Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur birt fyrirkall í Lögbirtingablaðinu þar sem nafngreindur maður er kvaddur til að mæta í Héraðsdóm Suðurlands 8. mars næstkomandi. Í ákærunni er að finna eina lengstu setningu sem sést hefur á prenti í langan tíma. Hún er svona: Lögreglustjórinn á Suðurlandi gjörir kunnugt: „Að höfða ber saka- mál fyrir Héraðsdómi Suðurlands á hendur NN, óstaðsettur í hús, Kópa- vogi, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi laugardagsins 11. febrúar 2017, ekið torfærutækinu SO-869, sem er torfæruhjól IV, án þess að hafa gild ökuréttindi, án þess að nota viðurkenndan hlífðarhjálm, án þess að hafa ökuljós tendruð á ökutækinu þrátt fyrir að myrkur væri og óhæfur til að stjórna öku- tækinu örugglega vegna áhrifa met- ýlfenídats og tetrahýdrókanna- bínólsýru, austur Suðurlandsveg við Varmadal skammt austan við Hellu í Rangárþingi ytra, og fyrir að hafa umrætt sinn virt að vettugi fyrir- mæli lögreglu um að stöðva akstur ökutækisins heldur ekið áfram aust- ur Suðurlandsveg undan lögreglu í gegnum Hvolsvöll og þar framhjá vegartálma sem lögregla hafði sett upp og áfram austur Suðurlandsveg uns lögregla stöðvaði aksturinn á Suðurlandsvegi skammt vestan við Markarfljót í Rangárþingi eystra.“ Í fyrirkallinu er ákærði kvaddur fyrir dóm til að hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki ákærði ekki þing megi hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann við- urkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður á málið að honum fjar- stöddum. Ók framhjá vegar- tálma á torfæruhjóli  Lögreglan auglýsir eftir ökumanninum í Lögbirtingablaðinu Morgunblaðið/Ingó Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Sjúk ást“ nefnist átak Stígamóta gegn ofbeldi í unglingasamböndum sem hleypt var af stokkunum form- lega í gær í Kvennaskólanum í Reykjavík. Af því tilefni var vefsíðan sjukast.is opnuð en þar er að finna fjölbreytt fræðsluefni fyrir ungt fólk frá 13 til 20 ára. Á vefsíðunni gefst m.a. kostur á að undirrita nafn sitt í í ákall, eða áskorun, til mennamálaráðherra um bætta kynfræðslu í skólum. „Við undirrituð skorum á mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir öflugri og markvissri kyn- fræðslu á öllum skólastigum. Við viljum að öll börn og ungmenni fái fræðslu um samskipti, mörk og of- beldi í kynfræðslu,“ segir í inngangi ákallsins. „Kveikjan að þessu verkefni er sú að til okkar kemur margt ungt fólk, aðallega konur, sem hafa verið í of- beldissambandi á unglingsaldri þar sem alvarlegt andlegt og kynferð- islegt ofbeldi átti sér stað,“ segir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnastýra Stígamóta, við mbl.is. Hún bendir á að þessar konur leiti yfirleitt til Stígamóta vegna annarra ofbeldisbrota sem þær hafa orðið fyrir. Þegar þær koma þangað eru þær oft með miklar afleiðingar af þessu sambandi sem þær voru í en eru enn á þeim stað að álíta að þetta hafi allt verið eðlilegt. Þær telja að svona hafi þetta átt að vera og segja oft að þær hafi ekki átt neitt betra skilið. Mynstur í viðtölum við konur „Þegar við sjáum svona mynstur í viðtölunum finnst okkur við bera skyldu til að miðla þessu efni til ald- urshópsins,“ segir Steinunn. Hún segir mikilvægt að fólk horfist í augu við að krakkar á þessum aldri eru farnir að prófa og upplifa alls konar. Þess vegna má ekki afgreiða ofbeldi í unglingasamböndum eins og það hafi verið í lagi því „þetta voru bara unglingar“, að sögn Steinunnar. Þessar konur eigi það sameiginlegt að á þessum tíma hafi þær ekki verið með neinar upplýsingar um til dæm- is andlegt ofbeldi. Þær könnuðust við heimilisofbeldi en töldu að það ætti eingöngu við um fullorðið fólk. Steinunn bendir á að í skóla hafi þær vissulega fengið fræðslu til dæmis í kynfræðslu sem snerist að mestu um að forðast kynsjúkdóma en ekki um samskipti í samböndum og kynlífi. Á heimasíðunni sjukast.is er að finna fjölbreyttar upplýsingar um heilbrigð og óheilbrigð sambönd, hvað teljist til andlegs ofbeldis eins og sjúkleg afbrýðisemi, um stjórnun, eignarhald, mörk, samþykki, virð- ingu og traust svo fátt sé nefnt. Á næstunni verða 10 framhalds- skólar heimsóttir og þeir fá kynn- ingu á efninu. Nemendurnir sjálfir taka einnig virkan þátt í að kynna það. Átak gegn ofbeldi í samböndum  Nemendur Kvennaskólans standa að átaki ásamt Stígamótum  Áskorun til menntamálaráðherra Morgunblaðið/Eggert Átak Frá blaðamannafundi Stígamóta og nemenda Kvennaskólans í gær. Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Verjandi Kára Sturlusonar krafðist frávísunar þegar staðfestingarmál sem tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa höfðaði vegna kyrrsetningar á eignum Kára var tekið fyrir í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Mál- flutningur vegna frávísunarkröf- unnar fer fram 19. febrúar. Einhverjar eignir Kára hafa þeg- ar verið kyrrsettar, en höfða þarf staðfestingarmál til að fá kyrrsetn- inguna staðfesta. Harpa og Sigur Rós riftu samn- ingum við félagið KS Productions, sem er í eigu Kára, í nóvember vegna tónleikahalds hljómsveit- arinnar í desember. Farið var fram á kyrrsetningu á eignum Kára og honum stefnt til greiðslu á 35 milljónum króna. Verjandi Kára krafðist frávísunar Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.