Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 40

Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Hnakkaþonið – hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Háskól- ans í Reykjavík, þar sem þeir keppast við að þróa lausnir fyr- ir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki, fór fram fyrr á árinu. Í dóm- nefnd sátu Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group, Bylgja Hauksdóttir, umboðsaðili North Coast Seafoods Ltd., Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipa, Heiðrún Lind Marteins- dóttir, framkvæmdastjóri SFS, Jóhanna Vigdís Guðmunds- dóttir, framkvæmdastjóri tengsla í HR, Karl Már Einarsson, útgerðarstjóri Brims, og Þorgeir Pálsson, aðjunkt við við- skiptadeild HR. Í áskorun keppninnar að þessu sinni þurftu nemendurnir að finna leiðir til að auka sölu á sjófrystum ufsa til hótela og veitingahúsakeðja í Bandaríkjunum og var verkefnið þróað í samvinnu við Brim hf., Eimskip og umbúðagerðina Sam- henta. Liðið „Say Iceland“ bar sigur úr býtum, en það skipuðu þau Tinna Brá Sigurðardóttir, meistaranemi í mannauðs- stjórnun og vinnusálfræði, Sóley Sævarsdóttir Meyer laga- nemi, Julia Robin de Niet, skiptinemi í tækni- og verk- fræðideild, og Serge Nengali Kumakamba og Yvonne Homoncik, skiptinemar í lagadeild. Hópurinn mun heimsækja Seafood Expo North America, stærstu sjávarútvegssýningu N-Ameríku í Boston í mars, í boði Icelandair Group og sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi. Hópurinn lagði til að lögð yrði aukin áhersla á íslensk gæði, sjálfbærni og jafnt framboð allt árið um kring í mark- aðssetningu á ufsa á Bandaríkjamarkaði. Þróað verði nýtt vörumerki, „Say Iceland“, og byggð upp aðstaða til full- vinnslu í Portland í Maine í Bandaríkjunum, þar sem ufsinn verði marineraður, reyktur eða hjúpaður brauðraspi. Sérstök áhersla verði þá lögð á markaðssetningu á minni einingum fyrir mötuneyti háskóla, hjúkrunarheimila og vinnustaða. Sem dæmi um stærð þess markaðar bentu nem- endurnir á að yfir ein milljón nemenda sækti háskóla í New York-borg einni. Aukin áhersla verði þá lögð á markaðs- setningu beint til neytenda í framtíðinni. Beindu sjónum að lausnum í sjávarútvegi Morgunblaðið/Eggert Verðlaun Liðið fær að launum ferð til Banda- ríkjanna á sjávarútvegs- sýninguna í Boston. Gleði Liðsmenn „Say Ice- land“ gátu fagnað þegar úrslitin voru kynnt. Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við þór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Haf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.