Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Wind
gólflampi
Fan
gólflampi
Copenhagen
borðlampi
Pipe
borðlampi
Nokkrar sviptingar urðu
þegar tilnefnt var að nýju til
kjörs vígslubiskups í Skál-
holtsumdæmi. Séra Eiríkur
Jóhannsson í Háteigskirkju
fékk flestar tilnefningar, 51,
séra Kristján Björnsson á
Eyrarbakka fékk 44 tilnefn-
ingr og séra Axel Árnason
Njarðvík, héraðsprestur í
Suðurprófastsdæmi, varð í
þriðja sæti. Kosið verður á
milli þessara þriggja í marsmánuði.
Þegar kosningaferli við vígslu-
biskupkjör hófst á síðasta ári fékk
Kristján flestar tilnefningar, 54 tals-
ins, Eiríkur fékk 45 og Axel 35.
Kristján fær því 10 tilnefningum
færra nú en bæði Eiríkur og Axel
bæta sinn hlut. Ákveðið var að end-
urtaka tilnefningar og kjörið frá
grunni vegna þess að ekki voru allir
kjörmenn réttkjörnir.
Rétt til tilnefninga höfðu 136 vígð-
ir menn og nýttu aðeins 93 þeirra
rétt sinn, 15 færri en á síðasta ári.
Alls voru 42 einstaklingar til-
nefndir. Næstur á eftir þeim
þremur efstu sem kosið
verður um varð Jón Helgi
Þórarinsson með 26 tilnefn-
ingar. Hann nær því ekki inn
í hóp þeirra efstu, ekki frek-
ar en síðast. Guðrún Karls
Helgudóttir fékk fimm til-
nefningar.
Kjörið í mars
Vígslubiskup verður kjörinn í
póstkosningu sem stendur frá 9. til
21. mars. Leikmenn úr sóknum
landsins hafa atkvæðisrétt auk
vígðra manna í þjóðkirkjunni og eru
leikmenn í meirihluta.
helgi@mbl.is
Séra Eiríkur fékk flestar til-
nefningar til vígslubiskupskjörs
Sömu prestar fengu flestar tilnefningar Tilfærsla á milli
Eiríkur
Jóhannsson
Axel
Árnason
Kristján
Björnsson
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Mér sýnist að óbreyttu stefna í tvö
framboð sjálfstæðismanna í Vest-
mannaeyjum, en ég trúi því að hægt
verði að leysa málið með þeim hætti
að þeir gangi ekki klofnir til kosn-
inga í vor,“ segir Páll Magnússon al-
þingismaður, fyrsti þingmaður
flokksins á Suðurlandi, um klofning-
inn í röðum sjálfstæðismanna, sem
Morgunblaðið greindi frá í gær.
„Ég vona að það finnist farsæl
lausn á deilunni, það væri leitt ef allt
þetta góða fólk byði ekki fram undir
nafni Sjálfstæðisflokksins,“ segir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
þingmaður og ritari flokksins, sem
situr í miðstjórn hans. Bæði voru
sammála um að ekki væri um mál-
efnaágreining að ræða heldur deilu
um aðferð við val á framboðslistann.
Sl. 28 ár hefur verið stillt upp á lista,
en ýmsir vilja nú breyta til og halda
prófkjör í staðinn.
Í skipulagsreglum flokksins segir:
„Flokksbundnum sjálfstæðismönn-
um er með öllu óheimilt að sitja á
framboðslistum annarra framboða
sem bjóða fram gegn framboðslista
Sjálfstæðisflokksins. Sitji flokks-
bundinn einstaklingur á öðrum
framboðslista skal hann fjarlægður
úr flokksskrá.“ Jafnframt segir þar
að um framboð flokksins til sveitar-
stjórnarkosninga gildi að framboð
skuli ákveðin af fulltrúaráði og að við
uppstillingu geti ráðið aðeins sam-
þykkt einn framboðslista í senn.
„Sýnist að óbreyttu stefna í tvö framboð“
Forystumenn í Sjálfstæðisflokki vonast eftir lausn deilna í Vestmannaeyjum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég náði að losa
mig við nánast öll
málin mín þegar
ég settist á þing
en þetta var eitt
af þeim málum
sem var bara
málflutningur
eftir í,“ segir
Helga Vala
Helgadóttir, al-
þingismaður og
formaður stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar Alþingis.
Helga Vala starfaði sem lögmaður
um árabil áður en hún settist á þing í
lok síðasta árs. Það vakti hins vegar
athygli margra að Helga Vala flutti
mál fyrir héraðsdómi í liðinni viku.
Hún segir framboð sitt hafi borið
brátt að og ekki hafi verið sjálfsagt
að koma öllum málum yfir á aðra.
„Ég hef verið í málaflokkum sem
eru mjög viðkvæmir. Þegar maður
tekur að sér svona verkefni þá er
misviðkvæmt að vísa þeim áfram. Í
þessu tilviki átti bara eftir að flytja
málið. Það tók einn föstudagseft-
irmiðdag. Þá var ekki nefnd að
störfum og ekki þingfundur svo ég
gat sinnt því. Ég reyndar óskaði sér-
staklega eftir því að þessi tími yrði
fundinn svo ég gæti flutt málið
sjálf.“
Mun ekki sinna lögmennsku
Finnst þér það fara saman að sitja
á þingi og flytja mál fyrir dóm-
stólum?
„Nei, það finnst mér ekki fara
saman. Þess vegna tók ég þá ákvörð-
un að ég mun ekki sinna lög-
mennsku meðfram þingstörfum. Ég
vona að fólk sýni því skilning að um-
rætt mál var sérstaklega viðkvæmt
og var komið á leiðarenda.
Ég spurði reyndar kollega minn,
Brynjar Níelsson, hvernig þetta
hefði verið þegar hann settist á þing.
Hann sagðist hafa flutt mál með-
fram þingstörfum í tvö ár. En al-
mennt séð finnst mér það ekki fara
saman. Fyrir utan að mér hefur
sýnst þingmennskan vera meira en
fullt starf. Ég veit ekki hvenær mað-
ur ætti að finna tíma til að sinna lög-
mennsku.“
Þingmað-
ur í mál-
flutningi
Helga Vala
Helgadóttir flutti
mál fyrir héraðsdómi
Helga Vala
Helgadóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
Höskuldur Daði Magnússon
Segja má að fyrstu tónarnir fyrir borgarstjórnar-
kosningar í vor hafi verið slegnir í gærkvöldi þegar
væntanlegir oddvitar Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
ingar kynntu stefnu sína og viðhorf á íbúafundum.
Samgöngumál og þörf á nýjum áherslum í hús-
næðismálum voru efst á baugi í umræðum á fjöl-
mennum fundi sem Eyþór Arnalds, væntanlegur
oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hélt í skála
Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti. Þar kynnti
frambjóðandinn stefnu sína og gagnrýndi meðal
annars að götur borgarinnar væru ekki gerðar
greiðfærari, heldur þvert á móti. Fjölfarnar götur,
svo sem Hofsvallagata og Grensásvegur, hefðu ver-
ið þrengdar – sem ásamt öðru væri þess valdandi
að ferðatími fólks sem um bæinn færi væri orðinn
40% lengri en var fyrir fjórum árum. Þessu yrði að
breyta með nauðsynlegum framkvæmdum – svo
sem mislægum gatnamótum – og í máli fundar-
manna komu fram eindregnar óskir um úrbætur á
þeim nótum. Borgarlínan væri ekki það ágæti sem
af væri látið.
„Ég vil minnka umfang stjórnkerfisins í borginni
og gera það skilvirkara með styttri boðleiðum.
Núna má sjá miklar brotalamir í þessu kerfi, sem
er komið úr tengslum við fólkið í borginni og því eru
rangar ákvarðanir teknar,“ sagði Eyþór um stefnu-
mál sín í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn.
Húsnæðiseklu segir hann ráða því að margir hafi
yfirgefið Reykjavík og flutt í nágrannasveitar-
félögin og við því yrði að bregðast, þannig að fólk
gæti flutt aftur í borgina.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti
Samfylkingar, boðaði á sama tíma til opins íbúa-
fundar í Laugalækjarskóla. Fundurinn var vel sótt-
ur. Þar fór hann yfir helstu starfsemi í hverfinu í
kringum Laugardal, það sem hefði áunnist síðustu
ár og það sem hann vildi að gert yrði í framtíðinni.
Meðal þeirra hugmynda sem Dagur viðraði voru að
byggt yrði við stúkuna í Laugardalslaug og þar yrði
til bóksasafn og menningarmiðstöð. Þá talaði hann
fyrir því að náttúruhús myndi rísa í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum.
Oddvitarnir kynna áherslur
Eyþór Arnalds og
Dagur B. Eggertsson töl-
uðu á opnum íbúafundum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússson
Fundur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hélt opinn íbúafund í Laugalækjarskóla í gærkvöld.
Morgunblaðið/Hari
Íbúafundur Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna, talaði á íbúafundi í Golfskála GR í Grafarholti.