gunnars eru Bryndís, f. 1992, Heiðrún Eva, f. 1993, Ingunn Kara, f. 1996, og Ásgeir Orri, f. 2006. Jón Már á synina Bjarna Má, f. 1993, og Ásgeir, f. 1996. Eitt langömmubarn var komið í hópinn, Hafdís María Bjarnadóttir, f. 2014. Ingunn kom víða við á sínum vinnuferli á yngri árum. Lengstum vann hún í flug- eldhúsi Icelandair á Keflavík- urflugvelli, eða um 22 ár. Útför Ingunnar fór fram í kyrrþey 29. nóvember 2017, frá Ytri-Njarðvíkurkirkju. Og hvað svo? Hvert leitar mað- ur núna með allar sínar pælingar og hugsanir? Ég vil byrja á því að þakka móður minni þessa frábæru samferð síðustu 50 árin. Samveru sem hefur verið ekkert annað en góðar minningar, hvort sem litið er á æskuárin, unglingsárin og síðar. Samband okkar mæðgna var einhvern veginn alltaf svo auð- velt og hreint og beint. Þegar sterkasta manneskjan í lífi mínu er farin þá sest maður niður og lít- ur yfir farinn veg. Ég er óendan- lega þakklát að hafa haft hana öll þessi ár og fyrir það mikilvægasta, að hún hafi verið móðir mín. Ég minnist þess ekki að hún hafi nokkurn tímann sett út á plön og ráðagerðir hjá dótturinni eða skammast. Alltaf var allt sam- þykkt. Ég fékk að vera ég sjálf og hún studdi mig með ráðum og dáð í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Fyrir það þakka ég henni. Ég þarf ekki að skrifa hversu frá- bær hún var, það vita allir. En lífið heldur áfram hér hjá okkur sem söknum hennar og hún farin á annað tilverustig og fylgist vonandi með öllu því sem er að fara að gerast hjá fjölskyldunni. Ég skrifa með söknuði þessi orð til móður sem ég kvaddi á líknardeild HSS 16. nóvember síðastliðinn umvafða fjölskyldu og vinum. Móður sem bar veikindi sín síð- asta ár með mikilli reisn sem var svo henni líkt. Söknuður minn er og verður mikill en minningarnar um frábæra konu lifir í hjörtum okkar allra. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. (Ómar Ragnarsson.) Berglind. Vinkona okkar Ingunn Guðna- dóttir hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Ekki er svo langt síðan við heyrð- um að hún væri með ólæknandi krabbamein. Hún tók fréttunum af ótrúlegu jafnaðargeði og sagði okkur að hún hefði alltaf vitað að hún yrði ekki eilíf. Það hefði líka verið ólíkt henni að vera með væl og kvartanir. Hún gekk hnarreist í gegnum lífið, var víkingur til allra verka, hraðvirk og ákveðin. Hún lá ekki á skoðunum sínum á mönnum og málefnum og stóð fast á sínu. Við hittumst fyrst haustið 1956, komnar á Laugalandsskóla til að eyða vetrinum saman við nám og störf. Þetta var heimavistarskóli og námsmeyjar komu frá öllum landshornum. Það var spennandi að kynnast svo mörgum nýjum stelpum, nýjum viðhorfum og vinnubrögðum. Oft var glatt á hjalla, mikið sungið og hlegið. Þegar rokklögin voru spiluð í botn sló engin Keflavíkurstelpunum við á dansgólfinu. Um vorið fór Ing- unn til Noregs og vann í Ålesund um sumarið. Naut hún þess að vera í því fallega umhverfi í góðum félagskap. Eftir að við skólasyst- urnar, sem áttum heima hér á suð- vesturhorninu, eignuðumst heim- ili og börn, stofnuðum við saumaklúbb og vorum upphaflega tíu saman. Eftir rúmlega hálfa öld er þessi klúbbur enn starfandi þó að fækkað hafi í hópnum. Margar góðar samverustundir höfum við átt, bæði einar sér og með eigin- mönnum. Haldin voru þorrablót, farið í ferðir innanlands og utan og minningarnar allar góðar og vekja gleði. Við kveðjum Ingunni með þökk fyrir allt og sendum einlæg- ar samúðarkveðjur til Bjarna og barnanna. Fyrir hönd saumaklúbbsins, Sigrún Sigurðardóttir. Nú er komið að kveðjustund. Systir okkar Ingunn Guðna- dóttir kvaddi þessa jarðvist að kvöldi fimmtudagsins 16. nóvem- ber í faðmi fjölskyldunnar eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Ingunn var sú þriðja í systkina- röðinni og sú fyrsta sem fellur frá í systkinahópnum. Við höfum alla tíð verið afar samrýndur hópur og því eru minnigarnar margar og ljúfar en söknuðurinn sár. Við ferðuðumst saman bæði innan- lands og utan, hittumst í matar- boðum við ýmis tækifæri og varla fór nokkurt okkar til Reykjavíkur án þess að hin vissu af því. Við höfum gengið saman í gegnum líf- ið og stutt hvert annað í gleði og sorg. Ingunn var hjálpsöm, vildi öll- um vel og var alltaf boðin og búin að aðstoða við hvað sem var. Hún var hrein og bein, þótti stundum stjórnsöm og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún lá aldrei á skoðunum sínum en var sann- gjörn. Saumaskapur lék í hönd- unum á Ingunni og eru þær ófáar flíkurnar sem hún ýmist saumaði eða lagfærði á snilldarlegan hátt. Það var alltaf líflegt að vera í kringum Ingunni og hún sagði svo skemmtilega frá. Þær eru margar og skemmtilegar sögurnar sem hún sagði fjölskyldunni m.a. frá árunum sem hún vann sem kaupakona, ung að aldri á Móeið- arhvoli og fleiri sögur sem sjálf- sagt á eftir að hlæja að um ókomin ár. Ingunn unni fjölskyldu sinni og var alltaf til staðar fyrir alla. Hún naut þess að ferðast ásamt Bjarna sínum til framandi landa og vin- sælla stórborga og hún elskaði að versla. Ingunn var töff í tauinu, fylgdi tískustraumum og silfurlit- urinn heillaði hana. Það verður öðruvísi fyrir okkur systkinin og maka að koma saman án Ingunnar en við vitum að hún verður með okkur í anda og mun fylgjast með okkur ásamt öðrum ástvinum okkar sem farnir eru. Á skilnaðarstundu þökkum við elsku Ingunni systur samfylgdina og vottum Bjarna, Nonna, Berg- lindi og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Minning Ingunnar mun lifa í hjörtum okkar allra sem vorum henni samferða í gegnum lífið. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Kveðja. Systkinin Sveinn, Elín, Gestur, Pálína og Kristín. Ingunn Guðnadóttir ✝ Hjördís Hjör-leifsdóttir fæddist 2. október 1940. Hún lést 29. nóvember 2017. Hjördís var jarð- sungin 12. desem- ber 2017. sína. Þetta upplifð- um við systurnar þar sem við vorum tíðir gestir á heimili þeirra hjóna þegar við vorum börn fram til dagsins í dag. Eft- ir standa góðar minningar um ljúfa og fallega frænku sem hélt þéttings- fast um fólkið sitt í blíðu og stríðu. Hjördísi sá maður aldrei bugast enda stolt fjölskyldumóðir með hjartað á réttum stað. Síðustu ár voru henni ekki alltaf auðveld, sjóninni hafði hrakað hratt og því voru ekki allir dagar fyrirhafnar- litlir eða léttvægir. Hún tók þessu þó af yfirvegun og æðruleysi eins og öðru sem að höndum bar í líf- inu. Hjördís var afar hjartahlý manneskja með einlægt bros sem tók öllum opnum örmum sem til hennar leituðu. Hún hafði einstak- lega gaman af því að taka á móti Elsku frænka okkar, Hjördís ömmusystir okkar, kvaddi þennan heim skyndilega í síðastliðinni viku eftir stutt veikindi. Þær eru ófáar minningarnar sem rifjast upp þegar við horfum yfir farinn veg og hugsum til allra þeirra ánægju- legu og hlýju samverustunda sem við systurnar áttum á heimili þeirra Hjördísar frænku og Didda, eiginmanns hennar, sem lést fyrir rúmum níu árum. Fyrst á Ferjubakka og síðar í Stafnasel- inu. Samheldni og hlýja einkenndi hjónaband þeirra hjóna og heim- ilið sem þau bjuggu um fjölskyldu gestum og var iðin við að útbúa og framreiða girnilegar kræsingar fyrir gesti sína og gaf sér ávallt tíma, hvort sem það var fyrir full- orðna eða börn, til að spjalla við þau. Hjördís frænka naut þess að eiga stóra fjölskyldu enda barna- lán í fjölskyldunni sem hún sinnti af kostgæfni ásamt Didda meðan hann var á lífi, af sinni einstöku al- úð og kærleika. Hennar verður sárt saknað og missir fjölskyld- unnar er mikill. Um leið og við minnumst Hjördísar frænku okk- ar með þessum orðum kveðjum við hana í hinsta sinn og biðjum al- mættið að styrkja fjölskylduna sem hún var svo stolt af. Elsku Ástþóra, Toni, Hjölli, Kiddi, Hulda Sjöfn og fjölskyldur, við dáumst að þeim styrk og kær- leika sem hefur einkennt ykkur síðustu daga. Við sendum okkar einlægustu samúðarkveðjur til ykkar allra, elsku fjölskylda. Blessuð sé minning hennar. Sjöfn og Sigrún Margrét. Hjördís Hjörleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.