Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 43

Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 43
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 43 Bandaríkjum. „Það var ævintýri að vera í New York. Norðmennirnir voru með margra hæða hótel í Bro- oklyn fyrir sjómenn. Þarna voru líka danskar, sænskar og norskar ráðningarskrifstofur og frá fleiri löndum með störf fyrir sjómenn,“ sagði Markús. Hann fékk pláss á norska skipinu Acadia. Þeir lestuðu kol í Norfolk og sigldu með þau til Muroran í Japan með viðkomu í Honolulu þar sem tekin var olía. „Þar með hafði ég lokað hringnum í kringum hnöttinn árið 1957,“ sagði Markús. Friðrik bróðir hans var orðinn stýrimaður hjá United Fruit Company (UFC), sem var um- fangsmikið í bananarækt. Skipin sigldu undir fána Hondúras en all- ur aðbúnaður eftir bandarískum kröfum. Markús sagði að vel hefði verið búið að mannskapnum. „Þetta var eins og fimm stjörnu hótel, enda voru þeir með eitthvað af farþegum líka.“ Lauk farmannaprófi 1960 Markús fékk bréf frá Friðriki bróð- ur sínum sem sagðist vera orðinn leiður á að hafa litla bróður sem hásetablók hjá Norðmönnum. „Ég er búinn að ráða þig sem 3. stýrimann þegar þú ert búinn með skólann,“ skrifaði Friðrik. Markús sagði það ekki hafa hvarflað að sér fram að því að fara í Stýrimanna- skólann. Hann dreif sig heim 1958 og fór í undirbúningsdeild og lauk farmannaprófi vorið 1960. Þá fór hann til New York og varð 3. stýrimaður á syk- urskipi frá UFC, S.S. Toltec. Þeir gerðu út fimm sykurskip sem voru eins og gamli Tröllafoss. Markús var ekki lengi á sykurskipinu og var þá ráð- inn á svonefndan bananabát, ban- anaflutningaskip. Hann sigldi hjá þeim næstu fimm árin og sneri þá heim 1965, alkominn. Næstu átta árin starfaði hann við ýmislegt í landi. Þá fór hann aftur á sjóinn. Fyrsti túrinn er eftirminnilegur. „Ég fór einn túr á Selfossi til Bandaríkjanna. Við lágum í New Jersey þegar rafmagnið fór af norðausturríkjunum. Það bara slökknaði á Manhattan! Það var dá- lítið sérstakt að sjá það,“ sagði Markús. Hann leysti af sem stýri- maður á elsta Herjólfi 1974 og um haustið varð Markús skipstjóri á flutningaskipinu Hvalsnesi sem Skapti Skúlason gerði út. Þeir voru í flutningum í Norðursjónum, Eystrasaltinu og suður í Miðjarð- arhaf. Skapti keypti annað skip, Frendo Simbi, og sigldi Markús því m.a. með sprengju- og vopnafarm til landa í Afríku og við Persaflóa. Þá var nýbúið að opna Súez- skurðinn aftur eftir átta ára lokun í kjölfar sex daga stríðsins 1967. Afleysingaskipstjóri víða Steypustöðvarnar keyptu dæluskip- ið Perlu. Markús var skipstjóri á því í um tvö ár. Þá keypti Kristinn Guðbrandsson í Björgun skipið. Markús var eftir það mikið í afleys- ingum á hinum og þessum skipum, meðal annars hjá Pálma Pálssyni sem átti útgerðina Nes. Hann var skipstjóri á Svaninum, sem var systurskip Hvalsness, og viðloðandi Nes til ársins 1999. Þá var Hauk- urinn, sem áður hét Freyfaxi og var sementsflutningaskip, seldur. Norskir kaupendur Hauksins báðu Markús að sigla honum suður í Karíbahaf. Þar var Markús með skipið í tæpt ár í malarflutningum, aðallega á milli eyjanna Curaçao og St. Martin, sem er hollensk-frönsk eyja. „Þeir vilja ekki nota sandinn af ströndunum sínum í steypu og flytja því inn steypumöl. Á Curaçao eru þeir að brjóta niður heilt fjall og flytja mölina út. St. Martin er lítil eyja. Maður er klukkutíma að keyra hringinn og hefur þá bæði verið í Hollandi og Frakkalandi! Við sigldum líka til Kólumbíu og menn með afsag- aðar haglabyssur gættu skipsins út af eiturlyfjarugl- inu,“ sagði Markús. Hann var hjá þessu norska skipafélagi í þrjú ár alls. Sigldi m.a. innan fjarða í Nor- egi með möl og sand fyrir norsku vegagerðina og steypustöðvar í Ósló. Markús sneri aftur heim og var þá dálítið í því að lóðsa erlend flutningaskip með áburð eða salt á hafnir á ströndinni. Hann var ráð- inn lóðs á flutningaskipinu Axel, sem gert var út frá Akureyri, en skipstjórinn var rússneskur. Skipið var með þrjá öfluga krana, sá stærsti gat lyft 52 tonnum. Skipið flutti m.a. flotbryggjur til margra hafna. Axel var einnig frystiskip. Markús leysti síðan af sem skip- stjóri á Axel og sigldi með frosið refafóður til Danmerkur. Þar tók skipið farm sem fluttur var til hinna ýmsu hafna landsins. Helga RE sótt til Taívans Markús fór einnig að ferja íslensk skip á milli landa. Hann sótti togarann Helgu RE 49 til Taívans árið 2009 fyrir Ármann Ármanns- son, útgerðarmann í Ingimundi hf. „Þetta var nýtt skip. Ásgeir S. Ásgeirsson var fyrsti stýrimaður með mér. Hann hafði áður farið með mér með gamla Haukinn í Karíbahafið og við höfðum báðir siglt mikið í Noregi. Þórarinn Sig- urbjörnsson hafði haft eftirlit með smíði skipsins og var yfirvélstjóri. Elísabet Rós Jóhannesdóttir, kona Þórarins, var kokkur. Það var al- veg lúxus að hafa Betu, hún stóð sig vel. Oft vantar kokkinn um borð þegar verið er að ferja skip. Ég get sagt þér að það eru al- gjörlega sálarlaus skip sem eru kokklaus. Það er varla hægt að bjóða mönnum upp á það. Venju- lega er lágmarksmannskapur, fjór- ir, um borð, en við vorum sex á Helgu RE. Hjálmar Halldórsson var fyrsti vélstjóri og Skúli Björn Árnason, vinur Ásgeirs, var „fjöl- miðlafulltrúi“ og hélt dagbók um ferðina,“ sagði Markús. Komið var við á Srí Lanka til að taka olíu og kost og einnig á Möltu. Heimsigl- ingin tók alls 56 daga. Markús var einnig skipstjóri þegar lystisnekkjan Amelia Rose var sótt í höfn nyrst í Kaliforn- íuflóa, Kyrrahafsmegin. Mexíkósk- ur auðjöfur lét smíða snekkjuna en missti hana vegna fjárhagserf- iðleika 2007. Þá komst hún í ís- lenska eigu. Siglt var suður til Pa- nama og í gegnum Panamaskurðinn til Fort Lauder- dale í Flórída. Þar fór snekkjan í klössun. Að henni lokinni fór áhöfn- in aftur út og sigldi snekkjunni til St. Johns á Nýfundnalandi og svo þaðan til Íslands. „Þetta er ábyggi- lega flottasta skip á Íslandi, snekkjan er öll úr útskornum harð- viði að innan,“ sagði Markús. „Það var gaman að sigla henni.“ Markús fór sem stýrimaður með Guðmundi Hafsteinssyni skipstjóra að sækja Gullfoss, sem nú heitir Sailor, til Englands. Nú síðast fór Markús sem stýrimaður á gömlu Dröfn RE þegar hún var ferjuð frá Las Palmas á Kanaríeyjum til Co- nakry í Gíneu í V-Afríku. Þórður Magnússon togaraskipstjóri var skipstjóri í þeirri ferð sem tók viku tíma. Markús fór út 12. desember og kom heim annan í jólum. Farsæll sjómannsferill „Ég hélt að þú ætlaðir að ráða mig til að sigla þegar þú hringdir,“ sagði Markús þegar hann tók á móti blaðamanni Morgunblaðsins. „Ég er alltaf tilbúinn að stökkva af stað, ef ekki sama dag og hringt er þá daginn eftir.“ Sjómannsferill Markúsar hefur verið farsæll. Hann kvaðst aldrei hafa lent í sjávarháska. Auðvitað voru oft brælur en skipin það góð að engin hætta var á ferðum. Markúsi þótti gott að sigla með Norðmönnum og átti langan feril á norskum skipum. Hann sagði að stundum liti hann á sig sem hálfan Norðmann eftir góð kynni af frændum okkar. Morgunblaðið/Eggert Skipstjórinn Markús Alexandersson fór fyrst til sjós fyrir um 66 árum. Hann hefur siglt um öll heimsins höf og verið skráður í skiprúm samtals í meira en hálfa öld. Markús er með skipstjórnarréttindin í gildi og siglir enn. Ljósmynd/Úr einkasafni Í siglingum Markús var 3. stýrimaður á sykurflutningaskipi United Fruit Comp- any, S.S. Toltec, árið 1960, þá nýútskrifaður úr farmannadeild Stýrimannaskólans. 1. stýrimaður var Jónas Þorsteinsson, sem síðar var lóðs í Panama-skurðinum. „Við fórum í saltfisktúr á Halanum. Ég hugsaði hvað ég væri að gera þarna, kominn úr hita- beltinu og norður undir heimskautsbaug!“ Hlíðasmára 11 (neðanverðu) | 201 Kópavogur | Sími 551-3000 | hermann@ledlysing.is Meira öryggi og afköst með ® Blue Line IP67 Series A-II Einstakur ljósstyrkur www.rightlux.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.