Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR
u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist
á rúðuna / sólaselluna
u Eykur öryggi og útsýni allt að
tvöfalt í bleytu og rigningu
u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla,
snjór og ísing safnist á rúðuna
u Heldur regnvatni frá rúðunni
u Býr til brynju á rúðunni fyrir
leysiefnum og vökvum
u Þolir háþrýstiþvott
u Virkar við -30°C til + 30°C
u Endingartími er 6 – 12 mánuðir
Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur
Skoðið nýju vefverslun okkar casa.is
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640
COMPONIBILI
hirslur 3ja hæða
Verð frá 17.900,-
Til í fleiri litum
TAKE borðlam
Verð 10.900,-
Til í fleiri litum
pi
BOURGIE borðlampi
Verð frá 34.900,-
Til í fleiri litum
CINDY borðlampi
Verð 32.900,-
Til í fleiri litum
KABUKI
standlampi
Verð 129.000,-
PLANET
borðlampi á fæti
Verð 74.900,-
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorsteinn R. Hermannsson, sam-
göngustjóri Reykjavíkur, segir að á
næstu vikum verði birt mat á fýsi-
leika þess að setja Miklubraut í
stokk milli Kringlumýrarbrautar og
Snorrabrautar.
Sá kafli sé um
1,5 km. Hug-
myndir séu um
að stokkurinn
verði á einni hæð
á um 8-10 metra
dýpi með tveim-
ur akreinum í
báðar áttir. Rætt
hafi verið um að
ofanjarðar verði
ein akrein í
hvora átt fyrir almenna umferð og
tvær akreinar fyrir almenningssam-
göngur. Hæg umferð verði ofan-
jarðar.
„Það var samþykkt í borgarráði í
fyrra að greina fýsileika þess að
leggja Miklubraut í stokk að hluta
með vísun í aðalskipulagið. Það má
bera [stokkinn] saman við fýsileika
Öskjuhlíðarganga.“
Næði að Hringbraut
Hann rifjar upp að þegar málið
var síðast skoðað hafi stokkurinn
verið teiknaður frá Kringlumýrar-
braut og í gegnum Hlíðarnar að
Hringbraut við Landspítalann.
„Með því breytist flæði bílaum-
ferðar. Þá myndi stokkur bæta að-
stæður á yfirborðinu og draga úr
umferðarhávaða, ásamt því sem
möguleikar til uppbyggingar á veg-
helgunarsvæðum myndu aukast.
Umhverfisgæði þeirra sem þarna
búa myndu aukast mikið. Þetta yrði
gjörbreyting. Um 80-90% af bíla-
umferðinni myndu fara um stokk-
inn,“ segir Þorsteinn og rifjar upp
hugmyndir um að breyta Hring-
braut í borgargötu með minni há-
markshraða en nú er leyfður.
Starfshópur um minnkun hámarks-
hraða vestan Kringlumýrarbrautar
leggi til að hraði fari úr 60 í 50 km.
Þorsteinn segir stokkinn munu
skapa ýmis tækifæri til að þétta
byggð. Ódýrara verði að byggja til
hliðar við stokkinn en ofan á hann.
Myndi styrkja Kringlusvæðið
„Það styður uppbyggingu á
Kringlusvæðinu ef Miklabraut færi í
stokk norðanmegin við Kringluna.
Það er hins vegar ekki forsenda
uppbyggingarinnar. Sýnt var fram á
það í nýrri vinningstillögu fyrir
Kringlusvæðið að þar getur orðið
töluverð uppbygging þótt Mikla-
braut verði áfram á yfirborðinu.“
Varðandi framkvæmdir við stokk-
inn bendir Þorsteinn á að við stokk-
inn sé mikið svæði til umráða. „Það
er hægt að búa til bráðabirgðaleið
meðfram stokknum meðan hann er
byggður. Þetta er mikið verkefni,“
segir Þorsteinn. Það hafi komið til
umræðu að Miklabraut geti síðar
legið í stokk austur að Háaleitis-
braut, eða jafnvel Grensásvegi.
Tengist flugvallarsvæðinu
Þorsteinn segir aðspurður gert
ráð fyrir Öskjuhlíðargöngum á
Aðalskipulagi borgarinnar til 2030.
Sú framkvæmd sé hins vegar tengd
hugmyndum um uppbyggingu á
svæði Reykjavíkurflugvallar. Ann-
ars verði minni þörf fyrir þau.
Hann segir hugmyndir um að
vestari endinn verði norður af bíla-
stæði Háskólans í Reykjavík en sá
austari sunnan við göngubrú yfir
Kringlumýrarbraut við Fossvog.
Með því mundu þau tengja Naut-
hólsveg og Kringlumýrarbraut.
Þorsteinn ítrekar að engar
ákvarðanir hafi verið teknar varð-
andi Öskjuhlíðargöng. Jafnframt
geti útfærslan breyst. Miðað við
Aðalskipulag verði þau um 1,5 km.
Miklabraut í stokk
Samgöngustjóri Reykjavíkur segir athugun á lokastigi
Í skoðun er að Miklabraut fari í stokk á 1,5 km kafla
*Útfærsla Morgunblaðið.
Kort: openstreetmap.org. Heimild: Reykjavíkurborg.
Stokkur (um 1,3-1,5 km)
Miklabraut lögð í stokk milli Snorra-
brautar og Kringlumýrarbrautar
Göng (möguleg lega ganga, um 1,5 km*)
Jarðgöng undir Öskjuhlíð frá Nauthóls-
vegi að Kringlumýrarbraut í Fossvogi
Fossvogur
Öskjuhlíð
Miklabraut
Hringbraut
N
authólsvegur
Sn
or
ra
br
.
Kringlum
ýrarbraut
Háskólinn
í Reykjavík
Hugmyndir að vegaframkvæmdum í Reykjavík
Þorsteinn R.
Hermannsson
hefur verið mun meiri en við gerðum
ráð fyrir. Þetta nokkurn veginn jafn-
ast út,“ segir Runólfur.
Fer yfir 88 milljarða
Fram kom í Morgunblaðinu í lok
júní að kostnaður við fluglestina væri
þá áætlaður 758 milljónir evra, eða
um 88 milljarðar króna á þávirði.
Runólfur segir endurmat á kostn-
aði benda til að hann verði umtalsvert
hærri. Hversu mikið muni skýrast
með nýrri viðskiptaáætlun.
Hann segir nú miðað við að fram-
kvæmdir geti hafist 2021 eftir að
skipulagsfasanum lýkur. Þeim verði
mögulega lokið 2026.
„Borgin er farin að gera ráð fyrir
þessari tengingu á BSÍ-reitnum sem
er fagnaðarefni og í samræmi við
okkar óskir. Þetta verður neðan-
jarðarstöð sem tekur ekki mikið pláss
ofanjarðar,“ segir Runólfur.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Endurmat á viðskiptaforsendum
fluglestar milli Keflavíkur og Reykja-
víkur bendir til að tekjur af rekstr-
inum verði meiri en talið var.
Félagið Fluglestin – þróunarfélag
undirbýr verkefnið.
Runólfur
Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri fé-
lagsins, segir að
annars vegar hafi
ferðamönnum
fjölgað sem muni
auka eftirspurn.
Hins vegar hafi
dreifing farþega á
Keflavíkur-
flugvelli yfir dag-
inn jafnast út. Það
geri reksturinn mun hagkvæmari.
Árstíðasveiflan sé að minnka. Ferða-
mönnum hafi fjölgað meira á veturna
en yfir sumarið.
Úr fimm tímum í þrjá
„Flugfarþegar, helstu viðskipta-
vinir fluglestarinnar, dreifast því mun
betur yfir daginn. Topparnir eru ekki
eins skarpir. Við gerðum ráð fyrir því
í síðustu áætlun að geta haft kerfið
lokað fimm tíma á sólarhring. Nú er-
um við komin með þann tíma niður í
þrjá tíma. Áætluð þörf er orðin slík að
við getum ekki lokað kerfinu fyrr en
eitt á nóttinni og þurfum að opna það
fjögur að morgni,“ segir Runólfur.
Hann segir áformað að gefa út
skýrslu með viðskiptaáætlun öðrum
hvorum megin við mánaðamótin. Síð-
asta áætlun hafi verið birt 2015.
Þekkja jarðfræðina betur
„Forsendur eru töluvert breyttar.
Við erum komin með mun betri þekk-
ingu á jarðfræði höfuðborgar-
svæðisins og kostnaðarliðum. Við
getum metið það mun betur. Það er
komin ítarleg greining sem hefur
hækkað kostnað nokkuð. Á móti kem-
ur að áætlaðar tekjur hafa sem áður
segir aukist. Fjölgun ferðamanna
Dýpt lestarganga
Fluglestin á að
liggja ofanjarðar frá
Keflavíkurflugvelli að
Straumsvík. Þaðan
á að gera 15-16 km
göng að BSÍ.
Meðaldýpt gang-
anna verður um 40
metrar frá yfirborði.
Til samanburðar er
Hallgrímskirkja 74,5
metrar á hæð.
-25 m
-50 m
75 m
50 m
25 m
BSÍ
Heimild:
Efla verkfræðistofa
Hagkvæmni
fluglestar eykst
Runólfur
Ágústsson
Talsmaður segir tekjur verða meiri
Sex heppnir miðaeigendur fengu 1
milljón króna í vinning og sautján
fengu 500 þúsund krónur í vinning
þegar dregið var í Happdrætti Há-
skóla Íslands í gær. Þá fengu þrír
heppnir miðaeigendur 200 þúsund
krónur hver.
„Það er óhætt að segja að árið
fari vel af stað því heppnum Íslend-
ingum fjölgaði um rúmlega 3.400 í
útdrætti kvöldsins,“ segir Úlfar
Gauti Haraldsson, rekstrarstjóri
flokkahappdrættis Happdrættis
Háskóla Íslands, í tilkynningu frá
happdrættinu. Heildarupphæð
vinninga í útdrætti gærdagsins
nam rúmum 98 milljónum og skipt-
ist á 3.421 miðaeiganda.
Sex unnu milljón í Happdrætti Háskólans