Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 12

Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 12
AFP Tíska Versace með ofurfyrirsætum 10. áratugarins í lok sýningar sinnar á Ritz-hótelinu í París í janúar 1997 þar sem hann kynnti vor- og sumarlínuna. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Aðrir tískuhönnuðir hannaföt á glæsikvendi og fág-aðar konur. Ég hanna fötá dræsur.“ Þetta er haft eftir ítalska tísku- hönnuðinum Gianni Versace, einum mest umtalaða og mest áberandi hönnuði heims á 9. og 10. áratugn- um. Rúmum 20 árum eftir að hann var myrtur í júlí 1997 er hann enn á ný kominn í heimsfréttirnar og það er vegna nýrra sjónvarpsþátta um andlát hans. Í þáttunum, sem nú eru sýndir víða og hafa fengið góðar viðtökur, þykir nýju ljósi vera brugðið á manninn sem á sínum tíma þótti holdgervingur munaðar og óhófs og lífsstíls þeirra nýríku og svipleg örlög hans. Fjöldamorðinginn Andrew Cunanan myrti Versace fyrir fram- an glæsihýsi hans við ströndina á Miami í Flórída að morgni hins 15. júlí 1997. Versace var þá fimmtugur að aldri. Morðið vakti óhug, hann var syrgður víða um heim og við út- för hans var fjöldi frægðarfólks eins og t.d. söngvarinn Elton John, allar helstu ofurfyrirsætur 10. áratugar- ins, Alberto Tomba, skærasta skíða- stjarna heim á þessum tíma, og Díana prinsessa, sem var mikill aðdáandi hönnunar Versaces, en hann nefndi m.a. handtösku í höfuðið á henni. Skærir litir og ögrandi snið Gianni Maria Versace fæddist í héraðinu Reggio Calabria á Ítalíu ár- ið 1946. Ungur varð hann lærlingur hjá móður sinni, sem rak sauma- stofu, hann ákvað fljótt að leggja fyrir sig fatahönnun og kynnti sína fyrstu línu árið 1978. Sama ár opnaði hann fyrstu verslun sína, það var á Via della Spiga, þeirri heimsfrægu verslunargötu í Mílanó, og hann varð samstundis geysivinsæll hjá þeim ríku og frægu. Skærir litir, skrautleg mynstur og ögrandi snið ein- kenndu hönnun hans sem þótti hressandi tilbreyt- ing og stakk í stúf við fremur dauf- lega tísku þessa tíma. Reyndar voru viðtökurnar misjafnar eins og gengur og hann var frá fyrstu tíð gagnrýndur fyrir ofuráherslu á kynþokkann. Til marks um það eru ummæli sem við- höfð voru um Versace og Giorgio Armani sem á þessum tíma var einn fremsti hönnuður heims. Sagt var um þá tvo að Armani hannaði föt á eiginkonuna en Versace á hjá- konuna. Sjálfur sagði Versace að það væri skylda hvers hönnuðar að brjóta reglur og fara yfir mörkin. Fjölskyldufyrirtæki Versace lagði alla tíð mikla áherslu á uppruna sinn og gerði menningu Rómverja og Ítalíu til forna hátt undir höfði á margvís- legan hátt, m.a. með einkennis- merki fyrirtækisins, Medúsuhöfðinu fræga, og meðal einkenna hönnunar hans voru grísk-rómversk mynstur og ýmis slík tákn. Hann lét sér ekki nægja að hanna föt, hann hannaði bæði skartgripi og hús- búnað og búninga fyrir leiksýn- ingar og kvik- myndir. Allt frá byrjun voru systkini hans, bróðirinn Santo og syst- irin Donatella, hans nánustu samstarfsmenn. Við andlát Ver- saces varð Santo forstjóri og Dona- tella yfirhönnuður, síðar fékk hún titilinn aðstoðarforstjóri. 50% eign- arhlutur í fyrirtækjunum rann til Allegru, dóttur Donatellu, sem hef- ur reyndar haft lítil afskipti af rekstrinum. Á þeim rúmu 20 árum sem þau Donatella og Santo hafa setið við stjórnvölinn hefur fyrirtækið farið í gegnum ýmsa öldudali en undanfarin ár hefur hagur þess vænkast, nú eru reknar um 200 verslanir undir nafni Versaces víða um heim, rekin eru tvö lúxushótel í nafni fyrirtækisins og það þriðja er í undirbúningi. Fyrirtækið var í fyrra metið á um 5,8 milljarða bandaríkjadollara, samkvæmt frétt bandaríska viðskiptatímaritsins Hannaði föt á dræsur og hjáko Í nýjum sjónvarpsþáttum er nýju ljósi varpað á líf og sviplegt fráfall ítalska fatahönnuðarins Giann- is Versaces sem myrtur var fyrir rúmum 20 ár- um. Hann þótti fara ótroðnar slóðir í hönnun sinni og lét eftir sig stór- veldi sem systkini hans hafa stýrt með röggsemi. Sjálfur sagði hann að það væri skylda hvers hönnuðar að brjóta regl- ur og fara yfir mörkin. AFP Systirin Donatella er aðstoðarfor- stjóri Versace-veldisins. Taska Hönnun Giannis Versaces. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Hrund Þórarins Ingudóttir, lektor við uppeldis- og menntunarfræðideild, og Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófess- or við sömu deild, halda erindi um uppeldishætti kl. 17-18.30 í dag, fimmtudaginn 8. febrúar, á Háskóla- torgi. Yfirskrift erindisins er Ræðum í stað þess að rífast – mikilvægi sam- skipta fyrir þroska barna og ung- linga. Í erindinu fjalla þær um uppeldis- hætti foreldra en fjöldi rannsókna bendir til að leiðandi uppeldishættir séu heillavænlegir við að efla þroska og velferð barna og ungmenna. Rætt verður um samskipti foreldra og barna, mikilvægi samveru og sam- ræðna og uppeldissýn foreldra og gefin góð ráð þar að lútandi. Fund- urinn er í fyrirlestraröðinni Háskólinn og samfélagið. Viðfangsefnin verða af ýmsum toga en eiga það sameig- inlegt að hafa verið áberandi í sam- félagsumræðunni síðustu misseri. Í fyrstu fræðslufundaröðinni, sem ber heitið Best fyrir börnin, verður vel- ferð barna og ungmenna í brenni- depli. Opið hús og allir velkomnir. Háskólinn og samfélagið – fyrirlestraröð Ræðum í stað þess að rífast Fyrirlesarar Sigrún Arinbjarnar- dóttir og Hrund Þórarins Ingudóttir. Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is Að vera í brjóstahaldara í réttri stærð skiptir miklu máli, gefðu þér tíma, við erum á Laugavegi 178 Misty Mundu mig, ég man þig. Haldari 7.650 kr. Buxur 2.650 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.