Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 21

Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Allsendis óvíst er hver endanlegur stofnkostn- aður svonefndrar Borgar- línu verður. Ekki er minni óvissa um rekstrar- kostnað. Ekki er vitað hvað fargjaldið þarf að hækka og óvíst er að fólk muni nýta sér þennan samgöngumáta þegar allt kemur til alls. Dagur B. og félagar í núverandi meiri- hluta borgarstjórnar eru reiðubúin og í raun byrjuð að tefja um- ferð einkabíla í þeim tilgangi að þvinga almenning til að nota almennings- vagna og í framhaldinu Borgarlínu. Það liggur því ljóst fyrir að Dagur og félagar vita að enginn rekstrar- grundvöllur er fyrir rándýrri Borgar- línu nema almenningur sé þvingaður til að leggja einkabílnum. Engan veginn er staðið að endur- nýjun framþróun vegakerfis borgar- innar sem þörf er á og í bígerð er að hefta og tefja umferð enn frekar. Við borgarbúar finnum fyrir þessu á hverjum degi í um- ferðaröngþveitinu sem á ekki eftir að verða neitt nema verra. Vitað er hvað kostar að reka Strætó og vit- að er hver kostnaður hins opinbera yrði við að frítt yrði í strætó. Kostnaður af Frítt í Strætó yrði ekki mikill umfram það sem nú er og myndi dreifast með sanngjörnum hætti á sveitarfélögin sex og ríkið. Reikna má með að þetta myndi kosta Reykjavíkur- borg á bilinu 3 til 400 milljónir á ári umfram það sem nú er. Það verður að teljast lágt gjald sé litið til þess að ávinningurinn af þessu er mikill. Heil- mikil kjarabót ásamt því að vera raun- hæf og sanngjörn leið til að auka notk- un fólks á almenningssamgöngum. Óvíst og jafnvel ólíklegt er að Borgar- lína muni auka almenna notkun stræt- isvagna og alveg öruggt er að ekki verður unnt að hafa þá þjónustu ókeypis sé tekið mið af gríðarlegum stofn- og rekstrarkostnaði. Ávinningurinn af Frítt í Strætó er slíkur að það hlýtur að teljast firra að eyða frekari tíma og fjármunum í Borgarlínuverkefnið. Samkvæmt fyr- irliggjandi upplýsingum um áætlaðan stofnkostnað Borgarlínu er hægt að reka Frítt í Strætó í hartnær heila öld fyrir sömu upphæð, þá erum við ekki byrjuð að tala um rekstrarkostnað. Hættið að eyða tíma og peningum í óraunhæfar Borgarlínupælingar. Hættið að þvinga fólk og kúga til hlýðni – tökum Sigmund á þetta og höfum Frítt í Strætó. Frítt í strætó er rétta leiðin Eftir Lindu Jónsdóttur Linda Jónsdóttir » Samkvæmt fyrir- liggjandi upplýs- ingum um áætlaðan stofnkostnað Borgar- línu er hægt að reka Frítt í Strætó í hartnær heila öld fyrir sömu upphæð. Höfundur er í Miðflokknum í Reykjavík. Á undanförnum ár- um hefur fylgið hrunið af Sjálfstæðis- flokknum í borgar- stjórnarkosningum. Meginástæða þess er sú að borgarfulltrúar flokksins hafa myndað tvær ólíkar fylkingar a.m.k. frá 2010. Sumir þeirra eru í stjórnar- andstöðu og berjast fyrir stefnu í samræmi við sjálfstæðsistefnuna, samþykktir landsfunda og nú síðast Reykjavík- urþings. En aðrir borgarfulltrúar flokksins hafa stutt vinstri meiri- hlutann í flestum veigamestu mál- um. Þetta vita ekki allir flokksmenn í Reykjavík. En þetta getur hver séð á afstöðu fulltrúanna í borgarstjórn og nefndum. Einn listi – tvær stefnur Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn, þær Áslaug Frið- riksdóttir, sem nú tekur þátt í leið- togakjöri í Reykjavík, og Hildur Sverrisdóttir, fyrrverandi borgar- fulltrúi, studdu vinstri meirihlutann í flestum veigamestu málum þeirra á síðustu tveimur kjörtímabilum og fóru einatt gegn afstöðu annarra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þegar núgildandi aðalskipulag var samþykkt í borgarstjórn 26.11. 2013, greiddu þrír fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins atkvæði gegn því og sömdu sameiginlega bókun af því tilefni. En Áslaug og Hildur samþykktu aðal- skipulag vinstri meirihlutans og sömdu sér bókun þar sem þær styðja það og hrósa því. Þar segja þær m.a.: „Aðalskipulagið sem nú er til samþykktar er hagkvæmt og leið- ir til jákvæðra áhrifa. Á næstu 16 ár- um er nauðsynlegt að taka afgerandi afstöðu með þéttingu byggðar og því að gefa fjölbreyttari samgöngu- kostum aukið vægi enda mun slík forgangsröðun koma jafnvægi á borgarumhverfið og veita borgar- búum fleiri valkosti.“ Áslaug kaus vinstri meirihlutann Núgildandi aðalskipulag Reykja- víkur er hápólitísk stefnumótun vinstri meirihlutans, Áslaugar og Hildar, í skipulags-, samgöngu- og húsnæðismálum. Það kveður á um að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýr- inni á næsta kjörtímabili – boðar heilsuspillandi „Borgarlínu“ sem nú þegar er úrelt og feikilega kostn- aðarsöm – útheimtir sívaxandi um- ferðaröngþveiti og umferðarmengun með því að þrengja að tengibraut- um, lágmarka viðhald á stofn- brautum og útiloka mislæg gatnamót, úti- lokar nýja íbúðabyggð á landi borgarinnar og ber þannig ábyrgð á húsnæðisskorti og sí- hækkandi leigu- og íbúðaverði. Þessi byggðastefna hefur hrakið ungt fólk frá Reykjavík í nærliggj- andi sveitarfélög. Áslaug og Hildur bera því jafn mikla ábyrgð á öngþveitinu í samgöngu- og húsnæðismálum borgarinnar og restin af vinstri meirihlutanum. Einn lista og eina stefnu Á síðustu öld hélt Sjálfstæðis- flokkurinn hreinum meirihluta í Reykjavík, með um og yfir 50% at- kvæða, frá stofnun flokksins og til 1978 og aftur frá 1982-94. Í kosning- unum 1990 fékk flokkurinn 62% fylgi í Reykjavík og 10 borgarfull- trúa af 15, undir forystu Davíðs Oddssonar. Árið 2010 var fylgið komið niður í 33,6% eða um þriðj- ung kjósenda og árið 2014 í 25,7% og fjóra borgarfulltrúa af 15, – fjórðung atkvæða eða helming þess fylgis sem flokkurinn hafði lengst af. Eini möguleiki Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík á þessum tíma- punkti felst í öflugum leiðtoga, sam- hentum borgarfulltrúum, einum lista með eina stefnu – stefnu Sjálfstæðisflokksins. Einn lista og eina stefnu í Reykjavík Eftir Matthildi Skúladóttur Matthildur Skúladóttir »Eini möguleiki Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík á þessum tímapunkti felst í öfl- ugum leiðtoga, sam- hentum borgarfulltrú- um, einum lista með eina stefnu. Höfundur er sjálfstæðiskona og stjórnarmaður í Verði, fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.