Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Þegar ég man fyrst eftir var Leó tvöfalt eldri en ég og mun hærri í loftinu. Augljóslega leit ég upp til hans og sá hann sem fyrirmynd. Fékk stundum að gista á Hjarðarhagan- um og fór með honum lítill í Trípólí- bíó á hálfgerðar hryllingsmyndir sem ég gat ekki horft á til enda; hvarf úr salnum og beið frammi í anddyrinu uns sýningunum lauk og Leó kom fram. Þegar unglingsárin náðu Leó hermdi ég eftir honum og smurði Adrett-hárkremi á hausinn á mér. Á þeim tíma átti hárið ekki að bær- ast á höfðinu, jafnvel þótt hávaða- rok væri. Man líka flotta Timpson- skó sem Leó keypti í skóbúð í Aust- urstrætinu. Lágir með mjórri tá og hálfháum hæl, eins og seinna varð þegar bítlaskórnir komu. Aldrei eignaðist ég þó Timpson-skó, en fékk að prófa skóna hjá Leó. Mér er líka í fersku þegar hann var ungur í sumarvinnu á Árbæj- arsafni og tjargaði Dillonshús og Smiðshúsið. Kom svo keyrandi á skellinöðrunni til okkar í Rafstöð- inni þar sem móðir mín hjálpaði honum að þrífa af sér tjöruslett- urnar með smjörlíki. Vond lykt sem aldrei gleymist. Annars hittumst við alltaf reglu- lega, stundum á Hraunteignum, stundum annars staðar. Og uxum Leó Eiríkur Löve ✝ Leó EiríkurLöve fæddist í Reykjavík 25. mars 1948. Hann lést 10. desember 2017. Útför Leós fór fram 20. desember 2017. úr grasi. Fórum sumpart í ólíkar áttir en héldum engu að síður sambandi, einkum þegar eitt- hvað mikið lá við. Þannig varð líka þegar Leó eignaðist Ísafoldarprent- smiðju 1982. Fyrir- tækið var komið að fótum fram en Leó reisti það við og rak af myndarskap um árabil. Í júní 1983 hringdi hann í mig og fékk mig til liðs til að sjá um afmælisrit tileinkað Ólafi Jóhannessyni, fyrr- verandi forsætisráðherra. Ritið var uppbyggt eins og ævisaga Ólafs, og rituðu hinir ýmsu samferðamenn Ólafs sinn kaflann hver um ákveðið skeið í lífi Ólafs. Sjálfur skrifaði Leó eina bestu ritgerðina í bókina; um vináttu sína, fyrst við Guðbjart Ólafsson sem lést ungur og síðar við Ólaf. Um 1.500 einstaklingar gerðust áskrifendur að bókinni og skráðu nafn sitt á heillaóskaskrá til Ólafs. Bókin kom svo út formlega hinn 25. nóvember 1983, og afhenti ritnefndin Ólafi og Dóru fyrsta ein- tak bókarinnar við hátíðlega athöfn á heimili þeirra hjóna við Aragötu. Hin síðari ár varð lengra á milli okkar. Búseta mín erlendis, og svo veikindi Leós urðu til að fundum fækkaði. Símtölin tóku við í stað- inn. En það var alltaf gaman að heyra í honum, og ég held að það hafi verið gagnkvæmt. Ég votta öllum ástvinum hans einlæga samúð mína. Steingrímur Jónsson. Nú er hann farinn, hann Leó Löve, góðkunningi minn gegnum tíðina; og skilur eftir sig hálf ein- manalegt tómarúm hjá mér, á sjö- tugsaldrinum. Kynni okkar hófust í sumar- vinnu á æskuárunum í Kópavogi; er hann var um tvítugt; nokkrum árum eldri en ég. Kom hann mér fyrir sjónir sem tilfinningaríkur, ábyrgur, metnaðarfullur, andríkur og alþýðlegur maður. Með tímanum lágu slóðir okkar sona menntafjölskyldna síðar sam- an að loknu háskólanámi, á ritvell- inum. Það bar t.d. nokkrum sinnum við, er ég gekk á förnum vegi í Reykjavík, að ég heyrði að aftan við mig var mælt fram ein af mín- um fyrstu vísum; sem ég var næst- um búinn að gleyma; en sem hafði þó sannfært hann í árdaga um minn innri mann. Þessa upphafs minntist ég nú loks í ljóði þar sem ég segi m.a. frá þeim gömlu kynn- um, sem svo. ... En mér er nú hugstætt um gamlan rithöfundafélaga, er minnist þess; úr Rörsteypunni í Kópavogi í sumarvinnunni kringum sautján ára aldurinn, er hann kom að mér horfandi í sól-merlandi bæjarlækinn á leiðinni heim eftir vinnuna, og ég mælti að sögn fram þessa hugsun: „Halli Lax er stórlax! Eitt sinn var hann til fárra fiska metinn; en svo óx honum fiskur um hrygg; og nú er hann orðinn stór fiskur í litlum polli!“ Tryggvi V. Líndal. Eftir margra ára baráttu við MS sjúkdóminn er Leó móðurbróðir minn látinn. Smátt og smátt hafði þessi sjúkdómur tekið af honum alla andlega og líkamlega færni. Leó barðist hatrammlega fyrir heilsu sinni í áraraðir og gekk í gegnum alls kyns erfiðar og hættu- legar sjúkdómsmeðferðir. Hin veika von hans var sú að hægt væri að ná til baka einhverri heilsu eða að minnsta kosti stöðva frekari framgang sjúkdómsins. Sjálfsagt hafa meðferðirnar keypt tíma en þó var ljóst hvert stefndi. Framan af lét Leó hrakandi heilsu og skerta getu ekki hindra sig að ráði – skrif- aði m.a. handrit að tveimur leikrit- um og var annað þeirra sett upp á sínum tíma. Jafnt og þétt hallaði þó undan fæti og varð Leó þá að láta sér nægja að dreyma um það sem hann langaði til að gera – hluti sem ljóst var að gætu aldrei orðið. Meira að segja undir það síðasta þegar ljóst var að ekkert var eftir gat hann yljað sér við dagdrauma. Leó var tæpum fimmtán árum eldri en ég og var því á unglings- árum þegar ég var barn. Þar sem Leó var bróðir móður minnar voru samskipti okkar náin í minni æsku. Þetta var á þeim árum þegar Bítl- arnir voru á hátindi síns ferils og var Leó mikill aðdáandi þeirra. Ég ólst því upp við tónlist Bítlanna og af skiljanlegum ástæðum varð ég einnig aðdáandi þeirra. Þegar ég var lítill hélt ég raunar að Leó væri beinlínis einn af Bítlunum. Eitt sinn sagði ég einhverjum unglings- stúlkum frá því að frændi minn væri í þessari frægu hljómsveit. Þær tókust á loft við þessi tíðindi enda bítlaæðið þá í algleymi. Þær spurðu mig hver af Bítlunum þetta væri og ég svaraði sannleikanum samkvæmt að hann héti Leó. Þá færðist aftur ró yfir stúlkurnar og skilningsríkur svipur kom á andlit þeirra. Þegar ég var orðinn nægilega stálpaður kenndi Leó mér að spila á gítar og í gamla daga sátum við oft saman með gamlan kassagítar og rifjuðum upp bítlalög. Leó var athafnamaður á árum áður. Hugmyndaríkur og drífandi. Honum þótti vænt um frændgarð sinn og vini. Hann var ótrúlega hjálpfús og hafði mjög sérstakan húmor sem ég held þó að margir hafi ekki áttað sig á. Ég heyrði Leó aldrei kvarta yfir hinum grimmu örlögum sínum og æðruleysi hans minnti mig oft á ljóð Bubba Morthens: „Eins og næfurþunnt svart silki skríður nóttin til mín inn“ og „Hvíslar: Fegurstur allra er feigur maður sem fela kann ótta sinn“. Hvíldu í friði. Karl Löve Jóhannsson. Leó kallaði mig alltaf Vase. Þetta nafn hafði hann gefið mér þegar ég var pínulítil og notaði það alltaf. Hjá honum var ég hún Vase. Leó hafði nefnilega mjög gaman af orðaleikjum og sá oft ýmsar teng- ingar sem við hin vorum ekkert að velta fyrir okkur. En þar sem ég heiti Elín fannst honum tilvalið að kalla mig Vaselínu og smátt og smátt stytti hann það niður í Vase. En ég var ekki bara Vase, ég var líka „skinn“. Mér er sagt að þegar ég var tveggja ára hafi hann legið út af í sófa og ég hafi komið að hon- um og klappað honum á kinnina og sagt blíðlega við hann „skinnið mitt“. Þetta þótti honum fyndið, enda var hann unglingur, nánast fullorðinn, og ég lítið barn. En upp frá þeim degi kölluðum við hvort annað „skinn“. Hann var skinnið mitt og ég var skinnið hans. Við notuðum þetta orð í hvert sinn sem við heilsuðumst eða kvöddumst eða þurftum á einhvern hátt á hvort öðru að halda. Við vorum „skinn“ og það, auk Vase-nafnsins, tengdi okkur saman á skemmtilegan og einstakan hátt. Leó hafði alveg frá blautu barnsbeini verið mikill athafna- maður. Hann rak fyrirtæki, skrif- aði bækur og stundaði auk þess lögmannsstörf. Hann var fullur af trú á eigin hugmyndir og fyrirætl- anir. Hann hætti aldrei að vera stórhuga þótt „pestin“ eins og hann kallaði MS sjúkdóminn, léki hann grátt. Hann átti sér drauma sem gáfu honum von og styrk og dreifðu huganum þegar heilsan var farin. Einn draumurinn var að setja á svið einþáttunginn Glæður, sem hann hafði eitt sinn skrifað. Hann talaði oft um þennan draum. Vinur hans, Lárus, sem einnig var illa farinn af sama sjúkdómi, hafði unnið með leikfélaginu í Mos- fellsbæ og sýndi hugmynd Leós mikinn áhuga. Þeir ræddu þetta oft og eitt sinn þegar ég heimsótti hann í dagvistunina hjá MS félag- inu heyrði ég þá félaga láta sig dreyma. Það varð til þess að ég blandaðist í málið. Ég ákvað að leita að leikurum, karli og konu, sem gætu tekið að sér hlutverkin. Það voru ekki minni nöfn en Arnar Jónsson og systir hans Helga Jóns- dóttir sem hjálpuðu okkur að gera drauminn að veruleika og tóku þau ekkert fyrir. Leikfélagið í Mos- fellsbæ opnaði dyr sínar upp á gátt og lánaði húsið og búnaðinn sem þurfti, og var haldin ein sýning fyr- ir fullu húsi. Leó ákvað að láta allan ágóðann renna til vinarins, Lárus- ar. Honum sveið að hann hefði ein- göngu strípaðar örorkubæturnar til að lifa á sem engan veginn dugðu til neins. Nú höfum við „skinnin“ kvaðst í hinsta sinn. Þótt ég viti að hann hafi verið hvíldinni feginn er sorgin sár. Ekki eingöngu vegna þess að hann er farinn, heldur líka vegna þess hve lengi þessi stórhuga og duglegi maður þurfti að berjast við „pestina“. Ég sendi börnum hans og barnabörnum innilegar samúðar- kveðjur og Önnu Lísu, fyrrverandi sambýliskonu hans, sem sinnti honum þar til yfir lauk. Elín Elísabet Jóhannsdóttir. U-bekkur Menntaskólans í Reykjavík 1965-68 var samsettur hópur skólapilta frá Reykjavík, Hafnarfirði og „öðrum dreifbýlis- stöðum“. Samsetning bekkjarins hefur eflaust átt sinn þátt í því að við héldum þétt saman, og ef til vill höfum við verið með önnur viðhorf en aðrir skólafélagar okkar, sem höfðu sterkari rætur úr Reykjavík- urumhverfinu. Eins og gengur skildu leiðir eftir stúdentspróf 1968, en við bekkjarfélagarnir höf- um hist reglulega allar götur síðan, að jafnaði á fimm ára fresti, til þess að styrkja vináttuböndin og minn- ast gömlu góðu áranna. Leó E. Löve var áberandi per- sóna í bekknum. Segja má að hon- um hafi legið á að fullorðnast, sem lýsti sér meðal annars í því að á meðan við hinir bekkjarfélagarnir veltum fyrir okkur fjármögnun á skemmtunum komandi helgar ræddi Leó kjör á lánum til húsnæð- iskaupa af mikilli kunnáttu. Hann var greindur, hugmyndaríkur og stálminnugur svo að eftir var tekið. Á fundum okkar nú seinni árin gat hann t.d. rakið atburði og jafnvel samtöl sem við áttum saman á MR- tímanum sem við hinir mundum varla eftir. Kennarar okkar á þeim tíma urðu oftar en ekki söguefnið í þessum upprifjunum. Leó var einnig iðinn við að festa atburði MR-tímans á filmu, en slíkt var af- ar sjaldgæft á þeim tíma. Skóla- félagar Leós hafa notið góðs af þessari kvikmyndagerð hans af dimmisjón okkar 1968 og fleiri at- burðum í skólanum. Leó veiktist af MS fyrir allmörg- um árum. Hann lét sjúkdóminn ekki aftra sér frá því sækja U- bekkjar fundina. Þegar heilsu hans hrakaði sagði hann sjálfur að hann stytti sér stundir með því að hugsa, stunda nokkurs konar markvissa hugarleikfimi sem gerði honum gott. Fór hann gjarnan með nöfn allra bekkjarfélaganna í stafrófs- röð og þuldi upp afmælisdaga allra. Gamlir bekkjarfélagar úr MR hafa nú misst góðan dreng og fé- laga. Hans er nú sárt saknað af ást- vinum og vinum. Við sendum sam- býliskonu Leós, Önnu Lísu Kristjánsdóttur, dóttur þeirra, Önnu Margréti, börnum Leós úr fyrra hjónabandi, þeim Guðmundi, Yrsu Björt og Áskeli Yngva, og fjölskyldum þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd U-bekkjar MR 1968, Jóhann Ág. Sigurðsson og Logi Jónsson. Hugarbróðir minn og virktavin- ur, Leó Eiríkur Löve, er látinn eftir löng og ströng veikindi. Þrátt fyrir stopular samverustundir um mið- bik ævinnar, þar sem við bjuggum í sitt hvoru útlandinu, héldust hugðarefnin, áhugamálin, vináttan og skopskynið í hendur hjá okkur. Þetta allt iðkuðum við rækilega þegar ég heimsótti Leó nokkuð öt- ullega á dvalarstaði hans, síðastlið- in hátt í tvö ár. Við kynntumst fyrst 14 ára ung- ir í unglingavinnunni á sumrin, að- allega á íþróttavöllum Reykjavík- ur, ég Austurbæingur og Leó Vesturbæingur, þar sem ég hitti hann; okkur samdist vel strax, þótt meyjar og peyjar þessara hverfa agnúuðust oftast við hvort annað. Ég varð fyrsti Rickenbacker-- gítareigandi Íslands 15 ára, spilaði strax í hljómsveitum: Molar 1964, og 16 ára í Tónar 1965. Sá gítar var sex strengja, en 17 ára fékk ég 12 strengja Rickenbacker-gítar, og notaði hann í Sfynx 1966, og í Menntaskóla Reykjavíkur-grúpp- unni Næturgalar, á skólaböllum, í Glaumbæ, og á NATO-vellinum hjá Keflavík, í áraraðir 1966 til 1969. Leó fylgdist gaumgæfilega með. Leó varð, eins og ég, tafarlaust ástfanginn af The Beatles, og við sungum og spiluðum A Hard Day’s Night, You Cańt Do That, Ticket to Ride, Michelle, og Penny Lane. John Lennon var minn dáði maður og Paul McCartney var uppáhald Leós, sem bar fram for-nafn sinnar hetju með íslenzku „au“ eins og margir aðrir „hér-lands“. Við viss- um báðir betur, og brostum kank- víslega framan í hvor annan við heyrnina á þessu „heitis-hljóði“! Fyrsta ósk Leós er við mætt- umst á ný snemma árið 2016 var sú að ég semdi lag við ljóðið In My Life, vers 1 eftir Sigurð Nordal, og vers 2 og viðlag sem Leó orti, allt saman á Ensku. Það gjörði ég fljót- lega, og melódían dró fram (mér ósjálfrátt) íslenzku bragarhættina: stuðlar, höfuðstafir, innrím og endarím. Þessi séreinkenni ís- lenzks skáldskapar lagði Leó ríka áherzlu á að yrðu kynnt heims- byggðinni, því þau kæmu öll myndarlega fram í kvæði þeirra kumpána, og myndu þannig skapa landinu frægð fyrir erlendis! Mun ég gera mitt bezta til þess að flutn- ingur þessa lags og ljóðs heyrist sem víðast og oftast. „Bítlarnir“, eftirlætishljómsveit okkar Leós, hljómuðu stöðugt í tækinu hjá honum síðustu vikurn- ar. Ég hengdi líka upp fyrir hann stækkaðar litmyndir af plötuum- slögum kappanna The Beatles og Rickenbacker-gítar og sérmynd af vörumerkinu efst á hálsinum; á öll- um okkar samverustundum töluð- um við um „grúppuna okkar“ og Rickenbacker-gítarana. Við skiptumst auk þess á ýms- um sögum og orðatiltækjum sem báðir áttu ágætis forða af; botnuð- um oft hugmyndir hvor annars og vorum hjartanlega sammála um niðurstöðuna: Þegar ég lauk lofs- orði á „árangur“ kvað hann á um „áfanga“. Ég kveð Leó, minn alúðar-sálar- félaga, með miklum söknuði. Við munum báðir halda áfram að hugsa um The Beatles og lífið. Veiztu, ef þú vin átt, þann, er þú vel trúir; og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda, og gjöfum skipta; fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Hannes Jón Hannesson. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, REYNIR HALLDÓRSSON frá Hríshóli í Reykhólasveit, Gunnarsbraut 11b, Búðardal, lést þriðjudaginn 26. desember á Silfurtúni, dvalarheimili aldraðra í Búðardal. Jarðarförin fer fram frá Reykhólakirkju föstudaginn 5. janúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð dvalarheimilis aldraðra í Búðardal. Reinhard Reynisson María Kristjánsdóttir Ingibjörg Reynisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN HAUKUR BALDVINSSON múrarameistari, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans laugardaginn 16. desember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk þess látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð hjartadeildar Landspítalans. Guðrún Esther Árnadóttir Baldvin Árni Jónsson Guðný María Jónsdóttir Þór Hauksson Hjörleifur Örn Jónsson Rannveig Elíasdóttir og barnabörn Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS SVANS SIGURÐSSONAR prentsmiðueiganda. Sérstakar þakkir til starfsfólks B7 og 11E á Landspítala og líknardeild í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýju í veikindum hans. Ég bið þess að nýja árið færi okkur öllum gleði og frið og þakka liðna tíð. Þuríður Ólafsdóttir og fjölskylda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓRUNN GÍSLÍNA GOTTSKÁLKSDÓTTIR, Lóa, frá Hvoli í Ölfusi, lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði, sunnudaginn 24. desember. Hún verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 6. janúar klukkan 14. Kristján J. Friðgeirsson Gottskálk Friðgeirsson Edda Sverrisdóttir Gróa Friðgeirsdóttir Ásgeir Guðmundsson Rúnar J. Friðgeirsson Yuridise Kendi Nyaga Össur E. Friðgeirsson Guðrún Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og stuðning vegna andláts ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ARNBJÖRNS KRISTINSSONAR, bókaútgefanda, Mávanesi 9 í Garðabæ. Ragnhildur Björnsson Ágúst Arnbjörnsson Bertha Traustadóttir Ásdís Arnbjörnsdóttir Aðalsteinn Jóhannsson Árni Geir Björnsson Robyn Björnsson Arinbjörn Arnbjörnsson Sigurlaug J. Kristjánsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.