Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018
Mike Pence, varaforseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær að stjórnvöld í
Washington hygðust leggja á
„hörðustu refsiaðgerðir sögunnar“
gegn Norður-Kóreumönnum. Þá
strengdi hann þess heit að stjórn-
völd í Norður-Kóreu myndu ekki
fá að „hertaka“ Vetrarólympíuleik-
ana í áróðursskyni, en opnunarhá-
tíð leikanna fer fram á föstudag-
inn.
Pence lét ummæli sín falla í til-
efni af þriggja daga heimsókn sinni
til Japans, sem ætlað er að styrkja
tengslin á milli Bandaríkjanna og
„Hörðustu aðgerðir sögunnar“
Bandaríkjastjórn ætlar sér að herða á refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu
Japansstjórnar og tryggja sam-
stöðu þeirra gegn kjarnorkuvopna-
áætlun Norður-Kóreumanna. Ekki
kom fram í máli Pence hvers eðlis
hinar hertu refsiaðgerðir yrðu.
Shinzo Abe, forsætisráðherra
Japans, tók undir með Pence og
sagði að ríkin tvö hefðu sammælst
um að það væri engin leið fyrir þau
að sætta sig við kjarnorkuvopna-
vædda Norður-Kóreu.
„Ég kann að meta þann árangur
sem náðist í samtali Norður- og
Suður-Kóreu varðandi Vetraról-
ympíuleikana. Á hinn bóginn þurf-
um við að horfast í augu við þá
staðreynd að Norður-Kóreumenn
halda enn áfram að þróa kjarn-
orkuvopn og eldflaugar,“ sagði
Abe. Sagði hann að Bandaríkin og
Japan myndu ennfremur hvetja
önnur ríki til þess að láta ekki
glepjast af smjaðri Norður-Kóreu-
manna.
Minna á mannréttindabrot
Vísaði Abe þar til þess, að Kim
Jong-un, einræðisherra Norður-
Kóreu, hefur á þessu ári slegið
mikinn sáttatón í ræðum sínum.
Pence sagði í gær að það mætti
ekki leyfa Norður-Kóreumönnum
að fela sig á bak við ímynd ólymp-
íuleikanna og minnti á að stjórn-
völd í Pyongyang hefðu gerst sek
um margvísleg mannréttindabrot,
og vilja Bandaríkjamenn minna á
þau við hvert tækifæri. Sem dæmi
um það má nefna að Pence hefur
boðið með sér á opnunarhátíð leik-
anna föður Otto Warmbier, banda-
rísks fanga sem féll í dauðadá í
haldi Norður-Kóreumanna og lést
stuttu eftir að hann var látinn laus.
sgs@mbl.is
SpaceX-fyrirtækið náði að skjóta á
loft öflugustu eldflaug sem gerð
hefur verið. Eldflaugin, sem nefnist
Falcon Heavy, eða Fálkinn á ís-
lensku, hafði meðferðis rauðan
sportbíl af gerðinni Tesla Roadster,
sem er í eigu Elons Musk, eiganda
SpaceX-fyrirtækisins. Var bílnum
komið fyrir á sporbaug um jörðu,
en mannhæðarhá dúkka, „stjörnu-
maður“, sat við stýrið.
Fagnað var ákaft í stjórnstöð
leiðangursins í Flórída þegar eld-
flaugin tókst á loft, en hún var knú-
in áfram af 27 hreyflum. Talið er að
skotið geti opnað á frekari ferðalög
mannkyns út í sólkerfið. AFP
Fálkanum
skotið út í
geiminn
Joe Dunford,
hershöfðingi og
yfirmaður her-
ráðs Bandaríkja-
hers, staðfesti í
gær að herinn
hefði hafið undir-
búning hersýn-
ingar eftir að
Donald Trump
Bandaríkja-
forseti fyrirskipaði að efnt yrði til
slíkrar sýningar.
Beiðni Trumps hefur mælst mis-
jafnlega fyrir þar sem hersýningar
eru fátíðar í Bandaríkjunum. Var
slík sýning síðast haldin árið 1991 í
kjölfar Flóabardaga. Segja úrtölu-
menn hugmynd Trumps vera sóun
á fjármagni og tíma Bandaríkja-
hers.
Hersýning haldin
að beiðni Trumps
Donald Trump
BANDARÍKIN
Sýrlenski stjórnarherinn er sagður
hafa fellt 32 óbreytta borgara í
árásum sínum í gær er hann gerði
harða hríð að svæðum uppreisnar-
manna í Austur-Ghouta. Komu
árásirnar í kjölfar harðra loftárása
á þriðjudaginn þar sem 80 manns
létu lífið.
Samkvæmt samtökunum Syrian
Observatory for Human Rights
voru tólf börn á meðal þeirra sem
féllu í árásunum í gær. Er þetta
mesta mannfall í sýrlenska borg-
arastríðinu í nærri níu mánuði.
Meira en 340.000 manns hafa
fallið síðan átökin í Sýrlandi hófust
fyrir tæpum sjö árum.
Rúmlega hundrað
fallnir í Ghouta
SÝRLAND
TORMEK Brýnsluvélar
s Tormek T-4
Verð 56.980
s Tormek T-8
Verð 98.800
Allar stýringar fyrirliggjandi
Verslunin Brynja er umboðs-
aðili TORMEK á Íslandi
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
SVX-150:
Skærastýring
Verð 5.780
HTK-706:
Aukahlutasett fyrir hnífa, skæri o.fl.
Verð 21.950
TNT-708:
Aukahlutasett fyrir rennismiðinn
Verð 34.850
SVD-186:
Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn
Verð 9.980
SVM-140:
Hnífastýring
Verð 5.630
SVM-00:
Stýring fyrir tálguhnífa
Verð 3.670
Ný
vefverslun
brynja.is