Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 17

Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Lítil flugvél flugfélagsins Nature Air brotlenti á sunnudaginn var í Guanacaste-héraði í Kostaríku með tíu bandaríska farþega innan- borðs. Frá þessu er greint á vef- síðu AFP. Allir farþegarnir fórust auk tveggja flugmanna frá Kosta- ríku. Talið er að sterkar vind- hviður hafi komið í veg fyrir að flugvélin gæti lent í strandbænum Punta Islita. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður sem Banda- ríkjamenn og Evrópubúar sækja gjarnan heim þegar tekur að vetra á norðurhveli jarðar. Meðal hinna látnu var fimm manna bandarísk fjölskylda. Luis Guillermo Solis, forseti Kostaríku, vottaði ætt- ingjum hinna látnu samúð sína á samfélagsmiðlum á sunnudaginn. Alvarleg flugslys á borð við þetta eru fáheyrð á Kostaríka. Ekki hef- ur annað slíkt komið fyrir síðan árið 2000, þegar flugvél brotlenti með tíu ferðamenn og tvo flug- menn innanborðs nálægt San José. KOSTARÍKA Tólf látnir í mann- skæðu flugslysi Kuldinn í Kan- ada er orðinn slíkur að starfs- mönnum í dýra- görðum þykir vissara að koma mörgæsunum inn í hlýjuna. Frá þessu er greint á vefsíðu AFP. Á gamlárs- kvöldi mældist hitinn í borginni Calgary í Al- berta-fylki rúmar þrjátíu gráður undir frostmarki. Starfsmönnum í dýragarði borgarinnar þótti óboð- legt að hafa mörgæsirnar úti í meira en 25 gráðu frosti og létu því færa konungsmörgæsirnar tíu inn í hitað skýli. Síðustu vikuna hefur fimbulkuldi ríkt víðs vegar um Kanada og margir hafa neyðst til að fagna áramótunum innan- dyra. Lægstur hefur hitinn í Kan- ada mælst 40,5 gráður undir frost- marki og hæstur 7,5 gráður undir frostmarki. KANADA Flýja með mörgæsir inn í hlýjuna Frost Mörgæsir þola flest veður. Þrettán hafa látið lífið og yfir 400 verið handteknir frá því að mótmæl- in hófust í Íran á fimmtudaginn í síð- ustu viku. Mótmælin eru þau stærstu í landinu síðan 2009, þegar þúsundir landsmanna mótmæltu sigri Mahmoud Ahmadinejad, þá- verandi Íransforseta, í kosningum sem þá fóru fram. Í frétt AFP er greint frá miklum viðbúnaði lögreglumanna vegna mótmæla um allt landið en yfirlýs- ingar Hassan Rouhani Íransforseta um að mótmælendum og lögbrjótum yrði refsað vöktu mikla reiði meðal mótmælenda og mótmæltu þeir um- mælum forsetans í gær. Á sunnudag létu sex lífið í byssu- bardaga í Tuyserkan og í gær lést lögregluþjónn og þrír til viðbótar særðust þegar þeir voru skotnir með veiðirifflum. Þá létu tveir lífið þegar mótmælendur óku yfir þá á stolnum slökkvibíl í bænum Dorud. Segir mótmælin vera smámál Í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu Íransforseta segir Rouhani að mót- mælin séu smámál. „Þjóð okkar mun sjá um þennan minnihluta sem hróp- ar ókvæðisorð þvert á lög landsins og óskir fjöldans, og vanhelgar helg- ar skyldur sínar og gildi byltingar- innar,“ sagði hann. AFP greinir frá því að í nokkrum bæjum landsins hafi fólk komið saman til þess að lýsa yfir stuðningi við stjórnvöld. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað gagnrýnt írönsk stjórnvöld undanfarna daga. Segir hann að tími sé kominn á breytingar í landinu og að írönsku þjóðina þyrsti í breytingar. Fyrst um sinn voru mótmælin gegn verðhækkunum í landinu en beindust síðan að klerkastjórninni. Fjöldamótmælin í Íran halda áfram  13 látnir og 400 hafa verið handteknir AFP Átök Mótmælin í Íran eru þau umfangsmestu síðan árið 2009. FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Einræðisherrann Kim Jong-un, leið- togi Norður-Kóreu, lét í það skína í nýársávarpi sínu á mánudag að hann væri reiðubúinn að setjast að samn- ingaborðinu og að hann vildi ná „friðsamlegri lausn um landamærin í suðri“. Jafnframt sagði Kim að hann vildi láta sendinefnd heim- sækja Vetrarólympíuleikana sem haldnir verða í Suður-Kóreu í febr- úar. Kim notaði þó tækifærið líka til að vara Bandaríkin við að kjarnorku- vopn Norður-Kóreumanna væru reiðubúin til notkunar og gætu hæft hvaða stað sem er á meginlandi Bandaríkjanna. Sagði hann að hnappurinn til að skjóta kjarnorku- flaugum á loft væri innan seilingar á skrifborði sínu. Friðartónn kemur á óvart CNN hefur eftir talsmanni Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, að stjórnvöld þar í landi fagni þeirri ósk Kim Jong-un að bæta samskiptin á milli þjóðanna. Ummæli Kims um Suður-Kóreu hafa komið sérfræð- ingum í málefnum þjóðanna tveggja mjög á óvart en hann ræddi um mik- ilvægi þess að löndin „vinni saman til að draga úr spennu, og vinni sam- an sem fólk með sameiginlega arf- leifð að því að stuðla að friði og stöð- ugleika“. Óskaði hann Suður-Kóreu jafnframt velfarnaðar sem gestgjaf- ar Vetrarólympíuleikanna og sagði viðburðinn gott tækifæri til að sýna heimsbyggðinni mátt Kóreumanna. Vill auka vopnaframleiðslu Í ávarpinu sagði Kim að nýtt ár yrði notað til að fjöldaframleiða kjarnavopn og langdrægar eldflaug- ar, en hann bætti við að þessi vopn yrðu aðeins notuð ef öryggi landsins yrði ógnað, að því er FT greinir frá. Alþjóðasamfélagið hefur gripið til æ harðari aðgerða gegn stjórnvöldum í N-Kóreu vegna kjarnorkuvopna- og eldflaugatilrauna þeirra og í desem- ber sagði Kim að nýjustu refsiað- gerðir Sameinuðu Þjóðanna gegn landinu jafngiltu stríðsaðgerðum. Um miðjan mánuðinn samþykkti ör- yggisráð SÞ einróma að skerða enn frekar sölu á eldsneyti til N-Kóreu og banna sölu á hvers kyns vélum, farartækjum og iðnmálmum þangað. Sérfræðingar segja ummælum Kims m.a. ætlað að fullvissa alþjóða- samfélagið um að Norður-Kórea hyggist aðeins nota kjarnorkuvopn sín til að verjast árás. Þá þykir Kim vera að leggja grunninn að sam- komulagi sem fæli í sér að Norður- Kórea fengi að halda kjarnorku- vopnum sínum. Þau vopn sem landið á í dag hafi nægilegan fælingarmátt til að verja Norður-Kóreu gegn árás og Vetrarólympíuleikarnir séu kjör- ið tækifæri til að draga úr þeirri spennu sem kjarnavopnaframleiðsl- an hefur skapað. Eins og áður hefur verið greint frá hefur hættan á stríðsátökum á Kóreuskaga farið vaxandi, bæði vegna kjarnavopnaframleiðslu Norður-Kóreu og vegna þess að Trump Bandaríkjaforseti hefur þótt sýna það í orði að hann væri fús að grípa til hernaðaraðgerða gegn rík- isstjórn Kims. Auk þess að eiga frumkvæðið að harðari viðskipta- þvingunum hafa Bandaríkin lagt aukinn kraft í heræfingar með vina- þjóðum á svæðinu. Í byrjun desem- ber héldu Bandaríkin og Suður-Kó- rea fimm daga heræfingu sem 12.000 hermenn tóku þátt í og 230 flugvélar voru notaðar. Stjórnmála- greinendur segja bandarísk og suð- ur-kóresk stjórnvöld geta brugðist við ummælum Kims með því að draga úr hernaðaræfingum sínum og þannig sýnt vilja til sátta án þess að slá af kröfum sínum. Sáttatónn í ræðu Kim  Kim Jong-un virtist fús til viðræðna í nýársávarpi sínu en sagði kjarnorkuvopn sín reiðubúin til notkunar  Vetrarólympíuleikar tækifæri til að draga úr spennu AFP Útspil Kim Jong-un gæti verið að undirbúa jarðveginn fyrir samkomulag sem fæli í sér að Norður-Kórea fengi að halda kjarnavopnum sínum. Hann lagði á það áherslu að vopnin yrðu eingöngu notuð til að verja landið. Vetrarþíða » S-Kórea heldur Vetrar- ólympíuleika í febrúar. » N-Kórea vill senda sendi- nefnd á viðburðinn og hefja viðræður. » Senda Bandaríkjamönnum tóninn og hóta að beita kjarn- orkuvopnum ef öryggi N-Kóreu er ógnað. Litur augnabliksins Gyðjugrænn NÝR LITUR Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.