Morgunblaðið - 11.01.2018, Side 4

Morgunblaðið - 11.01.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 sp ör eh f. Vor 1 Á vorin skartar Prag sínu allra fegursta. Borgin er afar skemmtileg þar sem andi miðalda ræður ríkjum í bland við blómstrandi listalíf. Í þessari ferð skoðum við t.d. Karlsbrúna og Hradcanykastalann.Við byrjum ferðina í borginni Pilsen en síðustu dagana njótum við í hinni fallegu og líflegu Regensburg. 24. - 31. mars Fararstjóri: Pavel Manásek Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 179.700 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Páskaveisla í Prag Húsnæðisvandi til athugunar Umboðsmaður Alþingis sendi bréf í lok desember til fimmtán fjölmenn- ustu sveitarfélaganna utan Reykja- víkur þar sem hann óskaði eftir upp- lýsingum um þau úrræði sem eru í boði í sveitarfélögum fyrir þá sem eru í áfengis- og vímuefnaneyslu. Um- boðsmaður hefur haft húsnæðisvanda utangarðsfólks í Reykjavík til athug- unar að eigin frumkvæði en tilgang- urinn með bréfinu er að fá heildstætt yfirlit um stöðu þessara mála hjá sveitarfélögunum. Þau hafa til 31. janúar að veita honum upplýsing- arnar. Granda, Gistiskýlið og Konukot. Við erum með úrræði fyrir um 80 manns á þessum stöðum. Svo erum við með rúmlega 150 rými fyrir fólk sem er búið að fara í gegnum áfengis- og vímuefnameðferð.“ Lítið er um úrræði yfir miðjan dag- inn fyrir heimilislausa þegar Gist- iskýlið og Konukot eru lokuð. Elín segir dagþjónustuleysi vandamál en það sé til skoðunar. Til að koma til móts við það þar til lausn finnst hafi verið veitt tímabundin styrking í Kaffistofu Samhjálpar og þá var veitt heimild til að leyfa þeim sem eru veikir að vera inni yfir miðjan daginn í Gistiskýlinu. „Auðvitað á að gefa ungu fólki tæki- færi til þess að móta samfélagið. Hins vegar þarf að vera samhengi í reglum sem um slíkt gilda,“ segir Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggð- ar. Sveitarstjórn þar hefur sent inn umsögn vegna frumvarps til breyt- inga á lögum um kosningar til sveit- arstjórna sem Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutningismaður að. Frumvarpið gerir ráð fyrir að kosningaaldurinn verði lækkaður úr 18 árum niður í 16 og eigi sú breyting að taka gildi fyrir kosningar í lok maí næstkomandi. Ekki er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að neinu verði breytt um kjörgengi, sem áfram mið- ist við 16 árin. Helgi segir kosninga- rétt og kjörgengi hvort sína hliðina á sama peningi. Hafi verði í huga að fulltrúum í sveit- arstjórnum sé mikil ábyrgð falin. Þeir meðal annars gangi frá ýmsum skuldbindingum og lántökum fyrir hönd síns sveitar- félags og þurfi því að vera lög- og fjárráða, það er átján ára. „Umræðan um aukin áhrif ungs fólks þarf að vera dýpri en við sjáum nú. Ef breyta á lögum um kosninga- rétt er best að stíga skrefið til fulls og breyta öðrum lögum eftir þörfum í leiðinni, hugsanlega með bandorms- frumvarpi,“ segir Helgi Kjartansson. sbs@mbl.is Kjörgengi verði með í bandormi Helgi Kjartansson  Efast um breytingar á kosningaaldri Guðni Einarsson gudni@mbl.is Jöfnunarsjóður sókna þjóðkirkjunnar fékk um- sóknir frá söfnuðum um styrki upp á 924,1 milljón króna á þessu ári. Kirkjuráð hefur út- hlutað styrkjum upp á 274 milljónir og kemur þannig til móts við tæplega 30% heildarupp- hæðar styrkbeiðna. Kirkjuráð hefur birt sundurliðun um úthlut- anir úr Jöfnunarsjóði sókna 2018 og er það í fyrsta sinn sem þær upplýsingar eru birtar með þessum hætti, að sögn Odds Einarssonar, framkvæmdastjóra kirkjuráðs. Einungis eru birtar upplýsingar um sóknir sem fengu styrki. Oddur sagði umsóknir hafa borist frá fleiri sóknum. Þannig var átján umsóknum hafnað m.a. vegna skorts á upplýsingum. Gert er ráð fyrir að úr því kunni að verða bætt og verða umsóknirnar þá aftur teknar fyrir. Jöfnunarsjóður sókna hefur m.a. það hlut- verk að styrkja sóknir til sameiningar. Átak í þeim efnum er í bígerð á þessu ári. Til dæmis er unnið að sameiningu Breiðholtssóknar og Fella- og Hólasóknar í Reykjavík. Kirkjur beggja sóknanna eru í mikilli þörf fyrir viðhald og ljóst að það verður kostnaðarsamt. Sóknargjöldin og byrðarnar Auk upplýsinga um umsóknir og úthlutanir eru birtar upplýsingar um fjölda gjaldenda sóknargjalda í hverri sókn og tekjur sókna af sóknargjöldum. Þau eru einu reglulegu tekjur sóknanna og með þeim þarf að fjármagna kirkjubyggingar og borga rekstur og viðhald. Við lauslegan yfirlestur stingur í augun hvað sumar sóknir eru skuldum hlaðnar. Það á til dæmis við um Hallgrímskirkju í Reykjavík, eina af höfuðkirkjum landsins. Hún er sem kunnugt er eitt af helstu kennileitum höfuð- borgarsvæðisins, opin flesta daga og einn vin- sælasti viðkomustaður ferðamanna í borginni. Grafarvogssókn, fjölmennasta sókn landsins sem hefur staði í mikilli uppbyggingu, sótti um 15 milljónir vegna skulda en fær fimm. Skulda- hlutfallið er svimandi hátt hjá sumum fámenn- um sóknum úti á landi. Reykholtssókn í Borgarfirði skuldar 47,8 milljónir en fær sóknargjöld upp á 2,2 milljónir vegna 200 gjald- enda. Skuldahlutfallið þar er 2.218,5%. Hún sótti um og fékk styrk upp á 5,6 milljónir. Reykholt er einn merkasti sögustaður landsins og vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Sleðbrjótssókn í Austurlandsprófastsdæmi skuldar 6,4 milljónir en fær um 500 þúsund á ári í sóknargjöld vegna 40 sóknarbarna. Skuldahlutfallið er því 1.383,7%. Hún sótti um og fékk 300 þúsund króna styrk vegna safn- aðarstarfs. Endurbætur og skuldir vega þungt Samkvæmt samantekt kirkjuráðs fyrir Morgunblaðið vega endurbætur kirkna þyngst þegar kemur að styrkjum úr Jöfnunarsjóði. Skuldir liggja einnig þungt á herðum margra sókna. Þar á eftir koma styrkir vegna safn- aðarstarfs, nýframkvæmda og reksturs. Fram kom í fundargerð fjármálahóps kirkju- ráðs 8. desember sl. að fjárhagsáætlun Jöfn- unarsjóðs sókna gerir fyrir að tekjur sjóðsins verði 380,7 milljónir á þessu ári, gjöld 274 millj- ónir og að tekjuafgangur verði 106,7 milljónir. Skuldugar sóknir fá stuðning  Jöfnunarsjóði sókna bárust umsóknir upp á 924 milljónir  Hefur veitt styrki upp á 274 milljónir  Hlutfall skulda gagnvart sóknargjöldum sumra mjög hátt  Átak til sameiningar sókna á þessu ári Morgunblaðið/Golli Reykholt 200 sóknarbörn reka kirkjuna á stað sem þúsundir heimsækja á hverju ári. Reykjavíkurborg hefur verið í samstarfi við pólsku sam- tökin BARKA frá því í ársbyrjun 2017. Tveir pólskir ráð- gjafar frá þeim starfa hjá borginni við að aðstoða heim- ilislausa Pólverja hér á landi. „Árið 2017 fóru tólf pólskir einstaklingar til Póllands í meðferð og fengu störf og búsetu í heimalandinu eftir það. Í heildina fengu 37 ein- staklingar þjónustu frá BARKA hér á landi í fyrra. Sumir völdu að vera hér áfram, fóru jafnvel í meðferð til Pól- lands og komu aftur. Í Gistiskýlinu, sem er fyrir karla í neyslu, var hlutfall erlendra ríkisborgara í júlí 2016 um 50% en var í júlí 2017 komið niður í 12%. Það hefur orðið mjög mikil breyting á samsetn- ingunni á þeim hópi sem nýtir sér þjónustu Gistiskýlisins eftir að verk- efnið hófst,“ segir Elín Oddný. Samstarfið við BARKA heldur áfram. 37 Pólverjar fengu aðstoð PÓLSKU SAMTÖKIN BARKA Elín Oddný Sigurðardóttir Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Stuðningur við utangarðsfólk verður aukinn í Reykjavík. Það verður m.a. gert með því að bæta við tólf íbúðum fyrir fólk í jaðarstöðu á grundvelli hugmyndafræðinnar Húsnæðið fyrst. Einnig verður starfsmönnum í vett- vangs- og ráðgjafarteymi sem veitir utangarðsfólki þjónustu fjölgað úr sjö í þrettán. Heimilislausum og þeim sem telj- ast utangarðs fjölgaði um 95% í Reykjavík yfir fimm ára tímabil, frá 2012 til 2017, og eru þeir skráðir 349 í dag. Um 80 þeirra eru af og til á göt- unni en flestir eru skráðir við ótrygg- ar aðstæður. Þeir búa þá í úrræðum á vegum borgarinnar, í húsnæði fyrir fólk í neyslu, á áfangaheimilum og innan tölunnar eru líka þeir sem eru að ljúka stofnanavist innan þriggja mánaða að sögn Elínar Oddnýjar Sig- urðardóttur, formanns velferðarráðs Reykjavíkurborgar. „Erfið staða á húsnæðismarkaði virðist bitna illa á þessum hópi en þeir sem vinna með fólki á götunni finna bæði fyrir fjölg- un í hópnum, harðari neyslu efna og veikari einstaklingum.“ Reykjavíkurborg setti sér stefnu í málefnum utangarðsfólk frá 2014- 2018 og er aukinn stuðningur hluti af því að framfylgja þeirri stefnumótun. Aðstoð við heimilishald Samkvæmt hugmyndafræði Hús- næðið fyrst er ekki gerð krafa um að fólk sé edrú eða í meðferð, heldur er fólk stutt í þeim aðstæðum sem það er í hverju sinni að sögn Elínar. „Það eru núna 19 manns í húsnæði sam- kvæmt Húsnæðið fyrst, þeir eru í sjálfstæðri búsetu og fá aðstoð við að halda heimili. Á þessu ári bætast svo við fjórar íbúðir og tólf í heildina til 2020. Húsnæðið fyrst byggist á ska- ðaminnkandi nálgun í þjónustu við utangarðsfólk og vímuefnaneyt- endur. Það hefur sýnt sig að fólk á mjög erfitt með að finna viljann til að bæta stöðu sína ef það hefur ekki þak yfir höfuðið. Við sinnum líka fyr- irbyggjandi þjónustu með því að að- stoða fólk sem er í hættu á að verða húsnæðislaust.“ Húsnæði er fundið fyrir þennan hóp í samstarfi við félagsbústaði. „Það eru húsnæðisúrræði í borg- inni fyrir fólk í virkri vímuefnaneyslu á átta stöðum, það eru íbúðir, her- bergjasambýli, smáhýsin úti á Morgunblaðið/Golli Á götunni Borgaryfirvöld ætla að bæta við húsnæðisúrræðum fyrir heim- ilislausa í Reykjavík á árinu og grípa til ýmissa annarra úrræða. Borgin eykur stuðn- ing við utangarðsfólk  Húsnæðisúrræði fyrir fólk í vímuefnaneyslu á átta stöðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.