Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 ✝ Elísa GuðlaugJónsdóttir fæddist á heimili foreldra sinna, Berjanesi í Vest- mannaeyjum, 17. september 1925. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 30. janúar 2018. Foreldrar hennar voru Jón Einarsson frá Fljótakróki í Meðallandi, Vestur-Skaftafellssýslu, d. 1989, og Ólöf Friðfinnsdóttir frá Borgum í Vopnafirði, d. 1985, en þau bjuggu saman í Berjanesi. Elísa var elst fjög- urra barna, en systkini hennar eru Ragnheiður, Gunnar Sveinbjörn og Einar Þór. með honum þrjá syni; Jón Ax- el, Ólaf Ragnar, d. 2016, og Jó- hann Garðar. Guðrún Iðunn giftist Lárusi Hannessyni og eignuðust þau soninn Hannes Jón. Seinna giftist hún Sveini Kr. Péturssyni, d. 2009, og eignuðust þau soninn Gunnar Hrafn. Alls eru barnabarna- börnin fjórtán talsins. Elísa fór í barna- og gagn- fræðaskólann í Vestmannaeyj- um. Hún vann í fiskvinnslu, m.a. í Hraðfrystistöðinni, og sem afgreiðslustúlka í Kaup- félaginu og í versluninni Á horninu. Í Vestmannaeyjum söng hún í kór Barnaskólans og svo í Vestmannakórnum. Elísa var félagi í Kynningar- klúbbnum Björk, sem var fé- lagsskapur eiginkvenna húsa- smíðameistara. Einnig var Elísa virkur félagi í Inner- wheel, samtökum eiginmanna- og kvenna Rótarý-félaga. Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 8. febrúar 2018, klukkan 13. Elísa átti barnaláni að fagna. Hún átti tvær dætur, Ólöfu Jónu og Ruth Höllu, d. 2007, með Sig- urgeiri Ólafssyni frá Víðivöllum í Vestmannaeyjum, d. 2000. Árið 1948 giftist hún Jóni I. Hann- essyni og fluttist fljótlega eftir það til Reykjavíkur. Eignuðust þau eina dóttur, Guðrúnu Ið- unni. Ólöf Jóna var gift Jóni Sigurðssyni, d. 1999, og eign- aðist með honum þrjú börn; Ólaf Jón, Ásgeir og Elísu Guð- laugu. Ruth Halla var gift Ólafi Axelssyni og eignaðist „Mig dreymdi hann pabba í nótt,“ sagði amma nokkrum dögum áður en hún kvaddi. „Æ, hann var eitthvað einmana, það var eins og hann vildi fá mig til sín.“ „Og hvernig leið þér í draumnum?“ spurði ég. Þá brosti hún svo innilega og sagði undurblítt og dreymandi: „Það var eins og ég gæti flogið. Ég var alveg verkjalaus.“ Hún amma mín og alnafna var stórmerkileg kona. Hún var ekki mikið fyrir að trana sér fram eða láta á sér bera en með sínum einstaka hætti bar hún samt af. Hún var einstök hús- móðir og lagði mikla vinnu í að hafa heimilið fallegt enda eru í hverju horni fallegar hannyrðir sem amma töfraði fram. Það skipti hana öllu máli að öðrum liði vel, sérstaklega afa Jóni og var hún ósérhlífin þegar kom að því að búa þeim hjónum gott og myndarlegt heimili auk þess sem hún studdi hann í einu og öllu við að búa þeim gott og far- sælt líf í leik og starfi. Við amma vorum góðar vin- konur og áttum oft notalegar samverustundir í Haukshólun- um þar sem við fórum yfir liðinn tíma og líðandi stundu. Hún hafði mikinn húmor og oftar en ekki gátum við tvær hlegið inni- lega saman yfir litlu hlutunum. Einnig kom alltaf sérstakt blik í augun á ömmu þegar við töluð- um um eyjuna fögru í suðri, Heimaey, því þar voru hennar rætur og þar átti hún dásamleg uppvaxtarár í Berjanesinu. Seinustu mánuðir voru ömmu oft á tíðum frekar erfiðir og var hún oft verkjuð. „En við skulum ekki tala meira um það,“ sagði hún og spurði frekar frétta af barnabarnabörnunum. Hún var stolt af öllu fólkinu sínu og vildi svo mikið að öllum gengi vel og liði vel. Nú er komið að leiðar- lokum og amma fékk hvíldina löngu. Ég vil þakka af öllu hjarta fyrir allar þær góðu minningar sem gefa gleði og birtu. Blessuð sé minning ömmu Elísu. Elísa Guðlaug Jónsdóttir. Hún amma mín er farin og skilur eftir sig skarð sem aldrei verður fyllt. Minningarnar sem hún lætur eftir sig eru margar og hlýjar. Ömmur einar hafa þessa sérstöku eiginleika að geta veitt takmarkalausa og endalausa ást. Ég var var svo heppinn að geta verið mikið með ömmu og afa þegar ég var ungur. Hvort sem það var heima í Rauðagerði eða í Skorradalnum að smíða. Þegar maður lítur til baka og hugsar um góðu dagana er ekki laust við að lítið bros færist yfir andlitið. Amma var svo góð. Ömmur eru svo sérstakar. Svo yfirmáta góðar. Guð skapaði ömmur til að vera til staðar. Hann skapaði ömmu mína, þá bestu sem til var og hún var allt- af til staðar. Maður var alltaf velkominn að koma í heimsókn, gista eða leika. Þegar eitthvað bjátaði á var þess aldrei langt að bíða að sólin færi að skína aftur því amma kunni leiðir til að létta líf- ið sem engin annar kunni. Flóknum spurningum unga mannsins gat hún alltaf svarað þannig að hugarró fékkst. Hún söng til að þerra tárin og alltaf hafði hún tíma. Það var tíminn sem var dýrmætastur og alltaf var hægt að leita til hennar með flókin úrlausnarefni. Ekkert var of lítið eða of stórt fyrir ömmu. Það var alltaf vel tekið á móti skólastráknum með kostum sem kom svangur heim í Rauðagerði og amma gerði alltaf besta mat- inn. Minningarnar eru svo margar og ljúfar og þær verða ávallt vel varðveittar í hjartanu. Sama hjartanu og elskaði ömmu óend- anlega. Ástin er takmarkalaus. Hvíl í friði, amma mín. Jón Axel (Jónsi). Með nokkrum orðum viljum við systkinin minnast móður- systur okkar, hennar Elísu frænku. Bernskuheimili þeirra systra og tveggja bræðra var í Vestmannaeyjum og þangað sóttum við öll, stór og smá til afa og ömmu í Berjanesi, þar sem hlýja og glaðværð réð ríkjum. Jón og Ólöf fluttu suður eftir gos og bjuggu síðustu æviárin í lítilli íbúð hjá Elísu og Jóni í Hauks- hólum, þar sem þau nutu nær- veru og öryggis fjölskyldunnar. Sem börn heimsóttum við El- ísu frænku á Vallartröðina, það voru ekki daglegar heimsóknir enda nokkuð langt fyrir mömmu að ganga með okkur krakkana frá Háaleitinu yfir Fossvoginn meðfram skurðum og yfir mýrar í nýbyggðina í Kópavogi. Eftir því sem tímar liðu breyttust að- stæður, ný húsakynni, fjölskyld- urnar stækkuðu, erill og vinna hjá flestum og samskiptin urðu minni. Elísa var alla tíð hógvær og hélt sínu ekki á lofti, ekki heldur þeim stuðningi sem hún veitti foreldrum, fjölskyldu og kærum eiginmanni. Hún var húsmóðir af gamla tímanum, sinnti af alúð heimili, dætrum og afkomend- um auk þess sem hún sinnti góð- gerðarmálum. Samhygð og sterk fjöslkyldu- bönd voru Elísu mikill styrkur við skyndileg veikindi yngri dóttur hennar, Ruthar Höllu, og andlát hennar þungur missir og sorg sem hún bar í hljóði eins og annað. Erfið veikindi á sjúkrahúsi stóðu í skamman tíma, hugurinn var þá oft heima í Berjanesi og í Vestmannaeyjum eins og hjá henni Ragnheiði systur hennar, sem dvelur þar í huganum flesta daga. Við systkinin kveðjum góða frænku um leið og við skilum kveðju frá móður okkar með þökk fyrir ævilanga vináttu. Þuríður og Jón Rúnar Backman. Það er svo þungt að missa, tilveran er skekin á yfirþyrmandi hátt, angist fyllir hugann, örvæntingin og umkomuleysið er algjört, tómarúmið hellist yfir, tilgangsleysið virðist blasa við. Það er svo sárt að sakna en það er svo gott að gráta. Tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga sem þú einn átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið. … (Sigurbjörn Þorkelsson) „Guð, hvað þér er kalt dreng- ur. Ertu ekki svangur?“ Þetta voru orð hennar ömmu sem ég man hvað best eftir. Þau sýndu væntumþykju, umhyggju og á sama tíma mikla rökfestu, enda var sjaldan hægt að malda í mó- inn og segjast ekki vilja neitt að borða þegar frú Elísa Guðlaug átti í hlut. Út fór maður, með stútfullan maga og hálsklútinn hennar ömmu þéttbundinn um hálsinn, sem mátti svo skila við næstu heimsókn. Amma var yndisleg mann- eskja og engill í mannsmynd. Hennar hlýju faðmlög, bros hennar og hlátur, mun aldrei gleymast í minningu minni um hana. Amma setti sjálfa sig aldr- ei í fyrsta sæti og hvert sem leið mín liggur mun góðmennska hennar og kærleikur í garð náungans ætíð fylgja mér. Ég vona að mér takist að tileinka mér alla þá manngæsku sem hún amma hafði til að bera en þó er nokkuð ljóst að það verður erfitt að komast með tærnar þar sem hún hafði hælana. Hvíl í friði, elsku amma. Ég sakna þín. Þinn Gunnar Hrafn. Elísa Guðlaug Jónsdóttir Hún líður fram fyrir neðan túnfót- inn, áin sem skap- aði okkar kynni. Stríð og úfin, blíð og mild gat áin verið en um leið gefandi, rétt sem lífið. Mótandi land og lýð, skapandi endalausar um- ræður. Á hólnum fyrir ofan ána, stendur reisulegur bær, snyrti- mennsku viðbrugðið. Byggður á bjargi, á gömlum merg, átthag- ar og heimkynni húsfreyjunnar á Glitstöðum, alla tíð. Skarpskyggn mótaðist ung kona af umhverfi sínu. Nam það sem lesið var og reynt á lífsins göngu. Svipaði um margt við stráið sem bognar en bugast ekki í stormi daganna. Seiglan var í blóðinu. Líkt og hjá íslenskri náttúru, sem rétt er áborin, var upp- skera lífsins ríkuleg, viska og þekking næg. Rætur hennar sterkar er hvíldu í íslenskri mold. Sjálf var hún kletturinn sem margt byggðist á, eins og hjá honum gat yfirborðið verið ögn hrjúft þótt undir slægi gef- andi og hlýtt hjarta. Hún hafði einnig fullvissu um að hin Auður Eiríksdóttir ✝ Katrín AuðurEiríksdóttir fæddist 16. júní 1938. Hún lést 17. janúar 2018. Auður var jarð- sungin 27. janúar 2018. gömlu gildi bæru ekki innantóma merkingu. Hófsemi sem byggðist á hógværð, nægju- semi og að rækta sinn heimagarð, skipti máli. Gest- risin, en vildi frem- ur taka á móti gestum en vera gestkomandi sjálf. Nýbúinn í sveit- inni var sestur í stjórn veiði- félagsins, fyrsti fundur haldinn á Glitstöðum. Við velkomið handtakið hnýttust bönd, sem rofnuðu ekki. Hnútar bundnir sem héldu, rétt eins og tryggðin hennar við dalinn og ána. Á þessum slóðum binda menn bagga sína traust- um böndum. Ríkulega var veitt í lok fundar, ríkulegri voru ráð- in og samtölin við húsfreyju. Hún gaf, rétt sem áin, ef eftir var leitað. Skoðanir sterkar, heilræðin góð en hvorki ásak- anir né skipanir. Dillandi hlátur og fræðandi dæmisögur. Sam- tölin við húsfreyju urðu á stundum fleiri en við formann- inn. Þar voru engir sjóðir tóm- ir. Að eiga aðgang að visku- brunni og vináttu er ómetan- legt. Auði Eiríksdóttur á Glit- stöðum er þökkuð samfylgdin og tryggðaböndin sem aldrei brustu. Birna G. Konráðsdóttir. Við kynntumst Sonju fyrir rúmum 40 árum. Þá vorum við allar nemar í Ljósmæðraskóla Íslands. Síðustu 10 árin ferðuðumst við mikið saman. Upphaf þess var að við fórum allar á alþjóðlega ráð- stefnu ljósmæðra í Glasgow í maí 2008. Þaðan fórum við fjórar í dagsferð um skosku hálöndin. Þá var Sonja í essinu sínu og náði mörgum góðum myndum. Þær eru vel geymdar hjá Unni hollsystur hennar. Sonja hafði mikla ástríðu fyrir ferðalögum, bæði innanlands og utan. Við fór- um saman á Vestfirðina og vorum með aðsetur á Þingeyri. Í þeirri ferð var farið á Rauða- sand, sem var hennar paradís. Að sitja með Sonju á kaffihúsinu á Rauðasandi verður lengi í minn- um haft. Frá Melanesi gengum við að Sjöundá. Það hafði lengi verið draumur Sonju. Vel fór um okkur í hlaðvarpanum hjá Gísla á Uppsölum. Þegar við fórum til Hesteyrar lentum við í ólgusjó. Lágfóta tók þar á móti okkur og hópurinn fékk góða leiðsögn um Sonja Guðbjörg Guðjónsdóttir ✝ Sonja GuðbjörgGuðjónsdóttir fæddist 26. nóv- ember 1951. Hún lést 16. janúar 2018. Útför Sonju fór fram 25. janúar 2018. svæðið. Að því loknu var boðið upp á súpu og harmon- ikkuspil undir borð- um. Sonja naut ferðarinnar í botn. Það gerðum við líka. Ári seinna fór- um við á Strandirn- ar. Þar lentum við í miklum hrakning- um vegna veðurs. Bíllinn bilaði og fór ekki lengra. Þá kynntumst við greiðasemi tengdasonar Sonju, sem sótti bílinn og okkur. Síðustu árin komum við saman og spil- uðum brids. Þar sýndi hún spila- hæfileika sína. Fjölskyldu hennar sendum við samúðarkveðjur. Unnur, Kristborg og Ingibjörg. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Elskulegur faðir minn, afi og langafi, EMIL ÞÓRÐARSON skipstjóri, Hrafnistu, Nesvöllum, áður til heimilis að Sólvallagötu 36, Keflavík, lést föstudaginn 26. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 15. febrúar klukkan 11. Innilegar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Gerður Guðmundsdóttir Þorbjörn Emil Kjærbo Tinna Eir Kjærbo Ari Hálfdán Aðalgeirsson Aðalgeir Emil Arason Kjærbo Thor Guðni Arason Kjærbo Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINN KRISTJÁN PÉTURSSON, Kirkjubrekku 8, Álftanesi, lést á heimili sínu föstudaginn 2. febrúar. Útför hans fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 14. febrúar klukkan 15. Sigurborg Kristjánsdóttir Halldór S. Sveinsson Hulda G. Bjarnadóttir Kristján G. Sveinsson Sandra Lind Valsdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANNA ÁSGEIRSDÓTTIR, Grandavegi 41, lést á dvalar- og húkrunarheimilinu Grund laugardaginn 3. febrúar. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 12. febrúar klukkan 13. Ragnheiður Ásta Magnúsd. Konráð Lúðvíksson Ásgeir Magnússon Ásthildur Lárusdóttir Björn Magnússon Guðrún Jónsdóttir Jens Magnússon Gerður Kristjánsdóttir Torfi Magnússon Lilja Þórisdóttir Þorbjörg Magnúsdóttir Gylfi Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.