Morgunblaðið - 08.02.2018, Side 34

Morgunblaðið - 08.02.2018, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Við erum á fullu að taka uppÓfærð 2,“ segir BörkurSigþórsson leikstjóri sem á 40 ára afmæli í dag. Von er á fram- haldi sjónvarpsþáttanna í nóv- ember en Ófærð sló í gegn hér á landi og úti um víða veröld. „Þetta er sama sögusviðið fyrir norðan en atburðirnir gerast meira í sveitinni í Siglufirði en minna í bænum sjálfum. Við byrj- uðum í tökum í október fyrir norð- an en erum búin að taka upp þar og það er farið að síga á seinni hlutann hjá okkur. Núna erum við að taka hér í Reykjavík og þá að- allega í stúdíói.“ Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sig- urðsson verða öll á sínum stað í Ófærð 2 en stór hópur nýrra leik- ara kemur í þáttinn eins og Unnur Ösp Stefánsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir og Steinn Ármann Magn- ússon. Þættirnir verða tíu eins og í fyrri þáttaröðinni. Börkur leik- stýrði þá tveimur þáttum en leikstýrir núna fjórum og aðrir leik- stjórar eru Ugla Hauksdóttir, Óskar Þór Axelsson og Baltasar Kormákur, sem leikstýra tveimur þáttum hver. „Baltasar er framleiðandi og skapari þáttanna, mætti segja og stýr- ir lögninni á þessu. Við vinnum öll náið saman í undirbúningi fyrir tökurnar en svo þegar á hólminn er komið vinnur hvert okkar sjálft að sínum þætti en við vitum hver ramminn er. Svo hefur Sigurjón Kjartansson, handritshöfundurinn, yfirumsjón með þessu og passar upp á samhengið.“ Annars er Börkur að klára sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, en það er spennumyndin Vargur. „Hún er á lokametrunum í eftirvinnslu, en við skutum hana í byrjun 2017. Hún er með Gísla Garðarssyni og Baltasar Breka og framleiðendur eru Baltasar Kormákur og Agnes Johansen. Börkur gerði fyrir nokkrum árum hina stórgóðu stuttmynd Come to Harm sem Björn Thors lék aðalhlutverkið í. „Sú mynd lagði að ein- hverju leyti grunninn að Vargi og þetta eru svipaðir heimar, en Varg- ur er hreinræktuð spennumynd meðan Come to Harm varð að drama undir lokin.“ Börkur ætlar að bíða með að fagna afmælinu. „Ég er alveg á kafi í vinnu núna og ætla að bíða fram í mars með að fagna afmælinu, en ég fer kannski út að borða í kvöld.“ Á fullu við að leikstýra Ófærð 2 Börkur Sigþórsson er fertugur í dag Leikstjórinn Börkur Sigþórsson. J ensína Lýðsdóttir fæddist á Víganesi í Árneshreppi á Ströndum 8.2. 1968, ólst upp á Djúpavík fram að fermingu en þá flutti fjöl- skyldan á Skagaströnd: „Æskuslóð- irnar voru óneitanlega afskekktar en náttúran þar er stórbrotin og ægifögur. Ég var í heimavistarskóla á Finnbogastöðum. Þar voru 12-14 nemendur en ég var ein í mínum árgangi og fermdist ári fyrr svo fermingarbörnin yrðu þrjú talsins. Ég var samt aldrei einmana. Ég á fjölda systkina sem ég lék mér við og við lékum okkur við krakk- ana á nærliggjandi bæjum. Svo kom krakkaskari alltaf til sum- ardvalar. Afi var með eina kú, fjárbúskap og hænsni á Djúpavík og rak auk þess verslunina á staðnum, en Jensína Lýðsdóttir forstöðumaður – 50 ára Fjölskyldan Jensína og Guðfinnur Bjarni með börnunum, Telmu Dögg, Birgittu Rut og Patrik Snæ, heima í garði. Strandamaður í félags- stússi við ysta haf Stór systkinahópur Jensína með foreldrum, systkinunum sjö og mökum. Reykjavík Apríl Björk Krist- jánsdóttir fæddist 22. febrúar 2017. Hún vó 3.220 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Birgitta Dröfn Sölvadóttir og Kristján Óðinn Unnarsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.