Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Í Hverfisgalleríi, Hverfisgötu 4, hefur verið opnuð sýningin by-products. Á sýningunni eru þrettán ljósmyndaverk þar sem listamenn Hverfisgallerís birt- ast sem hliðarafurðir sköpunar sinnar. Myndirnar eru sjálfstæð verk, um verk og vinnuferli þessara ólíku listamanna sem, samkvæmt tilkynningu, brúa ólík- ar kynslóðir, aðferðir og miðla. Listamennirnir sem sköpuðu verkin á sýningunni starfa náið með galleríinu en það eru þau Davíð Örn Halldórsson (f. 1976), Georg Guðni (1961-2011), Guðjón Ketilsson (f. 1956), Guðný Rósa Ingi- marsdóttir (1969), Hildur Bjarnadóttir (1969), Guðmundur Thoroddsen (f. 1980), Hrafnkell Sigurðsson (f. 1963), Jeanine Cohen (f. 1951), Kristinn E. Hrafnsson (f. 1960), Magnús Kjart- ansson (1949-2006), Sigurður Árni Sig- urðsson (f. 1963), Sigtryggur Bjarni Baldvinsson (1966) og Steingrímur Ey- fjörð (1954). Í Hverfisgalleríi er opið kl. 13 til 17 virka daga en 14 til 17 um helgar. Hliðarafurðir listamannanna Ljósmyn/Arna Óttarsdóttir „Mummi skúrar“ Nýtt verk eftir Guðmund Thoroddsen á sýningunni í Hverfisgalleríi en á henni eru ljósmyndaverk listamanna gallerísins. Næstsíðustu tónleikarKammermúsíkklúbbsinsá vertíðinni 2017-18 fórufram fyrir fullsetnum Norðurljósasal Hörpu á sunnudag. Verkavalið spannaði hálfa aðra öld eða allt frá 1843 til 1993 og gott bet- ur, þar eð þriðji þáttur Mendels- sohns úr Vier Stücke für Streich- quartett sótti stílföng allt aftur til síðbarokktíma. Á móti var Pende- reckikvartettinn varla jafnnýstár- legur tjábrigðis og af ártali mætti ætla, enda hefur hinn enn virki pólski meistari, er kvaddi sér heimshljóðs með geislavirkum strokómum Þrenódíu sinnar um Hiroshima, síðan snúið amk. hálfu baki við vestrænni framúrstefnu til ágóða fyrir hefðbundnari vinnu- brögð. („Ég var farinn að geta gert hitt í svefni“ kvað hann hafa sagt.) Dagskráin gaf því tilefni til að hugleiða með Skáld-Sveini 15. aldar hvað veröldin muni vilja þegar spurningin um tilraunir tilrauna vegna er annars vegar. En þó að hinn endanlegi gæðadómari skili sem kunnugt fyrst lokaniðurstöðu í fyllingu tíma og reynslu, þá helzt þó á meðan síkvik spennuerting þess að fylgjast með því hvernig hverjum og einum tekst upp hér og nú – þótt ekki saki að sækja líka viðmiðun úr misfjarlægri fortíð. Að þessu sinni gafst sú viðmiðun einkum við endurheyrn hins 110 ára gamla Strengjakvartetts Schön- bergs er markaði tónsöguleg tíma- mót sem boðberi ótnis („atónalí- tets“) og skömmu síðar tólftóna- stefnu. Sú átti eftir að kippa dúr-moll kerfi Vesturlanda alfarið úr sambandi í flestri listmúsík 20. aldar – þótt nú sé af mörgum talin þróunarlegur botnlangi er hlaut fyrr eða síðar að staðfrjósa á eigin forsendum án þess að leiða lengra. Öll voru viðfangsefni kvöldsins býsna krefjandi fyrir flytjendur, og sem endranær varð maður hlessa yfir færni hérlends kammerhóps sem ólíkt toppgrúppum heimsins getur ekki sinnt þessum ,kjarna kjarnans‘ nema í hjáverkum frá öðru. Hægi forleikurinn að Capriccio Mendelssohns var að vísu ofurlítið loppinn, en í eftirfarandi fúguhluta hafði hópurinn náð vopn- um sínum með vasklegri fram- göngu. Sams konar einurð heillaði ekki síður í Kvartett Pendereckis fyrir klarínett, fiðlu, víólu og selló með fyrst skemmtilega ofurlágværum leik í Notturno, þá röggsömum mót- orisma í Scherzói og að lokinni Serenöðu með dáleiðandi dulúðar- hvísli í Abschied. Tímamótaverk Schönbergs ku ekki aðeins sprottið af hjónabands- örðugleikum heldur einnig af ástar- haturssambandi hans við síðróman- tík Wagners, með fyrrgreindum rót- tækum naflastrengsslitum í stíl- rænu kjölfari. Í hreinskilni sagt hreifst ég ekki beinlínis upp úr skónum við I. þátt (Mässig), en snörp tjáning II. þáttar bætti úr skák, og hélzt það áfram í III. (Litanei) og einkum í hægt dempuðum IV. þætti (Entrückcung) þar sem Marta Guðrún söng oft skýháan sópranpart við samnefnd kvæði Stefans George af tærri snilld með í þessu tilfelli nærri annarlegri en að sama skapi viðeigandi „alien“ raddgerð sinni (sbr. upphaf IV., „Ich spüre Luft aus andere Planet- en“) – er átti síðan eftir að verða e.k. aukakjörorð tónbyltingar Seinni Vínarskólans. Krefjandi „Öll voru viðfangsefni kvöldsins býsna krefjandi fyrir flytjendur, og sem endranær varð maður hlessa yfir færni hérlends kammerhóps sem ólíkt toppgrúppum heimsins getur ekki sinnt þessum ,kjarna kjarnans‘ nema í hjáverkum frá öðru,“ segir m.a. í gagnrýni um tónleika kammerhópsins Camerarctica sem hér sést. Loft frá öðrum plánetum Norðurljósum í Hörpu Kammertónleikar bbbnn Mendelssohn: Capriccio í e Op. 81,3. Penderecki: Klarínettkvartett (1993). Schönberg: Strengjakvartett nr. 2 Op. 10 (1908). Camerarctica (Marta Guðrún Halldórs- dóttir S, Ármann Helgason klar., Hildi- gunnur Halldórsdóttir & Bryndís Páls- dóttir fiðla, Svava Bernharðsdóttir víóla og Sigurður Halldórsson selló). Sunnudaginn 21. janúar kl. 17. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Mið 7/2 kl. 20:00 aukas. Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas. Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas. Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas. Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas. Allra síðustu sýningar leikársins! Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s Sun 11/2 kl. 20:00 14. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Fim 8/2 kl. 20:00 13. s Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Lau 3/2 kl. 20:00 50. s Fös 2/2 kl. 20:00 49. s Fös 9/2 kl. 20:00 51. s Draumur um eilífa ást Medea (Nýja sviðið) Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s Sun 28/1 kl. 20:00 7. s Fim 1/2 kl. 20:00 9. s Stuttur sýningatími. Allra síðustu sýningar! Lóaboratoríum (Litla sviðið.) Fös 26/1 kl. 20:00 Frums. Mið 31/1 kl. 20:00 3. s Sun 4/2 kl. 20:00 5. s Lau 27/1 kl. 20:00 2. s Fim 1/2 kl. 20:00 4. s Mið 7/2 kl. 20:00 6. s Í samvinnu við Sokkabandið. Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Allra síðustu sýningar. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 27/1 kl. 13:00 7. s Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 8. s Lau 10/2 kl. 13:00 aukas. Búðu þig undir dularfullt ferðalag! Hafið (Stóra sviðið) Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 11.sýn Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Fös 23/2 kl. 19:30 13.sýn Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 Auka Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn Fim 8/2 kl. 13:00 7.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn Fim 8/2 kl. 15:00 8.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 25/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 22:30 Fös 26/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00 Fim 15/2 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 22:30 Lau 3/2 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 20:00 Fim 8/2 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30 Lau 27/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 20:00 Fim 1/2 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30 Lau 17/2 kl. 22:30 Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00 Sun 18/2 kl. 21:00 Konudagur Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.