Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Við erum á facebook Útsalan hafin 40-50% afsláttur Opið 12-18 í dag Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Bíll valt í Ártúnsbrekku um klukk- an tvö eftir hádegi í gær. Var öku- maður einn í bílnum og var mað- urinn í kjölfarið fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til að- hlynningar. Ekki var unnt að fá upplýsingar um líðan mannsins. Ökumaður bifreiðarinnar var á leið í vesturátt þegar bíllinn hafnaði á vegriði meðfram veginum og valt niður brekku skammt frá stoppi- stöð Strætó. Bifreiðin, sem er af gerðinni Volkswagen Golf Variant, er gjörónýt. Þá mun vegriðið við Ártúnsbrekkuna hafa farið í sund- ur. Mikill viðbúnaður lögreglu, slökkviliðs og sjúkrabíla var á vett- vangi þar sem m.a. var stuðst við tækjabíl frá slökkviliðinu á höfuð- borgarsvæðinu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Óhapp Bifreiðin er ónýt eftir að hafa hafnað á vegriði og oltið niður brekku. Fluttur á bráða- deild eftir bílveltu  Vegrið fór í sundur við Ártúnsbrekku Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Flugeldasala fyrir gamlárskvöld á vegum Slysavarnafélagsins Lands- bjargar gekk heilt yfir ágætlega, segir Smári Sigurðsson, formaður slysavarnarfélagsins, í samtali við Morgunblaðið. „Margar sveitir seldu svipað magn og í fyrra. Þá seldu nokkrar sveitir meira en í fyrra, sem er ánægju- legt.“ Hjá öðrum sveitum var salan þó minni eða um- talsvert minni. „En meginlínan er að salan gekk vel og við erum afar þakklát fyrir stuðninginn,“ segir Smári enn- fremur um flugeldasöluna fyrir ára- mótin. Mesta salan í stærri bæjum Smári segir aðspurður að það sé ekki gott að segja hvað valdi miklum mismun milli flugeldasölu björgun- arsveita. „Það er alveg ljóst að björgunarsveitir í fámennari býlum selja ekki marga flugelda. Salan er fyrst og fremst í stærri bæjum og þorpum.“ Þá segir Smári að félagið hafi fundið fyrir vexti samkeppnis- aðila á höfuðborgarsvæðinu, Suður- nesjum, og Akureyri á undanförnum árum. Misjöfn sala fyrir þrettándann Aðspurður hvernig flugeldasalan er í tengslum við þrettándann svarar Smári að hún sé mismunandi eftir sveitarfélögum. „Ekki er alls staðar hefð fyrir því að selja á þrettándan- um en þó hefur verið hægur stígandi í flugeldasölu fyrir þrettándann. Ég hef því trú á meira fjöri í ár. Þrett- ándinn er á laugardegi og salan snýst því í kringum helgi þannig að ég hef fulla trú á ágætri sölu, sem er þó auðvitað pínulítil miðað við söluna fyrir áramótin.“ Morgunblaðið/Hari Áramót Landsbjörg er þakklátt fyr- ir stuðninginn í flugeldasölunni. Landsbjörg sátt með flugeldasölu  Stígandi er í sölu fyrir þrettándann Smári Sigurðsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Allur gangur var á því hve erlendir ferðamenn, sem lögðu leið sína á Esjuna í gær, nýársdag, voru vel búnir í fjallgöngur. Íslendingar sem fóru á fjallið og eru vanir þurftu meðal annars að aðstoða rússneskt par sem hafði lagt á brattann en var ekki með nauðsynlegan fótabúnað. Tóku Íslendingarnir þau rússnesku því undir sinn vernd- arvæng og fylgdu þeim niður á bílastæðin við Mógilsá. Áður höfðu þeir rekist á Japani komna hátt upp í hlíðar fjallsins á strigaskóm og voru þeir hvattir til að snúa til baka hið snarasta, enda duga ekkert minna en mann- broddar í Esjuferðum um þessar mundir þar sem flug- hált er í fjallinu. Markaði spor með öxinni „Mér þóttu Íslendingarnir sem voru á Esjunni í gær almennt mjög vel búnir. Velflestir voru þeir á góðum gönguskóm með mannbroddum, enda kröfðust aðstæður þess. Þá voru margir með stafi og einhverjir voru með axir. Sjálfur hafði ég þannig tól sem dugði til að marka spor í ísinn þar sem Rússarnir príluðu yfir,“ segir Pétur Haukur Helgason sem þarna var á ferðinni í gær. „Það er kannski umdeilanlegt hversu vel ég sjálfur var búinn, þá búinn að lána mannbroddana mína svo göngufólkið frá Rússlandi gæti komist heilu og höldnu til baka. Raunar var ég fleirum innan handar með tæki sem þurfti og auðvitað er bara fínt að fara inn í nýtt ár með því að hafa hjálpað öðrum.“ Fjallabálkur veðrabrigða Eins og fram kom í Morgunblaðinu á dögunum voru fyrir skemmstu sett upp fræðsluskilti á þremur stöðum við Esjuna, þar sem göngufólk er varað við þeim hættum sem ferðum á fjallið fylgja. Hefur verið bent á tvö bana- slys sem þar hafa orðið á síðastliðnum fimm árum – auk þess sem björgunarsveitarmenn þurfa reglulega að fara á fjallið til að sinna óhöppum eða slysum. Telst fólki í björgunarsveitunum svo til að það hafi farið í útkall í Esjuna að meðaltali annan hvern mánuð síðastliðin fjög- ur ár. Í því tilliti hefur þótt nauðsynlegt að vara við hætt- unum sem felast meðal annars í því að Esjan er 900 metra há; mikill fjallabálkur sem dregur öll veðrabrigði að sér. Margir átta sig ekki heldur á þeirri staðreynd að þegar komið er upp í 500 metra hæð er þar allt annað veðrakerfi en á jafnsléttu og séu náttúruöflin í ham eru þau ekkert lamb að leika sér við. Morgunblaðið/Baldur Arnarson Útsýni Það var fallegt að litast um á Esjunni í gær, þó fjallgangan væri talsvert klöngur um ísbunka og harðfenni. Esjan er aðeins fær fólki á mannbroddum  Rússar lentu í vanda og Japanir sneru við á strigaskóm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.