Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Sólarlag við Straumsvík Nú þegar sólin er farin að hækka á lofti og daginn að lengja er kjörið að fara í göngu og virða fyrir sér gult og rautt sólarlagið yfir mannvirkjunum á höfuðborgarsvæðinu. Kristinn Magnússon Ferðaþjónustan er ekki sjálfbær sem at- vinnugrein en við stefnum að sjálfbærni undir merkjum ábyrgrar ferðaþjón- ustu. Umhverfisáhrif hennar eru enn merkt ósjálfbærni, of mörg sveitarfélög og héruð eru ýmist of hart keyrð við að þjónusta ferða- menn eða að mestu af- skipt og loks er fjárhagslegum ávinn- ingi misskipt í samfélögum víða um land. Mikið er ógert áður en markinu er náð og eru nokkur skref í þá átt mörkuð í ríkisstjórn- arstefnunni. Við mat á áhrifum fleiri ferðamanna verð- ur að miða við þolmörk á öllum þremur stigum sjálfbærni: Umhverfis- mörk, samfélagsmörk og efnahagsmörk. Þau ákvarðast með rann- sóknum og könnunum og geta breyst með tíma. Telja má almennan vilja til þess að ein (og fremur óstöðug) at- vinnugrein yfirtaki ekki of mikinn mannafla, fasteignir og rými eða vinnutíma í samfélaginu. Líka er al- mennur vilji til þess að ferðaþjónusta sem auðlindanýting lúti svipuðum takmörkunum og vísindalegum nálg- unum og til dæmis sjávarútvegur. Ýmsum aðferðum má beita til að stýra straumi ferðamanna og tak- marka aðgengi að stöðum eða land- svæðum. Unnt er að nota auglýs- ingar og kynningar til að opna aðgengi að vannýttum stöðum og svæðum. Samtímis verður að hvetja þar til uppbyggingar innviða og af- þreyingar. Önnur aðferð er að marka ítölu gesta per stund eða dag og stjórna aðgengi við innkomustað. Enn ein aðferðin er til dæmis að nýta mörkuð bílastæði sem meginleið að stað eða svæði. Loks er hægt að nota gistiaðstöðu og innviði vinsælla svæða til að takmarka aðgengi. Að mínu frumkvæði samþykkti Al- þingi í september 2017 beiðni um skýrslu, unna á vegum ráðuneytis ferðamála, um þolmörk og leiðir til aðgangsstýringar. Hún á að vera tilbúin nú í febrúar. Þar er m.a. fjallað um þróun ferðaþjónustu og horfur, þolmörk í ljósi sjálfbærni- markmiða og um helstu álagsstaði og tegundir álags á umhverfi, samfélag, innviði og upplifun. Farið verður yfir helstu áhrif og afleiðingar vaxtar ferðaþjónustu á atvinnu- og efna- hagsmál og aðferðir til að stýra fjölda, aðgengi og dreifingu ferða- manna. Skýrslan á að auðvelda gerð landnýtingaráætlunar um þróun ferðaþjónustu í samvinnu við samtök hennar, með tilliti til sjónarmiða um sjálfbæra atvinnugrein. Samtímis verður til rammi um þau opinberu gjöld sem þarf til að fjármagna hlut- verk sveitarfélaga og ríkis í ferðþjón- ustunni. Eftir Ara Trausta Guðmundsson » Að mínu frumkvæði samþykkti Alþingi í september 2017 beiðni um skýrslu, unna á veg- um ráðuneytis ferða- mála, um þolmörk og leiðir til aðgangsstýr- ingar. Hún á að vera tilbúin nú í febrúar. Ari Trausti Guðmundsson Höfundur er þingmaður VG í Suðurkjördæmi. Þolmörk og sjálfbær ferðaþjónusta Hinn 4. janúar ritaði dr. Finnur Magnússon hrl. grein um fullveldi í Viðskiptablað Morg- unblaðsins. Hér verð- ur þráðurinn tekinn upp þar sem Finnur lét staðar numið. Í greininni vakti Finnur máls á að- greiningu fullveld- ishugtaksins í innra og ytra fullveldi. Auk þess sem hann fjallaði um einn af undirstöðudómum þjóðaréttar í hinu svonefnda Wimbledon-máli frá 1923 sem Fasti alþjóðadómstóllinn, fyrirrennari Alþjóðadómstólsins í Haag, kvað upp. Í dóminum tók dómstóllinn skýrt fram að hann hafnaði, yfirhöfuð, að líta bæri á þjóðréttarlegar samningsskuldbind- ingar ríkis um ákveðnar athafnir eða athafnaleysi sem skerðingu á fullveldi þess. Vissulega legðu samningsskuldbind- ingar kvaðir á fram- kvæmd fullveldisréttar ríkis, í þeim skilningi að þær skuldbinda ríki til að framkvæma þær með ákveðnum hætti. Aftur á móti væri rétt- urinn til að taka á sig alþjóðlegar skuldbind- ingar einn af eig- inleikum fullveldis ríkja. Notkun ekki afsal Í ráðgefandi áliti frá 1925 sem snerti samskipti Grikklands og Tyrklands benti dómstóllinn á að rétturinn til að taka á sig alþjóð- legar skuldbindingar væri einn af eiginleikum fullveldis ríkja. Tveim- ur árum síðar í öðru ráðgefandi áliti var vísað til þess að dómstóllinn hefði haft tækifæri í fyrri dómum og álitum til að staðhæfa að tak- markanir á framkvæmd fullveld- isréttar ríkja, samþykktar af ríki með samningi, gætu ekki talist skerðing á fullveldi. Í þekktu máli á áttunda áratugnum, sem Texaco höfðaði gegn Líbýu, vísaði alþjóð- legur gerðardómur í Wimbledon- málið og benti á að fullveldi tapaðist ekki með gerð þjóðréttarsamnings, þvert á móti væri gerð þjóðrétt- arsamnings birtingarmynd fullveld- isins. Nýlegasta dæmið um tilvísun til Wimbledon-málsins, sem und- irrituðum er kunnugt um, er úr- skurður (e. Panel Report) á vett- vangi Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar í máli sem tengist kínverskri hrávöru frá árinu 2011. Af einhverjum ástæðum hefur Wimbledon-málið og sú sýn á full- veldið sem birtist í því sjaldan seytlað inn í skrif íslenskra lög- fræðinga þrátt fyrir að þjóðarétt- urinn sé gegndrepa af áhrifum þess. Jan Klabbers, prófessor í þjóðarétti við Helsinki-háskóla, hef- ur t.a.m. bent á að málið sé svo inn- byggt í þjóðarétti að það þurfi varla lengur að vísa til þess. Ólafur Jóhannesson Sjaldgæft dæmi þess að Wimble- don-málið bergmáli í þankagangi ís- lenskra lögfræðinga birtist í ræðu Ólafs Jóhannesson frá 1962 sem bar heitið stjórnarskráin og þátttaka Ís- lands í alþjóðastofnunum. Í ræðunni benti Ólafur m.a. á eftirfarandi: „Skuldbindingar ríkja gagnvart al- þjóðastofnun munu því oftast nær engu skipta um formlegt fullveldi ríkis. Gildir það almennt jafnt, þó að alþjóðastofnun hafi verið fengið í hendur vald, sem stjórnlögum sam- kvæmt á að vera hjá handhöfum ríkisvalds.“ Kjarni þess sem hér að ofan greinir er að þegar ríki tekur á sig skuldbindingar af þjóðréttarlegum toga er ríkið að nota fullveldið en ekki afsala sér því nema samningur beinlínis feli í sér að ríki hætti að vera til, s.s. þegar samið er um sameiningu tveggja ríkja. Það er svo annað mál hvort milliríkjasamn- ingur telst samræmanlegur stjórn- lögum tiltekins ríkis, feli í sér mikl- ar kvaðir eða teljist óhagstæður fyrir samningsaðila. Eftir Bjarna Má Magnússon » Í greininni er haldið áfram með umfjöll- un um fullveldishug- takið sem Finnur Magn- ússon hóf í blaðinu. Farið er dýpra í ákveðna þætti um ytra fullveldi. Bjarni Már Magnússon Höfundur er dósent í lögfræði við lagadeild HR. bjarnim@ru.is Meira um fullveldi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.