Morgunblaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 60
Landamæri geta ekki verndað okkur 60 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017 September færði okkur mikla hryggð, örvænt- ingu og reiði þegar forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hvatti þingið til að afnema í áföngum DACA, lög og reglur sem kveða á um að beðið sé með að vísa úr landi fólki sem hefur komið til landsins ólöglega á barnsaldri. Um er að ræða tilhögun sem tryggði framtíð um 800 þúsund barna frá öllum heimshlutum, barna sem nú búa í Bandaríkjunum og þurftu ekki að óttast brottvísun. Mexíkóar eru um 80% þess- ara barna og því er mun meira í húfi fyrir þá en nokkra aðra þegar lögin verða afnumin. Fólk frá Rómönsku Ameríku, einkum Mexíkóar, hefur verið helstu skotmörk stöð- ugra rasistaárása Trumps. Að sögn hans erum við sek um allar tegundir glæpa. Við höfum ver- ið kölluð nauðgarar og fíkniefnasalar og þjófar sem steli störfum frá Bandaríkjamönnum. Hann hefur krafist þess að við borgum fyrir múr milli landa okkar, múr sem myndi koma í veg fyrir að við kæmumst til Bandaríkjanna. Margir þeirra sem njóta reglna DACA komu þegar þeir voru smábörn og þekkja engin önn- ur heimkynni en Bandaríkin, þeir hylla samt fæðingarland sitt og ættjörð, hafa tileinkað sér með hreykni tvöfalda sjálfsvitund. Í sérhverju landi er til Draumafólk, eins og þessir ungu innflytjendur eru nefndir. Þegar þeir vaxa úr grasi, stunda nám, stofna fyrirtæki og skiptast á hugmyndum við aðra taka þeir þátt í að efla hnattrænan heim þar sem menn- ing blandast annarri menningu. Íbúar þessa nútímaheims vilja nýja gerð ríkisborgararéttar og lýðræðis. Þeir láta ekki duga að greiða atkvæði heldur mótmæla þeir ákaft þegar þeim finnst að þeir fái ekki réttláta meðhöndlun. Þeir vilja stuðla að sjálfbærum hagvexti. Þeir hafa áhyggjur af miklum lofts- lagsbreytingum á jörðinni. Þessir heimsborgarar vita hvers virði þeir eru. Hvað sem líður litarafti þeirra, uppeldi eða þjóðerni geta þeir dafnað vel í margs konar um- hverfi. Við sjáum á hverjum degi dæmi um þetta háþróaða fólk sem berst fyrir því að binda enda á rasisma og vill fá ríkisstjórnir sínar til að tryggja jafnrétti, tryggja að hagsmuna allra sé gætt og öllum sýnd umhyggja. Innflutningur fólks er blæbrigðaríkt og flók- ið fyrirbæri og það er ekki til neitt einfalt svar þegar spurt er hvernig ríkisvaldið eigi að takast á við málefni þjóðaröryggis. Allir sem einhvern tíma hafa verið í forystu fyrir þjóð, ég sjálfur er ekki undanskilinn, skilja að það er forgangs- verkefni að tryggja öryggi borgaranna. En svarið er samt ekki að refsa þeim körlum og konum sem hafa vegna aðdáunar sinnar á land- inu og tryggðar við það unnið ötullega og náð árangri. Við höfum heyrt margar sögur af ungu fólki sem hefur komið til Bandaríkjanna með for- eldrum sínum en þá dreymdi um að útvega börnum sínum besta hugsanlega lífið sem þeir gætu. Þessir draumar fengu foreldrana til að leggja í hættulega ferð yfir landamærin og inn á óþekkt svæði. Börnin, unga fólkið, hefur síðan fengið menntun, unnið sig upp í samfélaginu, hjálpað foreldrum sínum við að útfylla starfs- umsóknir og læknaeyðublöð á ensku, einnig sent fólki á fæðingarstað sínum hjálp og leið- beiningar. Þau vilja ekki valda nýja landinu sem þau hafa valið tjóni – þvert á móti. Þau vilja bara fá viðurkenningu. Bandaríkin njóta mikillar aðdáunar vegna þess sem þau virðast vera tákn fyrir; jafnréttis, tækifæra og fjölbreytni. Ef menn afnema DACA yrði um að ræða risastórt skref aftur á bak fyrir þjóð sem ávallt hefur verið hreykin af umburðarlyndi sínu. Skaðann sem það mun valda í lífi mörg hundruð þúsund karla og kvenna er ekki hægt að reikna út að fullu og hagnaðurinn er enginn. Breytingin myndi refsa fólki sem vildi svo eindregið búa í ákveðnu landi að það hætti öllu til að komast þangað. Ef framtíðin ætlar að færa okkur hugsunina um hnattræna sjálfsvitund og lönd án landa- mæra er mikilvægt að við leggjum áherslu á að varðveita og hylla menningarlegar hefðir okkar. Siðir okkar og venjur færa okkur sinn skerf í spennandi blöndu af hugmyndum, reynslu og sögum. Um leið og við heiðrum það sem hver ein- staklingur færir með sér að borðinu vegna upp- runa síns verður hugtakið ,,minnihlutahópur“ tímaskekkja. Sérhver manneskja hefur sína eigin sögu að segja og býður fram sína eigin getu og færni, sem í reynd gerir okkur öll jafn fær um að leggja fram skerf til samfélagsins. Íhaldssamar hreyfingar um allan heim hafa lagst gegn þessari menningarlegu blöndun, ekki bara í Bandaríkjunum heldur alls staðar í heiminum, frá Brexit-tilrauninni í Bretlandi til ofur-hægriflokksins Alternative í Þýskalandi í kosningunum á þessu ári. Hraðar breytingar og truflandi atburðir hafa fært með sér óstöðug- leika og áhyggjur og andsvar íhaldssamra leið- toga hefur verið að lofa ró og öryggi með vernd- arstefnu og öfgafullri þjóðernisstefnu. Við getum ekki gripið til þessa gamla ráðs andspænis nýjum vanda. Það er ekki lengur vænlegt til árangurs að loka dyrunum í heimi sem er að verða ein heild í pólitískum, efna- hagslegum, félagslegum og menningarlegum skilningi. Það er þröngsýnt og hatursfullt að banna körlum og konum að koma til lands vegna trúar þeirra. Það er óþarflega grimm- úðlegt að banna flóttamönnum og hælisleit- endum að njóta þeirra tækifæra sem mörg landa okkar geta veitt þeim og í tilfellinu DACA hefur það aðeins þær afleiðingar að valda þeim meðbræðrum okkar og systrum sem berskjöld- uðust eru tjóni. © Vicente Fox Quesada. Á vegum The New York Times Syndicate. Guillermo Arias/Agence France-Presse — Getty Images Guillermo Arias/Agence France-Presse — Getty Images Ímyndum okkur nýja hnattræna sjálfsvitund þar sem hugtakið minnihlutahópur er söguskekkja. VICENTE FOX QUESADA var forseti Mexíkó 2000-2006. Það er ekki lengur vænlegt til árangurs að loka dyrunum í heimi sem er að verða ein heild í pólitískum, efnahagslegum, fé- lagslegum og menningarlegum skilningi. Það er þröngsýnt og hatursfullt að banna körlum og kon- um að koma til lands vegna trúar þeirra. ÚTFÆRSLUR Á MÚR MILLI BANDARÍKJANNA OG MEXÍKÓ AFHJÚPAÐAR ’’ TU RN ING POINTS | TÍM A M Ó T | 2018 |TURNINGPOIN TS |T ÍM A M Ó T | 20 18 | Hluti af girðingunni, sem nú þegar er á landamærum Mexikó og Bandaríkjanna, eins og hann blasir við í Mexikó. Ítrekuð loforð Trumps um að stækka tálmann og reisa múr milli landanna hafa vakið reiði beggja vegna landamæranna. Verk eftir franska listamanninn JR í Tecate í Mexikó sýnir lítið barn gægjast yfir girðinguna á landamærum Bandaríkjanna og Mexikó. Verkið í heild sinni sést aðeins frá Bandaríkjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.