Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 30

Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Skáldsagan Fegurð er sár bernafn með rentu, en fallegustúlkurnar í borg-inni Halimunda í Indónesíu eru síður en svo öfundsverðar. Hamslausu karlmennirnir veigra sér nefnilega ekki við að nauðga þeim og afleiðing- arnar eru oftar en ekki þær að stúlkurnar neyðast til að giftast þeim í kjölfarið. Fegurð er sár er saga losta og hefndar sem hringsnýst um vændiskonuna Dewi Ayu og sjálfstæðisbaráttu Indónes- íu, allt frá því að Hollendingar réðu þar, til hernáms Japana, til heima- stjórnar. Persónur bókarinnar eru ótalmargar og kynntar til sögunnar hver á eftir annarri og oftar en ekki er hörmungarsaga lífs þeirra rakin til fullnustu. Það gerir það að verk- um að á köflum er eins og um söguna endalausu sé að ræða. Persónur sem kynntar voru snemma í bókinni eiga það til að hverfa algjörlega þar til mörgum köflum síðar, og er þá ekki ólíklegt að lesandi þurfi að fletta til baka til upprifjunar. Þó er frásögnin öll hin skemmti- legasta og ansi heillandi á köflum. Grófar kynlífs- og nauðg- unarlýsingar setja þó svip sinn á söguna og gera hana nokkuð óhuggulega og óhentuga fyrir viðkvæmar sálir. Það yfirnáttúrulega hefur gegnumgangandi yfirhönd alla söguna, og margt skrýt- ið á sér stað. Oftast á það sér þó „eðlilegar“ skýringar, en í lok sögunnar saknaði ég þess að ákveðin ráðgáta um strák sem enginn sá nema Fegurð væri leyst. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundurinn Fegurð er sár, eftir Eka Kurniawan er saga losta og hefndar sem snýst um vændiskonuna Dewi Ayu og sjálfstæðisbaráttu Indónesíu. Vændiskonan og sjálfstæðisbaráttan Skáldsaga Fegurð er sár bbmnn Eftir Eka Kurniawan. Ólöf Pétursdóttir íslenskaði. Forlagið, 2017. Kilja, 423 bls. ÞORGERÐUR ANNA GUNNARSDÓTTIR BÆKUR Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er skemmmtilegt að fá að koma inn í svona dauðhreinsaðan hvítan sal og gera hann að sínu,“ segir Páll Haukur Björnsson myndlistar- maður þar sem hann er að koma fyr- ir verkum sínum í D-sal Listasafns Reykjavíkur. Sýning hans, Heildin er alltaf minni en hlutar hennar, verður opnuð þar á morgun, fimmtu- dag, kl. 17. Páll Haukur er 32. lista- maðurinn sem sýnir í sýningaröð D- salar en hún hóf göngu sína árið 2007 og er markmiðið með henni að gefa efnilegum listamönnum tæki- færi til að vinna í fyrsta sinn að einkasýningu í opinberu listasafni. Páll Haukur útskrifaðist frá LHÍ árið 2008 og lauk meistaragráðu frá California Institute of the Arts árið 2013. Hann hefur sýnt verk og gjörninga víða. Í tilkynningu um sýninguna segir að einhverskonar landslag sé að finna á henni. „Þetta eru stök verk en þau verða til til þess að verða partur af heild – og líka til að brotna út úr henni aft- ur,“ segir Páll Haukur. „Ég hef mik- inn áhuga á mörkum, og því hvað hluturinn er. Nú höfum við upplifað nýja byltingu; Kópernikus afmiðjaði okkur í alheiminum og núna göngum við gegnum nýja næringarfræðilega byltingu þar sem við horfumst í augu við að við erum ekki við, heldur samansafn af bakteríum – við erum flóra, og ég hef haft það í huga við að smíða þessa skúlptúra.“ Hann bendir á skúlptúra sem standa á gólfinu, með lituðum gler- hliðum sem tyllt er saman á horn- unum. „Við að horfa á þessa kassa má spyrja: hvar er kassinn? Þeim er haldið saman en hvar eru mörkin? Það er einhver viðburður í því að þeir tolli saman. Mig langar að þenja út mörk þess hvað er skúlptúr.“ Páll talar um að nú um stundir sé ákveðin upplausn í föstum gildum eða merkingarfræðilegum punktum. „Þetta eru skemmtilegir tímar. Við höfum svo gjarnan viljað sporna gegn því að hlutir séu flóknir og sannfæra okkur um að einfaldleiki sé tærari og betri, en svo er stað- reyndin bara sú að hlutir eru mjög flóknir og eru alltaf að leysast upp.“ Hann segir að í verkunum megi sjá sitthvað sem hann hefur áður skoðað á sýningum, eins og það að hlutir brotna niður. „Eitt verkið er til að mynda úr sveppum – þetta verður eyja hérna,“ og hann bendir á mold í kassa sem sveppir stingast upp úr. „Þetta vex og endar á því að sá sér og teiknar í leiðinni hring úr svörtu dufti í kring. Mörg verkanna eru á stöðugri hreyfingu. Teikningin hefur alltaf verið kjarninn í því sem ég geri en síðustu árin hef ég líka verið að reyna að fatta skúlptúrinn – og er nú að mjaka mér inn í þann heim. Ég var á sínum tíma mikið í gjörn- ingum og við opnunina mun Margrét Bjarnadóttir listakona flytja verk, gagnvirkan skúlptúr sem fjallar meðal annars um efann og ástina. Efinn er alltaf áhugaverður.“ Morgunblaðið/Einar Falur Kassi? Páll Haukur Björnsson situr á einu verkinu og við annað í D-sal Hafnarhússins. Hann spyr hvar mörkin séu. Efinn er áhugaverður  Sýning á verkum eftir Pál Hauk Björnsson myndlistar- mann verður opnuð í D-sal Hafnarhússins á morgun Suðurafríski djasstrompetistinn, söngvarinn og aktivistinn Hugh Masekela er látinn, 78 ára að aldri. Hann og tónlist hans urðu einskonar tákn fyrir baráttuna gegn aðskiln- aðarstefnunni í heimalandi hans en Masekela var í um þrjá áratugi í út- legð og var þá óþreytandi í barátt- unni gegn hvítu minnihluta- stjórninni í Suður-Afríku og hélt á lofti kröfunni um að Nelson Mandela yrði látinn laus. Mikil sorg ríkti í Suður-Afríku í gær eftir að tilkynnt var um lát Masekela og hljómaði tónlist bar- áttukempunnar víða. Masekela skaut fyrst upp á stjörnuhimininn á sjötta áratug lið- innar aldar, er hann varð einn af frumkvöðlum djassins í Suður- Afríku. Eftir að hann flutti til Bandaríkjanna árið 1960 öðlaðist hann hylli djassunnenda út um heimsbyggðina og samkvæmt The New York Times varð „Grazing in the Grass“, frá 1968, hans vinsæl- asta lag. Á þeim tíma starfaði Mase- kela í síauknum mæli með öðrum afrískum tónlistarmönnum í djassi og geira þjóðlegrar tónlistar, lék sí- fellt alþýðlegri tónlist – og naut gríðarlegrar hylli í Afríku. Þegar baráttan gegn aðskilnaðar- stefnunni náði hámarki, á níunda áratugnum, lék Masekela iðulega með löndum sínum í útlegð, sem og með tónlistarmönnum frá öðrum Afríkulöndum. Hann flutti þá marga kunna baráttusöngva – einna þekkt- astur er „Mandela (Bring Him Back Home)“, og kom fram með Paul Sim- on á Graceland-tónleikaferð hans. Eftir að hvíta minnihlutastjórnin lét af völdum flutti Masekela aftur heim og hefur notið gríðarlegrar virðingar allar götur síðan. Hann hélt áfram að koma fram á tón- leikum víða um lönd, ýmist með stórum hljómsveitum eða í djass- dúett með píanóleikara. Undanfarin ár hafði Masekela glímt við krabba- mein í blöðruhálskirtli, sem að lok- um lagði hann að velli. Baráttumaðurinn Masekela látinn AFP Þjóðhetja Hugh Masekela leikur á tónleikum í Lundúnum árið 2012.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.