Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 30
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það er ekki erfitt að hrífast með þegar Hreiðar Ingi Þorsteinsson talar um tónlist. Hann er með mörg járn í eldinum og stýrir nokkrum kórum samhliða því að semja eigin verk, og öllu sem hann kemur að virðist hann sinna af stakri ástríðu og eldmóði. Hreiðar gerði sér t.d. lítið fyrir á þarsíðasta ári og stofnaði kórinn Ægisif til að geta fært lands- mönnum mergjaða en lítt þekkta tónlist frá Austur-Evrópu. Heppn- aðist það verkefni svo vel að tón- leikar Ægisifjar í Landakotskirkju í nóvember rötuðu á lista gagnrýn- enda Morgunblaðsins yfir átta eft- irminnilegustu viðburði síðasta árs á sviði sígildrar tónlistar. Verk sem aldrei hafa heyrst áður á Íslandi Nafnið á kórnum fékk Hreiðar að láni frá kirkjunni frægu í Istanbúl sem víkingarnir nefndu Ægisif en heimamenn kalla í dag Ayasofya. „Í dag er byggingin fyrst og fremst safn, var moska og var þar áður höf- uðkirkja orþódox-kristninnar, sem og stærsta kirkjubygging heims í nærri þúsund ár. Í þessum heims- hluta urðu til alls konar melódíur sem austurkirkjan tók upp á sína arma og færðust þær með kristninni frá botni Miðjarðarhafs norður til slavneskju þjóðanna og Rússlands,“ útskýrir Hreiðar. „Í Austur-Evrópu er að finna gnótt af fallegum verk- um sem aldrei hafa borist til Ís- lands, og merkilega höfunda sem jafnvel atvinnutónlistarmenn hér á landi hafa aldrei heyrt á minnst. Það er skiljanlegt að þessi verk hafi ekki verið flutt hér á landi fyrr en nú, og nógu erfitt fyrir söngvara að takast á við kírílískt letur, en internetið hefur opnað okkur dyr að þessum verkum og er núna orðið auðvelt að panta þau frá þessum heimshluta.“ Hreiðar smitaðist af þessari bakt- eríu þegar hann stundaði masters- nám í tónsmíðum við Eesti Muus- ika-ja Teatriaakadeemia í Eistlandi: „Þar fann ég þennan fjársjóð inni á bókasafni skólans og ákvað fljótlega að ég skyldi nýta tíma minn þar eins vel og ég gæti og kafa ofan í þessi verk. Því var ég iðulega fyrsti mað- ur inn á bókasafnið og síðasti maður út.“ Þó verkin sem Hreiðar hefur svona brennandi áhuga á hafi sprottið upp úr tónlistararfleifð austurkirkjunnar þá eru þau mjög ólík innbyrðis og bendir hann á að ótrúleg fjölbreytni sé í tónlist Aust- ur-Evrópu. „Tónlistin frá Eistlandi er frábrugðin tónlistinni frá Lett- landi og Litháen, og hvað þá Rúss- landi. Gaman er að sjá hvernig þessi hluti menningararfsins geymir ein- kenni hverrar þjóðar, en býr líka oft yfir einkennum sem minnir á ís- lenska söngvahefð. Í mörgum af þeim verkum sem ég hef skoðað finn ég t.d. sterkt þennan melankólíska lit sem einkennir íslensk þjóðlög og sést m.a. vel í söngvum eins og „Móðir mín í kví kví“. Ég veit ekki hvað veldur að þessi tónn höfðar mjög til mín, en þrátt fyrir myrkrið í honum leynist ljóstíra í fjarska og Hlakkar alltaf til æfinga  Kórinn Ægisif vakti verðskuldaða athygli á síðasta ári og mun m.a. flytja eitt af meginverkum Rachmaninovs í vor 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! iGreen umgjörð kr. 11.900,- Ljóðalestur á nýársdag í Gröndalshúsi Gröndalshús Ljóðaunnendur byrjuðu árið 2018 með því að hlýða á upp- lestur ljóða eftir fjölda ljóðskálda, lífs og liðinna, í gær á nýársdag. Rithöfundur, ljóðskáld og þýðandi Ófeigur Sigurðsson las upp eigin ljóð. Hann hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir ritverk sín. Í nógu verður að snúast hjá Hreiðari á árinu framundan og munu kórarnir sem hann vinnur með reiða fram ófá bitstæð stykki. Fleiri tónleikar eru í undirbúningi hjá Ægisif og mun kammerkórinn Schola cantorum, sem Hreiðar er meðlimur í, flytja „Eddu 2“ eftir Jón Leifs í marsmánuði. Hreiðar mun aðstoða Hörð Áskelsson, stjórnanda kórsins, við að gera þetta risaverkefni að veruleika en „Edda 2“ hefur aldrei áður verið flutt, hvorki hérlendis né erlendis og þurfti að nótnasetja verkið frá grunni fyrir flutninginn í mars. „Jón Leifs ætlaði sér að skrifa þrjár Eddur, en tókst ekki að ljúka við þá þriðju,“ segir Hreiðar og tekur fram að verkin hafi ólík blæ- brigði og endurspegli umhverfi og áhrifavalda tónskáldsins á mis- jöfnum tímabilum í lífi hans. „Í „Eddu 1“ eru áhrifin af dvöl hans í Þýskalandi greinleg en í „Eddu 2“ er hann orðinn meiri málari í tón- smíðum sínum.“ Í vor mun Ægisif síðan flytja „Bjöllurnar“ eftir Rachmaninov, og eg er það í fyrsta skipti sem sú rússneska hnallþóra er borin á borð fyrir íslenska kórtónleika- gesti. „Kór MH hlaut síðan styrk frá tónskáldasjóði RÚV til að panta nýtt verk eftir Pál Ragnar Pálsson og verður það frumflutt í vor.“ Hvert stórvirkið á fætur öðru METNAÐUR Í STARFI KÓRANNA Í VOR » Þegar vel tekst til verður ofsalega gaman á æf-ingunum, söngvararnir hrífast með snilldargáfu tónskáldanna, og þeim bregður við það að tveir tímar eru liðnir eins og hendi væri veifað. Það sem fólk finnur, þegar allt gengur upp, er að tónlistin græðir og göfgar, og veitir okkur innblástur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.