Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 1
F I M M T U D A G U R 8. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 33. tölublað 106. árgangur
SKYLDA HVERS
HÖNNUÐAR AÐ
BRJÓTA REGLUR
LEIKGLEÐIN
RÆÐUR RÍKJUM
SJÁ FLEIRI
TÆKIFÆRI Á
ATLANTSHAFI
Í SKUGGA SVEINS bbbbm 39 VIÐSKIPTAMOGGINNVERSACE 12
Ánægja skein af hverju andliti í Íþróttahúsinu í
Strandgötu í Hafnarfirði í gærkvöldi þar sem
slegið hafði verið upp balli fyrir nemendur í
grunnskólum bæjarins. Var það liður í Grunn-
skólahátíðinni sem félagsmiðstöðvarnar og skól-
arnir standa fyrir á hverju ári. Á ballinu komu
fram vinsælar hljómsveitir auk sigurvegaranna
úr Söngkeppni Hafnarfjarðar, Rakelar Söru Sig-
þórsdóttur og Unnar Elínar Sigursteinsdóttur.
Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Hari
Glaumur og gleði í Íþróttahúsinu í Strandgötu
„Utanríkisráðuneytið þarf að grípa
inn í með meira afgerandi hætti en
það hefur gert,“ segir Páll Krist-
jánsson, lögmaður Sunnu Elviru
Þorkelsdóttur, sem liggur lömuð á
sjúkrahúsi á Malaga á Spáni eftir
fall þann 19. janúar.
Páll segir að spænskur lögmaður
Sunnu leiti nú allra leiða til að hún
fái viðeigandi læknishjálp. Hann
segir að þær aðstæður og sú læknis-
hjálp sem Sunna fær nú sé í engu
samræmi við alvarleika áverka
hennar, en hún skaðaðist á mænu.
Hún liggi á sjúkrahúsi með lág-
marksþjónustu, hálfgerðri heilsu-
gæslu, þar sem hún fái ekki meðferð
við hæfi. »4
Sunna fái
viðeigandi
læknishjálp
Í nýju verðmati sem unnið var af
Capacent er verðmæti Arion banka
metið á ríflega 194 milljarða króna.
Er það töluvert hærra mat en ligg-
ur til grundvallar því tilboði sem
Kaupskil, stærsti eigandi bankans,
hafa gert íslenskum lífeyrissjóðum
í þeirri viðleitni að fá þá í eig-
endahóp hans. Í sama verðmati eru
vaxtarmöguleikar bankans sagðir
hverfandi á komandi árum.
»ViðskiptaMogginn
Telja Arion banka
194 milljarða virði
Capacent hefur verðmetið Arion.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Íslenskir lífeyrissjóðir veittu tæp-
lega 139 milljarða í formi nýrra út-
lána til sjóðfélaga á árinu 2017. Nam
vöxtur þeirra frá fyrra ári 57% en ár-
ið 2016 lánuðu sjóðirnir 88,6 millj-
arða. Sé horft aftur til ársins 2015
hafa lánveitingarnar hins vegar
meira en fimmfaldast. Þá námu nýj-
ar lánveitingar aðeins 21,7 milljörð-
um króna. Þetta kemur fram í nýjum
tölum frá Seðlabanka Íslands.
Raunar er útlánaaukningin slík að
á síðasta ári var umfangið jafn mikið
og samanlögð útlán sjóðanna á ára-
bilinu 2012 til 2016.
Langmest í verðtryggðu
Langstærstur hluti lánanna er
veittur í formi verðtryggðra lána eða
70,6%, eða 97,6 milljarðar króna.
Nokkrir sjóðir hafa þó frá árinu 2016
boðið upp á óverðtryggð lán og nam
hlutdeild þeirra í nýjum útlánum
tæplega 29,4% í fyrra, eða 40,7 millj-
örðum króna.
Lánveitingum sjóðanna fjölgar
mikið samhliða útlánavextinum í
krónum talið. Þannig var fjöldi
þeirra ríflega 7.600 í fyrra, saman-
borið við ríflega 5.600 árið á undan.
Sé rýnt í meðalfjárhæð hverrar lán-
veitingar kemur í ljós að þar þokast
hlutirnir einnig upp á við. Þannig
nam meðallánveitingin í fyrra 18,2
milljónum króna. Árið á undan var
meðalfjárhæðin 15,7 milljónir. Vöxt-
urinn milli ára nemur því 15,8%.
Aldrei lánað jafn mikið
Lífeyrissjóðirnir veittu sjóðfélögum lán fyrir tæpa 139 milljarða króna á síðasta ári
Lánveitingarnar jukust um 57% milli ára Hlutfall lána af eignum komið í 8,6%
MLánuðu jafn »ViðskiptaMogginn
Hlutfallið eykst
» Í lok síðasta árs voru útlán
sjóðanna 8,6% af heildar-
eignum þeirra.
» Hlutfallið var ekki nema
5,2% í nóvember 2015.
» Í lok árs 2017 námu heildar-
eignirnar 3.900 milljörðum og
hafa aldrei verið meiri.
Sala á tómötum jókst á nýliðnu
ári, þó þannig að innflutningur
jókst um 23% en innlend fram-
leiðsla minnkaði um 10%. Er nú svo
komið að meirihluti tómatanna sem
hér eru á markaði er innfluttur.
Vegna minni sölu og ef til vill lækk-
andi verðs dróst söluandvirði inn-
lendrar tómataframleiðslu saman
um 84 milljónir króna. Innflutn-
ingur á ýmsum öðum tegundum
grænmetis og sérstaklega berjum
jókst stórlega á síðasta ári. »6
Meirihluti tómat-
anna fluttur inn
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504