Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 27

Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 27
skóla Ævars Kvaran jafnframt menntaskólanámi, lauk stúdents- prófi frá MR og stundaði nám í rafmagnsverkfræði í tvö ár við Technische Hochschule í Münch- en: „Ég sóttist eftir inntöku í þrjá háskóla, einn í Þýskalandi, annan í Austurríki og þann þriðja í Lond- on og hefði getað valið milli þess- arra skóla. En leiklistin tók í taumana. Ég tók hana fram yfir verkfræðina og hóf nám við Leik- listarskóla Kammerspieleleikhúss- ins í München.“ Að námi loknu starfaði Gísli við Residenz-Theater í München í eitt ár auk þess sem hann var aðstoð- arleikstjóri við þáttagerð í sjón- varpi. Gísli leikstýrði nokkrum verkum hjá Grímu eftir heimkom- una, var ráðinn leikari við Þjóð- leikhúsið 1962 og lék þar til 1983, var þjóðleikhússtjóri 1983-91 og skólastjóri Leiklistarskóla Íslands 1992-2000. Þá leikstýrði hann fjölda leikrita í útvarpi og sjón- varpi. Eftir starfslok hjá Þjóðleikhús- inu lék Gísli í nokkrum kvikmynd- um, m.a. tveimur þýskum mynd- um. Hann lék m.a. í stuttmyndum hjá nemendum Kvikmyndaskólans síðastliðið haust. Gísli hefur þýtt á annan tug leikrita fyrir leiksvið og útvarp. Hann var ritari Félags íslenskra leikara 1967-75, formaður félags- ins 1975-83 og er heiðursfélagi Félags íslenskra leikara frá 1992. Fjölskylda Gísli kvæntist 16.4. 1967 Guð- nýju Árdal, f. 18.3. 1939, fyrrv. ritara. Hún er dóttir Inga Árdal, kaupmanns í Reykjavík, og Helgu Björnsdóttur tannsmiðs frá Karls- skála. Guðný var áður gift Þórði Úlfarssyni flugmanni sem lést 1963. Gísli var áður kvæntur Juli- ane Michael leikkonu en þau skildu. Börn Gísla og Guðnýjar eru Anna Vigdís Gísladóttir, f. 22.8. 1967, framleiðandi en hún á tvær dætur, Guðnýju Ósk og Guðrúnu Helgu, og Alfreð Gíslason, f. 16.10. 1975, búfræðingur sem starfar í kvikmyndagerð en kona hans er Eva Gunnarsdóttir hús- freyja og eru börn þeirra Perla Líf, Lilja Ýr, Gísli Gunnar og stjúpdóttir Alfreðs, Alexandra Sif en sonur hennar er Birgir Bjarnd- al. Stjúpbörn Gísla eru Helga El- ísabet Þórðardóttir, f. 30.10. 1956, gift Páli Kr. Pálssyni forstjóra en synir þeirra eru Þórður Páll og Einar Sveinn; Úlfar Ingi Þórðar- son, f. 6.11. 1959, veitingamaður í Reykjavík og eru börn hans Sara Elisabeth, Þórður Björn og Mar- iane Sól; Einar Sveinn Þórðarson, f. 5.11. 1961, markaðsstjóri og fyrrv ballettdansari, kvæntur Ragnhildi Fjeldsted, blómahönn- uði og flugfreyju, og eru synir þeirra Þórður Sveinn og Óskar Sveinn; Þórður Jón Þórðarson, f. 25.7. 1963, flugvirki, kvæntur Sawai Wongphoothorn matráði en sonur þeirra er Úlfar Páll Monsi. Dóttir Gísla frá því áður er Elfa Gísladóttir, f. 24.4. 1955, búsett í Seattle, gift Thomas J. Richard- son, var gift Kristjáni Víkingssyni lækni, sem er látinn, og er sonur þeirra Karl Axel en kona hans er Irina Timchenko og er sonur þeirra Kristján Alexander. Systir Gísla er Anna Jóhanna Alfreðsdóttir, f. 15.6. 1948, gift Finni Björgvinssyni arkitekt og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Gísla: Alfreð Gísla- son, f. 7.7. 1905, d. 30.5. 1976, bæjarfógeti og sýslumaður í Keflavík, og k.h., Vigdís Jakobs- dóttir, f. 14.12. 1906, d. 27.2. 2001, píanókennari. Gísli Alfreðsson Vigdís Ólafsdóttir frá Viðvík, húsfr. í Rvík, bróðurdóttir Þuríðar, langömmu Vigdísar Finnbogadóttur fyrrv. forseta Magnús Árnason snikkari í Rvík Anna Sigríður Magnúsdóttir barnakennari á Seyðisfirði Jakob Sigurðsson útgerðarm. á Seyðisfirði Vigdís Jakobsdóttir píanókennari í Keflavík Guðrún Sigfúsdóttir húsfr. á Desjarmýri Sigurður Árnason b. á Desjarmýri Óskar Gíslason ljósmyndari Tómas Guðmundsson skáld Steinunn Þorsteinsdóttir húsfr. á Efri-Brú í Grímsnesi Jósef Gottfred Blöndal Magnússon trésmiður í Rvík Guðmundur Vignir Jósefsson gjaldheimtustj. í Rvík Elín Jósefsdóttir bæjarfulltr. í Hafnarfirði Hannes Þorsteinsson alþm., ritstj. Þjóðólfs og landsbókavörður Þorsteinn Þorsteinsson hagstofustj. í Rvík Geir Þorsteinsson verkfr. og forstj. Ræsis Hannes Þorsteinsson aðalféhirðir Landsbankans Sigrún Þorsteinsdóttir húsfr. á Brú Þorsteinn Narfason b. á Brú í Biskupstungum Jóhanna Sigríður Þorsteinsdóttir húsfr. í Rvík Gísli Þorbjörnsson búfræðingur og fasteignasali í Rvík Sigríður Þorsteinsdóttir húsfr. í Bjargarsteini Þorbjörn Gíslason b. á Bjargarsteini í Stafholtstungum Úr frændgarði Gísla Alfreðssonar Alfreð Gíslason bæjarfógeti og syslum. í Keflavík Sigrún Gísladóttir húsfr. í Rvík Ævar R. Kvaran leikari og rithöfundur Gunnar Kvaran sellóleikari ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Árni Bergur Sigurbjörnssonfæddist á Breiðabólsstað áSkógarströnd 24.1. 1941. Hann var sonur Sigurbjörns Einars- sonar biskups og k.h., Magneu Þor- kelsdóttur húsfreyju. Systkini Árna Bergs: Gíslrún kennari; Rannveig hjúkrunarfræð- ingur; Þorkell tónskáld; Einar, pró- fessor emeritus í guðfræði við HÍ; Karl biskup; Björn, prestur í Lyngby í Danmörku sem lést 2003, og Gunn- ar, rekstrarhagfræðingur í Svíþjóð. Eiginkona Árna Bergs var Lilja Garðarsdóttir skrifstofumaður sem lést 2007 og eignuðust þau þrjú börn; Hörpu, Magneu og Garðar. Árni Bergur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1968, lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Ís- lands 1972, sótti námskeið í biblíu- þýðingum í Halle í Þýskalandi 1971, stundaði nám við San Francisco Theological Seminary 1978 og fram- haldsnám í Nýja testamentisfræðum í Lundi 1978-80. Áður en Árni Bergur hóf guð- fræðinám sinnti hann kennslu og skrifstofustörfum, var bókari um skeið og síðar fulltrúi á skrifstofu Ríkisspítalanna. Árni Bergur var sóknarprestur í Ólafsvíkurprestakalli 1972-80 og sóknarprestur í Ásprestakalli í Reykjavík frá 1980 og gegndi því embætti til dauðadags. Árni Bergur sat m.a. í kjaranefnd Prestafélags Íslands, framkvæmda- nefnd Hjálparstofnunar kirkjunnar, í stjórn Hins íslenska biblíufélags um árabil, í þýðingarnefnd Gamla testa- mentisins frá 1990 og þýðingarnefnd Nýja testamentisins frá 2001-2003. Þá vann Árni Bergur að þýðingu apókrýfra bóka Gamla testamentis- ins úr frummálinu, auk fleiri rit- starfa. Árni Bergur var stundakennari við guðfræðideild Háskóla Íslands frá 1982, prófdómari í grísku og Nýja testamentisfræðum frá 1977 og Gamla testamentisfræðum og kirkju- sögu frá árinu 1990. Árni Bergur lést 17.9. 2005. Merkir Íslendingar Árni Bergur Sigurbjörnsson 95 ára Jóna Guðný Jónsdóttir 90 ára Dóra Guðmundsdóttir Magðalena Stefánsdóttir Sigríður Alfreðsdóttir 85 ára Gísli Jakob Alfreðsson Guðmundur Rögnvaldsson Jón Bjarni Jónsson 80 ára Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir Sveinn E. Jóhannsson 75 ára Ásbjörn Jóhannes Guðmundsson Hanna Guðmundsdóttir Jóhannes I. Friðþjófsson 70 ára Bryndís Albertsdóttir Gísli Baldvinsson Guðrún Hanna Þorbjörnsdóttir Guðrún Hannesdóttir Guðrún H. Sederholm Jóhannes Kristján Guðlaugsson Jón Örn Loðmfjörð Arnarson Jósavin Gunnarsson Reynir Gunnarsson Rut Þorsteinsdóttir 60 ára Einar Kristinn Hauksson Elín Hrefna Kristjánsdóttir Elín Vigdís Ólafsdóttir Erna Jónsdóttir Guðrún Strange Hörður Atli Andrésson Jórunn Lilja Andrésdóttir Rannveig Skaftadóttir Jacobsen Sigurjón Birgisson Valgerður H. Benediktsdóttir Valgerður Kristjánsdóttir 50 ára Ben Wiangdindam Gísli Guðnason Guðbjörg Daníelsdóttir Guðlaugur Breiðfjörð Eyjólfsson Gunnar Hilmar Pálsson Gunnbjörn Steinarsson Hlynur Árnason Jóhann Pétur Jóhannsson Jónbjörn Friðgeirsson Kristján Vilhelm Rúriksson Naiyana Kertthale Sigurdís Gísladóttir Svandís Sturludóttir Sverrir Hreiðarsson 40 ára Aron Björn Arason Hjalti Þór Vignisson Hjörleifur Björnsson Jóhanna Þóroddsdóttir Oddný Friðriksdóttir Oddrún Helga Símonardóttir Sebastian Diaconu Þuríður Óskarsdóttir Bates 30 ára Elvar Karl Bjarkason Halldór Gylfason Helgi Hrafn Ólafsson Monika Krankowska Renata Szudrawska Tinna Sigurðardóttir Tomasz Krzysztof Piwowarek Valentin Serban Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp á Suðureyri, býr í Hafnar- firði, lauk prófi í tækni- teiknun frá Tækniskól- anum í Reykjavík og starfar á verfræðistofunni Verkhönnun. Maki: Svavar Ottesen Berg, f. 1980, kerfisstjóri hjá Fiskistofu. Foreldrar: Helena Heiðbrá Svavarsdóttir, f. 1959, og Sigurður Hlíðdal Haraldsson, f. 1955. Þau búa í Kópavogi. Tinna Sigurðardóttir 30 ára Helgi Hrafn ólst upp í Kópavogi, býr þar, lauk BSc-prófi í íþrótta- og heilsufræði, MSc-prófi í markaðsfræði og stund- ar MEd-nám í íþrótta- og heilsufræði. Bræður: Hjalti Már, f. 1992, og Oddur Örn, f. 1998. Foreldrar: Ólafur Þór Gunnarsson, f. 1963, alþm. og læknir, og Elínborg Bárðardóttir, f. 1960, læknir. Helgi Hrafn Ólafsson 40 ára Jóhanna býr á Reyðarfirði, lauk BEd- prófi, er skemmtikraftur og fulltrúi hjá Vegagerð- inni. Maki: Óskar Björnsson, f. 1978, málmfræðingur hjá Alcoa Fjarðaáli. Dóttir: Álfheiður Ída Kjartansdóttir, f. 2004, og Þóroddur Björn og Björg Inga Óskarsbörn, f. 2014. Foreldrar: Þóroddur Helgason, f. 1956, og Inga M. Árnadóttir, f. 1958. Jóhanna Seljan Þóroddsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.