Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Fyrsta keppnin í áhugamannadeild Spretts, Equsana-deildinni 2018, fer fram í Samskipahöll Spretts í kvöld. Keppt verður í fjórgangi. Þetta er fjórða árið sem keppt er í mótaröðinni. „Hún er búin að festa sig í sessi. Aðsóknin er alltaf að aukast. Við vorum með tólf lið í upp- hafi en aðsóknin er svo mikil að við höfum fjölgað liðum,“ segir Linda Gunnlaugsdóttir, formaður stjórnar áhugamannadeildar. Þau þrjú lið sem fá fæst stig í keppninni hvert ár falla út og er dregið úr umsóknum um sætin. Að þessu sinni sóttu níu lið um og var ákveðið að draga um fjögur sæti. Eru liðin því orðin 16. Markmið deildarinnar var að skapa svipaðan vettvang fyrir áhuga- menn og meistaradeildin er fyrir at- vinnumenn. Skapa verkefni fyrir þá yfir veturinn. Linda segir að reynslan sýni að þörfin hafi verið mikil. Aukinn áhugi skili sér í keppnislöngun hjá áhugamönnum og komi fram meðal annars í því að fleiri knapar skrái sig til leiks í mótum á vorin og sumrin, ekki síst í fimmgangi. Keppnin fer fram á fjórum kvöld- um, á hálfsmánaðar fresti, í febrúar og mars. helgi@mbl.is Áhuga- manna- deild hefst Áhugamenn Sigurvegarar greina fá eigulega verðlaunagripi.  Keppt í fjórgangi hjá Spretti í kvöld Miðflokkurinn auglýsir nú eft- ir áhugasömu fólki á fram- boðslista fyrir borgar- stjórnarkosn- ingarnar í Reykjavík í vor. Stjórn Miðflokksfélagsins í Reykjavík hefur tekið ákvörðun um að stillt verði upp á listann fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí. Eru þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér vinsamlegast beðn- ir að senda upplýsingar á reykja- vik@miðflokkurinn.is. Lokafrestur til að skila inn framboðum er til kl. 12 laugardaginn 17. febrúar nk. Viku síðar áætlar Miðflokks- félagið í Reykjavík að kynna sex efstu frambjóðendur. Miðflokkurinn leitar að fólki í framboð Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Lögregluliðið hér á Akureyri er undirmannað og lítið má út af bera svo við lendum ekki í vanda, til dæmis þegar þung og tímafrek mál koma upp,“ segir Aðalsteinn Júlíusson, for- maður Lögreglufélags Eyjafjarðar. Í ályktun aðalfundar félagsins sem haldinn var í vikunni er lýst áhyggjum af því hve fálið- uð Akureyrarlögreglan sé og í of ríkum mæli sé við störf fólk sem ekki hefur formlega lög- reglumenntun. Staðan sé ekki boðleg og bæta þurfi úr. Á Akureyri eru vaktirnar fjórar og fimm menn á hverri þeirra. Viðmiðið er þá að úti á götunum við eftirlit og í útköllum geti verið fjórir lögreglumenn á tveimur bílum og svo varðstjóri á stöðinni. „Þetta er algjört lág- mark,“ segir Aðalsteinn. „Við þyrftum að vera sjö á hverri vakt og bílarnir þrír, enda er það krafan og allar óskir um fjárveitingar miðast við þetta. Eins og staðan er núna getum við sáralítið farið út fyrir bæinn, til dæmis í um- ferðareftirlit sem þó væri nauðsynlegt.“ Aðalsteinn segir þess vænst að fjölgað verði fljótlega í liðinu um þrjá menn: fari væntanlega einn í rannsóknadeild og tveir í almenna lög- gæslu. „Það er frábært að fá viðbót en á málinu eru ýmsar hliðar. Með þeirri breytingu að Lög- regluskóli ríkisins var lagður niður og námið fært til Háskólans á Akureyri datt út einn ár- gangur brautskráðra lögreglumanna, sem gjarnan taldi 40 til 50 manns. Þá hefur verið talsvert um að fólk með menntun hætti og snúi sér að öðrum störfum og betur launuðum,“ segir Aðalsteinn. „Því er hægara sagt en gert að fá menntaða lögreglumenn til starfa – og ómenntuðu fólki í stéttinni eru ýmis takmörk sett um hvaða verkefnum það megi sinna og slíkt. Hærri laun og fjölgun þeirra sem teknir eru í námið er því mjög mikilvæg.“ Til skamms tíma hafa á Akureyri verið fjórir sérsveitarmenn lögreglu, en nú aðeins einn. Því segir Aðalsteinn að bregðast þurfi við; sér- sveitin hafi verið nauðsynlegt bakland fyrir hina almennu löggæslu þegar upp komu erfið mál, svo sem afskipti af vopnuðu fólki eða háskalegar aðstæður. “ sbs@mbl.is Lítið má út af bera hjá lögreglu nyrðra  Fáliðaðar vaktir og bæta þarf við  Sjö menn verði á útkallsvakt á Akureyri Morgunblaðið/Sigurður Bogi Akureyri Lögreglustöðin við Þórunnarstræti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.