Morgunblaðið - 11.01.2018, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
Günther Oettinger, framkvæmda-
stjóri fjárhagsáætlunar Evrópusam-
bandsins, lagði til í gær að ríki sam-
bandsins tækju upp skattlagningu á
plastumbúðir, sem ætti bæði að vega
á móti mengun og hjálpa til við að
loka fjárlagagati upp á 13 milljarða
evra sem skapast mun við brottför
Breta úr Evrópusambandinu árið
2019.
Sagði Oettinger að umræðan
myndi meðal annars snúast um það
hvort framleiðendur eða neytendur
yrðu skattlagðir, og einnig hvort
bjóða ætti upp á undanþágur í viss-
um tilfellum, eins og til dæmis við
framleiðslu og geymslu á mjólkur-
vörum.
„Við ætlum að leggja til mögu-
leikann á því að hefja skattheimtu á
plasti til þess að hvetja til minnkandi
notkunar á slíkum umbúðum,“ sagði
Oettinger á fréttamannafundi.
Tillaga Oettingers kemur fram á
sama tíma og Evrópusambandið
undirbýr fjárlagatillögur sínar fyrir
tímabilið frá 2021 til 2027 og myndu
þær, ef samþykktar, fyrst hefjast þá.
Í máli Oettingers kom fram að
brottför Breta úr Evrópusamband-
inu þýddi að um 12-13 milljarða evra
myndi vanta upp á miðað við það sem
nú er, en Jean-Claude Juncker, for-
seti framkvæmdastjórnarinnar, hef-
ur hvatt til þess að ESB-ríkin verji
meiru til sambandsins.
Leggur til
plastskatt
Á að bæta fyrir útgöngu Breta
AFP
Plastskattur Günter Oettinger
lagði til skatt á plastumbúðir.
William Alsup, alríkisdómari í San
Francisco, stöðvaði í fyrrinótt gildis-
töku reglugerðar, sem Donald Trump
Bandaríkjaforseti hafði undirritað,
þar sem hið svo-
nefnda DACA-
verkefni Obama-
stjórnarinnar var
numið úr gildi. Úr-
skurðurinn þýðir
að Bandaríkin geta
ekki vísað úr landi
vissum innflytj-
endum sem komu
ólöglega til Banda-
ríkjanna þegar þeir voru börn að
aldri. Sá hópur hefur verið kallaður
„Dreamers“, eða „draumafólk“ í um-
fjöllunum vestanhafs.
Trump lét í ljós óánægju sína með
úrskurðinn á samfélagsmiðlum og
kallaði forsetinn réttarkerfið ósann-
gjarnt meðal annars. Sagði í úrskurði
Alsups, sem er 49 blaðsíður, að ríkis-
stjórn Bandaríkjanna væri skylt að
halda úti DACA-verkefninu þar til
búið væri að greiða úr þeim lögsókn-
um sem höfðaðar voru á hendur
bandaríska ríkinu þegar Trump
ákvað að nema það úr gildi.
Barack Obama, fyrirrennari
Trumps, setti DACA á laggirnar árið
2012, og hefur verkefnið verið póli-
tískt bitbein síðan. Trump ákvað í
september síðastliðnum að binda
enda á það en gaf Bandaríkjaþingi
frest fram í mars til þess að finna
varanlegri lausn.
Opnaði á „heildstæða lausn“
Trump hafði fyrr um daginn komið
bæði stuðningsmönnum og andstæð-
ingum sínum á óvart þegar hann opn-
aði á það á sáttafundi með fulltrúum
beggja flokka að fundin yrði „heild-
stæð lausn“ á málum ólöglegra inn-
flytjenda í Bandaríkjunum sem
myndi fela í sér að 11 milljón manns
fengju bandarískan ríkisborgararétt.
Á móti þyrftu demókratar að sætta
sig við aukna öryggisgæslu á landa-
mærum Bandaríkjanna.
Fundurinn var sýndur að hluta til í
beinni sjónvarpsútsendingu og voru
fulltrúar úr báðum deildum Banda-
ríkjaþings viðstaddir hann. Sagðist
Trump vera tilbúinn til þess að „taka
á sig pólitíska skellinn,“ ef það gæti
orðið til þess að greiða fyrir varan-
legri lausn á málefnum ólöglegra inn-
flytjenda en Trump hafði áður talað
gegn slíkri lausn.
Trump ósáttur
við úrskurðinn
„Draumafólkinu“ ekki vísað úr landi
Donald Trump
Meira til skiptanna
Þegar frost
er á fróni
OLYMPIA 100% Merino ullarnærföt
Stærðir: S–XXL
Sölustaðir:
• Hagkaup
• Fjarðarkaup
• Útilíf
• N1
• Vesturröst
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
• Verslunin Bjarg, Akranesi
• JMJ, Akureyri
• Lífland, Blönduósi
• Verslunin Blossi, Grundafirði
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Kaupfélag Skagfirðinga
• Smart, Vestmannaeyjum
• Kaupfélag V-Húnvetninga
• Borgarsport, Borgarnesi
• Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík
• Verslun Dóru, Höfn
• Þernan, Dalvík
• Siglósport, Siglufirði
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands, Selfossi Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Þessir indversku hermenn klæddust fullum herklæðum
í gær til þess að undirbúa sérstaka skrúðgöngu sem
þeir munu taka þátt í 26. janúar næstkomandi, en þann
dag fagna Indverjar því að ný stjórnarskrá tók gildi og
breytti landinu í lýðveldi, sem var algjörlega frjálst
undan breska heimsveldinu.
AFP
Undirbúa lýðveldisdaginn