Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 35

Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 35
pabbi stundaði sjóinn, var með salt- fiskverkun og einnig rækjuvinnslu. Maður byrjaði að vinna þegar mað- ur gat. Það var alltaf nóg að gera og engum varð ekkert meint af því að taka til hendinni.“ Á Skagaströnd var Jensína í Höfðaskóla, fór 16 ára til Reykja- víkur, stundaði nám við FB og lauk þaðan stúdentsprófi 1990. Þá flutti hún aftur á Skagaströnd, kenndi þar einn vetur, stundaði versl- unarstörf um skeið og vann í Póst- húsinu á Skagaströnd. Jensína hóf fyrst störf á skrif- stofu sveitarfélags Skagastrandar árið 1990, hóf þar fasta vinnu árið 1995 og sinnti þar ýmsum störfum til 2007. Þá hóf hún störf hjá Vinnumálastofnun og hefur starfað þar síðan. Hún var skrifstofustjóri þar 2007-2013 og hefur síðan verið forstöðumaður Greiðslustofu At- vinnuleysistryggingasjóðs sem sér um atvinnuleysisbætur fyrir allt landið. Jensína hefur verið öflug í sveit- arstjórnarmálum frá 1994. Hún sat í sveitarstjórn sem varamaður eða aðalmaður frá 1994-2014, er for- maður félagsmálaráðs Austur- Húnavatnssýslu, hefur setið í fræðslunefnd, menningar- málanefnd, í stjórn foreldrafélags leikskólans og grunnskólans, setið í stjórn Leikfélags Skagastrandar og leikið þar nokkur hlutverk. Jensína er hannyrðakona sem hefur gaman af ferðalögum: „Við höfum verð mjög dugleg að ferðast um landið og ég held að ég hafi verið alls staðar á Íslandi nema í Grímsey. Mamma og amma kenndu mér að prjóna og síðan hef ég alltaf haft áhuga á hannyrðum. Ég saumaði einnig töluvert á árum áður og er svolítið að byrja á því aftur. Svo er notalegt að koma sér fyrir með góða bók, helst sakamálasögu eða góða ævisögu.“ Fjölskylda Eiginmaður Jensínu er Guð- finnur Bjarni Ottósson, f. 11.4. 1966, fyrrv. sjómaður. Hann er sonur Ottós Ákasonar, f. 12.6. 1921, d. 17.9. 2005, verkamanns á Djúpa- vogi, og k.h., Matthildar Jóns- dóttur, f. 11.7. 1942, d. 5.6. 2015, húsfreyju á Djúpavogi og síðast á Skagaströnd. Börn Jensínu og Guðfinns Bjarna eru 1) Patrik Snær, f. 24.4. 1991, vélfræðingur á Skagaströnd, en unnusta hans er Gréta María Halldórsdóttir; 2) Telma Dögg, f. 31.5. 1994, hárgreiðslukona í Reykjavík, en maður hennar er Sigurður Pétursson smiður, og 3) Birgitta Rut, f. 25.3. 2001, fram- haldsskólanemi við MK. Kötturinn á heimilinu heitir Ronja og er fjög- urra ára, gæf læða. Systkini Jensínu eru Fjóla, f. 2.4. 1964, húsfreyja í Reykjavík; Sigríð- ur Halla, f. 24.7. 1965, starfar á sambýli, búsett í Hafnarfirði; Svan- hildur, f. 10.9. 1966, skrif- stofumaður í Reykjavík; Eiríkur Gunnar, f. 20.6. 1970, sjómaður á Skagaströnd; Reynir, f. 11.3. 1974, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar- ins á Skagaströnd; Ásdís, f. 3.9. 1982, mannfræðingur og starfs- maður við sjúkrahús á Englandi, og Guðni Már, f. 21.4. 1984, sjó- maður á Skagaströnd. Foreldrar Jensínu eru hjónin Guðbjörg Eiríksdóttir, f. 24.2. 1943, húsfreyja á Skagaströnd, og Lýður Hallbertsson, f. 21.5. 1936, sjómað- ur og útgerðarmaður á Skaga- strönd. Jensína Lýðsdóttir Jón Magnússon b. í Fögrubrekku Bjarnveig Friðriksdóttir húsfr. í Fögrubrekku, systurdóttir Þórðar, afa Þórðar Ólafssonar, fyrrv. form. verkalýðsfélagsins Boðans í Þorlákshöfn Fjóla Jónsdóttir húsfr. á Víganesi Guðbjörg Eiríksdóttir húsfr. og fiskvinnsluk. á Djúpavík og á Skagaströnd Guðmundur Eiríkur Lýðsson útvegsb. á Víganesi í Árneshr. á Ströndum Jensína G. Jensdóttir húsfr. í Víganesi Lýður Lýðsson b. í Víganesi Jensína Guðrún Eiríksdóttir húsfr. í Rvík Sæunn Eiríksdóttir sjúkraliði í Rvík Guðný Eiríksdóttir skrifstofum. í Rvík Sigrún Eiríksdóttir starfsk. á leikskóla í Rvík Ingibjörn Hallbertsson sjóm. í Rvík Guðbrandur Þorleifur Hallbertsson sjóm. í Súðavík Bárður Karl Hallbertsson útgerðarm. á Djúpavík, síðar verkam. á Akranesi Ármann Ásgeir Hallbertsson framkv.stj. í Hafnarfirði Sjöfn Gréta Kristinsdóttir húsfr. á Mýrum í Borgarfirði Jón Eiríksson húsasmiður í Rvík Borghildur Svanlaug Þorláksdóttir húsfr. í Hafnarfirði Trausti Sveinbjörnsson rafiðnfræðingur og fyrrv. landsliðsm. í frjálsum, í Hafnarfirði Þorlákur Guðbrandsson b. í Veiðileysu Annes Svavar Þorláksson sjóm. og vélstjóri í Hafnarfirði Margrét Sigurðardóttir húsfr. í Arnardal Þorleifur Jónsson b. í Arnardal í Skutulsfirði Sigríður Þorlína Þorleifsdóttir húsfr. í Veiðileysu og á Djúpavík Kristinn Hallbert Guðbrandsson b. í Veiðileysu og kaupm. í Djúpavík á Ströndum Kristín Magnúsdóttir húsfr. í Veiðileysu Guðbrandur Guðbrandsson hreppstj. í Veiðileysu Úr frændgarði Jensínu Lýðsdóttur Lýður Hallbertsson sjóm. í Djúpavík og síðar á Skagaströnd Guðmundur Þ. Jónsson fyrrv. form. Landssambands iðnverkafólks og borgarfulltrúi ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining á sótthitabreytist eftir aldri? Thermoscaneyrnahita- mælirinnminnveit það.“ Braun Thermoscan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 100 ára Jensína Guðmundsdóttir 85 ára Ásta Guðmundsdóttir 80 ára Einar J. Guðjónsson Harpa Þorvaldsdóttir Kristján Kjartansson Trausti Björnsson 75 ára Halldór Gunnarsson Valur Kristinn Guðmundsson Ægir Kristinsson 70 ára Ársæll Baldvinsson Gunnþór E. Sveinbjörnsson Hildur Bjarnadóttir Jóhanna Brynjólfsdóttir 60 ára Danfríður G. Kristjánsdóttir Fanney Óskarsdóttir Ingibjörg Agnete Baldursdóttir Jerzy Kowalski Jóna Margrét Jónsdóttir Marek Piotr Pigulski Ragnar Heiðar Harðarson Rannveig Haraldsdóttir Sigursveinn Eggertsson Sveinbjörn Ólafsson Þór Örn Jónsson 50 ára Arnar Eysteinsson Eiríkur S. Jóhannsson Ethel Aquilla Soon Heiðrún Lára Jóhannsdóttir Jensína Lýðsdóttir Karl Ómar Karlsson Sigrún A. Þorsteinsdóttir Sigurður Björnsson Sólrún Adda Elvarsdóttir Stefán Stefánsson Sveinn Bergmann Rúnarsson Vigfús Jóhannesson Þórður Sigríksson Þröstur Sverrisson 40 ára Arna Guðrún Tryggvadóttir Baldvin Reyr Gunnarsson Bjarni Valur Guðmundsson Börkur Sigþórsson Helga Pálmadóttir Magnús Geir Guðmundsson Ola Ewa Kapral 30 ára Anna Maria Smolinska Arnar Dan Kristjánsson Atli Björn Helgason Árni Jón Gíslason Fannberg Ásmundur Ólafsson Birta Dögg Ingud. Andrésdóttir Deivis Liaugminas Elísabet María Guðmundsdóttir Florent Gast Íris Arna Hermannsdóttir Jasmina Ilievska Kristján Már Gunnarsson Marinó Þorbergsson María Sif Albertsdóttir Rafal Danowski Ragna Þorsteinsdóttir Sigrún Skaftadóttir Sigurður Árni Magnússon Vilhjálmur Þór Gunnarsson Wojciech Grzegorz Górski Til hamingju með daginn 30 ára Vilhjálmur ólst upp í Garðabæ og að Urr- iðafossi, býr í Reykjavík, lauk BA-prófi lauk prófi í alþjóðamarkaðsfræði, vann við áhættuleik og starfar hjá Origo. Bróðir: Garðar Darri Gunnarsson, f. 1993. Foreldrar: Þorbjörg Vil- hjálmsdóttir, f. 1957, kennari við FSU, og Gunn- ar Þór Garðarsson, f. 1964, deildarstjóri hjá Furu á Akureyri. Vilhjálmur Þór Gunnarsson 30 ára Sigrún ólst upp í Kópavogi, býr í Reykjavík, stundar nám við Háskól- ann á Bifröst og er plötu- snúður á eigin vegum. Maki: Axel Aage Schiöth, f. 1988, framreiðslumað- ur í Grillinu á Hótel Sögu. Dóttir: Snæfríður Björk, f. 2017. Foreldrar: Sigríður Haga- línsdóttir, f. 1952, kennari, og Skafti Halldórsson, f. 1951, kennari. Þau búa í Kópavogi. Sigrún Skaftadóttir 30 ára Kristján býr í Reykjavík, lauk BA-prófi í sagnfræði, BA-prófi í rit- list, MA-prófi í hagnýtri menningarmiðlun, MSc- prófi í markaðsfræði frá HÍ og er markaðsfulltrúi á auglýsingastofu. Maki: Erla Baldursdóttir, f. 1990, nemi og vinnur á sambýli. Foreldrar: Anna Krist- jánsdóttir, f. 1965, og Gunnar Már Ármanns, f. 1964. Kristján Már Gunnarsson  Vanik Shahnazaryan hefur lokið doktorsprófi í eðlisfræði við Há- skóla Íslands og ITMO-háskólann í Sankti Pétursborg. Ritgerðin nefnist Sameiginleg skammtafyrirbæri und- ir sterkri víxlverkun milli ljóss og efnis Andmælendur voru dr. Alexander Poddubny, vísindamaður við Ioffe stofnunina í Sankti Pétursborg, Rússlandi, og dr. Jerome Tignon, prófessor við eðlisfræðideild Ecole Normale Superieure, Paris Sciences et Lettres (PSL) Research Univers- ity í París, Frakklandi. Leiðbeinandi var Ivan Shelykh, prófessor í eðlisfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, og aðrir í doktorsnefnd voru Snorri Ingvarsson og Hafliði Pétur Gísla- son, prófessorar við Raunvís- indadeild Háskóla Íslands. Víxlverkun milli ljóss og efnis er ört vaxandi þverfræðilegt rannsókn- arsvið sem sameinar aðferðir og fyrirbæri þéttefnifræði og skammtaljósfræði. Eitt algengasta fyrirkomulag kerfa til að öðlast sterka víxlverkun notfærir sér mis- munandi hálfleiðarastrúktúra af lágum víddum sem annaðhvort i) eru settir inn í örholrými eða ii) eru settir í sterkt ljóssvið. Seinna fyrirkomulagið leiðir til mynd- unar svokallaðra blandaðra einda, svo sem i) ljósskauteinda og ii) klæddra ástanda. Í þessari ritgerð eru mismunandi fjölhluta skamm- taáhrif í fyrrnefndum kerfum skoð- uð fræðilega en þau innihalda 1) Flúrljómunarróf rafsegul- klæddra ósamhverfra skammta- punkta 2) Terariðsleysun frá samansafni ósamhverfra skammtapunkta í klæðningarsvið 3) Bose-Einstein þéttinga af óbeinum örveindum í uppsetningu tvíljósskauteinda 4) Víxlverkun milli örveinda í örv- uðum ástöndum í skammtabrunnum 5) Víxlverkun milli örveinda í örv- uðum ástöndum í einföldum lögum af TMDC (e. transition metal dichalcogenides). Vanik Shahnazaryan Vanik Shahnazaryan fæddist í Armeníu árið 1991. Hann öðlaðist meistaragráðu í örrafeindatækni í Rússnesk-armeníska háskólanum í Jerevan árið 2014. Umfjöll- unarefni meistararitgerðarinnar var „Tvær rafeindir í skammtahring á kúlu“. Hann hóf doktorsnámið árið 2014 við Háskóla Íslands, í sameinaðri doktorsstöðu sem er að hluta í ITMO háskólanum í Sankti Pétursborg í Rússlandi. Hann er núna nýdoktor við ITMO-háskólann. Doktor mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.