Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Jón Magnússon, fyrrverandi al-þingismaður, skrifar: „Æðsti prestur trúarbragðanna um hnatt- ræna hlýnun af mannavöldum, Al Gore, spáði því fyrir 9 árum að norðurpóllinn yrði íslaus fyrir 2018. Annar hátt settur prestur í reglunni Karl Bretaprins sagði að allt yrði komið til fjandans um mitt ár 2017 og samkvæmt spádómi NASA átti Manhattan að vera sokkin í sæ fyrir nokkrum árum.    Þó að árið 2018 sé komið þáhaggast ísinn á norðurpólnum ekki. Sjávarborð hefur ekki hækk- að og Manhattan er enn vett- vangur iðandi mannlífs. Hlegið er að ruglinu í Karli Bretaprinsi.    Ekkert af því sem spáð hefurverið um þróun hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum hefur reynst rétt.    Samt sem áður heldur stjórn-mála- og vísindaelíltan fast í að nauðsynlegt sé að setja hindr- anir í veg framleiðslufyrirtækja, og leggja skatta á einstaklinga til að fórna á altari heimstrúarbragða pólitísku veðurfræðinnar.“    Loks spyr Jón hversu langtþurfi að líða og hversu dýrt það hafi þá verið skattgreiðendum, áður en barnið muni segja að hlýn- unarspámennirnir séu klæðalausir.    Það er mikilvægt að ganga velum náttúruna en það er líka mikilvægt að rætt sé um mál frá öllum hliðum. Þess vegna er það ágæt ábending hjá Jóni að oft er eins og einhvers konar trúarhiti yfirskyggi málefnalega umræðu um umhverfismál. Það er engum til góðs. Jón Magnússon Al Gore, prinsinn og norðurpóllinn STAKSTEINAR Veður víða um heim 10.1., kl. 18.00 Reykjavík 3 skýjað Bolungarvík 1 léttskýjað Akureyri 3 alskýjað Nuuk -7 léttskýjað Þórshöfn 6 léttskýjað Ósló -2 snjókoma Kaupmannahöfn 3 þoka Stokkhólmur -5 þoka Helsinki -4 þoka Lúxemborg 5 rigning Brussel 7 skýjað Dublin 5 þoka Glasgow 4 þoka London 8 léttskýjað París 8 alskýjað Amsterdam 7 súld Hamborg 4 skýjað Berlín 3 þoka Vín 3 þoka Moskva -5 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 6 súld Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 14 léttskýjað Róm 11 heiðskírt Aþena 13 léttskýjað Winnipeg -8 alskýjað Montreal -11 skýjað New York 1 heiðskírt Chicago 4 súld Orlando 20 súld Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 11. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:04 16:09 ÍSAFJÖRÐUR 11:38 15:44 SIGLUFJÖRÐUR 11:23 15:25 DJÚPIVOGUR 10:40 15:31 Svandís Svavars- dóttir heilbrigð- isráðherra hefur ráðið Birgi Jak- obsson sem að- stoðarmann sinn í velferðarráðu- neytinu. Birgir, sem verið hefur landlæknir frá byrjun árs 2015, lætur af því embætti í lok apríl næstkomandi sakir aldurs. Áður var hann starf- andi í Svíþjóð um langt árabil, sem barnalæknir og stjórnandi í ýms- um hlutverkum, síðast sem for- stjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Í tilkynningu er haft eftir Svan- dísi Svavarsdóttur að sér þyki mikill fengur í því að fá Birgi sér til aðstoðar í flóknum verkefnum. Hann hafi viðamikla þekkingu á heilbrigðismálum, bæði í læknis- fræði og á sviði stjórnunar og stefnumótunar. Hann hafi sem landlæknir komið fram með ýmis sjónarmið í heilbrigðismálum, sem byggist meðal annars á samfélags- legri sátt. Þær áherslur falla vel að sínum og því segist Svandís hlakka til þess samstarfs við Birgi sem framundan sé. sbs@mbl.is Birgir að- stoðarmaður Svandísar Birgir Jakobsson  Í nýju hlutverki Fimm verða í framboði í leiðtoga- prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Framboðsfrestur rann út klukkan fjögur í gær. Prófkjörið fer fram hinn 27. janúar næstkomandi. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær gefa borgarfull- trúarnir Áslaug Friðriksdóttir og Kjartan Magnússon kost á sér, rétt eins og Eyþór Arnalds fram- kvæmdastjóri. Í gær bættust í hóp- inn þeir Vilhjálmur Bjarnason, fyrr- verandi alþingismaður, og Viðar Guðjohnsen, leigusali og athafna- maður. Vala Pálsdóttir, formaður Lands- sambands sjálfstæðiskvenna, ákvað að bjóða sig ekki fram, þrátt fyrir fjölda áskorana þar um. Í tilkynningu frá Vilhjálmi Bjarnasyni er rakinn starfsferill hans, en hann var sem kunnugt er alþingismaður á árunum 2013-2017. Viðar Guðjohnsen lýsir í tilkynn- ingu þeirri skoðun sinni að opinber gjöld, skattar og regluverk séu farin að hamla nýbyggingu íbúðar- húsnæðis. „Fjármálin eru í ólestri á sama tíma og núverandi meirihluti eys fjármunum í gæluverkefni sem eru ekki til þess fallin að leysa þau miklu vandamál sem steðja að borg- inni. Nauðsynlegt er að bjóða upp á valkost sem er tilbúinn að taka til í rekstrinum og skera niður í því óhófi sem hefur verið stundað síðustu ár.“ Fimm í framboði í leiðtogaprófkjöri  Viðar Guðjohnsen og Vilhjálmur Bjarnason taka slaginn í borginni Morgunblaðið/Ómar Reykjavík Fimm vilja leiða lista.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.