Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Líney Sigurðardóttir skrifar frá Þórshöfn F rá áramótum er búið að landa um 13 þúsund tonnum af loðnu hjá Ís- félaginu á Þórshöfn, þar af hafa um 1.400 tonn verið fryst en annað far- ið í fiskimjölsverksmiðjuna,“ segir Siggeir Stefánsson, framleiðslustjóri Ísfélagsins á Þórshöfn. Skipin liggja nú í landi vegna þess að mjög lítið bættist við úthlutun á loðnu og verður því sem eftir er haldið eft- ir fyrir hrognatöku sem hefst í lok febrúar. Skip Hafrannsóknastofnunar hafa mælt magn loðnu í sjónum undanfarið og síðasta föstudag gaf stofnunin út að ekki yrði mælt með nema 77 þúsund tonna viðbót- arkvóta. Í samtali við Siggeir kemur fram að þetta séu mikil vonbrigði fyrir bæði fyr- irtæki, starfsmenn og sveitarfélög sem stóla á tekjur og vinnu við vinnslu á loðnu- afurðum. „Á loðnuvertíðinni í fyrra kom í ljós þegar leið á vertíðina að það var miklu meira af loðnu í sjónum alls- staðar í kringum landið en stofnunin hafði mælt fyrir og í byrjun vertíðar. Það vekur furðu að ekki skuli vera hægt að mæla loðnustofninn með nákvæmari hætti með þeirri aðferð sem beitt er við loðnurann- sóknir í dag, samanborið við fyrri aðferðir. Í ljósi niðurstöðunnar í fyrra hefði verið eðlilegt og sjálfsagt að stofnunin hefði far- ið í greiningu á því hvað hefði farið úr- skeiðis og hvað hefði mátt gera betur í samvinnu við útgerðirnar.“ Loðnuvertíðin endaslepp eftir tillögu Hafró Ljósmyndir/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Siggeir segir niðurstöðu Hafrannsóknastofnunar mikil vonbrigði fyrir þá sem stóli á loðnuna. Siggeir Stefánsson Ísfélag Vestmannaeyja hefur verið í fararbroddi við vinnslu á loðnu- hrognum á Íslandi í gegnum tíðina. Sömu aðilarnir hafa keypt hrogn af Ísfélaginu í nokkra áratugi og hafa myndast sterk og góð viðskiptabönd. Markaðir fyrir hrognin eru víða um heim og eru helstu markaðirnir í As- íu og Austur-Evrópu. Á Þórshöfn er verið að endurnýja frá grunni allan búnað við loðnu- hrognavinnslu félagsins og verður hún eftir þær breytingar með full- komnustu hrognavinnslum í heimi. Gert er ráð fyrir að nýja verk- smiðjan verði klár upp úr miðjum febrúar. Vinna Verið er að endurnýja allan búnað við loðnuhrognavinnsluna frá grunni. Með fullkomnustu hrognavinnslum í heimi Loðna Hrogn í vinnslu hjá Ísfélaginu. Í desember 2015 kom nýr bátur til hafnar á Þórshöfn þegar Ísfélag Vestmannaeyja hf. keypti Litlanes ÞH-3. Með í kaupunum fylgdu aflaheimildir og auk þess keypti félagið viðbót- araflaheimildir á síðastliðnu ári þannig að í dag eru þær um 900 þorskígildistonn á bátnum og er það að mestu þorskur. Haustið 2016 voru gerðar viðamiklar breytingar á bátnum þar sem hann var lengdur, byggt var yfir hann, sett mjög góð slægingaraðstaða um borð ásamt ýmsum öðrum minni breytingum. Eftir breyt- ingarnar er Litlanes betur útbúið á veiðar og til þess að koma með góðan fisk í land til vinnslu í frystihúsinu á Þórshöfn. Óhætt er að segja að koma Litlaness ÞH með þetta miklar aflaheimildir sé heilmikil lyftistöng fyrir stað eins og Þórshöfn þar sem skapast sex bein störf á sjó og í landi. Öllum þorskinum er landað til vinnslu í frystihúsi Ís- félagsins á staðnum og hefur það styrkt grunn- inn í rekstri þess. Hefur starfsmönnum verið fjölgað og eru þeir núna um 50 manns vegna aukins hráefnis sem berst til vinnslunnar. Ís- félagið gerir einnig út tvo togbáta til bolfisk- veiða sem landa afla sínum í frystihús félagsins í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn eftir þörfum. Flutti frá Garði til Þórshafnar Baldur Reynir Hauksson er skipstjóri á Litla- nesinu ÞH og hefur verið það frá byrjun. Hann gerir ráð fyrir að róa frá Djúpavogi út febrúar og hefur áhöfnin þar ágæta aðstöðu. Aflanum er ekið til Þórshafnar, þ.e. öllum þorskinum en meðafli fer á fiskmarkað á Djúpavogi. „Það er fínt fiskirí, stór fiskur, milli 5-6 kg meðalþyngd en tíðin hefur verið afar leiðinleg,“ sagði Baldur, „desember og janúar voru erfiðir mánuðir en Litlanesið er fínt sjóskip sem fer vel með mannskapinn.“ Baldur Reynir flutti úr Garðinum til Þórshafnar fyrir rúmlega tveimur árum þegar Litlanesið var keypt til Þórshafnar og leist vel á starfið og staðinn. „Ég var einn hér fyrsta árið en okkur leist vel á staðinn og eftir árið ákváðum við fjöl- skyldan að flytja alveg til Þórshafnar,“ sagði Baldur en fjölskyldan hefur nú keypt einbýlis- hús á Þórshöfn og unir þar hag sínum vel. Sex störf urðu til með Litlanesinu Á sjó Koma Litlaness hefur reynst mikil lyftistöng fyrir Þórshöfn. Landað er á staðnum, sem styrkir vinnsluna. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Ísfélag Vestmannaeyja hf. er eitt af stærstu sjávarútvegs- fyrirtækjum landsins með um 250 starfsmenn til sjós og lands. Það rekur frystihús og fiskimjölsverksmiðjur í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn og gerir út sex skip. Ísfélag Vestmannaeyja hf. var stofnað árið 1901 og er elsta starfandi hlutafélag landsins. Frystihúsið á Þórshöfn auglýsir laust starf: Vinnslustjóri Nánari upplýsingar veitir Siggeir Stefánsson framleiðslustjóri í síma 894-2608 eða í netfangi siggeir@isfelag.is. Umsóknir sendist eigi síðar en 20. febrúar 2018 á Eyrarveg 16, 680 Þórshöfn, eða á ofangreint netfang. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Menntunar og hæfniskröfur: · Nám í sjávarútvegi og/eða mikil reynsla af verkstjórn og mannahaldi · Þrautseigja og úthald · Skipulagshæfni · Sjálfstæði og hæfni í mannlegum samskiptum Starfssvið og helstu verkefni: · Dagleg stjórnun vinnslunnar í samráði við verkstjóra og framleiðslustjóra · Mannauðsmál · Umsjón gæðamála · Sérverkefni Vinnslustjóri vinnur náið með verkstjórum og framleiðslustjóra. Framleiðsla Ísfélagsins er vertíðarskipt. Á uppsjávarvertíðum er unnið á vöktum og þess á milli er unninn bolfiskur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.