Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 35
DÆGRADVÖL 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gættu þess að láta ummæli annarra
ekki hafa of mikil áhrif á þig. En þú veist að
þú krefst mikils af sjálfum þér núna og aðrir
geta kannski ekki fylgt þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt oft sé gaman að láta hugann
reika verður þér lítið úr verki á meðan.
Komdu til dyranna eins og þú ert klæddur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þetta er stórkostlegur dagur til
skemmtana og ástarævintýra. Með innsæið
að vopni, og með því að reyna að vera
næmur á tilfinningar annarra, öðlastu virð-
ingu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ábyrgðarhlutverk þitt er stærra en
þú gerir þér grein fyrir. Fjölskyldumeðlimir
bíða spenntir eftir því hvað bíður þeirra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að koma hjartans máli á
framfæri og hefur ekki tíma til að vera list-
rænn eða klár. Finndu þér hlut sem getur
orðið til þess að fegra heimili þitt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur áhyggjur af fjármálunum.
Kauptu þér smá tíma til umhugsunar, jafnvel
þótt það kosti kjánalega afsökun.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú óttast ekki að segja hug þinn í dag.
Leyfðu öðrum að njóta þess með þér og
hóaðu í unga sem aldna til að eiga með
góða samverustund.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Áhugaverðar hugmyndir verða
bornar upp við þig sem vert er að kynna sér
nánar. Fólk sem er ólíkt þér verður skyndi-
lega aðlaðandi og eitthvað gæti slegið þig út
af laginu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú getur mætt hvaða áskorun
sem er ef þú nýtir hæfileika þína til fulls. En
það er persónuleikinn sem skiptir öllu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hugsanlegt er að smátæki á
heimilinu taki upp á því að bila í dag. Leyfðu
villingnum innra með þér að baða sig í sól-
inni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ferð fremst í flokki og ert al-
veg í sjónlínunni. Finndu þér leið til að tjá
þig og gerðu nokkurs konar tilfinningalega
hreingerningu. Láttu aðra um að ráða sínum
málum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Lífið hefur á sér margar hliðar og
það getur stundum verið erfitt að velja réttu
leiðina. Hið sama gildir um listsköpun af öllu
tagi og jafnvel gæti verið gaman að velja
þær allar. Þá er jafnvel orðið til skemmtilegt
langtímaverkefni.
Ólafur Stefánsson hefur ort ald-arhátt að hætti fyrri tíðar
skálda:
Nú er mætt hér nýja stjórnin,
næst er að halda jól,
í harðindum og hræmuvindi,
hvergi nokkurt skjól.
Í uppgangi á yfirsnúning,
allt er til og falt,
gleymist oft á gróðatíð,
að gengið það er valt.
Friða á hér fossana
og fjöllin eins um leið,
orkufrekur iðnaður,
endar þá sitt skeið.
Eins er það með hvalinn,
hann ekki veiða má,
en fjölgar kannski ferðamönnum,
fláum bara þá.
Kostur lokar, Kostco drap hann,
kætast „þórðar“menn.
Jólasveinar jötu nálgast,
jafnast kjörin senn.
ASÍ og aðrir slíkir
sér ætla stóran hlut,
„Aldraðir og öryrkjar“
eftir sitja í skut.
Vextir hækka, vinna minnkar
verður gengisfall.
Sömu bankasérfræðinga
setjum við á stall.
Verkalagið vita þeir
sem vinna aldrei neitt,
helst að púlsinn hækki,
ef hnífur kemst í feitt.
En, ég vil reynast jákvæður
er jólum birtir af.
Eftir það er yfrinn tími
öllu að steypa á kaf.
Kemur vor og kosningar,
kappar þramma um gólf.
fari’ að líkum, flokkarnir
fleiri verða en tólf.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrk-
ir á Boðnarmiði:
Presturinn byrjaði að blessa
er búin var hefðbundin messa.
Loks er hann þagði
Þuríður sagði.
„Látum nú vinir, vínið andann hressa.“
Snæbjörn Ragnarsson yrkir á
Boðnarmiði:
Fólkið rær á feigðarmið
í fávitaþvögu.
Enda fætt og uppalið
af Útvarpi Sögu.
Gömul vísa í lokin:
Þó alla hrelli andskotinn
og enginn karlinn lofi
þá brennir hann ekki bæinn sinn
sem bóndinn þarna á Hofi
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Aldarháttur hinn
nýi og messa
Í klípu
„ÞÚ ERT LÍKA ORÐINN MJÚKHENTUR“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA VAR EKKI ÞREFALT HELJARSTÖKK,
HELDUR TVÖ OG HÁLFT“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver sem ber á þig
sólarvörnina
MJÁÁÁÁ HALTU
KJAFTI!!!
SAGÐI EINHVER
„HALTU ÁFRAM“?
BÍB PÍP BÍB PÍP ÉG GET HERMT EFTIR FJÖLDANUM ÖLLUM AF FUGLUM
LEIKTU ÞÁ
BRÉFDÚFU OG
DRÍFÐU ÞIG
HEIM
Framundan eru margir stórir dag-ar. Merkilegir dagar. Hver dagur
er auðvitað dýrmætur í sjálfu sér en
framundan er ágæt tilbreyting þar
sem hægt er að gera sér dagamun.
Þykir Víkverja það vera nærandi fyr-
ir sálina í svartasta skammdeginu.
x x x
Gærdagurinn byrjaði með nokkr-um látum á vinnustað Víkverja.
Í hús barst fréttatilkynning um að
umhverfisráðherrann, sem sóttur var
út í bæ, hefði valið sér aðstoðarmann.
Hrópaði einn blaðamaðurinn upp yfir
sig: „Orri Páll verður aðstoðar-
maður.“
x x x
Kliður fór um mannskapinn á rit-stjórninni. Skiljanlega. Skyldi
Morgunblaðið vera að missa sinn
snjallasta penna? Blaðamann með
fjölmargar tilnefningar til blaða-
mannaverðlauna. Og það í heilhveitis
pólitíkina. Skömmu síðar var mis-
skilningurinn leiðréttur og róaðist
starfsfólk þegar ljóst var að Orri Páll
myndi áfram fara hamförum í
SunnudagsMogganum. Eða í Ljós-
vakanum eins og í blaði dagsins.
Hann er ekki nýi aðstoðarmaðurinn
og heldur ekki Orri Páll úr Sigur
Rós. Svo virðist sem þriðji Orri Páll-
inn sé til.
x x x
Víkverji getur ekki betur séð en aðokkar glæsilegi borgarstjóri og
forystumenn KR ætli sér að ganga
hönd í hönd í miklar breytingar í
hverfinu sem Víkverji býr í. KR-
ingar hafa um langa hríð kveinkað
sér undan skorti á aðstöðu. Félagið
hafi vaxið upp úr þeirri aðstöðu sem
fyrir hendi sé. Svo mjög að félagið
sem Anders Dahl Nielsen þjálfaði hjá
treystir sér ekki til að halda úti
meistaraflokki í handknattleik.
x x x
Í dag verður í það minnsta undir-rituð viljalýsing höfuðstaðarins og
KR en einnig kom þetta fram í frétta-
skýringu Sigtryggs Sigtryggssonar
hér í blaðinu hinn 17. nóvember.
Þétting byggðar heldur því vænt-
anlega áfram nema kannski helst á
Óðinsgötu. Þar stækka menn garða.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Viska er fyrir öllu, aflaðu þér visku,
kostaðu öllu til að afla þér hygginda
(Orðskviðirnir 4:7)