Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kristilegir demókratar, flokkur An- gelu Merkel Þýskalandskanslara, og Sósíaldemókrataflokkurinn, SPD, undirrituðu í gær nýjan stjórnar- sáttmála og standa vonir til þess að þar með sé fjögurra mánaða stjórn- arkreppu lokið í Þýskalandi. Viðræður um efni sáttmálans stóðu yfir í þrjá daga, og var þeim ekki lokið fyrr en snemma í gær- morgun. Sagði Merkel að hún væri vongóð um að sáttmálinn myndi tryggja þá „góðu og stöðugu ríkis- stjórn sem land okkar þarfnast og sem margir í heiminum búast við af okkur“. Þetta er lengsta stjórnarkreppa í Þýskalandi frá stríðslokum og viður- kenndi Merkel að viðræðurnar hefðu verið langar og erfiðar. Þurfti hún að gefa nokkuð eftir af stefnumálum sínum gagnvart SPD til þess að tryggja samstarfið. Þannig náði Martin Schulz, leiðtogi SPD, að tryggja flokki sínum bæði fjármála- og utanríkisráðuneytið, auk þess sem ráðuneyti atvinnumála, fjöl- skyldumála, dómsmála og umhverf- ismála fara til flokksins. Merkel sagðist þó telja að eftirgjöfin hefði verið þess virði, svo mynda mætti ríkisstjórn. Samþykki flokksmanna eftir Ekki er þó sopið kálið þó í ausuna sé komið, því að nú þarf að leggja stjórnarsáttmálann fram til synjun- ar eða samþykkis meðal almennra flokksmanna í SPD. Fer atkvæða- greiðslan fram í póstkosningu og eru um 460.000 manns með atkvæðisrétt í henni. Vitað er að vinstrisinnar inn- an flokksins hafa tekið höndum sam- an við ungliðahreyfingu flokksins í þeirri von að þeim megi takast að fella sáttmálann. Atkvæðagreiðsla SPD hefur þeg- ar verið gagnrýnd, meðal annars vegna um 24.000 nýskráninga í flokkinn í aðdraganda atkvæða- greiðslunnar, og hafa verið höfðuð mál fyrir stjórnlagadómstól Þýska- lands um lögmæti þess að leyfa hin- um nýju meðlimum, sem sumir eru ekki eldri en 14 ára, að greiða at- kvæði um stjórnarsáttmálann. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar munu liggja fyrir í síðasta lagi í byrj- un marsmánaðar. Þykir tvísýnt um úrslit, sér í lagi þar sem einungis um 56% fulltrúa flokksins samþykktu að hefja viðræður við Kristilega demó- krata á flokksþingi SPD sem haldið var í janúar. Fari svo að sáttmálinn verði felldur er líklegt að Merkel muni þurfa að leiða minnihlutastjórn og jafnvel boða fljótt til nýrra þing- kosninga. Ná saman um ríkisstjórn  Enn er eftir að leggja sáttmálann fyrir almenna flokksmenn SDP  Ungliðar reyna að bregða fæti fyrir stjórnarmyndun  Merkel kanslari í fjórða sinn AFP Sáttmáli Þau Angela Merkel Þýskalandskanslari og Martin Schulz, leiðtogi SPD, ætla að mynda saman ríkisstjórn. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.