Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Bragð af vináttu • Hágæða gæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Náttúra, sköpun og gerð Ís-lands er þannig að for-vitnilegar spurningar ogrannsóknarefni blasa hvarvetna við. Þetta er draumaland vísindamanna þar sem svo ótalmargt mætti rannsaka að ég verð stundum haldinn ónotatilfinngu og valkvíða. Sennilega má líkja þessu við að vera lítið barn í leikfangabúð,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Vetrarmót jarðvísindamanna á Norðurlöndunum var haldið fyrr í mánuðinum í Kaupmannahöfn og þar voru Páli veitt Norrænu jarð- fræðiverðlaunin 2018. Rökin fyrir því vali voru meðal annars þau að Páll hefði í tímans rás verið sér- staklega ötull við að miðla þekkingu sinni á jarðfræði til almennings og stjórnvalda. Að því leyti myndað mikilvæga tengingu milli fólks og fræða sem þurfi að vera til staðar. Áfram á fullu í fræðunum Sú hefð ríkir að gripur sem verðlaunahafi fær sé steinn úr land- inu þar sem fundur jarðfræðinganna er haldinn hverju sinni. Ekki var brugðið út af venjunni nú og frá Danmörku kom Páll með níu kílóa og 55 milljón ára gamlan stein, að hluta myndaðan úr öskulögum frá því þeg- ar Ísland og Atlantshafið voru að myndast Páll Einarsson starfaði í áratugi við rannsóknir og kennslu við Há- skóla Íslands, en er nú kominn á eft- irlaun og er prófessor emeritus sem svo er kallað. Er þó áfram á fullu í fræðunum þar sem margt spennandi Jarðfræðingurinn er á heitum reit Ísland er sem leikfangabúð jarðfræðinnar. Þetta segir Páll Einarsson sem á dög- unum fékk Norrænu jarðfræðiverðlaunin 2018 fyrir að miðla þekkingu sinn til almennings. Hann segir flestum betur frá náttúru landsins – en í því starfi segir hann áhuga almennings á fræðum vera mjög hvetjandi fyrir vísindamann. Morgunblaðið/Einar Falur Skjálftavakt Páll Einarsson tók þátt í því að setja upp fyrsta heildstæða net jarðskjálftamæla á Íslandi og hér er hann við tækin. Mynd frá árinu 1986. Morgunblaðið/Rax Eldgos Sjónarspil og rauður bjarmi í Heklugosi í janúar árið 2000. Marshall-húsið er nýr vettvangur lista við gömlu höfnina í Reykjavík. Í tilefni af því að það hlaut Hönn- unarverðlaun Íslands árið 2017 verð- ur boðið upp á leiðsögn um húsið kl. 17 annað kvöld, fimmtudaginn 25. janúar. Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, arkitektar hjá Kurt og Pí, leiddu hönnun verksins í samstarfi við ASK arkitekta. „Verkið kristallar velheppnaða umbreytingu eldra iðnaðarhúsnæðis fyrir nýtt hlutverk í samtímanum. Arkitektarnir þróuðu verkið allt frá hugmyndastigi og leiddu saman breiðan hóp til að skapa heilsteypt verk. Unnið er vel með sögu byggingar og samhengi staðar og til verður nýr áfangastaður á áhugaverðu þróunarsvæði í borg- inni. Verkið er gott dæmi um það hvernig beita má aðferðum hönnunar til nýsköpunar í borgarumhverfinu,“ sagði í umsögn dómnefndar. Marshall-húsið var byggt árið 1948 sem síldarbræðsla en hýsir nú Ný- listasafnið, Kling og Bang, Stúdíó Ólafs Elíassonar ásamt vinnustofu og veitingahúsið Marshall Restaurant + Bar. Húsið hafði staðið autt í rúmlega tíu ár. Ásmundur Hrafn leiðir gesti um húsið, en leiðsögnin er í boði Hönnunarsafns Íslands. Mæting kl. 17.00 í Marshall-húsinu, Grandagarði 20. Vettvangur lista við gömlu höfnina í Reykjavík Nýtt hlutverk Marshall-húsið var byggt árið 1948 sem síldarbræðsla. Leiðsögn um Marshall-húsið Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli eins og hún er kölluð, heldur fyrsta heilsufyrirlestur ársins í Bóka- safni Seltjarnarness kl. 17.30 - 18.30 í kvöld, miðvikudaginn 24. janúar. Í fyrirlestrinum ræðir hún um heils- una, að nærast í núvitund (mindful eating), sem hún aðhyllist og notar í störfum sínum, bók sína Heilsubók Röggu Nagla og tilurð hennar. Ragnhildur er klínískur heilsusál- fræðingur og sérsvið hennar er að hjálpa fólki að öðlast jafnvægi, hug- arró og heilbrigt samband við mat. Í fyrirlestrinum fjallar hún einnig um hvernig best er að setja sér raunhæf markmið hvað varðar mataræði og hreyfingu, en hún leggur mikla áherslu á þjálfun og hreyfingu Allir velkomnir og aðgangur ókeyp- is. Ragga Nagli með heilsufyrirlestur í Bókasafni Seltjarnarness Heilsa og nær- ing í núvitund Morgunblaðið/Árni Sæberg Markmið Ragga Nagli fjallar m.a. um raunhæf markmið. Hefur svefn áhrif á hamingju? Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingur og Erla Björnsdóttir sálfræðingur ræða hamingjuna út frá ýmsum sjónarhornum, m.a. heilsu, hegð- un og viðhorfi, í Heimspekikaffi í Borgarbókasafn- inu í Gerðubergi kl. 20 í kvöld, miðvikudaginn 24. janúar. Vegur hamingjunnar er langur og felst hann að minnsta kosti í því að leggja stund á dyggðir og rækta tilfinningar sínar, auk þess að efla skynsemina. Hún er spunnin úr að- stæðum sérhvers manns og kjarki til að taka ákvarðanir um líf sitt. Heimspekingar hafa rannsakað hamingjuna frá mörgum hliðum. En hvað um svefn? Hafa svefn, ár- vekni, athygli og einbeiting áhrif á hamingjuna? Erla Björnsdóttir er doktor í líf- og læknavísindum frá Háskóla Ís- lands en í doktorsnámi sínu rann- sakaði hún andlega líðan og lífs- gæði út frá svefnleysi og kæfi- svefni. Erla rekur vefinn betri- svefn.is og er einn af rekstrar- aðilum Sálfræðiráðgjafarinnar og skrifaði bókina Svefn sem kom út í fyrra. Gunnar Hersveinn hefur umsjón með heimspekikaffinu og leiðir gesti í lifandi umræðu um mál- efnin. Hann hefur m.a. skrifað bók- ina Gæfuspor – gildin í lífinu. Allir stefna leynt eða ljóst að hamingju, en hvernig nálgumst við hamingj- una? Heimspekikaffið í Gerðubergi hefur verið vinsælt undanfarin misseri, en þar er fjallað á manna- máli um hvers konar líferni er eft- irsóknarvert. Gestir taka virkan þátt í umræðum og hafa margir fengið gott veganesti eftir kvöldin og hugðarefni til að ræða frekar. Heimspekikaffi í Borgarbókasafninu í Gerðubergi Hafa svefn, árvekni, athygli og einbeiting áhrif á hamingjuna? Erla Björnsdóttir.Gunnar Hersveinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.