Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
ÚTSALA
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
20-80%
afsláttur af umgjörðum
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Spölur, eigandi Hvalfjarðarganga,
hefur ritað Bjarna Benediktssyni
fjármálaráðherra og Sigurði Inga
Jóhannssyni samgönguráðherra
bréf vegna væntanlegrar yfirtöku
ríkisins á göngunum.
„Nú þegar fyrirsjáanlegt er að
veggöngin ásamt tilheyrandi mann-
virkjum verði með formlegum hætti
afhent ríkinu til eignar og þar með
áframhaldandi rekstrar er ljóst að
huga þarf að öllu því sem þeirri yfir-
töku fylgir,“ segir m.a. í bréfi Spalar.
Engin ákvörðun hefur verið tekin
ennþá um það hvenær viðræður rík-
isins og Spalar um yfirtökuna hefj-
ast. Vegagerðin, sem væntanlega
mun taka yfir rekstur Hvalfjarð-
arganga í haust, mun koma að þess-
um viðræðum.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu gera áætlanir ráð fyrir að
Spölur hafi greitt upp allar skuldir
vegna ganganna í júlí á þessu ári.
Jafnframt fellur niður heimild Spal-
ar til innheimtu veggjalds sam-
kvæmt samningi sem félagið og ríkið
gerðu 22. apríl 1995.
Vestlendingar áhyggjufullir
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra sagði í fréttum Rík-
isútvarpsins á fimmtudag í síðustu
viku að til greina kæmi að innheimta
áfram veggjöld í Hvalfjarðargöng
eftir að þeim verður skilað til rík-
isins í sumar. Þessi orð ráðherrans
hafa fallið í grýttan jarðveg hjá
Vestlendingum sem nota göngin
mikið. Fulltrúar Akraness áttu fund
með ráðherra um málið. Jón Gunn-
arsson, fyrrverandi samgöngu-
ráðherra, hafði áður sagt í fjöl-
miðlum að veggjald yrði ekki
innheimt í Hvalfjarðargöng, enda
væru engar forsendur fyrir slíku.
Í minnisblaði sem tekið hefur ver-
ið saman segir m.a. að ekki verði séð
að sérleyfissamningur Spalar verði
lagður til grundvallar frekari inn-
heimtu veggjalda en þar er kveðið á
um enda sé sá samningur sam-
þykktur af Alþingi og breytingar á
honum þyrftu þinglega meðferð.
„Áframhaldandi gjaldtaka Vega-
gerðarinnar/fjármálaráðuneytis í al-
mennu hlutafélagi myndi því líklega
þurfa atbeina ríkis og Alþingis með
sama hætti og gert var á sínum tíma,
en Alþingi staðfesti samning ríkisins
við Spöl hf. síðast árið 1995,“ segir í
minnisblaðinu. Það á eftir að koma í
ljós hvort þingmeirihluti verði fyrir
áframhaldandi gjaldtöku.
Ennfremur segir í minnisblaðinu
að hafa verði í huga breytt ákvæði
reglugerða ESB um hlutfall afslátta
þegar tekin eru veggjöld. Sú breyt-
ing sem nú er verið að innleiða í
regluverk á Íslandi hafi allnokkur
áhrif á það gjaldskrárform sem
Spölur ehf. hefur stuðst við.
Loks hefur Spölur bent á að inn-
heimtukerfi fyrirtækisins sé orðið
gamalt og úrelt og kostnaðarsamt og
tímafrekt geti orðið að koma upp
nýju kerfi.
Fram kemur í bréfi Spalar til ráð-
herranna að fyrirtækið hafi annast
rekstur Hvalfjarðarganga og stofn-
að til samninga þar að lútandi við
ýmsa aðila, starfsmenn, verkalýðs-
félög, birgja, verktaka og ýmsa aðra.
Þar undir falli ýmsir þættir verðandi
lögbundna öryggisþætti ganganna.
„Nauðsyn krefur að framangreindir
samningar falli ekki úr gildi við yfir-
færslu vegganganna til ríkisins
nema í algjörum undantekninga-
tilfellum,“ segir í bréfinu.
Nokkur kostnaður mun falla á rík-
ið taki það við rekstri ganganna án
þess að innheimta veggjöld. Sam-
kvæmt upplýsingum sem fram koma
í minnisblaði Gylfa Þórðarsonar,
framkvæmdastjóra Spalar, var
kostnaður við rekstur ganganna 256
milljónir árið 2016.
Ný gjaldtaka til kasta Alþingis?
Spölur, eigandi Hvalfjarðarganga, óskar eftir viðræðum við ríkið vegna væntanlegrar yfirtöku á
göngunum Sérleyfissamningur Spalar ekki lagður til grundvallar frekari innheimtu veggjalda
Ljósmynd/Spölur
Hvalfjarðargöng Allt útlit er fyrir að ríkið eignist göngin á 20 ára afmæli þeirra sem verður í júlí í sumar. Vegagerðin mun taka við rekstrinum af Speli.
Umferð í Hvalfjarðargöngum
jókst um rétt tæplega 10% í des-
ember 2017 frá sama mánuði árið
áður. Þá liggur fyrir að umferð-
araukningin á árinu 2017 nemur
um 8,2%.
Alls fóru 2.549.741 ökutæki um
Hvalfjarðargöng í fyrra sem er
mesti fjöldi sem farið hefur um
göngin á einu ári.
Eins og meðfylgjandi línurit
ber með sér hefur umferðin um
göngin farið mjög vaxandi frá því
þau voru tekin í notkun fyrir
nærri 20 árum, eða í júlí 1998.
Samdráttur varð nokkur fyrstu
árin eftir bankahrunið, eða allt til
ársins 2014. Frá upphafi 1998 til
ársloka 2017 höfðu tæplega 34
milljónir ökutækja farið um göng-
in, eða nákvæmlega 33.809.360
ökutæki.
Fyrsta heila árið sem göngin
voru í notkun, árið 1999, fóru
1.030.587 ökutæki um Hvalfjarð-
argöng. Árleg umferð hefur meira
en tvöfaldast síðan þá. Er það
ekki síst mikil fjölgun erlendra
ferðamanna sem skýrir þessa
aukningu. sisi@mbl.is
Nær 34 milljón ökutæki
Umferð um Hvalfjarðargöng 1998-2017
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
milljónir bíla á ári
’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17
Heimild: Spölur
2,55
1,84
2,03
1,3
0,43
350 pt