Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is S tefnt er að því að kafa í nokkrar ár á Vestfjörðum næsta haust og telja í þeim villta laxa og athuga um leið hvort þar sjást eldislaxar. Sjáist þeir verða þeir veiddir. Svona er farið að á hverju ári í fimmtíu ám í Noregi, að sögn Leós Alexanders Guðmundssonar, líffræðings hjá Hafrannsókna- stofnun. „Von- andi fáum við styrk til að skoða þetta. Við höfum sent umsókn í umhverfissjóð sjókvíaeldis. Við sóttum líka um í fyrra en fengum ekki jákvætt svar þá,“ sagði Leó. En stafar íslenskum villtum laxi ógn af fiskeldi, að mati Leós? „Alveg klárlega, það er ekki spurning,“ sagði Leó. „Mín stofnun [Hafrannsóknastofnun] hefur gefið út skýrslu um áhættumat á erfða- blöndun. Þar eru lagðar ákveðnar línur um hvað megi ala mikið af laxi og á hvaða svæðum. Einnig eru tald- ar upp mótvægisaðgerðir. En í meg- inatriðum tel ég að íslenskum laxi stafi ógn af norskum laxi sem alinn er í sjókvíum hér við land. Sér- staklega laxastofnum á eldissvæðum sem eru ekki inni í áhættumatinu. Erfðablöndun getur dreifst út fyrir eldissvæðin með strokulöxum úr eldi en einnig vegna blendinga villts lax og eldislax frá eldissvæðum. Rannsóknir sýna einmitt að blend- ingar hafa verri rötun en villtur lax og geta því gengið í ár til hrygn- ingar langt frá sinni heimaá.“ Mikið af seiðum í litlum ám Leó hélt erindi á málþingi um erfða- fræðileg áhrif laxeldis á villta laxa- stofna sem var haldið 1. febrúar. Er- indi hans fjallaði um erfðablöndun eldislax og náttúrulegs lax á Vest- fjörðum. Hann kynnti m.a. nið- urstöður rannsókna á útbreiðslu lax- fiska á svæðinu frá Súgandafirði í norðri til Rauðasands í suðri. Er mikið um laxfiska þar? „Já, þar er mikið af laxfiskum. Við höfum mælt mikinn þéttleika af laxaseiðum í átta ám á svæðinu. Seiðaþéttleikinn sem við mældum t.d. sumarið 2016 var alveg á pari við það sem sjáum í góðum laxveiðiám. Árnar fyrir vestan eru stuttar og standa því ekki undir stórum stofn- um eins og stórar laxveiðiár,“ sagði Leó. Leó sagði margt enn á huldu um líffræði laxins á þessu svæði. Í svona litlum ám eru þess dæmi að laxarnir séu haustgöngulaxar. Þeir eru ekki í ánum á laxveiðitímanum heldur ganga í árnar til hrygningar á haustin. Haustgöngur laxa eru þekktar sums staðar erlendis. Þetta er eitt af því sem þarf að skoða, að mati Leós. Bóndi í Arnarfirði sagði honum að lax í ám í Ketildölum í Arnarfirði væri einmitt haustgöngu- lax. Sé laxinn haustgöngulax þá get- ur það verið ein ástæða þess hvað lítið er vitað um laxinn á þessu svæði. Leó telur víst að villtur lax hrygni víða á svæðinu og gangi í árnar ýmist á sumrin eða að hausti. Laxveiði er t.d. í Sunndalsá í Arn- arfirði og Staðará í Súgandafirði. Þar gengur því lax á veiðitímanum. Vestfirskir laxar erfðahópur Erfðasamsetning stofna á Vest- fjörðum gefur til kynna að þeir myndi sérstakan erfðahóp og séu skyldari hver öðrum en laxastofnum í öðrum landshlutum. Leó sagði að betri greiningu þyrfti á stofngerð villtra laxa á Vestfjörðum. Íslenski laxastofninn hefur mesta erfðafræðilega sérstöðu allra laxa- stofna í Evrópu. Norski laxinn til- heyrir annarri þróunarlínu. Sýnt hefur verið fram á erfðablöndun villtra laxa og eldislaxa í nágrenni eldissvæða á Vestfjörðum, eins og kom fram í skýrslu Hafrann- sóknastofnunar sem gefin var út í fyrra. Sú staðreynd ógnar líf- fræðilegri fjölbreytni og getur vald- ið því að villtu laxastofnarnir á svæðinu hverfi í þeirri mynd sem þeir eru nú, að sögn Leós. Hann sagði engar rannsóknir styðja það að slík blöndum hefði jákvæð áhrif heldur þvert á móti. Því væri brýnt að rannsaka hver staðan væri og grípa til aðgerða til verndar íslenska villta laxinum. Aðskilja á eldislax og villtan Aðalfyrirlesari á málþinginu var dr. Kevin Glover við Hafrann- sóknastofnunina í Noregi og Há- skólann í Bergen. Hann er einn af fremstu vísindamönnum Noregs á sviði erfðablöndunar eldislax og náttúrulegs lax og vöktunar á erfða- fræðilegum áhrifum laxeldis. Leó sagði að dr. Glover hefði birt fjölda vísindagreina, væri mjög virtur á heimsvísu og að það hefði verið hval- reki að fá hann hingað. Að sögn Leós kom staðan á Íslandi dr. Glo- ver mjög á óvart og hann taldi að hér væri verið að taka mikla áhættu. „Glover fór yfir stöðuna í Noregi og endaði fyrirlestur sinn á að segja að það yrði að aðskilja eldislaxa frá villtum löxum. Það verður að gerast með eldisaðferðinni eða með því að gera eldislaxana ófrjóa,“ sagði Leó. Ýmsar aðferðir eru til að gera eld- islaxa ófrjóa. Sú sem mest hefur verið rædd er að þrýstings- meðhöndla hrognin þannig að þau verði þrílitna og þar með ófrjó. Leó sagði að eldi á þrílitna laxi hefði reynst misvel og því hefðu fylgt ýmis vandamál. Það krefðist meiri aðgæslu en eldi frjórra laxa. Brýnt væri hins vegar að hefja til- raunir með eldi á ófrjóum laxi sem fyrst og þróa það fyrir íslenskar að- stæður. Laxeldi ógnar villta laxastofninum Leó Alexander Guðmundsson, líffræðingur hjá Haf- rannsóknastofnun, segir mikið af laxfiskum í litlum ám á Vestfjörðum. Þær verði að rannsaka betur. Ljósmynd/Leó Alexander Guðmundsson Fossfjörður Dufansdalsá rennur í Fossfjörð sem er inn úr Arnarfirði. Laxeldiskvíar eru framan við ármynn- ið. Haustgöngulax gengur mögulega í ána til hrygningar. Ljósmynd/Leó Alexander Guðmundsson Seiði Tvö efstu seiðin eru urriðaseiði en þau neðri eru laxaseiði. Seiðin eru úr Bakkadalsá í Ketildölum í Arnarfirði. Myndirnar voru teknar sumarið 2016. Leó Alexander Guðmundsson Ljósmynd/Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir Trostansfjörður Leó Alexander Guðmundsson, líffræðingur, við rafveiðar í Norð- dalsá. Áin rennur til sjávar í Trostansfirði sem gengur inn úr Arnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.