Morgunblaðið - 29.12.2017, Side 38

Morgunblaðið - 29.12.2017, Side 38
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, náði kosningu í fjórða skipti þegar Þjóð- verjar gengu að kjörborðinu 24. september. Uppgangur flokksins Annar kostur fyrir Þýskaland (AfD) varpaði skugga á úrslitin fyrir Merkel. Flokkurinn vill stemma stigu við fjölgun innflytjenda og hét því að berjast gegn „innrás útlend- inga“. Um leið hampaði hann þjóðernishyggju, sem hefur að mestu verið for- boðið í Þýskalandi frá seinni heimsstyrjöld. AfD fékk 13% atkvæða og er nú þriðji stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Fylgisaukning flokksins var sambæri- leg við aukið fylgi Marine Le Pen, forsetaframbjóðanda Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi. Tveimur mánuðum síðar slitnaði upp úr stjórnarmyndunarvið- ræðum Merkel við Græningja og Frjálsa demókrata. Takist ekki að mynda stjórn með núverandi samstarfsflokki hennar, sósíaldemókrötum, gætu Þjóð- verjar þurft að kjósa aftur. TOM/Trouw – Amsterdam í Hollandi September Enn sækja öflin lengst til hægri í sig veðrið 38 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017 Minnst 80 manns létu lífið og um 70 slösuðust 14. júní í mannskæðasta elds- voða í Bretlandi í heila öld. Eldurinn kviknaði í Grenfell-turni í vesturhluta Lund- úna. Íbúar sögðust ítrekað hafa kvartað undan lélegum öryggisbúnaði í húsinu. Lundúnalögreglan sagði að eldfim efni í nýju ytra byrði félagsíbúðahússins hefðu valdið því hvað eldurinn breiddist hratt út. Bresk stjórnvöld komust að því að hættuleg efni af svipuðum toga væri að finna í félagslegum byggingum um landið allt. Júní Lundúnabúar syrgja fórnarlömb eldsins í Grenfell-turni VAN DAM/Landsmeer - Holland ROYAARDS/Cartoon Movement – Amsterdam í Hollandi Júlí Risaísjaki losnar frá Suðurskautslandinu Einn stærsti ísjaki sem vitað er um losnaði frá Suðurskautslandinu 12. júlí. Tal- ið er að jakinn hafi verið billjón tonn að þyngd. Hann var hluti af Larsen- íshellunni og losnaði eftir að brestur fór eftir yfirborði hennar með miklum hraða og tvöfaldaðist í lengd frá janúar til júlí. Þótt sumir vísindamenn hiki við að tengja brot úr íshellunni við hlýnun jarðar töldu umhverfisverndarsinnar þetta slæman forboða. Í júlí og ágúst tísti Donald Trump Bandaríkjaforseti án afláts um áhyggjur sínar út af áframhaldandi tilraunum Kims Jong-uns, leiðtoga Norður-Kóreu, á lang- drægum kjarnorkuflaugum og kjarnavopnum. Trump var ómyrkur í máli við blaðamenn þegar hann varaði Norður-Kóreu við. „Þeir munu finna fyrir eldi og reiði þannig að heimurinn hefur aldrei séð annað eins,“ sagði Trump. Stjórn hans náði í ágúst fram nýjum refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu á vettvangi öyrggisráðs Sameinuðu þjóðanna, en þær gerðu lítið til að koma í veg fyrir að Norður-Kórea ætti í viðskiptum við Kína. Þvingunaraðgerðir Bandaríkjamanna voru einnig hertar og Norður-Kóreu var bætt á lista bandarískra yfirvalda yfir ríki sem styðja hryðjuverk. Ágúst Trump tístir og Norður-Kórea gerir kjarnorkutilraunir VAN DAM/Landsmeer – Holland Einhver mesta pólitíska kreppa sem Spánverjar hafa glímt við í áratugi er skollin á. Íbúar Katalóníu greiddu 1. október atkvæði um hvort héraðið ætti að verða sjálfstætt ríki. Óánægja meðal Katalóna, sem eiga sitt eigið tungumál og menningu, hefur ýtt undir aðskilnaðarhreyfingu undir forustu Carles Puigdemonts, forseta Katalóníu. Hann hafði haldið því fram að stjórnvöld í Madríd hefðu of mikil völd. Eftir að katalónska þingið, sem hefur aðsetur í Barcelona, lýsti yfir sjálfstæði sótti spænska stjórnin 20 menn úr forystu Katalóna til saka og ráðamenn í Madríd tóku yfir stjórn Katalóníu. SCHRANK/Basler Zeitung – Basel í Sviss Október Vaxandi deilur á Spáni ERLENDAR SKOPMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.