Morgunblaðið - 02.01.2018, Page 14
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Á nýliðnu ári tókum við á móti 1,3
milljónum gesta hér í Bláa lóninu og
það er nýtt met. Vöxturinn milli ára
nemur um 16%
því árið 2016 voru
gestirnir ríflega
1,1 milljón.“
Þetta segir Grím-
ur Sæmundsen,
forstjóri Bláa
Lónsins, en vöxt-
ur fyrirtækisins
hefur reynst æv-
intýralegur og er
lónið á Reykja-
nesi, ásamt þeirri þjónustu sem þar
er boðið upp á, fyrir löngu orðið einn
mest sótti ferðamannastaður lands-
ins.
Aðsóknin jafnast út
Grímur bendir á að á síðustu ár-
um hafi aðsóknin orðið jafnari yfir
mánuði ársins og nú séu stærstu
mánuðirnir að skila um 150 þúsund
gestum meðan aðrir fari niður í 90
þúsund.
„Þetta skýrist m.a. af mismiklum
fjölda sem sækir landið heim en
einnig af þeirri staðreynd að yfir
vetrartímann styttum við opnunar-
tímann. Við leggjum mikla áherslu á
heildarupplifun gestanna og stýrum
því með virkum hætti hversu margir
eru ofan í lóninu á hverjum tíma.
Við stækkuðum t.d. lónið um helm-
ing árið 2015 án þess að slaka á
fjöldatakmörkunum en markmiðið
var að bæta upplifun gesta okkar.“
Frekari skref stigin í
aðgangsstýringu í lónið
Hann segir að aðgangsstýringin
hafi gefist afar vel allt frá því að
henni var komið á laggirnar árið
2015 og að enn sé verið að innleiða
tækni sem styðji við þá nálgun.
„Þetta hefur komið afar vel út og
dreifir fjölda gesta mun betur yfir
daginn. Þannig nýtist t.d. mun betur
fyrsti klukkutíminn af deginum og
einnig sá tími á kvöldin sem var
minna nýttur af gestum.“
Langstærstur hluti gesta Bláa
lónsins bókar aðgöngumiða þangað
áður en í lónið er komið, enda hættir
fólk að öðrum kosti á að þurfa frá að
hverfa. Forbókunin opnar fyrirtæk-
inu mörg tækifæri að sögn Gríms.
„Fólk bókar sig langt fram í tím-
ann og við erum komin í netsam-
band við um helming okkar við-
skiptavina meira en þrjátíu dögum
áður en þeir mæta til okkar. Við
fylgjum heimsókn gesta okkar einn-
ig eftir með virkum hætti og mælum
NPS-skor eða meðmælavísitölu og
spyrjum gesti okkar út í upplif-
unina. Það er hægt því við erum
með tengingu við þá í gegnum net-
fang sem þeir hafa skráð við kaup á
aðgangi að lóninu. Niðurstöður
þessarar eftirfylgni sýnir að gestir
okkar eru ánægðari með upplifunina
eftir að við tókum upp aðgangsstýr-
inguna heldur en fyrir. Þetta er líka
betra fyrir starfsfólkið og jafnar
álagið á það og gerir því kleift að
veita betri þjónustu.“
Tengjast sífellt fleiri við-
skiptavinum gegnum netið
Þá segir Grímur að fyrirtækið
hafi náð miklum árangri í að nálgast
fólk í gegnum netið. „Ef við skoðum
tímabilið frá 1. nóvember 2016 til 31.
október 2017 þá sóttu um 3,2 millj-
ónir manna heimasíðuna okkar
heim. Þær heimsóknir skiluðu 681
þúsund bókunum sem er afar hátt
hlutfall og hvetjandi fyrir okkur.“
Grímur segist eiga von á fjölgun
gesta á nýju ári og þá tekur fyrir-
tækið í notkun nýja þjónustu.
„Við gerum ráð fyrir 5-6% fjölgun
milli ára meðan almennt er talið að
ferðamönnum hér á landi muni
fjölga um 10-11%. Samhliða fleiri
lóngestum erum við farin að opna
fyrir bókanir á nýtt hótel og heilsu-
lind sem tengd er lóninu. Hótelið
verður 62 herbergi með glæsilegri
aðstöðu. Allt eru þetta einskonar
svítur en 4 þeirra eru stærri með
einkalóni og svo er ein sem sker sig
úr og er stærri en allar hinar.“
Stefnir í 600 heilsársstörf
Hjá fyrirtækinu eru í dag um 500
heilsársstörf en Grímur segir þau
fara í 600 þegar nýja hótelið verður
komið í gagnið.
„Þetta er mikið umfang og margt
sem tengist kjarnastarfseminni. Það
eru um 200 manns sem starfa á veit-
ingasviði og annað eins á baðstaðn-
um. Við rekum í dag 35 herbergja
hótel og einnig fjórar verslanir og
netverslun sem selja húðvörur Bláa
Lónsins. Að auki erum við umfangs-
mikla rannsóknar- og þróunar-
starfsemi á svæðinu og loks má
nefna að við rekum eitt stærsta
þvottahús landsins í Grindavík.
Þannig að starfsemin er afar fjöl-
breytt.“
Metfjöldi gesta kom í lónið
Morgunblaðið/Ófeigur
Ferðaþjónusta Bláa lónið er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Aukin aðgangsstýring hefur bætt upplifun
gesta að sögn Gríms Sæmundsen. Í mánuði hverjum sækja 90 til 150 þúsund manns lónið. Mest er aðsóknin á sumrin.
1,3 milljónir manna komu í Bláa lónið 2017 Búast við 5-6% vexti á þessu ári
Tengja við stóran hóp viðskiptavina löngu áður en að heimsókn þeirra kemur
Grímur
Sæmundsen
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
ÙTSALA
FRÍ HEIMSENDING
UM ALLT LAND
Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrverandi
fræðslustjóri í Reykjavík, lést á
Landspítalanum í
Fossvogi á gamlársdag.
Hún var fædd 13. nóv-
ember 1932 á Akureyri,
dóttir hjónanna Guð-
rúnar Rósinkarsdóttur
og Brynjólfs Sigtryggs-
sonar. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MA árið
1952 og las síðan heim-
speki við Háskóla Ís-
lands. Áslaug var
menntaður kennari og
sérkennari og lauk
mastersprófi í uppeld-
is- og kennslufræðum.
Árið 1962 hóf Áslaug
kennslu við Vogaskóla í
Reykjavík og var síðan í nokkur ár
framkvæmdastjóri Bóksölu stúd-
enta. Kom hún svo til starfa við
Fossvogsskóla árið 1972. Þar var
hún kennari, yfirkennari og loks
skólastjóri. Árið 1982 var Áslaug
skipuð fræðslustjóri í Reykjavík og
var það allt þar til embættið var lagt
niður þegar sveitarfélögin tóku við
rekstri grunnskólanna árið 1996. Þá
fór hún til starfa hjá Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur og var um-
boðsmaður foreldra og skóla, til árs-
ins 2001. Þá settist hún í stjórn
Áslandsskóla og var skólastjóri þar
2001-2002.
Auk þeirrar menntunar sem fyrr
er nefnd aflaði Áslaug sér þekkingar
á tungumálum, í stjórnun og á sviði
skólamála og skrifaði
einnig fræðilega um
skólamál, einkum á
sérsviði sínu sem var
samskipti heimilis og
skóla.
Á sviði félagsmála
lét Áslaug talsvert til
sín taka. Hún átti sæti
í Menntamálaráði og
stjórn Menningarsjóðs
um langt skeið, gegndi
ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir samtök
kennara og sat í stjórn
Kvenréttindafélags Ís-
lands og starfaði mikið
með samtökum kvenna
í fræðslustörfum, Delta, Kappa,
Gamma. Hún fékk fálkaorðu fyrir
störf sín að fræðslumálum árið 1997.
Hún var jafnfram mjög virk í starfi
Framsóknarflokksins, sat þar í mið-
stjórn og átti oft sæti á framboðs-
listum.
Fyrri maður Áslaugar var Guð-
mundur E. Sigvaldsson (1932-2004)
og eignuðust þau fjögur börn; Ragn-
heiði menntaskólakennara, Birgi
stjórnmálafræðing, Gunnar Braga
framkvæmdastjóra í fiskeldi í Nor-
egi, og Guðrúnu Bryndísi barna- og
unglingageðlæni.
Seinni maður Áslaugar var Jó-
hann Gíslason. Hann lést árið 2004.
Andlát
Áslaug Brynjólfsdóttir
Raunvísindastofnun Háskóla Ís-
lands/Jarðvísindastofnun og Flug-
leiðsögusvið Isavia hafa gert með
sér samning um að flugvél fyr-
irtækisins verði notuð í vöktunar-
flug vegna eftirlits með eldstöðvum
í jöklum hér á landi.
Kveður samningurinn m.a. ann-
ars á um að flugvélin verði tiltæk í
fjórar eftirlitsflugferðir á ári yfir
Mýrdals- og Vatnajökul. Isavia not-
ar vélina við flugprófanir og still-
ingar á tækjabúnaði við flugvelli á
Íslandi. Þá hefur flugprófunarþjón-
usta Isavia verið seld til annarra
landa, m.a. Grænlands, Færeyja,
Noregs, Svíþjóðar og Sameinuðu
arabísku furstadæmanna.
Um árabil hefur Isavia sinnt eft-
irliti með eldstöðvum í samstarfi
við Raunvísindastofnun en það er
fyrst núna sem sú samvinna er
færð í fastar skorður með samn-
ingi.
TF-FMS
notuð til
vöktunar
Soffía Vagns-
dóttir hefur ver-
ið ráðin skrif-
stofustjóri
grunnskólaskrif-
stofu Reykjavík-
urborgar.
Soffía hefur
undanfarin ár
verið sviðsstjóri
fræðslusviðs Ak-
ureyrarbæjar en
á árunum 2006-2014 var hún skóla-
stjóri í Bolungarvík. Soffía hefur
einnig starfað sem stjórnandi tón-
listarskóla og kennari í Kennarahá-
skólanum, Leiklistarskólanum og
Fósturskóla Íslands. Hún hefur lok-
ið framhaldsnámi í stjórnun
menntastofnana og er með meist-
aragráðu í menningarstjórnun.
Soffía tekur við starfinu af Guð-
laugu Sturlaugsdóttur í byrjun nýs
árs. Auk Soffíu sóttu Björn Gunn-
laugsson og Róbert Grétar Gunn-
arsson um starfið.
Stýrir skólamálum
hjá Reykjavíkurborg
Soffía
Vagnsdóttir