Morgunblaðið - 11.01.2018, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 11.01.2018, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Undirfö t Sundfö t Náttföt Náttkjó lar Sloppa r Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Ú hefst í dag Allar útsöluvörur með 30-60% afslætti Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þrír ungir einleikarar og einn ein- söngvari koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld, þau Ásta Kristín Pjetursdóttir víólu- leikari, Bryndís Guðjónsdóttir sópr- an, Guðmundur Andri Ólafsson hornleikari og Romain Þór Denuit píanóleikari. Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníu- hljómsveitin stendur fyrir í sam- vinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á há- skólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og eru það þeir hlutskörp- ustu í keppninni fyrr í vetur sem nú koma fram með hljómsveitinni. Alls tóku 23 hljóðfæraleikarar og söngv- arar þátt í keppninni að þessu sinni. Á efnisskrá tónleikanna eru Torn- ami a vagheggiar úr Alcinu eftir Georg F. Händel; Der hölle Rache úr Töfraflautunni eftir W.A. Mozart; forleikur úr La traviata eftir Gius- eppe Verdi; Ah! Non giunge úr La sonnambula eftir Vincenzo Bellini; Hornkonsert nr. 2 eftir Richard Strauss; Víólukonsert eftir Georg Philipp Telemann og Píanókonsert nr. 3 eftir Sergei Prokofíev. Stjórnandi er Daniel Raiskin. Spennandi og krefjandi Guðmundur Andri Ólafsson byrj- aði að læra á horn þegar hann var átta ára gamall nemandi Laugarnes- skóla. Hann er nú á öðru ári í bachel- ornámi við Listaháskóla Íslands en stígur ekki alls ókunnugur á svið Eldborgar í kvöld því hann segist tvisvar hafa verið kallaður inn til að leika með hljómsveitinni. „Þetta er þó í fyrsta skipti sem ég stíg á sviðið sem einleikari,“ segir hann. Og það leggst vel í hann. „Þetta er auðvitað bæði spennandi og krefj- andi verkefni,“ segir hann en Guð- mundur flytur konsert eftir Strauss. „Hann hefur lengi verið uppáhalds- konsertinn minn. Hann er mjög vel skrifaður fyrir hljómsveitina og þá er tónlistin fjölbreytt og spennandi. Úthaldslega er hann býsna erfiður fyrir einleikarann.“ Guðmundur segir markmiðið að halda áfram að spila sem mest og reyna að komast að hjá einhverri sinfóníuhljómsveit. Hann segir það hafa gefið sér vind í seglin að hafa verið einn sigurvegara í þessari ein- leikarakeppni. Og hann verður reiðubúinn ef Sinfóníuhljómsveit Ís- lands þarf á kröftum hans að halda. Meiri tilhlökkun en stress Bryndís Guðjónsdóttir sópran- söngkona er hálfnuð í bachelornámi við Mozarteum í Salzburg. Hún flaug heim í haust til að taka þátt í keppninni og segir að þegar hún var aftur á leið til Austurríkis hafi hún fengið sms þegar hún lenti í Þýska- landi með þeim góðu fréttum að hún hafi verið einn sigurvegaranna. Bryndís hóf píanónám hjá Erlu Stefánsdóttur í Tónlistarskólanum í Kópavogi, skipti svo í söngnám hjá Önnu Júlíönu Sveinsdóttur við sama skóla og fór þaðan, eftir útskrift, í árs nám við Listaháskóla Íslands, áður en leiðin lá til Austurríkis. Bryndís syngur þrjár aríur í kvöld, eftir Händel, Mozart og Bell- ini. „Þetta er mitt allra fyrsta skipti á sviði með Sinfóníunni og það leggst ótrúlega vel í mig,“ segir hún. „Þetta er draumi líkast. Ég flyt sömu aríur og ég söng í keppninni, þær eru ólíkar og verk sem mér finnst bæði gaman að hlusta á og syngja. Þær eru fyrir mína raddtýpu og henta mér vel. „Hljómsveitin gefur aríunum annan brag, það myndast eins konar töfrar á sviðinu,“ segir hún. Er stressandi að syngja í Hörpu? „Það er miklu meiri tilhlökkun en stress,“ svarar Bryndís. „Það eru svo mikil forréttindi að fá að standa í þessu húsi, með þessari hljómsveit, og syngja.“ Hver eru framtíðarplön hennar? „Að fara í mastersnám eða komast í óperustúdíó og reyna eins og ég get að hafa sönginn að atvinnu …“ Vildi búa á Íslandi Romain Þór Denuit píanóleikari á franskan föður og íslenska móður og ólst upp í París. Hann hefur nú búið á Íslandi í eitt og hálft ár og er á öðru ári í bachelornámi við LHÍ, þar sem Peter Maté er kennari hans. „Ég vildi læra á píanó hér en ekki síður vildi ég einfaldlega prófa að búa á Íslandi,“ segir hann. Romain hrósar Peter Maté og segist verða áfram í einkatímum hjá honum en hann hyggst hins vegar ekki nema lengur við LHÍ, heldur halda út í frekara einkanám, til að mynda í hljómfræði í Frakklandi, og fara líka að reyna fyrir sér við tón- leikahald. Hann sé kominn með tón- leikaverkefni ytra. Romain Þór valdi að flytja Píanó- konsert nr. 3 eftir Prokofiev og segir afar spennandi að fá að leika hann með heilli hljómsveit. „Það er öðru- vísi en að æfa hann einn,“ segir hann. „Ég var stressaður fyrir fyrstu æfinguna en þegar við byrj- uðum lékum við einfaldlega saman og það var mjög gefandi. Maður þarf að vera mjög taktviss og ákveðinn en þetta gekk vel, og var gaman. Ég elska þennan konsert eftir Prokofiev, hann hefur lengi verið í uppáhaldi. Þetta er engin rómantík heldur er þetta 20. aldar tónlist; ákveðin kaldhæðni, uppfinningasemi og fljúgandi ímyndunarafl.“ Ætlaði að vinna Ásta Kristín Pjetursdóttir víólu- leikari er á lokaári í bachelornámi við Konuglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Hún skellti sér heim í keppnina í haust. „Já, það hafði lengi verið markmið hjá mér að fara í þessa keppni – og vinna hana,“ segir hún og hlær. „Mér tókst það …“ Hún lék þá einnig víólukonsertinn eftir Telemann sem hún segir bæði fallegt og skemmtilegt verk. „Það heyrist ekki oft opinberlega og það verður gaman að leyfa fólki að heyra þessa frábæru tónlist. Mér finnst sjálfri mjög skemmtilegt að spila þetta verk.“ Vegna veikinda þurfti um liðna helgi að breyta tónleikaskrá kamm- ersveitarinnar Elju, sem skipuð er fólki sem er í tónlistarnámi erlendis og Ásta Kristín er í, með þeim afleið- ingum að hún flutti konsertinn með nánast engum fyrirvara á þeim tón- leikum. „Telemann hentaði þessari hljóðfæraskipan og sólistinn var tilbúinn – það var fínt svona daginn áður en æfingar hófust hér með Sin- fóníunni,“ segir Ásta sem stefnir á mastersnám næsta vetur. „Þetta er draumi líkast“  Þrír einleikarar og ung söngkona koma fram með Sinfóníuhljómsveitinni í kvöld  Sigruðu í keppni ungra einleikara sem Sinfónían og LHÍ standa árlega fyrir  Fjölbreytileg verk á efnisskrá Morgunblaðið/Hanna Einleikararnir Frá vinstri: Guðmundur Andri Ólafsson hornleikari, Romain Þór Denuit píanóleikari, Bryndís Guð- jónsdóttir sópran og Ásta Kristín Pjetursdóttir víóluleikari. Þau eru öll enn í tónlistarnámi, hér heima eða erlendis. Eftir nokkurra ára reiptog tveggja bandarískra háskóla, Harry Ransom- miðstöðvarinnar við Texas-háskóla og handritasafns Yale-háskóla, um skjalasafn Arthurs Millers (1915- 2005), eins merkasta leikskálds Bandaríkjanna, hefur Ransom- miðstöðin tryggt sér safnið og greiddi afkomendum Millers fyrir það 2,7 milljónir dala, um 280 milljónir króna. Fjallað er um átökin um hið viða- mikla gagnasafn í The New York Times. Miller hafði sjálfur kosið að koma gögnum sínum til varðveislu við hið virta Harry Ransom-rannsókn- arsafn í Texas. Strax á sjöunda ára- tugnum gaf hann safninu 13 kassa sem í voru meðal annars handrit að sumum þekktustu leikritum hans, eins og Sölumaður deyr, Allir synir mínir og Eldraunin, og minnisbækur um verkin, og fékk í staðinn skattaaf- slátt. Eftir að eldsvoði hafði leikið hluta heimilis Millers illa árið 1983 sendi hann 73 kassa til í geymslu til Texas og í bréfi sem fylgdi kemur fram að hann vill síðar ganga frá formlegri sölu á þeim skjölum. Þá sendi hann aftur 89 kassa til Texasháskóla skömmu fyrir dauða sinn. Aldrei var gengið formlega frá kaupum á skjölum Millers af dán- arbúi hans og var það fyrir vikið að- eins aðgengilegt völdum fræðimönn- um. Sumarið 2015 fengu starfsmenn safns fágætra bóka og handrita við Yale-háskóla þó að skoða safnið og í kjölfarið gerði Yale tilboð upp á 2,7 milljónir dala í allt safnið, auk 70 kassa sem enn voru í höndum fjöl- skyldu leikskáldsins – og þar á meðal um 8.000 bls. af dagbókum. Kom fram að fjölskylda Millers kysi að skjölin færu til Yale. En Ransom-miðstöðin jafnaði boð- ið og eftir mikið þref fór svo að vilji Millers fékk að ráða og keypti Texas- háskóli allt safnið og verður það smám saman gert aðgengilegt. Í safninu eru gögn sem tengjast öllum verkum Millers sem og einka- lífi. Þó eru ekki þar sendibréf til og frá annarri eiginkonu hans, Marilyn Monroe, sem sumir höfðu búist við að þar væri að finna. Hins vegar er í safninu uppkast að grein um dauða hennar sem Miller birti aldrei. Handrit Millers enda öll í Texas Leikskáldið Arthur Miller árið 1990. Verk hans eru leikin víða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.