Morgunblaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 33
Lögregla forðar barni úr íranska þinghús-
inu í Teheran. Vopnaðir menn og menn
gyrtir sprengjum gerðu samtímis árás á
þinghúsið og við gröf Ruhollahs Khomeinis
erkiklerks, stofnanda íslamska lýðveldisins,
7. júní. Sjö létust og 50 særðust í árás-
unum. Vitað er um sex árásarmenn og
voru þeir allir vegnir. Hryðjuverkasamtökin
Ríki íslams lýstu yfir ábyrgð á tilræðinu.
Öfgahreyfingin tilheyrir armi súnní-múslima
og var þetta í fyrsta skipti, sem hún lét til
skarar skríða í landi þar sem sítar eru í
meirihluta. Tólf dögum síðar gerðu Íranar
nokkrar flugskeytaárásir, sem beint var
gegn Ríki íslams í Sýrlandi.
Omid Vahabzadeh/Agence France-Presse — Getty Images
Hryllingur í
Teheran
Damon Winter/The New York Times
Kvenna-
ganga víða
um heim
21 milljón manna víða um
heim, allt frá Japan til Sim-
babve, tók þátt í göngum
sem blaðamenn New York
Times kölluðu „nokkurs
konar andembættistöku“
daginn eftir að Donald
Trump var svarinn í embætti
Bandaríkjaforseta. Á mynd-
inni heldur mótmælandi á
lofti baráttumerki kvenna við
Washington-minnisvarðann í
Washington. Margir mót-
mælendanna höfðu vonað
að þeir myndu fagna emb-
ættistöku fyrstu konunnar á
stóli forseta. Þess í stað
lýstu þeir yfir stuðningi við
allt frá umhverfismálum til
umbóta í málefnum innflytj-
enda. Margir báru bleika
hatta, sem urðu að tákni
göngunnar.
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 33
Johan Ordonez/Agence France-Presse Getty Images
Hiti í mótmælum í Hondúras
Til blóðsúthellinga kom í mótmælum eftir harðvítuga kosningabaráttu milli Juan Orlando
Hernández, forseta Hondúras, og Salvadors Nasralla, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Að
minnsta kosti tugur óbreyttra borgara særðist og ein kona lét lífið í átökum í höfuðborginni,
Tegucigalpa, eftir kosningarnar 26. nóvember. Niðurstaðan var sú að Hernández héldi völd-
um þrátt fyrir kröfur stjórnarandstöðunnar um endurtalningu. Í kjölfarið setti stjórnin út-
göngubann um land allt. Hernández settist í stól forseta eftir að Manuel Zelaya, fyrrverandi
forseta, var steypt í valdaráni hersins 2009.
Brotnar rúður sýna vígið þar sem leyniskytta hreiðraði um sig þegar hún lét skotum rigna yfir
gesti á útitónleikum í Las Vegas 1. október. 58 manns létu lífið og mörg hundruð særðust í
mannskæðustu skotárás í seinni tíma sögu Bandaríkjanna. Stephen Paddock skaut á mann-
fjöldann, sem kominn var saman fyrir neðan herbergi hans á Mandalay Bay-hótelinu og -spila-
vítinu. Paddock var milljónamæringur samkvæmt fréttum. Hann var 64 ára gamall. Hann fyrirfór
sér eftir árásina. Ekki er vitað hvers vegna hann framdi fjöldamorðið. Lögregla fann 23 byssur í
herbergi hans auk hamars sem hann notað til að brjóta glugga hótelherbergisins.
Eric Thayer/The New York Times
Fjöldamorð í Las Vegas
José A. Rivera, bóndi í
Yabucoa á suðausturströnd
Púertó Ríkó, missti 14 þús-
und mjölbananatré þegar
fellibylurinn María skall á
eynni 20. október. Talið er að
tjónið af völdum fellibylsins
fyrir landbúnað á Púertó Ríkó
hafi verið 211 milljarðar
króna, samkvæmt tölum
bandaríska landbúnaðar-
ráðuneytisins. Fellibylja-
tímabilið var einstaklega
slæmt í ár og varð víða mikið
tjón, allt frá Dominíku til
Gvadeloupe og Jómfrúar-
eyja. María var annar fimmta
stigs fellibylurinn á árinu.Victor J. Blue/The New York Times
Eyðilegg-
ing í Karí-
bahafinu