Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Suðurlandsbraut 6, Rvk. | Sími 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Markmið okkar er að spara viðskiptavinum tíma, fyrirhöfn og fjármuni. VA N TA R Þ I G STA R FS F Ó L K Handafl er traust og fagleg starfsmannaveita með margra ára reynslu á markaði þar sem við þjónustum jafnt stór sem smá fyrirtæki. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Í bréfi sem Gunnar A. Bårregård heimilislæknir hefur skrifað skjól- stæðingum sínum kemur fram að Heimilislæknastöðinni Uppsölum í Kringlunni verði lokað á næstunni og hann hafi ákveðið að sameinast Heilsugæslunni Höfða, og skjólstæð- ingar hans skráist sjálfkrafa hjá hon- um þar, frá 1. febrúar nk. Í bréfinu kemur jafnframt fram að Gunnar verður 70 ára í vor og hann hafi því viljað ráða eftirmann sinn til Heimilislæknastöðvarinnar Uppsöl- um en ekki hafi fengist til þess leyfi frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Steingrímur Ari Arason, forstjóri SÍ, segir að tekin hafi verið ákvörðun um það í heilbrigðisráðherratíð Kristjáns Þórs Júlíussonar að færa heimilislæknaþjónustuna alfarið inn í heilsugæsluna á höfuðborgarsvæð- inu, og það sé skýringin á því að ekki hafi verið veitt leyfi fyrir ráðningu eftirmanns Gunnars. „Það hafa verið hreyfingar í þá veru að gefa sjálfstætt starfandi heimilislæknum, sem áhuga hafa á því, kost á því að stofna heilsugæslu, en það virðist ekki hafa náðst sam- staða um að gera það,“ sagði Stein- grímur Ari í samtali við Morgunblað- ið í gær. Steingrímur Ari segir að þeir sem áður voru sjálfstætt starfandi heim- ilislæknar hafi að undanförnu gengið til liðs við ákveðnar heilsugæslu- stöðvar, sem séu með samning við SÍ. „Það var stefnumarkandi ákvörð- un sem tekin var í ráðuneytinu í tíð Kristjáns Þórs, að sjálfstætt starf- andi heimilislæknar yrðu hluti af heilsugæslunni, en við hjá Sjúkra- tryggingum Íslands höfum eindregið lagt það til að þeir sjálfstætt starf- andi heimilislæknar, sem hafa hug á að ljúka starfsferli sínum sem ein- yrkjar, eða það sem við höfum kallað HUH-læknar, heimilislæknar utan heilsugæslu fái að gera það. Við höf- um þannig lagt áherslu á að þeir læknar sem svo kjósa fái svokallað sólarlagsákvæði, og fái þannig að ljúka sínum starfsferli sem sjálfstætt starfandi heimilislæknar,“ sagði Steingrímur Ari. „Þær breytingar sem eru að verða á heilsugæslunni á höfuðborgar- svæðinu fela það m.a. í sér að allar stöðvarnar, óháð eignarhaldi og rekstrarformi, munu búa við sam- bærilega fjármögnun,“ sagði Stein- grímur Ari. Sjálfstætt starfandi heimilis- læknar til heilsugæslu  SÍ vilja sólarlagsákvæði handa HUH-læknum sem það kjósa Morgunblaðið/Árni Sæberg Heilsugæsla Sjálfstætt starfandi heimilislæknum fer fækkandi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Dýrafjarðargöng verða að óbreyttu orðin 1.000 metrar eftir sprenging- ar í dag. Gangamenn hefðu náð þessum áfanga í gær ef ekki hefðu orðið tafir við vaktaskipti um helgina. Vegna slæms veðurs hefur gengið illa að koma mannskap til og frá vinnusvæði. „Eftir skotið áðan vorum við komnir 987 metra inn, auk útskota B og C sem geta verið flókin,“ sagði Karl St. Garðarsson, stað- arstjóri Suðurverks við gerð Dýra- fjarðarganga. Hann telur að starfs- mennirnir muni ná 1.000 metra áfanganum síðdegis í dag. Mega ekki moka sjálfir Starfsmenn Suðurverks og Met- rostav fóru lengi vel á vinnusvæðið með bílum um Dynjandisheiði. Þeg- ar Vegagerðin mokaði ekki renndu þeir í gegn með hefli. Í útboðs- gögnum er hins vegar tekið fram að verktakanum sé ekki heimilt að moka heiðina fyrir sig og aðra nema með leyfi Vegagerðarinnar. Þeir eru ekki með snjóblásara og hefur ekki fengist leyfi til að moka með hefli að undanförnu. Starfs- mennirnir hafa því farið á báti frá Bíldudal. Vegna veðurs hefur að mestu verið ófært síðustu daga og tafði það vaktaskipti um helgina. Datt sólarhringur úr vinnu vegna þess. Allt sprengigengið og hluti starfs- manna Suðurverks komst þó á stað- inn með báti á sunnudag en viðbót- armannskapur bíður eftir betra veðri. Á meðan vinnustaðurinn er ekki fullmannaðar gengur verkið heldur hægar en við eðlilegar að- stæður. Karl segir að menn séu ánægðir í Arnarfirði, þrátt fyrir einangrunina. „Við erum með afskaplega vel sam- stilltan mannskap. Við höfum unnið með Tékkunum í Norðfjarðargöng- um og við þekkjumst því vel. Ég tel að bæði fyrirtækin séu heppin með mannskap,“ segir Karl. Ná 1.000 metra markinu í dag  Vaktaskipti erfið vegna ófærðar Dýrafjarðargöng » Framkvæmdin felur í sér lagningu nýs vegar og nýrra ganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði að Dýrafjarðarbrú. » Lagður verður 8 kílómetra langur nýr vegur og göngin eru 5,6 km að vegskálum með- töldum. Því er um að ræða 13,7 km langt vegstæði. » Vestfjarðavegur styttist um 27,4 kílómetra. Tómas Magnús Tóm- asson, tónlistarmaður og upptökustjóri, lést síðdegis í gær. Tómas fæddist 23. maí árið 1954 og var þekkt- astur sem bassaleikari Stuðmanna. Hann spilaði einnig með hljómsveitum eins og Hinum íslenzka Þursaflokki og Change en varð fyrst kunnur sem meðlimur í rokksveitinni Rifs- berja, við upphaf átt- unda áratugarins. Tómas átti einkar farsælan feril með Stuðmönnum sem og Þursum en haslaði sér og völl sem mikil- virkur upptökustjóri og lagði gjörva hönd á plóg við gerð margra af þekktustu plötum ís- lenskrar dægur- tónlistarsögu. Má þar nefna plötur eftir Bubba, Megas, Björk (Gling-gló) og KK en hann tengdist inn á 19 af þeim 100 plötum sem valdar voru bestu plötur Íslandssög- unnar í samnefndri bók, og komst enginn nálægt honum þar. Tómas var hæglæt- ismaður á sviði, en af- ar lunkinn húmoristi og var hrynfesta hans mikilvægt lím í þeim sveitum sem hann lék með. Sam- starfsmenn hans í gegnum tíðina hafa þá lokið á hann lofsorði, hann hafi verið ljúfmennskan og birtan holdi klædd í hverju því sem hann kom að. Andlát Tómas Magnús Tómasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.