Morgunblaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 – NÝTT MERKI HJÁ OPTICAL STUDIO Módel: Sandra Ósk Aradóttir Gleraugu: DITA TORUS Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, er nú í heimsókn í Kína ásamt öðrum forsetum þjóðþinga Norður- landanna og Eystrasaltsríkja, að þingforseta Dana undanskild- um. Þingforseta- rnir áttu yfir klukkustundar langan fund með Xi Jinping, for- seta Kína, í gær í Peking. „Þetta er búið að vera mjög áhugavert og móttökurnar hér hafa verið frábærar og okkur hefur verið sýndur mikill heiður,“ sagði Stein- grímur þegar blaðamaður náði tali af honum í Peking, rétt eftir að fund- inum með forseta Kína lauk. Steingrímur sagði að það að forseti Kína skyldi taka yfir klukkustund í fund með þingforsetunum sýndi hversu mikið væri gert með heimsókn þeirra. „Emmanuel Macron Frakk- landsforseti er hér í opinberri heim- sókn núna þannig að augljóslega er forseti Kína mjög önnum kafinn þessa dagana,“ sagði Steingrímur. Kína breytir orkubúskap sínum „Fundurinn með forseta Kína, Xi Jinping, var mjög áhugaverður. Á fundinum með forsetanum var mikið rætt um mögulegt og aukið samstarf Kína við þetta svæði sem við tilheyr- um, þ.e. Norðurlönd og Eystrasalts- ríkin. Þá voru loftslagsbreytingar ræddar og það kom alveg skýrt fram í máli forsetans að Kína stendur ein- beitt að baki Parísarsamkomulaginu og er á fullri ferð að breyta sínum orkubúskap og þróa nýja tækni, sem skiptir gríðarlega miklu máli nú þeg- ar Bandaríkin eru að draga sig út úr Parísarsamkomulaginu,“ sagði Stein- grímur. Alltaf velkominn til Íslands Steingrímur sagði að einnig hefði heimskautasvæðið verið rætt og möguleg tenging þess við þá innviða- uppbyggingu sem Kína hefði ráðist í og boðið nágrannalöndum sínum samstarf um og þátttöku. Komið hefði fram í máli forsetans að Norðurlöndin og heimskautasvæðið gætu tengst innviðaverkefninu, ef áhugi væri á því. „Ég minntist á jarðhitasamstarf Ís- lands og Kína, stóru hitaveituverk- efnin, og kom þar öldungis ekki að tómum kofunum,“ sagði Steingrímur. „Forsetinn sýndi jarðhitasamstarfinu sérstakan áhuga og sagðist vera áhugasamur um nýtingu jarðvarma og kvaðst því fylgjast vel með þessum samstarfsverkefnum,“ sagði Stein- grímur. Hann sagði að Xi Jinping hefði sagt sér að hann hefði komið til Íslands fyrir 39 árum og hann hefði þá svarað honum að hann væri alltaf velkomin aftur. Heimsókn þingforsetanna lýkur á laugardag en síðdegis í gær flugu þeir frá Peking til Chengdu í Sichuan-hér- aði þar sem þeir funda í dag og á morgun með héraðsstjórnum, leiðtog- um svæðisins og fleiri. Forseti Kína áhugasam- ur um jarðhitasamstarf  Þingforsetar Norðurlandanna funduðu með forseta Kína AFP Forseti Xi Jinping, forseti Kína, er sagður voldugasti leiðtogi Kína í áratugi. Steingrímur J. Sigfússon Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Drykkjarumbúðum var skilað í tölu- vert ríkari mæli á endur- vinnslustöðvar hér á landi í fyrra en árið á undan. Samkvæmt bráða- birgðatölum frá Endurvinnslunni var sala ársins 2017 um 155 milljónir ein- inga, sem er um 9% aukning frá árinu áður. „Aukningin er þó ekki samsvar- andi í magni, þar sem nokkuð var um að neytendur skiptu út stórum ein- ingum eins og 2 lítra umbúðum í minni einingar,“ segir Helgi Lárus- son, framkvæmdastjóri Endurvinnsl- unnar. Helgi segir að á næstunni verði sjálfvirkum talningarvélum fjölgað. Til að mynda verður í næsta mánuði fjölgað úr einni vél í tvær á vinsælli móttökustöð Sorpu við Ánanaust. Er það gert vegna aukningar í umsvif- um. „Þar verður prófuð ný tækni og er vonast til að hún verði grunnur að nýjum vélum sem notaðar verða. Nýju vélarnar eiga að lesa betur á umbúðir og eru sjálfvirkari en eldri vélakostur,“ segir Helgi. Í framhaldi af því verður sett upp önnur talningarvél í Keflavík í mars. Eins er búið er að ákveða að setja upp eina talningarvél í viðbót í Knarrarvogi en þá verða þar sex talningarvélar. Þá segir Helgi að til skoðunar sé að setja talningarvélar upp víðar, bæði á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Er þar horft til annarra Sorpu-stöðva en einnig sé verið að skoða hvort þörf sé á að setja upp alveg nýja, stóra móttökustöð með tveimur til þremur talningarvélum. Leitað er að góðum stað fyrir slíka móttökustöð. 9% aukning í skil- um til endurvinnslu  Fjölga á sjálfvirkum talningarvélum Morgunblaðið/Eggert Endurvinnsla Sjálfvirkum móttökustöðvum fyrir drykkjarumbúðir fjölgar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.