Morgunblaðið - 15.12.2017, Síða 37

Morgunblaðið - 15.12.2017, Síða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017 Nýir eigendur, framkvæmdaaðilar og arkitektar, sem hófu breytingar á fyrrverandi vinnustofu listamannsins Guðmundar Einarssonar frá Miðdal við Skólavörðustíg 43, 101 Reykjavík á þessu ári, bera ábyrgð á mjög al- varlegri eyðileggingu á innviðum vinnustofunnar. Hún er sammerk óbætanlegu tjóni í menningarsögu frá fjórða tug tuttugustu aldar. Allt sem þar var af höfundarverkum Guð- mundar og einnig innréttingum, sem hann hannaði, hefur verið brotið, fjarlægt og flest sennilega urðað. Einstæð höfundarverk Um er að ræða, auk sérsmíðaðra timburinnréttinga: 1. Stóra fyrirmynd að silfur- bergshvelfingunni í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Hún var um það bil 1,5 x 2,2 metr- ar að stærð, ferköntuð með stórum hangandi kambi í miðjunni, alsettum glæru silfurbergi (kalsíti) úr Helgu- staða- og Hoffellsnámum. Hvelfingin var með blaðgulli undir þrefaldri röð af silfurbergssteinum neðst á öllum köntum. Hún öll, til viðbótar við kambinn, var alþakin glærum silf- urbergskristöllum. Þar var líka sér- stök raflögn og lýsing. 2. Rafkyntan ofn eða arin með hita- elementum upp við veggi í einu horni vinnustofunnar. Hliðarnar voru úr hitaþolnu steinefni og hluti fram- hliðar einnig, húðaður með hrafntinn- umulningi. Mestöll framhliðin var úr hlöðnum silfurbergsmolum – gegnsæ – en á botni arinsins lágu hrafntinn- umolar á meðan Guðmundur notaði vinnustofuna. Ofan á arninum var svört glerplata á hitaþolnum stein- efnagrunni. Arinninn var einstakur í sinni röð. Öllu glæra silfurberginu var hent eftir niðurbrot, að því best er vitað, og má telja verðmæti þess og hand- verksins, sem til þurfti í verkin tvö, hlaupa á milljónum króna, auk þess sem kristallar þessara gæða eru ófá- anlegir hér á landi. Þessi hönnun Guðmundar, einkum hvelfingin með silfurberginu, var til- raunaverkefni áður en hafist var handa við gerð margfalt stærri hvelf- ingar í lofti anddyris í aðalbyggingu HÍ, unnið í samvinnu við Guðjón Samúelsson, húsameistara ríkisins. Samvinna hans og Guðmundar sner- ist auk þessa um steiningu ytra byrð- is bygginga, veggmyndir húsa, úti og inni (sbr. Landspítalann og Þjóðleik- húsið), skipulag hluta háskólareitsins og gerð stuðlalofts í Þjóðleikhúsinu. Samþykkt deiliskipulag fyrir lóðina við Skólavörðustíg 43 er með verndunarákvæðum Í samþykktu deiliskipulagi fyrir svokallaðan Kárastígsreit – austur, dagsettu 1. júní 2008, með áorðnum breytingum, eru sérstök ákvæði fyrir Skólavörðustíg 43: Þar stendur með- al annars: „Í viðbyggingu eru inn- réttingar með menningarsögulegt gildi sem ber að vernda.“ (Verkheiti deiliskipulags: 245-1) Áður en framkvæmdir hófust var ekki haft samband við Minjastofnun Íslands, né skipulags- eða bygging- arfulltrúa Reykjavíkurborgar. Engar samþykktar teikningar fyrir breyt- ingu á notkun húsnæðis, samkvæmt deiliskipulagi, eða samþykktir aðal- uppdrættir voru til þegar fram- kvæmdir hófust. Ofangreindar inn- réttingar, silfurbergsarinn og silfurbergshvelfing, voru rifnar og brotnar niður, og fjarlægðar án allra tilskilinna leyfa, sem var með öllu óheimilt. Héðan af er enginn vegur að því að endurgera það sem forgörðum fór eða bæta fyrir tjónið. Tilgangurinn með þessari grein og opinberun að- faranna er annars vegar sá að vekja athygli á þeim merkilegu menning- arverðmætum sem eru glötuð og hins vegar sá að minna enn og aftur á að allur undirbúningur að breytingum á gömlu húsnæði verður að fara fram með tilskildum leyfum og með eðli- legum hætti. Varkárni verður alltaf að vera viðhöfð frammi fyrir menn- ingarminjum, jafnt utanhúss sem innan. Ótal dæmi eru til um lítt eða óbætanlegt tjón á húsnæði í eldri byggðum borgar og bæja, og sú eyði- legging sem gerð var á innviðum á fyrrverandi vinnustofu Guðmundar frá Miðdal verður aldrei bætt. Sorg en ekki reiði er það sem bærist meðal þeirra sem til þekkja. Alvarlegt menningar- sögulegt slys Ljósmyndir/Max Milligan Lofthvelfing Mótuð lofthvelfing, þakin glæru silfurbergi, á Skólavörðustíg 43. Arinn Framhlið silfurbergsarins í vinnustofu Guðmundar frá Miðdal. Eigendur fyrrverandi vinnustofu listamannsins Guðmundar Einarssonar frá Miðdal bera ábyrgð á mikilli eyðileggingu á innviðum hennar, að sögn sona listamannsins. Höfundar greinarinnar eru synir listamannsins. Egill er arkitekt og Ari Trausti jarðvísindamaður. Eftir Egil Guðmundsson og Ara Trausta Guðmundsson GUÐ BLESSI ÍSLAND ★★★★★ Fréttablaðið Elly (Stóra sviðið) Fös 15/12 kl. 20:00 39. s Fös 5/1 kl. 20:00 53. s Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 16/12 kl. 20:00 40. s Lau 6/1 kl. 20:00 54. s Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Þri 26/12 kl. 20:00 41. s Sun 7/1 kl. 20:00 55. s Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Mið 27/12 kl. 20:00 42. s Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Fim 28/12 kl. 20:00 43. s Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 29/12 kl. 20:00 44. s Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Lau 30/12 kl. 20:00 aukas. Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Stjarna er fædd! Guð blessi Ísland (Stóra sviðið) Sun 17/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning. Medea (Nýja sviðið) Fös 29/12 kl. 20:00 Frums. Fim 4/1 kl. 20:00 3. s Lau 6/1 kl. 20:00 5. s Mið 3/1 kl. 20:00 2. s Fös 5/1 kl. 20:00 4. s Fim 11/1 kl. 20:00 6. s Ástir, svik og hefndarþorsti. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 15/12 kl. 20:00 18. s Mið 27/12 kl. 20:00 20. s Fös 5/1 kl. 20:00 aukas. Lau 16/12 kl. 20:00 19. s Fös 29/12 kl. 20:00 22. s Lau 6/1 kl. 20:00 aukas. Draumur um eilífa ást Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 17/12 kl. 13:00 55. s Sun 7/1 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Þri 26/12 kl. 13:00 56. s Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 16/12 kl. 13:00 aukas. Sun 17/12 kl. 16:00 aukas. Sun 17/12 kl. 13:00 aukas. Þri 26/12 kl. 13:00 aukas. Tilnefnd sem Barnasýning ársins á Grímunni. Eingöngu sýnd á aðventunni. Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Fim 11/1 kl. 20:00 Frums. Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Saga íslensku þjóðarsálarinnar. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 6/1 kl. 13:00 Frums. Sun 7/1 kl. 13:00 2. s Lau 13/1 kl. 13:00 3. s Búðu þig undir dularfullt ferðalag! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Fjarskaland (Stóra sviðið) Lau 30/12 kl. 13:00 Lau 13/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 7/1 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Fös 15/12 kl. 19:30 Auka Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Lau 30/12 kl. 19:30 18.sýn Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Lau 6/1 kl. 19:30 Auka Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Hafið (Stóra sviðið) Þri 26/12 kl. 19:30 Frum Fös 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Mið 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn Fim 4/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fös 29/12 kl. 19:30 14.sýn Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 6/1 kl. 19:30 15.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 16/12 kl. 11:00 307.s Lau 16/12 kl. 14:30 309.s Sun 17/12 kl. 13:00 311.s Lau 16/12 kl. 13:00 308.s Sun 17/12 kl. 11:00 310.s Sun 17/12 kl. 14:30 312.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Mið-Ísland að - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 4/1 kl. 20:00 Lau 6/1 kl. 22:30 Lau 13/1 kl. 20:00 Fös 5/1 kl. 20:00 Fim 11/1 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 22:30 Fös 5/1 kl. 22:30 Fös 12/1 kl. 20:00 Lau 6/1 kl. 20:00 Fös 12/1 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Efi (Kassinn) Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 Auka Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 7/1 kl. 15:00 Frums Sun 14/1 kl. 15:00 2.sýn Lau 20/1 kl. 15:00 3.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.