Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 18
ÁSKRIFTARHAPPADRÆTTI MORGUNBLAÐSINS Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinningshafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum.SanFrancisco MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Þ að er ekki út í bláinn að Scott McKenzie söng svo árið 1967: „Sértu á leið til San Francisco, þá mundu að bera blóm í hári þér.“ Borgin var í senn upphafsreitur og suðupottur hippamenningarinnar seint á sjö- unda áratug síðustu aldar og þótt fimmtíu ár séu liðin frá blómaskeið- inu svífur ávallt frjálslyndur andi yf- ir borginni og litríkt mannlífið hefur löngum þótt einkennast af fjöl- breytni og umburðarlyndi. Enn þann dag í dag er dásamlegt að labba um miðpunktinn sjálfan, hippahverfið Haight-Ashbury sem er í dag stællegt og vinsælt hverfi með frábærum verslunum, kaffi- húsum og veitingastöðum. Engu að síður ómar enn bergmál blóma- barnanna frá því forðum daga um skrautlegar göturnar, sé að gáð. Auðveld borg að skoða En það er ótalmargt fleira sem ljær San Francisco einstaka stemn- ingu og ótrúlegt aðdráttarafl, og það sem meira er, borgin er sérstaklega þéttbyggð á tiltölulega litlu svæði svo leikur einn er að komast yfir margt á skömmum tíma. Þar koma hinir sögufrægu sporvagnar líka sterkir inn og það er ógleymanleg upplifun að fara með einum slíkum á milli borgarhluta. Hæðótt, hlykkjótt, ógleymanlegt Eitt af því sem gefur San Franc- isco svo sérstæðan svip er einstakt bæjarstæðið. Ekki nóg með að borg- in sé á besta stað við San Francisco- flóa, við Kyrrahafsströnd Kaliforníu, heldur er landslagið í meira lagi hæðótt og það gerir borgina í senn myndræna og skemmtilega yfirferð- ar. Brekkurnar eru einmitt það sem gerir sporvagnaferðir svo skemmti- legar, ásamt því að þær eru vett- vangur eins eftirminnilegasta bíla- eltingaleiks kvikmyndasögunnar, þegar Steve McQueen eltist við þrjóta á 1968-árgerð af urrandi kraftmiklum Ford Mustang Fast- back. Hæðótt landslagið er þess enn fremur valdandi að í borginni er sú gata sem hefur oft verið nefnd sú hlykkjóttasta í heimi. Hún heitir Lombard Street og er sannarlega þess virði að heimsækja, ekki síst þegar hún stendur í fullum blóma- skrúða. Margt að sjá við sjóinn Nærveran við sjávarsíðuna er óneitanlega það sem gefur borginni einna mest af persónuleika hennar og sögu. Ótal veitingastaðir í San Francisco bjóða upp á sjávarfang á heimsmælikvarða; úti á flóanum lúr- ir á eyju hið illræmda fangelsi Alcat- raz, sem nú stendur autt og hægt er að skoða með leiðsögn; og við flóa- mynnið er sjálft Gullna hliðið að Kyrrahafinu, Golden Gate-brúin, sem að líkindum er sú frægasta í víðri veröld. Allir sem heimsækja San Francisco ættu að gefa sér tíma til að ganga eða hjóla meðfram sjáv- arsíðunni eftir San Francisco Promenade og þaðan yfir brúna því þaðan er útsýni einstakt yfir flóann og borgina – að því gefnu að hin fræga þoka leggist ekki yfir fyr- irvaralaust! Létt og ljúft loftslagið San Francisco hefur þá þakklátu sérstöðu, þökk sé staðsetningunni við sjóinn, að veðurfar er þar milt og þægilegt. Hér verður sárasjaldan vart við þunga og raka miðborg- armollu sem getur gert manni lífið leitt með kæfandi hita heldur eru sumrin þægilega svöl og veturnir mildir. Borgina má því heimsækja árið um kring án þess að eiga nokk- urn tímann á hættu að kafna eða krókna. Loftslagið á því ekki síst vel við Íslendinga sem elska að sleppa við ískalda daga um vetur og sjóð- heita yfir sumrin. Sælureitur fyrir sælkerana Það er ekki orðum aukið að San Francisco sé borg fyrir áhugafólk um góðan mat því þar er að finna um 4.000 matsölu- og veitingastaði, hvorki meira né minna. Það eru fleiri staðir á íbúa en í nokkurri annarri borg í Bandaríkjunum. Hvort sem hugurinn girnist sjávarfang, steikur eða annað þá er úrvalið gríðarlegt. Þeir sem vilja kaupa sér ferskt gómsæti geta valið milli níu markaða þar sem bændur og allra handa ræktendur selja afurðir sínar beint frá býli. Einn skemmtilegasti og líf- legasti markaðsstaðurinn er tví- mælalaust Fisherman’s Wharf við bryggju 39 þar sem kjörið er kaupa sér lostætan skyndibita til að maula meðan labbað er um svæðið og skoð- að. Gleymið ekki að skoða selina sem flatmaga á flotbryggjunum og stinga sér þess á milli til sunds, áhorf- endum til ómældrar skemmtunar. Þá má ekki gleyma að það er að- eins um klukkustundar akstur norð- ur í Napa-dalinn þar sem bestu vín Bandaríkjanna eru ræktuð; það er hægur vandi að aka þangað sjálfur eða þá panta sér sæti í skoðunarferð með smakki og þá er sannarlega lag að festa kaup á flösku eða tveimur af dýrindis fjólurauðum Zinfandel. Verslun, menning og meira Fyrir þá sem hyggjast taka kred- itkortið sitt ærlega til kostanna er ómissandi að kíkja á Union-torgið, þar sem ótrúlega margar frábærar verslanir eru samankomnar á til- tölulega litlu svæði, ásamt margvís- legum matsölustöðum þar sem hægt er að hlaða batteríin milli tarna í búðunum. Hér er allt frá Chanel og Dior til Uniqlo og Urban Outfitters, svo allir ættu að finna sér eitthvað fallegt. Fyrir þá sem langar að auðga andann eftir átök í búðunum er af nógu að taka – hér er hinn heims- frægi San Francisco-ballett sem Helgi okkar Tómasson kom til æðstu metorða í dansheiminum, sin- fóníusveit og ópera ásamt fram- úrskarandi nýlistasafni, The San Francisco Museum of Modern Art, ásamt fjölmörgum listgalleríum þar sem stjörnur morgundagsins í myndlistarheiminum stíga sín fyrstu skref. Leikhúslífið er þá með lífleg- asta móti og alltaf eitthvað spenn- andi á fjölunum. Mundu bara eftir blómun- um í hárinu! San Francisco er um margt einstök borg og á engan sinn líka í Bandaríkjunum. Sælkerar, sagnfræðinördar og lífs- kúnstnerar af öllu tagi koma þangað aftur og aftur enda engin leið að fá nóg af borginni sem stendur við Gullna hliðið Á næstu vikum eiga áskrif- endur Morgunblaðsins mögu- leika á að hreppa ferð til ein- hverrar af 10 borgum sem eru meðal áfangastaða í leiðakerfi WOW Air. Þannig verða 104 flugsæti dregin út á næstu 10 vikum, frá deginum í dag og til 15. mars. Fjallað verður um hverja borg fyrir sig í Morgunblaðinu á hverjum fimmtudegi meðan á leiknum stendur. Fyrsta borgin er San Francisco og í framhaldinu koma Stokkhólmur, Cleve- land, Barcelona, Tel Aviv, Detroit, Cincinnati, St. Louis, Dublin og Dallas. Áskrifendur til 10 borga með WOW Heillandi San Francisco er í senn söguleg menningarborg og háþróuð nútímaborg. Sjávarsíðan Labbitúr um Fisherman’s Wharf er skemmtun fyrir alla aldurs- hópa. Hlykkstræti Lombard Street hefur með réttu verið kölluð hlykkjóttasta gata veraldar. Gullna hliðið Frægasta kennileiti San Francisco er Golden Gate brúin. Hún er 1.970 metrar að lengd og turnarnir tveir standa 230 metra yfir sjávarmáli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.