Morgunblaðið - 02.01.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
o
o
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Það er tilviljun að ég skrifaðiþessa bók, en árið 2010 laség erlenda grein um kana-díska hermenn í fyrri
heimsstyrjöld, en í henni var talað
um Dani, Svía og Norðmenn sem
höfðu flutt til Kanada eins og Ís-
lendingar á þessum tíma, ásamt
öðrum þjóðum eins og Pólverjum og
Úkraínumönnum,“ segir Jakob Þór
Kristjánsson alþjóðastjórnmála-
fræðingur, en hann hefur nýlokið
við að skrifa bókina Mamma, ég er á
lífi – Íslenskir piltar í víti heims-
styrjaldar sem kom nýlega út hjá
Sögum, útgáfu.
„Greinin var um þá sem höfðu
barist fyrir Kanada í fyrri heims-
styrjöldinni en það var ekkert
minnst á Íslendingana. Ég vissi að
Íslendingar höfðu líka barist með
kanadíska hernum því ég hafði lesið
um það áður í ævisögum og ætt-
fræðiskrám. Eins hefur verið skrif-
að lítillega um þetta áður. Ég fór því
að skoða málið fyrir forvitni sakir,
þannig að ég byrjaði að skrifa grein,
en svo var þetta svo mikið efni að
þetta varð að bók,“ segir Jakob.
Sveitastrákar frá Íslandi
„Ég fékk bréf, bréfasöfn og
dagbækur sendar frá Vestur-
Íslendingum sem ég nota í bókinni
og ég átti í samskiptum við Vestur-
Íslendinga. Skyldmenni mín voru á
vígvellinum, en það vissi ég ekkert
um fyrr en ég byrjaði að skrifa bók-
ina. Svo talaði ég við afkomendur
þessara manna. Það eru ekki nema
hundrað ár síðan, þrjár til fjórar
kynslóðir. Mikið af bréfunum birtist
í vesturíslensku blöðunum Lögbergi
og Heimskringlu og ég styðst við
þau bréf líka. Þar var mikið fjallað
um stríðið og hvort Íslendingar
ættu yfir höfuð að gefa kost á sér í
þetta stríð. Þetta voru sveitastrákar
frá Íslandi, nýfluttir til Kanada en
svo voru þeir allt í einu mættir á
einhvern vígvöll í Frakklandi,“ segir
Jakob.
Þetta er saga sem
má ekki gleymast
Vestur-Íslendingar börðust á vesturvígstöðvum fyrri heimsstyrjaldar. Einlæg
bréf þeirra til ástvina lýsa söknuði, ótta og einmanaleika. Margir þeirra upp-
lifðu að þeir væru að berjast fyrir Ísland. Jakob Þór Kristjánsson hefur sent frá
sér bókina Mamma, ég er á lífi – Íslenskir piltar í víti heimsstyrjaldar, en hún
geymir bréf og frásagnir vestur-íslenskra pilta sem tóku þátt í fyrri heimsstyrjöld.
Ljósmynd/Úr bókinni
Heldur hráslagalegt Fjórir ungir hermenn í skotgröfum árið 1915.
Við upphaf nýs árs er algengt að fólk
taki til í ranni sínum á einhvern hátt
og oft tengist það mataræðinu. Sum-
ir ákveða að draga úr sykuráti sínu,
aðrir kjósa að minnka sína matar-
skammta og svo eru þeir sem vilja
prófa algjörlega nýtt mataræði. Þá er
úr ýmsu að velja, en fyrir þá sem
langar að prófa að hætta að borða
dýraafurðir af einhverjum ástæðum,
og gerast vegan, er um að gera að
bregða sér á kynningarfund á vegum
samtaka grænmetisæta á Íslandi. Sá
kynningarfundur verður á morgun
miðvikudag 3. janúar kl. 20 í Bíó
Paradís. Yfirskrift kynningarfundar-
ins er Veganúar 2018 (sett saman úr
orðunum vegan og janúar), en mark-
mið veganúar er að vekja fólk til um-
hugsunar um áhrif neyslu dýraafurða
og kynna kosti vegan-fæðis fyrir
heilsu, umhverfi og dýravernd. Öllum
opið og ókeypis.
Vefsíðan www.veganuar.is
GettyImages/iStackPhotos
Grænmeti Allt er vænt sem vel er grænt, stendur einhvers staðar.
Kynnið ykkur kosti vegan-fæðis
Karate er alhliða líkamsrækt sem
reynir á allan skrokkinn og er fyrir
alla aldurshópa. Fólk getur iðkað
íþróttina á eigin forsendum og hægt
er að iðka karate jafnt sem hefð-
bundna bardagalist og öfluga nútíma
keppnisíþrótt. Í Þórshamri í Reykja-
vík æfa iðkendur á aldrinum 5-70 ára
og á facebooksíðu Þórshamars kem-
ur fram að það sé algengur misskiln-
ingur að karateiðkendur þurfi að vera
kattliðugir og í toppformi til að byrja
að æfa. Það er alls ekkert skilyrði en
kemur oftast smám saman með æf-
ingunni. Það er aldrei of seint að
byrja og fólk getur haldið áfram að
æfa alla ævi og aðlagað æfingarnar
sinni getu.
Næstkomandi fimmtudag, 4. jan-
úar, ætlar María Helga að opna vor-
önnina hjá Þórshamri með opinni æf-
ingu fyrir alla. Fullorðna og krakka,
unglinga og ömmur, foreldra, afa og
langafa. Allir eru velkomnir, byrj-
endur og lengra komnir. Æfingin
verður frá kl. 17.30-18.30.
Karatefélagið Þórshamar er til
húsa í Brautarholti 22 í Reykjavík.
Opin ókeypis æfing fyrir fólk á öllum aldri hjá Þórshamri
María Helga opnar nýja árið
með öfum, ömmum og krökkum
Gaman Þjálfarar Þórshamars á góðri stundu, María Helga önnur frá hægri.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Vissulega ráðum við mannfólkið ekki
alfarið örlögum okkar, ýmislegt getur
hent í lífinu sem við höfum enga
stjórn á. En það sem við getum reynt
að hafa stjórn á er hvernig við tök-
umst á við það sem á vegi okkar verð-
ur. Og þá skiptir mestu máli að velja
jákvæðnina fram yfir neikvæðnina,
kjósa að líta á glasið hálffullt en ekki
hálftómt. Með gleðina að leiðarljósi
verður allt miklu auðveldara og fólk
laðast auk þess frekar að brosmildu
fólki en fýlupokum. Og við vitum öll
að ánægjuleg nærvera við lifandi
manneskjur er það sem gefur lífinu
gildi. Minnum okkur á þetta á hverj-
um morgni áður en við höldum út í
daginn. Gleðilegt nýtt ár!
Endilega …
… veljið gleðina á nýju ári
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gaman gaman Hoppandi hamingja.