Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 6

Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Miklar breytingar eru fyrir höndum í borgarstjórn Reykjavíkur í vor. Fjöldi núverandi borgarfulltrúa hef- ur ákveðið að snúa sér að öðrum störfum en um leið verður borgar- fulltrúum fjölgað úr 15 í 23. Útlit er fyrir að kjósendur geti valið á milli metfjölda framboða. Ef svo fer sem horfir verða minnst tólf flokkar í framboði. Átta flokkar buðu fram í sveitar- stjórnarkosningunum í höfuðborg- inni fyrir fjórum árum. Allir stefna þeir að því að bjóða fram að nýju en eru komnir mislangt á veg í skipu- lagningu. Þeir fjórir flokkar sem bætast í hópinn ef að líkum lætur eru Miðflokkurinn, Viðreisn, Sósíalista- flokkur Íslands og Flokkur fólksins. Vinna við framboð flokkanna stendur nú yfir. Eins og komið hefur fram í fréttum halda sjálfstæðis- menn leiðtogaprófkjör um helgina og í kjölfarið mun valnefnd stilla upp lista. Framsóknarmenn munu ganga frá skipan lista á aukakjördæma- þingi 22. febrúar. Þorvaldur Þor- valdsson, formaður Alþýðufylking- arinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að stefnt væri að því að listi flokksins í Reykjavík yrði tilbúinn snemma í mars. „Það er heldur ekki útséð um önnur sveit- arfélög,“ sagði hann. Stíf fundahöld hjá flokkum Samfylkingin verður með flokks- val hinn 10. febrúar og þar stefnir í harða baráttu um næstu sæti fyrir neðan Dag B. Eggertsson sem verð- ur áfram oddviti. Pálmey Gísladóttir, formaður Dögunar, segir að fram- boðsmál séu í skoðun hjá flokknum. „Það var alltaf stefnan að bjóða fram. Við ætlum að funda í næstu viku og sjáum hvað kemur út úr þeim fundi,“ segir hún. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð heldur rafrænt forval hinn 24. febrúar. Kosið verður um fimm efstu sætin. Píratar stefna að framboði í Reykjavík en ákvörðun þar að lút- andi verður mögulega tekin á fé- lagsfundi í kvöld. Theodóra S. Þor- steinsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, segir undirbún- ing í gangi fyrir framboð í Reykja- vík. „Við ætlum okkur fram þar, það er verið að funda og undirbúa,“ segir hún. Birna Þórarinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Viðreisnar, tekur í svipaðan streng en þessir tveir flokkar hafa einmitt verið orðaðir við sameiginlegt framboð: „Við stefnum að framboði í Reykjavík. Það er ver- ið að vinna í þessum málum.“ Gunnar Smári Egilsson lýsti því yfir í Morgunblaðinu á mánudag að ákvörðun um framboð Sósíalista- flokks Íslands mundi liggja fyrir inn- an þriggja til fjögurra vikna. Miðflokkurinn stefnir á framboð í Reykjavík og nokkrum fleiri af stærstu sveitarfélögum landsins, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, aðstoðarmanns formanns flokksins. Ekki hefur verið ákveðið hvernig raðað verður á lista. „Flokkur fólksins mun bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum. Reykjavík er örugg inni, annað kem- ur í ljós eftir samtal við grasrótina og vilja hennar til baráttunnar,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Þröskuldurinn verður 4,2% Fyrirséð er að fjölgun borgarfull- trúa og þessi fjöldi framboða muni hafa áhrif á það hversu mörg at- kvæða þarf til að koma inn manni. Í sveitarstjórnarkosningunum árið 2014 komu Píratar inn manni með 5,9% atkvæða, svo dæmi sé tekið. Þorkell Helgason stærðfræðingur segir að hægt sé að ganga út frá því sem vísu að 4,2% atkvæða tryggi lista sæti í borgarstjórn Reykjavíkur miðað við fjölgun borgarfulltrúa í 23. „En síðan getur listi skriðið inn með mann út á minna fylgi. Það fer eftir því hvernig atkvæði dreifast á aðra flokka,“ segir Þorkell. Vinna stendur nú yfir í forsætis- nefnd borgarinnar við útfærslu á fjölgun borgarfulltrúa í vor. Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórn- ar, segir að eftir fjölgun verði ekki jafn mikil þörf á aukagreiðslum og verið hefur. „Við höfum reiknað með að borgarfulltrúar geti fullmannað öll ráð og nefndir.“ Tólf flokkar gætu boðið fram  Útlit fyrir metfjölda framboða í Reykjavík í vor  Barátta um sæti hjá Sjálfstæðisflokki, Samfylk- ingu og VG en aðrir komnir skemmra á veg  4,2% atkvæða þarf til að ná örugglega inn manni Morgunblaðið/Hari Barátta Hart verður barist um sæti í borgarstjórn Reykjavíkur í vor – rétt eins og í snjóboltanum hjá stúlkunum úr 6. bekk í MR. Framboð í Reykjavík í gegnum tíðina 1982 1994 2010 2018* Alþýðuflokkurinn Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Alþýðubandalagið Samtök um kvennaframboð Reykjavíkurlistinn Reykjavíkurframboð Frjálslyndi flokkurinn Framboð um heiðarleika Samfylkingin Vinstrihreyfingin – grænt framboð Besti flokkurinn Alþýðufylkingin Dögun Píratar Björt framtíð Viðreisn Miðflokkurinn Flokkur fólksins Sósíalistaflokkurinn *Þessir flokkar stefna að framboði í Reykjavík en ákvörðun um framboð eða útfærsla þess liggur ekki fyrir hjá öllum Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun, að skipa þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Fram kemur í frétt á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerði tillögu um nefndarskipunina á ríkisstjórnar- fundinum og var tillaga ráðherrans samþykkt. „Með nefndinni mun enn fremur starfa samráðs- hópur helstu hagsmunaaðila og almannasamtaka, s.s. náttúruvernd- arsamtaka, útvistarsamtaka og sam- taka hagsmunaaðila s.s. í ferðaþjón- ustu, landbúnaði og orkumálum. Leitað verður tilnefninga í nefnd- ina frá öllum flokkum á Alþingi, auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga og full- trúa frá umhverfis- og auðlindaráðu- neytinu og forsætisráðuneytinu. Nefndinni er m.a. ætlað að skil- greina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu land- svæða innan hans í verndarflokka. Einnig er henni ætlað að fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjón- ustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþró- un og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndar- áætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn. Til grundvallar starfi nefndar- innar liggur skýrsla nefndar um- hverfis- og auðlindaráðuneytisins og hagaðila um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands sem kom út í nóvember 2017. Í skýrsl- unni er m.a. að finna heildstætt yfir- lit um miðhálendið, náttúru og menningarminjar þess, yfirlit yfir helstu stefnumörkun sem fyrir ligg- ur um miðhálendið varðandi vernd- un, auðlindir, nýtingu, innviði og helstu hagsmuni innan miðhálendis- ins. Gert er ráð fyrir að nefndin skili ráðherra tillögu sinni í formi skýrslu og tillögu að lagafrumvarpi um þjóð- garðinn,“ segir í frétt ráðuneytisins. agnes@mbl.is Þjóðgarður á miðhálendinu  Þverpólitískri nefnd verður falið að gera skýrslu og tillögu að lagafrumvarpi  Starfi í samráði við helstu hagsmunaaðila Guðmundur Ingi Guðbrandsson Morgunblaðið/RAX Hálendi Þverpólitískri nefnd er m.a. ætlað að skilgreina mörk þjóðgarðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.