Morgunblaðið - 15.12.2017, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.12.2017, Blaðsíða 44
Gunnar and the Rest fagnar nýrri plötu  Pönksveitin Gunnar and the Rest fagnar útgáfu plötunnar First Hits með tónleikum í Hinu húsinu í kvöld kl. 20. Sveitin varð til í kjölfar tónlist- arnámskeiðs sem List án landamæra hélt í samstarfi við Lee Lynch og Hitt húsið fyrir ungt tónlistarfólk með fötlun. Á námskeiðinu var einblínt á tónlistarsköpun út frá spuna og frelsi til tilrauna. Aðgangur er ókeypis. FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. „Þessi maður er bróðir minn“ 2. Lífeyrisaldur hækkar í 70 ár 3. Búið að bera kennsl á líkið 4. „Ég var algjörlega niðurbrotin“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvartett tromp- etleikarans Snorra Sigurð- arsonar flytur jólalög úr ýmsum áttum í djass- útsetningum á Kex hosteli í dag kl. 12.15. Kvart- ettinn skipa auk Snorra þeir Ásgeir J. Ásgeirsson á gítar, Gunnar Hrafnsson á kontra- bassa og söngvarinn Kristbjörn Helgason. Jóladjass í hádeginu  Ævar Þór Benediktsson hefur gert útgáfusamning við rússneska forlagið Meshcheryakov Publishing House, um útgáfu allra fjögurra bókanna úr Þín eigin-seríunni: Þín eigin þjóðsaga, Þín eigin goðsaga, Þín eigin hrollvekja og Þitt eigið ævintýri. Samningurinn bauðst í beinu framhaldi af þátttöku hans á Kryakkbókmenntahátíð- inni í Síberíu í haust þar sem Ævar kynnti bækur sínar, gerði vís- indatilraunir og las upp úr verkum sín- um. Þín eigin-bækurnar gefnar út á rússnesku Á laugardag Vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s og slydda eða rign- ing á Suður- og Vesturlandi síðdegis, en dálítil snjókoma norð- austanlands um kvöldið. Hlýnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 2-11 m/s og víða léttskýjað sunnan- og vestanlands fram eftir degi, en él við norðausturströndina. Frost víða 1 til 10 stig. VEÐUR KR, Haukar, ÍR og Tindastóll eru áfram jöfn og efst á toppi Dominos-deildar karla í körfuknattleik en öll unnu þau leiki sína í lokaumferð ársins í gærkvöld. Mesta spennan var í Breiðholti þar sem ÍR lagði Keflavík í fram- lengdum leik. Neðstu liðin, Þór frá Akureyri og Höttur, veittu Grindavík og Njarð- vík harða keppni en máttu sætta sig við ósigra. »2-3 Fjögur lið eru áfram efst og jöfn Björn Róbert Sigurðarson og Stein- dór Ingason, landsliðsmenn í íshokkí og leikmenn Íslandsmeistaraliðs UMFK Esju, hlutu í gær þyngstu dóma sem kveðnir hafa verið upp hér á landi vegna fyrsta brots á lögum um lyfjanotkun. Dómstóll Íþrótta- og Ólympíu- sambands Íslands dæmdi leikmennina í fjögurra ára bann sem gildir frá 6. september síð- astliðnum, en þá voru þeir teknir í lyfjapróf á æf- ingu og urðu uppvísir að steranotkun. »1 Þyngstu dómarnir vegna fyrsta brots Haukar, Selfoss, FH, ÍBV, Fram og Þróttur Reykjavík tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla í gærkvöld. Óvæntustu úrslitin voru í viðureign Fram og Aftureldingar sem lék til úr- slita í bikarkeppninni á síðustu leik- tíð en Fram vann öruggan sigur en liðið hefur átt afar erfitt uppdráttar um nokkurt skeið. »4 Framarar skelltu silf- urliðinu frá í fyrra ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Senn líður að besta eða versta tíma ársins í matargerð á Íslandi, eftir því hver á í hlut, en það er Þorláks- messan. Þá er gjarnan tekið forskot á jólahátíðina og slegið upp veislu þar sem kæst skata og tindabikkja er borin á borð. Skata og tindabikkja er öðru fremur hefðbundinn matur á Vestfjörðum og er gjarnan borin fram með bráðnum hnoðmör þar fyrir vestan en annars með snark- andi heitri hamsatólg. Kæst skata er bragðmikill og afar lyktsterkur mat- ur svo ýmsum þykir nóg um. „Ég passa mig þegar ég teygi mig ofan í skötukarið að fara ekki of langt því að annars kæmist ég aldrei upp úr því aftur,“ segir Kári Þór Jó- hannsson, fisksali á Ísafirði, og hlær. „Þegar ég var unglingur og fór að vinna í frystihúsunum endaði ég oft í skötuvertíðinni, þannig að ég er bú- inn að vera í skötunni í um 40 ár. Tindabikkjan er aðallega kæst hérna fyrir vestan, hvítskatan og gráskatan er kæst og söltuð meira fyrir sunnan. Við skerum börðin af henni og setjum í ker og lát- um hana vera þar í tvær til þrjár vikur, en það fer eftir hitastiginu hvað hún tekur langan tíma að brotna nið- ur. Svo er hún roðrifin, pökkuð í lofttæmdar um- búðir og fryst,“ segir Kári um það hvernig lost- ætið er verkað. Varðandi vinsældir skötunnar segir hann toppa og lægðir í því, en að Vestfirðingar borði hana allt árið. „Skatan er samt bara kæst fyrir Þor- láksmessu, hún er í best- um holdum og feitust á haustin og gæðin mest. Hnoðmörinn fæ ég hjá vönum bændum hér fyrir vestan. Hann er tekinn og lát- inn hanga aðeins, svo er hann brytj- aður niður og loftið hnoðað úr hon- um, svona barið úr honum í stokkum,“ segir Kári. Til að ná mestu skötulyktinni burt segir hann best að skipta um vatn, sumir sjóða hangiketið strax á eftir. Stundum sé skatan svo sterk að menn hafi brunnið í munninum, en það sé oft- ast ef menn borða yfir sig af henni. „Þorláksmessa að vetri markar vertíðarlok. Áður fyrr fórust menn oft á opnum bátum í vondum veðrum og ef mennirnir skiluðu sér ekki á Þorláksmessu, þá voru auðvitað eng- in jól hjá fjölskyldum þeirra. Því var slegið upp skötuveislu þegar þeir komu heilir heim úr róðrunum,“ seg- ir Kári. „Þetta er góður fjöl- skyldufagnaður.“ „Góður fjölskyldufagnaður“  Kæst skata og tindabikkja á Þorláksmessu Á Vestfjörðum er til siðs að borða kæsta skötu á Þorláks- messu en sá siður hefur á síð- ustu árum orðið algengur um land allt. Í dag er Þorláksmessan hluti af jólaundirbúningi og dagurinn á undan var sumstaðar kallaður hlakkandi. Margir hafa þann sið að skreyta jólatréð á Þorláksmessu og á Þorláksmessukvöld í Reykjavík er friðarganga niður Laugaveginn, kíkt er á öldurhús og síðustu jólainnkaupin gerð. Þorláksmessa 23. desember er til heiðurs Þorláki helga Þórhalls- syni, biskupi í Skálholti, sem dó þann dag árið 1193. Þorláksmessa á sumri er 20. júlí, frá árinu 1237, til að minnast þess að bein Þorláks voru tekin upp og lögð í skrín til áheita. Fyr- ir siðaskipti var hún ein mesta hátíð ársins en er flestum gleymd í dag. Í dag hluti jólaundirbúnings Þorlákur helgi Þórhallsson, dýrlingur Íslendinga. ÞORLÁKSMESSA VAR ÁÐUR HALDIN TVISVAR Á ÁRI Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Fisksali Kári Þór Jóhannsson selur skötu árið um kring á Ísafirði og hlakkar að vonum til Þorláksmessunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.