Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 18
BAKSVIÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Gert er ráð fyrir því að jarð-vegsframkvæmdir vegnanýs húss á Alþingis-reitnum geti hafist um
mitt ár. Nýja húsið mun rísa við hlið
Oddfellow-hússins við Vonarstræti
en verður einskonar viðbygging við
Alþingishúsið og Skálann. Um tvö
og hálft ár tekur að byggja húsið.
„Í þessari viðbyggingu, sem við
köllum svo, á að sameina og koma í
eigu þingsins þeirri aðstöðu sem
þinghaldið sannarlega þarf,“ segir
Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri
Alþingis, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Í nýju byggingunni verða
skrifstofur alþingismanna, þing-
flokksherbergi, skrifstofur þing-
nefnda og starfsfólks nefndanna. Þá
verður á fyrstu hæð hússins ýmis-
konar þjónustuaðstaða og aðstaða
fyrir fjölmiðlafólk, aðstaða fyrir
gesti sem koma á nefndarfundi og
gæslu sem þarf að vera í húsinu.
Tilkoma hússins mun breyta
miklu fyrir störf þingsins. Enn
fremur má við því búast að ýmislegt
annað breytist með tilkomu nýja
hússins innan dyra í þinghúsinu og
öðrum byggingum sem þingið á. Ég
á til dæmis von á því að þingflokkar
verði ekki með ákveðin herbergi
lengur í þinghúsinu.“
Í máli Helga kemur fram að
þingið leigir í dag skrifstofuhúsnæði
á nokkrum stöðum með tilheyrandi
óhagræði. „Þetta er dýrt leigu-
húsnæði sem er ákaflega misjafnt að
gæðum og misheppilegt fyrir skrif-
stofur þingmanna og þingflokka,“
segir Helgi. Húsnæði þetta er á efri
hæðum húsanna sem eru norðan-
megin Austurvallar, fyrir ofan til að
mynda kaffihús, áfengisverslun og
hamborgarastað.
„Fyrir þetta greiðum við um
170 milljónir króna á ári,“ segir
Helgi. Hann segir að alls leigi þingið
um 4.500 fermetra af skrifstofu-
húsnæði. Það þýðir að fermetra-
verðið er um 3.150 krónur á mánuði,
lauslega reiknað.
„Framkvæmdin er að því leyti
til hagkvæm að hún ætti að geta
borgað sig á tiltölulega fáum árum
og þingið átt sitt húsnæði skuld-
laust. Leigukostnaðurinn er það
hár.“
Allt starfið undir sama þaki
Nýja tengibyggingin verður um
sex þúsund fermetrar þegar allt er
talið. Bílakjallari verður undir hús-
inu með 40-50 bílastæðum. Bílakjall-
arinn mun raunar tengjast þeim sem
fyrir er vestan við Skálann, meðfram
gömlu timburhúsunum sem eru við
Kirkjustrætið, en þar eru tæplega
50 bílastæði. Hægt er að ganga beint
inn í Skálann úr bílakjallaranum.
„Þetta verður mjög mikil breyt-
ing. Við leggjum mikla áherslu á að
menn hafi á tilfinningunni að þeir
séu undir einu og sama þakinu. Um-
ferð úr nefndarherbergjum og skrif-
stofum í þingsalinn þarf að vera
greið og það var lögð á það áhersla í
samkeppnisforsendunum að tengi-
bygging yrði þægileg og umferð þar
um greið, þannig að þessi nýja bygg-
ing sé í raun órjúfanlegur hluti af
húsakosti Alþingis,“ segir Helgi.
„Starfshættir þingsins hafa
auðvitað breyst allmikið á síðustu
árum og áratugum, og þessi bygg-
ing tekur mið af því. Með tilkomu
hennar verður auðveldara að halda
opna nefndarfundi, almenningur á
greiðari aðgang að þingmönnum og
nefndarstörfum, svo fátt eitt sé tal-
ið. Það hefur einnig verið mikil þörf
fyrir aðstöðu fyrir stærri fundi,
móttökur og fleira. Allt slíkt hefur
verið snúið fram að þessu því að
þinghúsið er svo lítið.“
Mun breyta miklu
fyrir störf þingsins
Breytt ásýnd Nýja byggingin á Alþingisreitnum sem rísa mun við hlið
Oddfellow-hússins við Vonarstræti verður tekin í gagnið árið 2021.
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Árið 2018 errunnið uppog kom
engum að óvörum.
Víst er þó að margt
sem til tíðinda mun bera verður
óvænt og ófyrirsjáanlegt. Rétt
eins og segja má um nýliðið ár,
þegar atburðir innanlands og
utan áttu sér stað sem fáir sáu
fyrir. Þeir voru að vísu ekki af
þeirri stærðargráðu að þeirra
verði minnst eftir öld eða tvær
og ólíklegt er að atburðir ný-
hafins árs verði af því taginu.
Það er raunar ástæða til að
vonast eftir að ekkert dragi til
tíðinda á árinu sem minnst
verði að öld liðinni, enda eru
stóratburðir, líkt og títt er um
fréttir, yfirleitt frekar af nei-
kvæðara taginu.
Í ár stendur engu að síður
þannig á að við minnumst
tveggja afar jákvæðra atburða,
annars af innlendum vettvangi
og hins af þeim alþjóðlega.
Sá síðarnefndi er vitaskuld
lyktir Norðurálfuófriðarins,
eða heimsstyrjaldarinnar fyrri
eins og hann er oftar nefndur
nú orðið. Norðurálfuófriðurinn
er nákvæmara orðalag, því að
ólíkt heimsstyrjöldinni síðari,
sem teygði sig til flestra afkima
veraldar, var sú fyrri meira af-
mörkuð við Evrópu, þó að
hennar gætti vissulega víðar.
Þessari skelfilegu styrjöld,
með gríðarlegu
mannfalli og óskilj-
anlegum hryllingi
þeim sem ekki hafa
reynt á eigin
skinni, lauk að vísu ekki eins og
hendi væri veifað fyrir eitt
hundrað árum. Afmörkuð átök,
skærur og hryðjuverk héldu
áfram næstu árin, meðal ann-
ars í tengslum við hugmynda-
fræðileg átök eftir byltingu
kommúnista í Rússlandi og
misvel heppnaðar byltingartil-
raunir víðar. Og friðarsáttmál-
arnir sem gerðir voru í kjölfar
stríðslokanna áttu svo án efa
töluverðan þátt í því að heims-
styrjöldin síðari brast á.
Friðurinn árið 1918 reyndist
því skammgóður vermir, en
innlendi atburðurinn sem vísað
var til hér að framan hélt bet-
ur. Ísland fékk fullveldi árið
1918 og hefur síðan ráðið eigin
málum og verið að flestu leyti
farsælt í þeim efnum, eins og
sjá má á þeim ótrúlegu fram-
förum sem orðið hafa hér á
landi síðustu öldina.
Í ár verður þessara miklu at-
burða minnst, sem er þýðing-
armikið. Friður er ekki sjálf-
gefinn og það er fullveldið ekki
heldur. Að hvoru tveggja er sí-
fellt sótt og því full ástæða til
að hafa hugfast að vinna þarf
að því að varðveita hvort
tveggja.
Í ár minnumst við
stórra atburða}Lærum af sögunni
Ítölskum stjórn-völdum var
skylt að boða nýjar
þingkosningar eigi
síðar en í maí á
þessu ári. Nú hefur
verið ákveðið að
þær skuli fara fram
þann 4. mars n.k. Margt bendir
til að Evrópusambandið, vegna
veikrar stöðu þess og sameig-
inlegrar myntar, hafi ástæður
til að kvíða þeim kosningum.
Þær bætast við að enn hefur
ekki tekist að mynda stjórn í
Þýskalandi. Staða Merkel
kanslara hefur veikst í kjölfar
kosninga í september s.l. og
viðvarandi stjórnarkreppu síð-
an. Stórflokkarnir tveir í þýsk-
um stjórnmálum fengu afleita
niðurstöðu þá. AfD, Annar
kostur fyrir Þýskaland, verður
stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn, neyðist tapflokkarnir
tveir til að sitja með ólund í rík-
isstjórn.
Vandamál Spánar vegna
Katalóníu og árekstrar Bruss-
elvaldsins við réttkjörin yf-
irvöld í Póllandi, Ungverja-
landi og fleiri í austurhluta
ESB bætast við aðrar ógöngur.
Útganga Breta úr ESB þýðir
að ríkin sem þegar borga með
sér í sambandinu
munu fá sendan enn
sverari reikning frá
Brussel.
Renzi, leiðtogi
ítalskra jafnaðar-
manna, tapaði þjóð-
aratkvæði sem hann
hafði sagt forsendu þess að
Ítalía gæti borgið stöðu sinni
innan ESB. Skoðanakannanir
nú benda ekki til þess að jafn-
aðarmenn verði áfram stærsti
einstaki flokkur Ítalíu. Nýleg-
ar kosningar á Sikiley þykja
staðfesta það mat.
Flokkar, sem hafa efasemdir
um ESB og evruna, eða eru al-
gjörlega andvígir hvoru
tveggja, virðast í mikilli sókn í
þessum nýjustu mælingum.
Valdamenn í ESB benda þó á
að erfitt sé að slá nokkru föstu
um ítölsk stjórnmál. Kosn-
ingaspár hafa gengið illa eftir
víða um álfuna síðustu misseri.
En jafnvel þótt þær rættust nú
sé fjarri því að vera víst að
nægileg samstaða muni nást
um það í Róm að kasta evrunni
og enn síður að ákveða að segja
landið úr ESB. En samt mun
elítan í ESB eiga svefnlitlar
nætur næstu 8-9 vikurnar.
Og kannski mun lengur.
Þingkosningar á
Ítalíu 4. mars n.k.
gætu velgt elítunni
í Brussel undir
uggum}
Ítalía næst
T
rump hinum bandaríska og stuðn-
ingsmönnum hans verður tíðrætt
um svonefndar falsfréttir eða
Fake news eins og þeir nefna þær
á ensku. Það er auðvitað ekkert
grín þegar æðstu embættismenn valdamesta
ríkis í heimi segja að fjölmiðlar flytji vísvit-
andi rangar fréttir. Við nánari skoðun hefur
komið í ljós að falsfréttirnar svonefndu reyn-
ast eiga við rök að styðjast þannig að í munni
Trumps er orðið falsfréttir samheiti við stað-
reyndir.
Sagan hefði getað endað þarna, ef ekki
hefði komið í ljós að ósönnum sögum er í raun
og veru dreift sem staðreyndum af ýmsum
vefmiðlum. Sögurnar eru svo sumar endur-
teknar á samfélagsmiðlum, meðal annars af
stjórnmálamönnum og áróðursmeisturum
sem finnst þægilegt að vísa til þeirra sem sanninda. Nú
stendur yfir mikil rannsókn á því hvort Rússar hafi haft
áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í fyrra.
Þeir virðast hafa reynt það og í ljós hefur komið að sum-
ar falsveiturnar í Bandaríkjunum eiga uppruna sinn í
Rússlandi. Í nóvember birti Economist fréttir um að
Rússar hefðu líka beitt sér í Brexit-kosningunum (með
úrsögn Breta). Fréttastofan Reuters sagði líka frá því í
maí að hakkarar með tengsl við ríkisstjórn Rússlands
hefðu beitt sér gegn Macron í Frakklandi síðastliðið vor.
Þegar fólk sem stöðu sinnar vegna ætti að vera varð-
hundar sannleikans gerir engan mun á staðreynd eða
lygi, rökum eða rökleysu, er lýðræðið í hættu statt.
Hvað kemur þetta Íslendingum við? Jú,
sagan segir okkur að útlendingar hafa haft
mikinn áhuga á að blanda sér með beinum
hætti í íslensk stjórnmál. Sovétmenn studdu
Kommúnistaflokkinn og Sósíalistaflokkinn,
samtímis því sem Alþýðuflokkurinn naut fjár-
framlaga frá Norðurlandakrötum. Í öllum til-
vikum höfðu foringjar flokkanna mikið fyrir
því að fela slóðina.
Í alþingiskosningunum haustið 2017
dreifðu nokkrar vef- og samfélagsmiðlasíður
nafnlausum áróðri sem beint var gegn
ákveðnum stjórnmálamönnum og -flokkum
og studdi óbeint aðra. Þorgerður K. Gunn-
arsdóttir vakti athygli á þessum vinnubrögð-
um á Alþingi og krafðist rannsóknar. Með
nafnlausum síðum geta flokkar komist fram
hjá reglum um fjármögnun kosningabaráttu,
auk þess sem huldufólk og álfar sem þar skrifa vega úr
launsátri, án þess að nokkur beri á skrifunum ábyrgð.
Að minnsta kosti þrír stjórnmálaflokkar hafa verið
orðaðir við slíkar síður. Ég verð að játa að mér finnst
ósennilegt að það sómafólk sem stjórnar þessum flokk-
um hafi áhuga á því að stuðningsmenn þeirra sniðgangi
lögin með þessum hætti. Því er nauðsynlegt að undirróð-
ursstarfsemin verði rannsökuð tafarlaust, þannig að
engir verði hafðir fyrir rangri sök. Fyrir nokkrum ára-
tugum töldu Rússar Ísland hluta af sínu áróðurssvæði.
Það skyldi þó aldrei vera að Grýla gamla gangi aftur.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Varúð! – Falsfréttir
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Á undanförnum árum hafa farið
fram fornminjarannsóknir á
byggingarreitnum vestan við
Oddfellowhúsið þar sem ný við-
bygging Alþingis á að rísa. Að-
spurður segir Helgi Bernódus-
son, skrifstofustjóri Alþingis, að
niðurstaða þeirra rannsókna
raski engu um bygginguna, en
reynt verður að láta þess sem þó
fannst sjá stað í nýbyggingunni.
„Það mikla rannsóknarverk-
efni er allt saman búið. Það var
dýr framkvæmd en algjörlega
nauðsynleg vegna þess hve
byggingarstaðurinn er mikil-
vægur og viðkvæmur.“
Byggingin er hönnuð af
arkitektum hjá Studio
Granda sem báru sigur úr
býtum í verðlauna-
samkeppni. Þeir
hafa síðasta árið
unnið að lag-
færingum á
hönnun sinni
og fínteikn-
ingum.
Miklar forn-
leifarannsóknir
UNNIÐ AÐ LOKAHÖNNUN
Helgi
Bernódusson