Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018
Ármúla 24 • S. 585 2800
Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16
www.rafkaup.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Bryddaðu upp á einhverju nýju til
að setja lit á tilveruna. Kvöldinu er best
varið heimavið. Að endurnýja auðlindir sín-
ar felst í fleiru en að birgja sig upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að létta á hjarta þínu og
skalt gera það við einhvern þér nákominn.
Hugsanlega kemstu á snoðir um leynd-
armál og faldar upplýsingar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sköpunargáfa þín er einstaklega
mikil í dag. Hvernig væri að skella sér á
námskeið? Leitaðu upplýsinga næstu daga
og skráðu þig svo.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hlustaðu á eðlisávísun þína þegar
kemur að máli sem snertir þig og þína
nánustu. Þú hefur náð langt en staldrar
sjaldan við og hrósar sjálfum þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er góður tími til að gera alvar-
legar skuldbindingar sem varða almenna
stefnu lífsins. Leggðu þig allan fram því
þannig muntu ná mestum árangri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu óhræddur við að blanda þér í
umræður annarra um þau mál sem þér eru
hjartfólgin. Njóttu svo afrakstursins og
leyfðu þínum nánustu að vera með.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hlustaðu vandlega á aðra, líka þá sem
tala fyrir skoðunum sem þér eru á móti
skapi. Þótt þér séu allir vegir færir þarftu
eins og aðrir að fá hrós og gagnrýni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt það sé freistandi að
leggjast í leti skaltu ekki láta það eftir þér.
Fylgdu eðlisávísun þinni. Ekki láta rugling
koma í veg fyrir að þú þorir að tjá þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er góður dagur til að tala
við yfirmanninn. Reyndu endilega að gera
eitthvað nýtt og spennandi. Ef einhver vill
létta undir með þér skaltu þiggja það með
þökkum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að gaumgæfa
langtímamarkmið þín. Samræður við systk-
ini eða náinn vin geta komið þér á sporið
en treystu eigin dómgreind.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sama hversu ómerkilegt starfið
þitt virðist, þá geturðu ekki klikkað ef þú
leggur þig allan fram. Dekraðu við sjálfan
þig í kvöld.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver sem minnir þig á sjálfan
þig getur hrært við þér meira en nokkur
annar, bæði á neikvæðan og jákvæðan
hátt.
Gunnar J. Straumland birtirþessa vel kveðnu mannlýsingu
á Boðnarmiði undir dróttkvæðum
hætti:
Höfuðskelin hefur
heila nokkuð veilan,
gefið lítt af gáfum,
giska fátt um visku.
Tunga framhjá tengir
tali er hann malar,
kviður tómar kveður,
kvæðafjöld án gæða.
Jón Thoroddsen yrkir „klambur“ í
anda langömmu sinnar:
Lífsneistann kann að kveikja
klamburlaust tunnu að beykja
en eitt særir mest
í ævinnar lest
hve seint var ég byrjaði að reykja.
Sem olli því, að Dagbjartur Dag-
bjartsson rifjaði upp vísu eftir vin
sinn Vigfús Pétursson:
Allsstaðar sér maður undrandi fólk
á þessum dreifbýlisköllum.
Þeir djöfla í sig kjöti og drekka svo mjólk
en drepast þó síðast af öllum“.
Þetta megum við margir reyna í
ellinni! Gunnar J. Straumland yrkir:
Eitt sinn var mín æðsta von og þrá
um alheimsfrið,
en núna, færri næturferðir á
náðhúsið.
Philip Vogler skýrði frá því 4.
febrúar að glitský hefðu sést á Norð-
austurlandi í þrjá daga samfleytt og
sagði: „Við gönguferð áðan flaug
mér þetta í hug. Er það nokkuð yfir-
drifið lof á viðfangsefni Boðnmjað-
arbúa?“
Augun hafa yndi af litum
eins og tunga af góðum bitum.
Græðum á að gramsa í ritum,
gegnum ljóðin meira vitum.
Böðvar Björgvinsson fylgist vel
með og nefnir dæmi þess að gamalt
orðtak fái nýtt inntak:
Í orkuþörf telja menn vindorkuver
vísast að duga myndi,
en leitin að staðnum, hún efalaust er
eftirsókn eftir vindi.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir
og undir þetta getum við fleiri tekið:
Ungum var mér áður kennt
yfir dyggð að vaka.
Þó mig stundum hafi hent
hliðarspor að taka.
Þorsteinn Mikaelsson Mjóanesi
orti:
Sanna má það séra Hjálmar sómasnjalli
að verra er að gæta vífs á palli
en vakta hundrað ær á fjalli.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mannlýsing, klambur
og dreifbýliskarlar
„ÞESSAR MYNDIR ERU FRÁ „LÝSINGIN
AFTAN FRÁ“ TÍMABILINU HANS.“
„ÁTTU NOKKUÐ ÖRYGGI TIL AÐ LÁNA
MÉR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að láta hann upplifa
hlutina sem þú gerðir
ekki sem krakki.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
UH, LÍSA?
DÆS… LÚTUR NOTAÐI
„Á“-ORÐIÐ Í DAG!
JÁ?
EN ER ÞAÐ EKKI
GOTT?
ÉG FRAUS, VAR
ÞAÐ EKKI?
ÉG ER EKKI VISS UM AÐ „ÁBYRGГ
FYRIR LÁNI SÉ GOTT!
EINS OG
KJÚKLINGUR
AÐ KYNGJA
KEILUKÚLU
Hefur þetta einhver áhrif á mig?“spurði Víkverji áhyggjufullur
þegar hann frétti af skyndilegu
hruni á verðbréfamörkuðum erlend-
is. Hinir árvökulu viðskipta-
blaðamenn Moggans voru fljótir að
slá á áhyggjur hans. „Áttu hlutabréf
erlendis?“ Nei, ekki gat Víkverji
sagt það. Þá þurfti hann ekki að
hugsa meira um það þann daginn.
x x x
En þó að Víkverji hafi ekki þurft aðfara út í búð að þessu sinni til
þess að hamstra Ora grænar baunir
í dós, er ekki þar með sagt að hann
sé fyllilega sannfærður um það að
allt sé í lagi. Hver veit, heimsendir
gæti alveg verið í nánd, og þá væri
nú verra að vera ekki með nægar
birgðir af helstu fæðuhópum. Alltént
þeim sem seldar eru í niðursuðudós-
um. Ætli ca. tuttugu muni ekki
nægja þar til Víkverji kemst út í
búð?
x x x
Víkverja vantar að vísu góðan ogdjúpan kjallara til þess að
geyma dósirnar í, en það er seinni
tíma vandamál. „Ávallt viðbúinn“
eru kjörorð Víkverja, og var hann þó
aldrei skáti. Nei, hann vildi einu
sinni verða skáti, en skólaheimsókn
á Úlfljótsvatn, þar sem krakkarnir
voru látnir ganga heillengi úti í
blindbyl, læknaði hann af öllum slík-
um dillum. Þetta voru ekki allt sam-
an bara varðeldar og söngvar sko.
Svo hefur Víkverji aldrei verið neitt
sérstaklega slyngur með reipi eða
hnúta. Hann kann varla að reima
skóna sína enn þann dag í dag. Allt
vegna þess að hann var látinn mars-
éra í hríðarbyl um hávetur við Úlf-
ljótsvatn.
x x x
En það mun kannski ekki skiptamáli hérna í framtíðinni, þegar
Víkverji hefur lifað af einhverjar
heljarinnar hörmungar, vopnaður
engu nema niðursuðudósum, skóm
með frönskum rennilás og svo kjall-
aranum sem hann mun líklega neyð-
ast til þess að grafa sjálfur með ber-
um höndum. Bara að Víkverji muni
ekki gleyma dósaopnaranum þegar
hörmungarnar ríða loksins yfir. Það
væri nú verra.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor-
ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort.
(Sálm: 68.20)