Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is silestone.com Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið Guðrún Helga Sederholm, kennari, náms- og starfsráðgjafi ogfræðslu- og skólafélagsráðgjafi, á 70 ára afmæli í dag. Húnrekur eigið fyrirtæki ásamt maka sínum, sem nefnist Hitt og þetta ehf. og sinnir m.a. námskeiðahaldi, handleiðslu fyrir fagstéttir, viðtölum, rannsóknum og er prófdómari við Háskóla Íslands. „Það er svona ýmislegt sem til fellur. Ég starfa innan vébanda Handís, eða Handleiðslufélags Ís- lands, en handleiðsla er sérstakt fag og er unnið samkvæmt ákveðnum kenningum og vinnu- lagi. Stéttarfélögin, mörg hver, niðurgreiða handleiðsluna fyrir sitt fólk eins og t.d. KÍ, en hand- leiðsla er gott tæki til að virkja hæfileika fólks og forðast kulnun í starfi ef fólk kemur nógu snemma.“ Guðrún starfar einnig fyrir Starfsmennt, fræðslusetur og er með námskeið eins og áður segir og í dag er hún með námskeið í siðfræði og vinnusiðferði, en hún er nýbúin að halda námskeið í áfallahjálp og sorgarviðbrögðum. „Ég hef áhuga á heimspeki og öll- um þeim málefnum sem lúta að samfélaginu og komandi kynslóðum.“ Guðrún ætlar út að borða á föstudaginn með manninum sínum, börnum og barnabörnum í tilefni afmælisins. „Svo fáum við okkur desert heima með kampavíni og fínheitum. Svo verður haldið upp á afmælið út árið, en við hjónin eigum gullbrúðkaup í september og maðurinn minn verður sjötugur þá. Ég hef hugsað mér að vera með ýmsar skemmtilegar uppákomur á árinu, meðan ég sé, heyri, man og skil, í staðinn fyrir að halda stóra veislu. Ég hef t.d. skrifað nokkuð og í bunkanum eru m.a. barnaleikrit og það væri gaman að setja eitthvað af því upp, bara í lokuðum hópi fyrir barnabörnin og vini, en það er langhlaup. Svo er líka stefnan að gera eitthvað skemmtilegt í sumar- bústaðnum okkar í Húsafelli. Þar eru færð upp leikrit, veitt niður um ís og skíðað á Langjökli svo fátt eitt sé talið.“ Eiginmaður Guðrúnar er Jón Bergsson lyfjafræðingur, en hann er líka sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Börnin þeirra eru Örn og Sigríður Ella og barnabörnin eru fimm. Þess má geta að Sederholm er sænskt að uppruna, en faðir Guð- rúnar var sænskur. Hann hét Gösta William Sederholm og var Stokk- hólmsbúi, en Guðrún ólst upp í Vesturbænum í fjölskylduhúsi með móður sinni, Sigríði Jónsdóttur. Heima Guðrún ásamt dóttursyni sínum, Ara Storm, á góðri stund. Heldur námskeið um siðfræði í dag Guðrún H. Sederholm er sjötug í dag G ísli Jakob Alfreðsson fæddist í Reykjavík 24.1. 1933, en ólst upp í Keflavík og var í Barnaskóla Keflavík- ur: „Ég var kornungur er ég steig fyrst á leiksvið, fyrst með barna- stúku í Keflavík. Síðan hafði Ævar R. Kvaran, frændi minn, samband við mig og fékk mig til að leika í útvarpsleikritum sem þá voru leik- in í beinni útsendingu. Ég lék m.a. í Nonna og Manna, á móti Jónasi Jónassyni útvarpsmanni, og tók þátt í fyrsta framhaldsleikriti í út- varpi sem tekið var upp á plötu. Í því léku m.a. hjónin Alfreð Andr- ésson og Inga Þórðardóttir.“ Gísli stundaði nám í Leiklistar- Gísli Jakob Alfreðsson, leikari og fyrrv. þjóðleikhússtjóri – 85 ára Með eiginkonu og syni Gísli og Guðný með Alfreð Gíslasyni sem er búfræðingur en starfar við kvikmyndagerð. Tók leiklistina fram yfir rafmagnsverkfræðina Leikarar á árum áður Þorsteinn Gunnarsson, Helga Bachmann og Gísli. Garðabær Róbert Ingi fæddist 24. janúar 2017 kl. 22.55 í Reykjavík og á því eins árs afmæli í dag. Hann vó 2.920 g og var 49 cm langur. Foreldrar hans eru María Erla Ólafsdóttir og Roger Kwakye. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.