Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018
Vetrargolf Sumir láta ekkert stoppa sig í því að spila golf, þessi fór á völlinn þrátt fyrir klaka, kulda og rok. Fyrir þá hörðustu er gott að æfingavöllurinn við Korpúlfsstaði er opinn allt árið.
Hari
Í upphafi eru tvær
staðhæfingar: Lög
um tekjuskatt frá
2013 eru líkari búta-
saumi en heildstæðri
lagaumgjörð. Tekju-
skattskerfi ein-
staklinga er óréttlátt
og refsar launafólki
sem leitast við að
bæta sinn hag.
Á fjórtán árum hef-
ur Alþingi talið rétt og
nauðsynlegt að breyta lögunum 83
sinnum eða að meðaltali tæplega
sex sinnum á ári. Fram til loka
árs 2008 var lögunum breytt 23
sinnum og 2009 til 2013 voru gerð-
ar hvorki fleiri né færri en 37
breytingar, þar af ellefu árið 2011.
Til að gæta sanngirni er rétt að
hafa í huga að sumar af breyting-
unum eru nauðsynlegar á hverju
ári til að uppfæra fjárhæðir s.s.
skattleysismörk, barnabætur,
vaxtabætur og fjárhæðarmörk í
þrepaskiptu skattkerfi.
En flestar breytingarnar á
tekjuskattslögunum, hvort heldur
snýr að einstaklingum eða lög-
aðilum, hafa verið til að íþyngja
en ekki létta byrðarnar, flækja
fremur en einfalda. Einstaklingum
og forráðamönnum fyrirtækja er
ætlað að fylgjast með stöðugum
breytingum og laga sig að þeim.
Ég hef áður bent á hvað gerist
þegar stöðugt er verið að breyta
leikreglunum, – það lætur eitthvað
undan og það fyrsta er framtíðar-
sýnin. Möguleikinn til að gera
áætlanir til lengri tíma hverfur
hægt og bítandi. Forsendum
rekstrar- og fjárfestingaáætlana
er breytt með „einu pennastriki“ á
Alþingi og fyrirætlunum fjöl-
skyldna um íbúðakaup er koll-
varpað.
Gegn heilbrigðri
efnahagsstarfsemi
Nú er svo komið að lögin um
tekjuskatt líkjast fremur búta-
saumi en heildstæðu
lagaverki, eins og áð-
ur er haldið fram.
Bútasaumi tekju-
skattslaganna er síð-
an lokið með hvorki
fleiri né færri en 57
bráðabirgðaákvæðum
sem eru misflókin og
efnismikil. (Því miður
eru lögin um tekju-
skatt langt í frá að
vera eina dæmið þar
sem löggjafinn breyt-
ir aftur og aftur leik-
reglunum og setur
óteljandi ákvæði til bráðabirgða. Í
lögum um virðisaukaskatt eru 31
bráðabirgðaákvæði, svo dæmi sé
nefnt).
Tekjuskattskerfi einstaklinga,
sem er byggður á tekjutengingum
og þrepaskiptingu, vinnur gegn
heilbrigðri efnahagsstarfsemi.
Háir jaðarskattar draga úr um-
svifum og hvetja („neyða“) launa-
fólk til svartrar vinnu. Kerfið er
dragbítur á að þeir sem lægstu
launin hafa geti náð fram hlut-
fallslegum kjarabótum. Í mörgu
er skattkerfið fremur fyrir þá
sem betur eru settir um leið og
þeim er refsað sem reyna að bæta
sinn hag.
Háir jaðarskattar íþyngja ekki
síst þeim sem lægstu launin hafa,
eru með litla menntun og/eða til-
heyra þeim hluta vinnumarkaðar-
ins þar sem lítil eða engin sam-
keppni er um vinnuafl. Leiða má
að því sterk rök að jaðarskattar
auki launamuninn í þjóðfélaginu
fremur en að draga úr honum. Sé
það ætlunin (sem er umdeilan-
legt) að beita tekjuskattskerfinu
sem jöfnunartæki, þá vinna jaðar-
skattar með tekjutengingum
hvers konar gegn því.
Það sem skiptir launamanninn
mestu eru ráðstöfunartekjurnar –
hversu mikið er eftir í launa-
umslaginu þegar skattar hafa ver-
ið greiddir. Þeir sem standa best
að vígi á vinnumarkaði eiga meiri
möguleika til að fá bættan þann
„skaða“ sem viðkomandi verður
fyrir vegna hárra jaðarskatta og/
eða hækkunar tekjuskatts.
Unnið gegn launafólki
Starfsmaður sem er eftirsóttur
til vinnu, er hreyfanlegur, með
góða menntun, nýtur þess í formi
hærri launa og betri starfskjara
en aðrir. Atvinnurekandi sem vill
halda slíkum starfsmanni verður
með einum eða öðrum hætti að
bæta upp skertar ráðstöfunar-
tekjur vegna tekjutenginga og
hárra jaðarskatta. Að öðrum kosti
leitar launamaðurinn annað, þar
sem skaðinn er bættur eða hann
ákveður að þiggja lægra launað
starf, álagið er minna, ábyrgðin
minni og vinnutíminn styttri.
Þrepaskipt tekjuskattskerfi ein-
staklinga með háum jaðarsköttum
er þannig með innbyggðan galla
sem vinnur gegn launafólki sem
stendur veikt að vígi á vinnumark-
aðinum. Gallar kerfis koma einnig
fram þegar gerðar eru breytingar
á skattleysismörkum – persónu-
afslætti. Þegar mörkin eru hækk-
uð gengur sú breyting upp allan
tekjustigann. Eftir því sem laun
eru lægri því meira vægi hefur
persónuafslátturinn. Hækkun per-
sónuafsláttar skiptir launamann-
inn með 300 þúsund krónur í mán-
aðarlaun meira máli en þann sem
hefur 800 þúsund króna tekjur.
Hækkun skattaþrepa í samræmi
við hækkun launavísitölu (til að
koma í veg fyrir að skattbyrði
þyngist aðeins vegna almennrar
hækkunar launa), skiptir engu fyr-
ir þá sem lökust kjörin hafa en
vegur þungt hjá þeim sem annars
hefðu þurft að sætta sig við hærri
skatta, jafnvel þótt laun hækki að-
eins í samræmi við gerða kjara-
samninga.
Ein skattprósenta
óháð tekjum
Þegar allir gallar tekjuskatts-
kerfisins eru lagðir saman er vart
hægt að komast að annarri niður-
stöðu en að stokka verði allt kerf-
ið upp. Markmiðið er að koma á
einföldu kerfi, draga úr jaðar-
sköttum, byggja undir hvata og
hætta að refsa fólki þegar hagur
þess batnar.
Flatur tekjuskattur – ein
skattprósenta óháð tekjum – er
skynsamlegasta leiðin að þessu
markmiði en samhliða verði inn-
leiddur nýr persónuafsláttur sem
lækki eftir því sem tekjur hækka.
Hugsanlegt er að samhliða afnámi
vaxtabóta (niðurgreiðslu á vaxta-
kostnaði) sé rétt að ónýttur per-
sónuafsláttur sé greiddur út.
Eins og sést á meðfylgjandi
skýringarmynd verður skattbyrði
misjöfn undir nýju kerfi. Þeir sem
eru með laun undir skattleysis-
mörkum greiða ekkert og fá
hugsanlega greiddan út ónýttan
persónuafslátt. En eftir því sem
tekjur hækka því hærri verður
skattprósentan (skattbyrðin) í
reynd, enda lækkar persónu-
afslátturinn eftir tekjum. Þegar
þeim launum er náð, þar sem per-
sónuafslátturinn er orðinn núll,
verður skattprósentan flöt – sú
sama. (Ég hef vísvitandi sleppt að
nefna skattprósentuna og skatt-
leysismörk. Öllum ætti hins vegar
að vera ljóst að undir nýju tekju-
skattskerfi yrðu skattleysis-
mörkin mun hærri en í dag og
skattprósentan lægri en efra þrep
tekjuskattsins.)
Flatur tekjuskattur með stig-
lækkandi persónuafslætti þjónar
betur markmiði sínu en núverandi
kerfi. Það verður einfaldara,
staða láglaunastétta og milli-
tekjuhópa verður sterkari. Ýtt
verður undir fólk í stað þess að
það sé barið niður með háum jað-
arsköttum með tilheyrandi tekju-
tengingum og hærra skattþrepi.
Eitt að lokum.
Nýtt tekjuskattskerfi eins og
hér er lagt til, er líklegra til að
virka sem hemill á skattaglaða
stjórnmálamenn. Það verður póli-
tískt erfiðara fyrir þá að hækka
skattprósentuna sem allir þurfa
að greiða þótt skattbyrðin verði
misjöfn. Fleygurinn sem rekinn
er á milli skattgreiðenda með
þrepaskiptum tekjuskatti og
flóknum tekjutengingum mun
brotna. Og þá er til nokkurs unn-
ið.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Þegar allir gallar
tekjuskattskerfisins
eru lagðir saman er vart
hægt að komast að ann-
arri niðurstöðu en að
stokka verði allt kerfið
upp.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Flatur tekjuskattur og stiglækkandi
persónuafsláttur
Skattbyrði sem hlutfall af launum
Miðað við flatan tekjuskatt og stiglækkandi persónuafslátt
Tekjur
Skattbyrði
0%
Skattgreiðsla
Ónýttur persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 0
Óli Björn
Kárason